Fréttablaðið - 24.11.2017, Blaðsíða 28

Fréttablaðið - 24.11.2017, Blaðsíða 28
Charles Manson, einn alræmdasti glæpamaður í sögu Bandaríkjanna, er látinn. Maðurinn sem sótti tólf sinnum um reynslulausn, án árang- urs, eftir að hafa verið dæmdur til dauða, síðan í lífstíðarfangelsi eftir afnám dauðarefsinga í Kaliforníu, mun því ekki sækja um reynslu- lausn á ný. Glæpum Mansons hafa verið gerð afar góð skil í gríðarlegum fjölda frétta, fréttaskýringa, greina, heimildarmynda, bóka og jafnvel í afþreyingarefni. Þannig hefur það í ótal skipti verið rakið að Manson fékk til liðs við sig áhrifagjarnt ungt fólk og innlimaði í hina svokölluðu Manson-fjölskyldu til að stuðla að heimsendastríði kynþáttanna sem hann nefndi Helter Skelter eftir lagi Bítlanna. Manson trúði því staðfastlega að kynþáttastríð væri óumflýjanlegt og vildi hann stíga upp úr öskunni sem leiðtogi nýs samfélags eftir stríðið. Hann reyndi því að flýta stríðinu með því að fá „fjölskyldu“ sína til þess að myrða níu manns, meðal annars leikkonuna Sharon Tate. Djöfulleg nærvera Glæpir Mansons og eðli þeirra urðu til þess að skapa honum einkenni- legt orðspor, jafnvel goðsagnakennt, í Bandaríkjunum. Þetta sást greini- lega á fréttum um andlát hans og veikindi. „Djöfulleg nærvera“ sagði í frétt AP. „Lifandi holdgervingur illsku“ sagði í sömu frétt, stuttu áður en hann lést. „Ein viðurstyggilegasta en jafnframt áhugaverðasta mann- eskja bandarískrar menningar“ skrifaði blaðamaður Rolling Stone. Bandarískir fjölmiðlar, sem og fjölmiðlar annarra landa sem hafa fjallað um þennan „holdgerving illsku“, eru þó ósamstiga um hvern- ig beri að lýsa Manson með tilliti til glæpa hans. Sumir miðlar kalla hann einfaldlega morðingja, rað- morðingja eða fjöldamorðingja  á meðan aðrir skrifa um „heilann á bak við morð sem skóku Kali- forníu“. Ekki er að undra mismuninn. Þótt Manson hafi vissulega verið sakfelldur fyrir morðin á sjö ein- staklingum drap hann engan sjálfur, að minnsta kosti ekki svo vitað sé. Um þennan mismun fjallaði Scott Bonn, prófessor í afbrotafræði við Drew-háskóla í Bandaríkjunum, í grein sinni í Psychology Today í mars 2014. Langlífur misskilningur „Hinn djöfullegi Manson er oft rang- lega kallaður raðmorðingi. Það er ekki rétt lýsing á glæpum hans. Samkvæmt alríkislögreglunni eru raðmorð „dráp á tveimur eða fleiri einstaklingum, framin af sama ein- staklingi, í aðskildum tilfellum“. Þau einkennast jafnframt af andlegu kælingarferli milli morða,“ skrifaði Bonn. Hélt hann því jafnframt fram að þetta kælingarferli væri einna mikil- vægast þegar kæmi að því að skil- greina raðmorðingja. Vegna þessa sé ekki hægt að skilgreina Manson sem raðmorðingja þar sem hann myrti ekki fórnarlömbin sjálfur og voru þau öll myrt á tveimur dögum. „En ef hann er ekki raðmorðingi, hvað er Manson þá?“ spyr Bonn í grein sinni áður en hann ber glæpi Manson-fjölskyldunnar saman við æðismorð. Slík morð hefur alríkislögreglan skilgreint sem dráp tveggja eða fleiri fórnarlamba en ólíkt fjöldamorðum eru þau ekki bundin við eina staðsetningu. Þá er þetta svokallaða andlega kælingar- ferli ekki hluti af skilgreiningunni. „Charles Manson var dæmdur fyrir sjö morð. Þetta er þrátt fyrir að hann hafi sjálfur aldrei drepið neinn. Hann bað fylgjendur sína um að myrða fyrir sig. Þetta er kallað leppmorð en það er skilgreint sem morð þar sem morðinginn sjálfur vinnur ódæðisverkið fyrir einhvern annan,“ skrifaði Bonn. Ef til vill er þessi skilgreining á Manson, sú að hann sé leppmorð- ingi og fylgjendur hans æðismorð- ingjar, mun nær lagi en að kalla hann rað- eða fjöldamorðingja. Morðinginn alræmdi sem drap aldrei neinn Charles Manson er látinn. Hans verður ekki minnst með hlýhug enda hataður í heimalandinu. NorDiCpHotos/AFp Þórgnýr Einar Albertsson thorgnyr@frettabladid.is Hinn alræmdi og hataði Charles Manson er lát- inn. Orðspor hans er goð- sagnakennt og honum hefur ítrekað verið líkt við djöfulinn sjálfan. Erf- itt er að skilgreina glæpi Mansons þar sem ekki er hægt að kalla hann rað- eða fjöldamorðingja eins og þó hefur ítrekað verið gert. Manson reyndi að flýta kynþáttastríði með því að fá „fjölskyldu“ sína til að myrða níu einstaklinga. lyftarar og hillukerfi www.velaborg.is velaborg@velaborg.is s. 414 8600 V Kíktu í heimsókn! Opið virka daga kl. 10-18 Laugardaga 11-15 Bíldshöfða 18 - 110 Reykjavík - sími: 557 9510 - www.patti.is Mosel VIÐ BÚUM TIL DRAUMASÓFANN ÞINN 900 útfærslur, engin stærðartakmörk og 3.000 tegundir af áklæðum Full búð af nýjum vörum! Verið velkomin í Verslun Guðsteins, Laugavegi 34 Síðan 1918 2 4 . n ó v e m b e r 2 0 1 7 F Ö S T U D A G U r26 F r é T T i r ∙ F r é T T A b L A ð i ð 2 4 -1 1 -2 0 1 7 0 4 :2 7 F B 1 0 4 s _ P 0 8 4 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 7 7 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 2 1 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 2 8 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 E 5 0 -E 6 C 0 1 E 5 0 -E 5 8 4 1 E 5 0 -E 4 4 8 1 E 5 0 -E 3 0 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 6 A F B 1 0 4 s _ 2 3 _ 1 1 _ 2 0 1 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.