Fréttablaðið - 24.11.2017, Blaðsíða 32
Tugir þúsunda barna hafast við í Zaatari-flóttamannabúðunum.
Fyrsti staðurinn til að henda niður tjaldi í útjaðri Al Mafraq eftir að hafa komið yfir frá Sýrlandi sólarhring áður. Þreyttur eftir næturlangan bíltúr með fjölskylduna frá Sýrlandi.
Leikvöllur flóttamannabarnanna í útjaðri Jerash.
Það eina sem þessi Sýrlendingur sem ég hitti í hliðargötu í Al Mafraq þráði var að komast aftur heim til Sýrlands.
fólkið í Sýrlandi en árin þar á
undan. Ekki bara náði ISIS um tíma
þriðjungi landsins á sitt vald, heldur
hefur rússneski flugherinn verið
iðinn við að jafna borgir og hverfi
uppreisnarmanna við jörðu. Það er
ekki nema von að fólk missi vitið og
vonina. Að börn nái ekki þroska, að
mannvonskan fái að vaxa óáreitt, að
engum sé treyst, við það að alast upp
í skugga stríðs í stríði.
Seinna um daginn, í mjúkri síð-
degissólinni, kom ég þó aftur. Náði
þá sambandi, náði myndum. Þarna
á mölinni voru menn að dytta
að druslum, börnin að leika sér í
heimagerðri rólu, konur að hita te.
Verið að setja upp enn eitt tjaldið.
Þegar druslan, 40 ára gamall Volvo
240, væri komin í lag var planið að
halda áfram suður til Amman, von-
andi snemma í fyrramálið, ekki til
að skrásetja bílinn eða sig sem flótta-
mann, heldur til að snapa vinnu, eiga
fyrir mat og bensíni. Bíða þangað til
stríðinu ljúki, og fara þá aftur heim.
Heim til Sýrlands.
Skólaganga var afgangsstærð,
öðruvísi en hjá þeim tugum þús-
unda sem dvöldu norðar og austar í
Zaatari-flóttamannabúðunum. Hátt
í hundrað þúsund manna tjaldbyggð,
sem Rauði krossinn og Flóttamanna-
hjálp Sameinuðu Þjóðanna slógu
upp. Girtum griðastað, tjaldbúðum
fyrir flóttamenn. Þarna er heilbrigð-
isþjónusta, skólar, sjoppur, sam-
tíningur til þess að búa til bærilegt
samfélag, með rakara, okurlánara
og sokkasölumann á næsta horni.
Samt er þetta auðvitað samfélag
án framtíðar. Og fyrir utan girðing-
una standa kyrrlátir eyðimerkur-
gulir skriðdrekar jórdanska hersins,
með byssunni miðað beint upp í
himininn, að tunglinu, til að minna
tjaldbúana á að þeir eru bara gestir
hérna í stutta stund á hótel jörð.
Morguninn eftir voru bara tvö
tjöld á lóðinni í Jerash. Sá sex ára var
farinn, örugglega með fulla vasa af
grjóti
Samt er þetta auðvitað
Samfélag án fram-
tíðar. Og fyrir utan
girðinguna Standa
kyrrlátir eyðimerkur-
gulir Skriðdrekar
jórdanSka herSinS.
↣
2 4 . n ó v e m b e r 2 0 1 7 F Ö S T U D A G U r30 F r é T T i r ∙ F r é T T A b L A ð i ð
2
4
-1
1
-2
0
1
7
0
4
:2
7
F
B
1
0
4
s
_
P
0
8
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
7
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
1
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
3
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
E
5
0
-B
F
4
0
1
E
5
0
-B
E
0
4
1
E
5
0
-B
C
C
8
1
E
5
0
-B
B
8
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
A
F
B
1
0
4
s
_
2
3
_
1
1
_
2
0
1
C
M
Y
K