Fréttablaðið - 24.11.2017, Blaðsíða 20
NáttúruverNd Auðveldara yrði
að ráða við aukið álag vegna fjölg
unar ferðamanna með heildstæðri
aðgangsstýringu á viðkomandi
svæðum til að koma í veg fyrir
hnignun náttúru svæðisins ef Mið
hálendisþjóðgarður yrði að veru
leika. Miðhálendi Íslands nær yfir
um fjörutíu prósent flatarmáls
landsins. Ef þjóðgarðurinn yrði að
veruleika yrði hann stærsti þjóð
garður í Evrópu en einnig einn af
stærstu þjóðgörðum sem hlutfall af
flatarmáli lands.
Miklar náttúruminjar
Miðhálendið á sér nokkra sérstöðu.
Bæði er um að ræða stærstu eyði
mörk í Evrópu en jafnframt er þetta
eitt stærsta samfellda landsvæðið í
álfunni þar sem ekki er föst búseta
allt árið um kring. Mannvirki á
þessu svæði eru fá og afar dreifð yfir
svæðið. Náttúruminjar svæðisins
eru hins vegar ófáar og einstæðar í
heiminum. Settar voru upp fjórar
sviðsmyndir um stjórn svæðisins
sem hægt yrði að vinna með áfram.
Framtíðarfyrirkomulag svæðis
ins hefur verið rætt innan stjórn
sýslunnar um langan tíma. Sam
hæfa þarf stjórnun svæðisins,
landnýtingu, vernd hálendisins
og hvernig uppbyggingu innviða
verður háttað á þessu svæði. Fjöldi
ferðamanna sem sækir miðhálendið
heim ár hvert hefur aukist gríðar
lega á síðustu árum og því brýnt að
stefna stjórnvalda verði klár sem
allra fyrst.
Til að átta sig á stærð mögulegs
þjóðgarðs á 21 sveitarfélag aðal
skipulagsáætlun sem nær inn á mið
hálendi Íslands, allt frá Borgarbyggð
í vestri til Djúpavogshrepps í austri.
Stjórnsýslan á leik
„Byggja þarf upp kjarnastarfsemi
sem fylgt getur eftir aukinni áherslu
á vernd hálendisins samhliða sjálf
bærri nýtingu sem rúmast innan
verndarsvæða,“ segir í áfangaskýrslu
nefndarinnar. Nefndin var skipuð
14. júlí, 2016 og var falið að kort
leggja svæðið innan miðhálendis
línu með tilliti til stofnunar þjóð
garðs, annaðhvort með stækkun
Vatnajökulsþjóðgarðs eða með
öðrum hætti.
„Ég lagði mikla áherslu á þetta í
mínu starfi sem umhverfisráðherra
og nú er kominn fyrsti áfanginn í
ljós. Unnið verði áfram úr þessu,“
segir Björt Ólafsdóttir. „Í stjórnar
sáttmála síðustu ríkisstjórnar var
ákvæði um að unnin yrði sérstök
áætlun um vernd miðhálendisins.
Mikil vinna er nú fram undan til að
svo megi verða að við sjáum þennan
þjóðgarð verða að veruleika.“
Leggjast gegn áherslu sveitar-
félaga
Í skýrslunni kemur fram að ein
helsta áhersla sveitarfélaganna
sé að þjóðgarður komi ekki í veg
fyrir þróun samgangna eða orku
flutninga um svæðið sem nauð
synlegt væri fyrir atvinnustarf
semi og þróun byggðar í landinu.
Guðmundur Ingi Guðbrandsson,
framkvæmdastjóri Landverndar,
segir það skipta miklu máli að
þjóðgarðurinn verði að veruleika
sem ein heild en leggst gegn orku
flutningum í lofti um svæðið. „Það
er alveg ljóst að við erum mótfallin
orkuflutningi með háspennulínum í
lofti á svæðinu. Einnig leggjumst við
gegn stórum mannvirkjum á svæð
inu eins og frekari virkjunum,“ segir
Guðmundur Ingi.
Einnig er talað um að tryggja skuli
óbeinan eignarrétt sem felst í veiði
og beit búfjár innan þjóðgarðsins.
Veiði á miðhálendinu hefur tíðkast
um langt skeið sem og að bændur
hafa sett á fjall sauðfé í miklum
mæli síðustu árhundruð. Að mati
Landverndar er það æskilegt með
þeim fyrirvörum að það komi ekki
niður á sjálfbærni svæðisins. „Hefð
bundin landnýting er eðlileg. Hins
vegar þarf að gæta að verndargildi
svæða og að nýting sé sjálfbær. Þetta
fyrirkomulag hefur að mestu gengið
ágætlega innan Vatnajökulsþjóð
garðs og því ætti sama fyrirkomulag
að geta gengið á þessu svæði. Ofbeit
er hins vegar aldrei ásættanleg,
hvorki á láglendi né hálendi.“
sveinn@frettabladid.is
Aðgangsstýring möguleg fyrir nýjan
miðhálendisþjóðgarð landsmanna
Nýr miðhálendisþjóðgarður myndi ná yfir fjörutíu prósent landsins, stærstu eyðimörk, stærsta jökul og stærsta landsvæði Evrópu
án samfelldrar búsetu. Alls á 21 sveitarfélag aðalskipulagsáætlun sem nær inn á svæðið eða allt frá Borgarbyggð í vestri til Djúpavogs-
hrepps í austri. Mun auðveldara yrði að stýra aðgangi fólks inn á hálendið með nýjum þjóðgarði þar sem eru einstæðar náttúruminjar.
Landvernd leggst gegn landnámi
lúpínu á miðhálendi Íslands.
Landverndarmenn vinna nú að
aðgerða áætlun til að stemma
stigu við dreifingu tegundarinnar
á miðhálendinu sem þeir segja
ágenga þar sem aðrar tegundir
víkja fyrir henni og einsleitni
gróðurs eykst með breyttri ásýnd
landsins. „Ég held að við ættum að
reyna að sameinast um að halda
lúpínu utan miðhálendisins,“ segir
framkvæmdastjóri Landverndar.
„Ef við erum sammála um að hún
eigi ekki heima einhvers staðar þá
sé það þar.“
1. Miðhálendisþjóð-
garður sem felur í sér að
stofnaður verði þjóð-
garður sem tekur til
þjóðlendna og friðlýstra
svæða innan mið-
hálendisins. Þjóðgarður-
inn yrði valddreifður en
með samræmda stefnu,
skipulag, leyfisveitingar
og stjórnsýslu.
2. Jöklagarðar, en sú
sviðsmynd felur í sér að
þjóðgarðar verði stofn-
aðir um friðlýst svæði og
jökla með möguleikum
á stækkun í samræmi við
opinbera stefnumótun
um verndun og nýtingu
lands.
3. Þjóðgarðar á mið-
hálendinu á núverandi
friðlýstum svæðum.
Byggir þessi sviðsmynd
á því að slíkir þjóðgarðar
hefðu hver eigið svæðis-
ráð. Hver garður tæki
jafnframt breytingum í
samræmi við náttúru-
minjaskrá, rammaáætlun
og aðra opinbera stefnu-
mótun.
4. Óbreytt fyrirkomulag.
✿ Mögulegar sviðsmyndir ✿ Leggst gegn landnámi lúpínu
2 4 . N ó v e M b e r 2 0 1 7 F Ö S t u d A G u r18 F r é t t i r ∙ F r é t t A b L A ð i ð
2
4
-1
1
-2
0
1
7
0
4
:2
7
F
B
1
0
4
s
_
P
0
8
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
7
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
2
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
2
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
E
5
0
-D
7
F
0
1
E
5
0
-D
6
B
4
1
E
5
0
-D
5
7
8
1
E
5
0
-D
4
3
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
B
F
B
1
0
4
s
_
2
3
_
1
1
_
2
0
1
C
M
Y
K