Fréttablaðið - 24.11.2017, Blaðsíða 68

Fréttablaðið - 24.11.2017, Blaðsíða 68
496 Anastasíus 2. varð páfi. 955 Játvígur sann- gjarni varð Englands- konungur. 1407 Lúðvík af Orléans var myrtur, sem hrinti af stað stríði milli Orléans og Búrgunda. 1507 Möðruvalla- réttarbót: Konungur staðfesti að allar réttarbætur Hákonar háleggs skyldu gilda á Íslandi. 1582 William Shake- speare giftist Anne Hathaway í Stratford- upon-Avon. 1859 Uppruni tegundanna eftir Charles Darwin kemur út. 1951 Þátturinn Óskalög sjúklinga hefur göngu sína í Ríkis- útvarpinu. Stjórnandi er Björn R. Einarsson. Þessi þáttur var á dagskrá vikulega þar til í október 1987. 1965 Jóhann Löve lögreglumaður finnst suður af Skjald- breiði eftir mjög víðtæka leit. Hann hafði verið á rjúpna- veiðum en villst í vonskuveðri. Í Öldinni okkar segir að útivist Jóhanns hafi verið allt að 70 klukkustundir og flestir hafi talið hann af. 1971 Lola Glaudini, bandarísk leikkona, á afmæli. 1972 Suðurlandsvegur milli Reykjavíkur og Sel- foss er formlega tekinn í notkun. Hann hafði verið endurbyggður og lagður bundnu slitlagi á sex árum. 1995 Stöð 3 hefur útsendingar. Hún sam- einast Stöð 2 tveimur árum síðar. 2000 Íslenska kvik- myndin Óskabörn þjóðarinnar er frum- sýnd. 2009 Kraftlyftingafélag Akraness er stofnað. 1986 Guðmundur Pétursson, íslenskur knattspyrnumaður, á afmæli. Merkisatburðir Shakespeare kvæntist á þessum degi. Okkar innilegustu þakkir til allra sem sýndu okkur hlýhug og vináttu við andlát og útför móður okkar tengdamóður, ömmu og langömmu, Höddu Benediktsdóttur Suðurtúni 11. Stefán Hans Stephensen Kristín Jóhanna Kjartansdóttir Lára G. Stephensen Jakob Svanur Bjarnason Eiríkur G. Stephensen María Gunnarsdóttir barnabörn og barnabarnabörn. Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, Anna Hermannsdóttir Víðilundi 20, Akureyri, lést 16. nóvember sl. Útförin fer fram frá Akureyrarkirkju föstudaginn 1. desember kl. 13.30. Hermundur Jóhannesson Þórunn Gunnarsdóttir Friðný Jóhannesdóttir Helgi Jóhannesson Stefanía G. Sigmundsdóttir Guðrún Jóhannesdóttir Hjalti Jóhannesson Fjóla Kristín Helgadóttir Lilja S. Jóhannesdóttir Unnar Jónsson barnabörn og barnabarnabörn. B jörgvin Franz Gíslason og Esther Jökulsdóttir ætla að ferðast með fólk aftur í tímann á jólatónleikum sínum þann 7. desember. Bæði heillast þau mjög af jólastemningunni sem ríkti í Ameríku á sjötta og sjöunda áratugnum og ætla þau að færa gestum sínum þá stemningu beint í æð í Gaflaraleikhúsinu. „Þetta er í raun jólasöngskemmtun en ekki bara tónleikar þar sem sögusviðið er í kringum1954. Þegar maður sér þessi kósíjól, sem Dean Martin og allir þessir kappar héldu, þá sér maður að þetta var allt svo kósí og allir virkuðu svo ham­ ingjusamir. Okkur langaði svo að búa þá stemningu til,“ segir Björgvin. Hann segir mikið lagt í alla umgjörð sýningar­ innar þar sem leikmynd og búningar ná að fanga þennan anda. „Fólki á að líða eins og það sé komið aftur í tímann. Vanalega væri fólk til dæmis beðið um að slökkva á farsím­ anum sínum fyrir svona skemmtun, en þar sem árið er 1954, þá er það algjör óþarfi.“ Persónur Björgvins og Estherar eru íslenskir tónlistarmenn sem hafa ferðast um Bandaríkin og skemmt ríka og fræga fólkinu, að eigin sögn. „Þetta er fólk sem er búið að vera að skemmta í Ameríku og kemur til Íslands til að færa alþýðunni „alvöru“ jól eins og þau kalla það. Þau eru svolítið yfirlætisfull, hann er drykk­ felldur og hún meðvirk. En á yfirborð­ inu er voða mikil gleði og gaman,“ segir hann og hlær. Aðspurður hvað það er sem heilli þau svona mikið við ameríska gamaldags jólastemningu segir Björgvin: „Bara það að horfa á þessi jól sem var verið að færa fram í bíómyndum þar sem allir voru í jólapeysum, með viskí, kakó og sykur­ púða og sátu fyrir framan arineldinn á meðan snjóaði úti. Það var allt svo ótrú­ lega kósí.“ Björgvin tekur fram að þau óski sér að fólk nái að gleyma sér í jólaamstrinu á sýningu þeirra. Þess má geta að úrvalslið tónlistarmanna verður þeim til halds og trausts á tónleikunum og aðstoðar þau við að flytja öll bestu jólalög sjötta og sjöunda áratugarins undir stjórn Aðal­ heiðar Þorsteinsdóttur. gudnyhronn@365.is Munu fara með fólk í ferðalag aftur í tímann Björgvin Franz Gíslason og Esther Jökulsdóttir ætla í desember að ferðast með fólk aftur í tímann um nokkra áratugi á jólaskemmtun sinni. Þau eru miklir aðdáendur amerískra jólalaga frá sjötta og sjöunda áratugnum og verður þeirri tónlist gert hátt undir höfði. Björgvin Franz og Esther ætla að færa fólki jólaanda sjötta áratugarins. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM Þau eru svolítið yfir- lætisfull, hann er drykkfellur og hún meðvirk. En á yfirborðinu er voða mikil gleði og gaman. Lee Harvey Oswald, meintur morðingi Johns F. Kennedy, 35. forseta Bandaríkj­ anna, var skotinn til bana í Dallas. Þetta gerðist þegar verið var að flytja hann frá lögreglustöð í Dallas yfir í fangelsi. Oswald var umkringdur lögreglumönn­ um þegar maður ruddist að honum og skaut hann með skammbyssu í kviðinn. Oswald var fluttur á sama sjúkrahús og Kennedy forseti lést á tveimur dögum áður. Á sjúkrahúsinu var gerð tilraun til að bjarga lífi Oswalds en án árang­ urs. Oswald var 24 ára þegar hann lést. Morðingi Oswalds reyndist vera maður að nafni Jack Ruby. Jack Ruby greindi síðar frá því að ástæðan fyrir að hann skaut Oswald hafi verið sú að hann var eyðilagður yfir morðinu á Kennedy og að hann hafði viljað forða Jackie Kennedy frá því að þurfa að fara í gegnum réttarhöld vegna morðsins á eiginmanninum. Þ EttA G E R ð i st 2 4 . n óV E M B E R 1 9 6 3 Lee Harvey Oswald var skotinn 2 4 . n ó v e m b e r 2 0 1 7 F Ö S T U D A G U r50 T í m A m ó T ∙ F r É T T A b L A ð i ð tímamót 2 4 -1 1 -2 0 1 7 0 4 :2 7 F B 1 0 4 s _ P 0 6 8 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 6 5 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 3 7 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 4 0 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 E 5 1 -2 B E 0 1 E 5 1 -2 A A 4 1 E 5 1 -2 9 6 8 1 E 5 1 -2 8 2 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 5 A F B 1 0 4 s _ 2 3 _ 1 1 _ 2 0 1 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.