Fréttablaðið - 24.11.2017, Blaðsíða 96
A-13
B-3
C-7
D-12
E-19
F-14
G-22
H-5
I-8
J-17
K-16
L-15
M-1
N-18
O-2
P-20
Q-21
R-4
S-11
T-10
U-9
V-6
Svör við þraut á blaðsíðu 76
SlegiSt um SkandinavíSka hönnun
Við Íslendingar elskum skandinavíska hönnun greinilega af mikilli
ástríðu og erum alveg til í að standa í löngum röðum og jafnvel takast
á við aðra Íslendinga um téða hönnun. Margir muna eftir þeim tryllingi
sem myndaðist í þjóðfélaginu þegar afmælisútgáfa Omaggio-vasans frá
Kähler mætti til landsins, þið vitið, þessi með bronsröndunum – það lá
við að allt færi á hliðina. Sömuleiðis þegar SØstrene Grene settu vegg-
hillur nokkrar í sölu. Í Kringlunni myndaðist röð og sögðu sjónarvottar
að legið hefði við slagsmálum.
eftirminnilegustu raðir okkar tíma
kleinuhringja-kaoS
Íslendingar eru feitasta þjóð Norðurlandanna, og því kom ekkert stór-
fenglega á óvart að stór hópur fólks safnaðist saman í röð fyrir utan fyrstu
verslun Dunkin’ Donuts kleinuhringjakeðjunnar hér á landi. Fólkið beið
bókstaflega í röð yfir nótt til að eiga möguleika á að fá gjafakort að fríum
kleinuhringjum. Krummi, kenndur við hljómsveitina Mínus, var þó ekkert
sérlega kátur með þetta húllumhæ allt saman og birti hárbeitta mynd af
sér að gefa kleinuhringjabúllunni fingurinn á Facebook-síðu sinni. Það er
kannski ástæðan fyrir því að verið er að loka þessum stað á Laugaveginum
samkvæmt nýjustu fregnum?
raðamaðurinn Steinar
Costco var opnað við gríðarlega
eftirvæntingu í maí síðastliðnum.
Eftir margra vikna fréttaflutning og
pískur fólks á milli um stórkostlega
lágt verðlag var fólk orðið gjör-
samlega snarbilað af spennu. Fáir
voru líklega jafn spenntir og hann
Steinar en hann var mættur fyrstur
af öllum og sat þolinmóður og
beið eftir því að verða hleypt inn í
amerísku paradísina Costco. Í haust
var H&M svo opnað í Kringlunni og
hver ætli hafi verið mættur fyrstur
þar? Jú, Steinar blessaður.
íSlendingar hættir
að fara utan?
Í mörg ár hefur
það reglulega
flogið fyrir að
sænski fata-
risinn H&M
sé alveg
við það
að opna verslun hér á landi og
skyndilega, eins og í góðum draumi
(eða martröð, fyrir þá sem pæla
í réttindum verkafólks), var bara
komið að því einn daginn að hausti
til – H&M í Smáralindinni, gjöriði
svo vel. Nú þarf enginn Íslendingur
að fara til útlanda framar. Hún
Freydís mætti manna fyrst og beið
lengi vel ein eftir að verslunin lyki
upp dyrum sínum, raunar beið hún
Freydís okkar blessuð í sólarhring.
gleymda leikfangið
Fyrir jólin í fyrra var eitthvert fyrir-
bæri sem nefnist „Hatchimals“ svo
ótrúlega vinsælt að það seldist
alls staðar upp og fólk var farið
að panta það dýrum dómum á
söluvefnum eBay. Á Korputorgi
myndaðist löng röð og áreiðanlegar
heimildir herma að stemmingin
hafi verið nákvæmlega eins og í
kvikmyndinni Jingle All the Way
með Arnold Schwarzenegger og
Sinbad í aðalhlutverkum. Eftir jól
kom svo í ljós að þetta leikfang
var algjört drasl sem virkaði ekki
neitt og er núna löngu gleymt. Það
verður spennandi að sjá hvaða leik-
fang vöðvamikill austurrískur dýnu-
sölumaður og póstburðarmaður
munu slást um fyrir næstu jól.
stefanthor@frettabladid.is
tjaldbúðir um miðjan vetur
Það er þó ekki einungis skandinavísk
hönnun sem fellur í kramið hjá
okkur Íslendingum heldur
virðist amerísk/þýsk hönnun
einnig eiga upp á pall-
borðið. Tískuvöruverslunin
Húrra á Hverfisgötu hefur
nú margoft bókstaflega
verið umsetin ungmennum
trylltum í að festa kaup á
Adidas-skóm hönnuðum
af rapparanum og tísku-
mógúlnum Kanye West. Eig-
endur verslunarinnar eru öllu
orðnir vanir í þessum málum en
mesta athygli vakti kannski það
þegar þeir fengu þessa eftirsóttu skó
í sölu í fyrsta sinn og hjá versluninni voru
settar upp tjaldbúðir og þar lifðu og hírðust nokkrir svokallaðir „hype-
beasts“ í tæpa tvo sólarhringa í skítaveðri um miðjan febrúar.
Í dag er Black Friday,
Svartur föstudagur
eða fössari, eða
hvað sem auglýs-
endur kjósa að kalla
þennan blessaða
dag. Honum fylgir
víða um heim mikill
verslunartryllingur
og raðir og því ætl-
um við að rifja upp
nokkrar slíkar hér á
þessum síðum.
lya.is
30% afsláttur af bætiefnum frá Gula miðanum
og einnig af öllum ilmum og ilmgjafakössum.
Aðeins 24. nóvember í verslunum Lyu.
SVARTUR
30%
afsláttur
FÖSTUDAGUR
af völdum vörum í verslunum Lyu
2 4 . N ó V E M B E R 2 0 1 7 F Ö S T U D A G U R78 L í F I ð ∙ F R É T T A B L A ð I ð
2
4
-1
1
-2
0
1
7
0
4
:2
7
F
B
1
0
4
s
_
P
0
9
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
9
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
0
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
0
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
E
5
0
-F
5
9
0
1
E
5
0
-F
4
5
4
1
E
5
0
-F
3
1
8
1
E
5
0
-F
1
D
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
7
B
F
B
1
0
4
s
_
2
3
_
1
1
_
2
0
1
C
M
Y
K