Fréttablaðið - 24.11.2017, Blaðsíða 35

Fréttablaðið - 24.11.2017, Blaðsíða 35
Víkjum sögunni að tímanum áður en internetið varð hluti af lífi okkar. Tímanum sem var, líkt og nútíminn, einnig upp- fullur af tilgangslausum hneykslis- málum og firringu. Ég vil víkja til áranna upp úr 1990. Ég var um það bil tíu ára gamall þegar Simpson- fjölskyldan fór í loftið á RÚV. Ég kunni varla ensku og skildi fáar tilvísanir í dægurmenningu, sem þættirnir voru svo ríkir af. En með hjálp íslenska textans og þolinmæði varð Simpson-fjölskyldan fljótlega ríkur þáttur af lífi mínu. Ég geng svo langt að tilnefna Simpson-fjöl- skylduna sem siðferðislegan áttavita minnar kynslóðar. Þetta eru stór orð, en ég held að það sé margt til í þeim. Simpson- fjölskyldan kenndi mér meira um samfélagslegt siðferði en fermingar- fræðslan. Ég lærði meira um spill- ingu innan stjórnmála, valdagræðgi og hagsmunavörslu af Simpson-fjöl- skyldunni en af nokkrum frétta- skýringarþætti eða samfélagskúrs í skóla. Það eru varla ýkjur að segja að Simpson-fjölskyldan hafi inn- prentað í mig, og jafnaldra mína, varanlega efahyggju gagnvart kapítalísku samfélagi og öfgum þess. Simpson-fjölskyldan, með sinni stöðugu og jöfnu gagnrýni á neysluhyggju, menningu fræga fólksins, stríðsrekstur, valdníðslu og önnur samfélagsmein, hefur alla tíð síðan verið lykill minn til að skilja samfélagið sem ég bý í. Fyrir allt sem aflaga fer í samfélaginu, og ekki síst okkar litla samfélagi hér á Íslandi, er hægt að finna litla dæmi- sögu úr Simpson-fjölskyldunni þar sem tekið var á sambærilegu máli. Í Simpson-fjölskyldunni var allt tekið fyrir: skyndilausnir stjórnmála- manna, reiður múgurinn, jójó-æði, ofríki heimskra hvítra karlmanna, óskilvirkni embættismannakerfis- ins, syndir feðranna, umhverfismál, kynferðismál og jafnvel mál sem varða stöðu kynþátta og uppruna. En hér skulum við staldra aðeins við. Hvar stóð Simpsons þegar kom að réttindum minnihlutahópa? Getur verið að víðsýnir og menntað- ir handritshöfundar þáttanna hafi kannski ekki alltaf verið umburðar- lyndir gagnvart fjölmenningarsam- félaginu? Ég spyr því að nú hefur brotist fram rödd ungs uppistand- ara sem nefnist Hari Kondabolu, sem er Ameríkani af suðurasískum ættum. Hefur hann, ásamt mörgum öðrum, lengi gert það að umtalsefni sínu að Apu, indverski okurbúða- eigandinn í Simpsons sem talsettur er af hinum hvíta Hank Azaria, sé illa gerð staðalímynd sem geri lítið úr fólki af indverskum uppruna. Um endanlegt réttmæti þeirrar gagn- rýni verður ekki fullyrt hér, en það sem er kannski merkilegast er sú staðreynd að gagnrýnin virðist hafa verið hundsuð árum saman þar til nú að hún fær loks að brjótast fram, meðal annars vegna nýrrar heim- ildarmyndar Konabolu, sem nefnist The Problem With Apu, sem margir af stærstu fjölmiðlum Banda- ríkjanna hafa fjallað um – og gerist það á svipuðum tíma og afhjúpanir um vafasamt siðferði ráðandi afla í amerískum afþreyingariðnaði gossa fram á samfélagsmiðlum. Þegar litið er á málið í gegnum þægindi bak- sýnisspegilsins verður manni eigin- lega að þykja það furðulegt að hinn indverski Apu hafi fengið að særa indverska innflytjendur óáreittur í næstum þrjátíu ár. En umfram allt hefur þetta fengið mig til að líta í eigin barm því sjálfur hafði ég aldrei leitt hugann að því hvort Apu væri særandi staðalímynd, fyrr en Hari Kondabolu benti mér á það. Ég hef treyst Simpsons of mikið. Og hér er ég loksins kominn að punktinum sem þessum pistli er ætlað að miðla. Kreddur og staðnaðar hugmyndir geta leynst víðar en í árþúsunda gömlum ritningum. Mér sýnist að málum sé frekar þannig háttað að öllum þeim öflum, sem ná að vera leiðandi fyrir siðferði síns tíma, getur reynst erfitt að sjá eigin misgjörðir. Vegna þess hve kaldhæðnir, snjallir og kýla-stingandi aðstandendur Simpson-þáttanna voru, þeim mun erfiðara hefur þeim reynst að líta í eigin barm og losa sig við Apu, sem í næstum þrjátíu ár hefur böggað minnihlutahópa í Bandaríkjunum og víðar. Ég dreg þann lærdóm af þessu að ekkert er yfir gagn- rýni hafið. Hvorki Biblían, Simp- sons, Southpark né myllumerki nútímans. Það gleymist oft að flestu því sem boðar siðferði er einn- ig ætlað að hafa skemmtanagildi, og stundum vefjast þessir hlutir hvor fyrir öðrum. Við Simpson- kynslóðina vil ég því aðeins segja: Við fengum gott uppeldi, en það var ekki fullkomið. Sama hversu kaldhæðinn, snjall eða gagnrýninn maður er á aðra, þá er það frum- skylda allra sem vilja boða góða siði að líta í eigin barm. Til Simpson-kynslóðarinnar Bergur Ebbi Í dag Ég geng svo langt að til- nefna Simpson-fjölskylduna sem siðferðislegan áttavita minnar kynslóðar. Reykjavík • Hallarmúla 2 • 563 6900 | Akureyri • Undirhlíð 2 • 430 6900 Mánudag til Laugardags Opnunartímar 10:00 - 18:00 BLACK FRIDAY! Af fart ölvum Allt að 50.000 Afslátt ur Af Sta r Wars drónu m 33% Afslátt ur 20.-25. nóvember 24. N óvem ber 2017 • B lack Friday tilboð gilda 20-25. nóvem ber eða m eðan birgðir endast. B irt m eð fyrirvara um breytingar, innsláttarvillur og m yndabrengl LOKADA GAR ÚTSÖLU Opið í da g og á morgun 10-18 Af tölvuvörum Allt að 50%Afsláttur S k o ð u n ∙ F R É T T a B L a ð i ð 33F Ö S T u d a g u R 2 4 . n ó v e m B e R 2 0 1 7 2 4 -1 1 -2 0 1 7 0 4 :2 7 F B 1 0 4 s _ P 0 7 0 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 6 3 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 3 5 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 4 2 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 E 5 1 -1 8 2 0 1 E 5 1 -1 6 E 4 1 E 5 1 -1 5 A 8 1 E 5 1 -1 4 6 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 3 A F B 1 0 4 s _ 2 3 _ 1 1 _ 2 0 1 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.