Morgunblaðið - 17.03.2017, Side 1
F Ö S T U D A G U R 1 7. M A R S 2 0 1 7
Stofnað 1913 65. tölublað 105. árgangur
EIN MEÐ
ÖLLU
Fullt verð 390 kr.
N1 kortatilboð
199 punktar
ÞETTA ER EKKI
HEFÐBUNDIN
SÝNING
FÖTIN, GREIÐSLAN,
MATURINN OG
FALLEGAR MINNINGAR
FERMINGAR 88 SÍÐURMENNING 38
„Eftir að við byrjuðum að aug-
lýsa húsnæðið í Katrínartúni 4 til
leigu í lok febrúar hefur fyrir-
spurnum fjölgað mikið. Byggingin
er rúmlega 13.000 fermetrar og á
níu hæðum, auk þriggja hæða
neðanjarðar,“ segir Gunnar Valur
Gíslason, framkvæmdastjóri Höfða-
torgs ehf., í samtali við Morgun-
blaðið, en þrjár efstu hæðirnar í
nýja skrifstofuturninum á Höfða-
torgi í Reykjavík hafa þegar verið
leigðar út, rúmu hálfu ári áður en
húsnæðið kemur til afhendingar.
Eftirspurnin er enn einn vitnis-
burðurinn um uppganginn á fast-
eignamarkaðnum á höfuðborgar-
svæðinu og kemur í kjölfar þess að
greiðlega gekk að leigja allar hæð-
irnar 15 í Norðurturninum við
Smáratorg í Kópavogi, sem tekinn
var í notkun í fyrravor. »6
Morgunblaðið/Eggert
Kranar Miklar framkvæmdir standa yfir í
námunda við turninn í Borgartúni.
Mikil eftirspurn
eftir rýmum í nýjum
skrifstofuturni
Magnús Arnar Jónsson, bóndi í
Krákuvör í Flatey, segir bryggjuna
í eynni líta afar illa út. „Margir
staurar eru orðnir mjög tæpir, bit-
ar hafa gefið sig og það þarf að
endurnýja dekkið,“ segir hann.
Í Morgunblaðinu á miðvikudag
lýsti Ingibjörg Birna Erlingsdóttir,
sveitarstjóri Reykhólahrepps,
áhyggjum af öryggi á bryggjunni
og brýnni þörf á endurbótum.
Undir það tekur Magnús. »14
Brýn þörf á viðgerð
á bryggjunni í Flatey
Áætlað er að árið 2016 hafi um 960
þúsund erlendir ferðamenn nýtt sér
bílaleigubíla á Íslandi (56% gest-
anna), samanborið við um 480 þús-
und árið 2014 (48%) og 166 þúsund
árið 2009 (33%). Þá er áætlað að 16
þúsund bílaleigubílar hafi verið í út-
leigu til erlendra ferðamanna í ágúst
í fyrra, en þann mánuð voru þeir
flestir.
Þetta er meðal þess sem fram
kemur í greinargerðinni „Akstur og
öryggi erlendra ferðamanna 2016“
sem birt hefur verið á heimasíðu
Vegagerðarinnar.
Fram kemur í greinargerðinni að
áætlað sé að erlendir ferðamenn hafi
ekið bíleigubílum alls um 540 millj-
ónir kílómetra á Íslandi árið 2016.
Það samsvarar meðalakstri um 45
þúsund heimilisbíla á Íslandi miðað
við 12 þúsund kílómetra akstur á ári.
Ef miðað er við 8 lítra meðal-
eyðslu bílaleigubílanna á hverja 100
kílómetra og eldsneytisverð að jafn-
aði 200 krónur á lítra má slá á að
eldsneytisútgjöld erlendra ferða-
manna vegna aksturs á bílaleigu-
bílum á Íslandi árið 2016 hafi numið
8,6 milljörðum króna. »10
Nær milljón ferðamenn óku
um á bílaleigubílum í fyrra
Morgunblaðið/RAX
Vinsælt Seljalandsfoss vekur ætíð
lukku hjá erlendum ferðamönnum.
Kolönd, sem er flækingur frá
Norður-Ameríku, hefur fært
þjóðarbúinu talsverðar tekjur, að
sögn Guðmundar Falk, fuglaáhuga-
manns og ljósmyndara í Sandgerði.
Kolöndin hefur verið í Keflavík.
Guðmundur hefur hjálpað hópum
fuglaskoðara frá Írlandi, Englandi,
Þýskalandi og Spáni sem hafa kom-
ið hingað til að skoða öndina. Í lok
mars er von á enn einum hópi. »4
Fágæt flækingsönd
skapar hér tekjur
Götumynd Hafnarstrætis og Tryggvagötu í
miðbæ Reykjavíkur hefur breyst mjög nú þegar
búið er að fjarlægja varnarplast sem þakti veggi
nýbyggingar sem reist er á þeim stað sem
Rammagerðin var til húsa um árabil, en það hús
var rifið seint í september árið 2015.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Ásýnd miðbæjar Reykjavíkur heldur áfram að breytast
Ómar Friðriksson
omfr@mbl.is
Reikigjöld farsímanotenda í löndum
Evrópusambandsins (ESB) og inn-
an Evrópska efnahagssvæðisins
(EES) leggjast af um miðjan júní.
„Þá getur venjulegur notandi í
venjulegri notkun farið um innan
svæðisins án þess að borga hærra
verð fyrir farnetsnotkun, þ.m.t. fyr-
ir síma og gagnaflutning miðað við
þá áskriftarpakka sem hann er með
heima hjá sér,“ segir Hrafnkell V.
Gíslason, forstjóri Póst- og fjar-
skiptastofnunar.
„Þetta eru frábær tíðindi fyrir
neytendur, því frá miðju ári greiða
þeir sama verð innan Evrópusam-
bandsins og hér heima á ferðalagi
sínu,“ segir Gunnhildur Arna Gunn-
arsdóttir, upplýsingafulltrúi Sím-
ans.
Innleiða á reglugerð ESB um af-
nám reikigjalda hér á landi vegna
aðildar landsins að EES. Þá munu
fjarskiptanotendur eingöngu greiða
samkvæmt gjaldskrá þess ríkis sem
símtal er hafið í án nokkurra við-
bótargjalda, að því gefnu að um
sanngjarna notkun sé að ræða.
Hrafnkell segir að afnám reiki-
gjaldanna marki vissulega tímamót.
Þau voru há en hafa verið að lækka í
þrepum mörg undanfarin ár. Síð-
asta skrefið á að stíga 15. júní næst-
komandi innan Evrópusambandsins.
Sama verð og heima
Reikigjöld á farsímanotkun verða lögð niður í júní í löndum ESB og á EES
Greiða ekki lengur hærra verð fyrir síma og gagnaflutning á ferðum í Evrópu
Afnumin
» Reikigjöldin heyra sögunni
til þegar um venjulega far-
símanotkun er að ræða en þak
gæti komið á stórnotkun.
» Fjarskiptaeftirlitsstofnun
Evrópu mótar tillögur um hvað
teljist sanngjörn notkun.
MReikigjöld síma »11