Morgunblaðið - 17.03.2017, Blaðsíða 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 17. MARS 2017
Opnið 8-17 virka daga.
Vetrartilboð á kuldagöllum
aðeins 14.500,-Litir: Gulur og blár – grár – dökkblár – rauður
Dvergshöfða 27 , 110 Reykjavík | www.blossi.is | blossi@blossi.is
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
Kolönd, sem er flækingsönd frá
Norður-Ameríku, hefur fært þjóð-
arbúinu talsverðar tekjur, að sögn
Guðmundar Falk, fuglaáhugamanns
og ljósmyndara í
Sandgerði. Kol-
öndin er vestræn
deilitegund af
korpönd og ákaf-
lega fágæt í Evr-
ópu. Hún hefur
komið hingað
undanfarin ár og
haldið sig í Kefla-
vík. Austræna
frænka hennar,
korpöndin, er
einnig flækingur hér og hefur oft
komið frá Evrópu og sést á Suður-
nesjum.
„Kolöndin hefur komið á Kefla-
víkina undanfarin 8-9 ár,“ sagði
Guðmundur. „Hún hefur skapað
Reykjanesbæ og ferðaþjónustunni
talsverðar tekjur. Hingað hafa kom-
ið fuglaáhugamenn bæði frá Am-
eríku og Evrópu til að skoða öndina
og taka myndir af henni. Hún er svo
sjaldgæf.“
Guðmundur hefur hjálpað hópum
fuglaskoðara frá Írlandi, Englandi,
Þýskalandi og Spáni sem hafa kom-
ið hingað til að skoða öndina. Nú í
lok mars er von á enn einum hópn-
um til viðbótar frá Írlandi að heim-
sækja kolöndina. Guðmundur hefur
ráðlagt þessu fólki um hvar það get-
ur gist og matast. Eins hefur hann
gefið því góð ráð um hvert það geti
farið á landinu til fuglaskoðunar.
„Fuglaskoðarar sem fara á milli
landa til að sinna áhugamáli sínu
eru yfirleitt vel stæðir og gera vel
við sig á ferðalögum,“ sagði Guð-
mundur. Hann kvaðst oft hafa velt
því fyrir sér hvað þessi eina önd
hefði skapað Íslandi miklar tekjur,
að ekki sé talað um aðra náttúru-
skoðun. „Sveitarfélögin á Reykja-
nesi mættu skapa betri aðstöðu fyr-
ir fuglaskoðara og aðra náttúru-
skoðara. Fyrirtækin á svæðinu fá
fullt af peningum út á fallegu nátt-
úruna okkar.“
Guðmundur sagði að ráðamenn
ríkis og sveitarfélaga þyrftu einnig
að hugsa vel sinn gang áður en þeir
samþykktu að láta verðmæt svæði,
með tilliti til náttúru og dýralífs,
undir stóriðju. Á þessum svæðum
gæti verið viðkvæmt dýralíf og jurt-
ir þótt almenningur vissi oft ekki af
því. Hann nefndi til dæmis Berg-
vötnin á Hólmsbergi við Helguvík. Í
næsta nágrenni er mikil stóriðju-
uppbygging og búið að loka leiðinni
að vötnunum.
„Ég sá þar oft tvö pör af þórs-
hönum þegar ég var drengur. Ætli
nokkur hafi pælt í því þegar þarna
var samþykkt stóriðja,“ spurði Guð-
mundur. „Nú er þórshaninn kominn
á gátlista og Ísland orðið ábyrgð-
araðili að þessum litla fuglastofni og
fleiri tegundum sem eru í hættu.
Þessir fuglar koma hingað til að
verpa og koma upp ungum. Það get-
ur vel verið að almenningi þyki
varpsvæði þeirra lítt spennandi en
þau eru mikilvæg fyrir fuglana og
stuðla að því að hingað komi ferða-
menn sem hafa áhuga á náttúru-
skoðun. Þannig geta þessi svæði
skapað tekjur þótt þau séu vernduð
fyrir stórframkvæmdum.“
Gjaldeyrisskapandi kolönd
laðar fuglaskoðara langt að
Fuglaskoðarar koma frá Evrópu og Ameríku að sjá önd
Ljósmynd/Guðmundur Falk
Kolönd Öndin heldur sig á sjó og er önnur af tveimur tegundum korpanda.
Heimahagar hennar eru í Norður-Ameríku en hún flækist hingað.
Guðmundur
Falk
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Stefnt er að opnun matvæla- og veitinga-
kjarnans Hlemms Mathallar í byrjun júní.
Framkvæmdir við breytingar á biðstöðinni
eru nú í fullum gangi og er stefnt að því að
þeim ljúki að fullu í byrjun maí.
Framkvæmdir við breytingar á húsinu
sem áður hýsti biðstöð Strætó hafa dregist
talsvert. Síðast stóð á byggingarleyfi sem
þarf til breytinganna. Óli Örn Eiríksson,
deildarstjóri hjá Reykjavíkurborg, segir að
húsið sé á viðkvæmum stað, vegna hinnar
miklu umferðar sem er í kringum það.
Vanda hafi þurft til verka við undirbúning-
inn. Byggingafulltrúinn í Reykjavík og Heil-
brigðiseftirlit Reykjavíkur hafi farið yfir
verkefnið og samræmt kröfur. Málið var
leyst um áramótin og fóru framkvæmdir þá
á fullt.
Húsið er að verða 40 ára og þurfti að ráð-
ast í mikið viðhald á því, að sögn Óla. Þá
þarf að gjörbreyta því að innan, koma upp
salernum, kaffistofu fyrir starfsfólk og
birgðageymslu. Leigutakarnir taka síðan við
og koma upp básum fyrir starfsemi sína.
Tíu fyrirtæki opna
Stefnt er að því að framkvæmdum á veg-
um borgarinnar verði að fullu lokið fyrstu
vikuna í maí og húsið verði þá afhent dóttur-
fyrirtæki Íslenska sjávarklasans, Hlemmi
Mathöll, sem mun reka það. Rafmagnið er
það eina sem gæti sett strik í reikninginn,
að sögn Óla. Verið er að fara yfir það með
Veitum hvort rafmagnstenging hússins sé
nógu öflug.
„Við áætlum að opna í byrjun júní. Fram-
kvæmdir ganga frekar vel núna og tíu
rekstraraðilar bíða spenntir eftir því að fá
aðstöðuna afhenta,“ segir Haukur Már
Gestsson, framkvæmdastjóri Hlemms Mat-
hallar. Reiknar hann með því að fyrirtækin
sem verða með starfsemi í húsinu komist
fljótlega inn til að byrja að koma sér þar
fyrir. Haukur segir mikilvægt að opna fyrri-
hluta sumars til þess að njóta góðs af ferða-
mannasumrinu.
Tíu fyrirtæki verða með rekstur í húsinu;
sælkeraverslanir og veitingastaðir. Meðal
þeirra er kjöt- og fiskverslun, mexíkóskur
veitingastaður, smárétta-, kokkteila- og
bjórbar, kaffibar og ísbúð. Nýjustu viðbæt-
urnar eru bakarí Brauð & co, víetnamskur
Banh Mi-samlokustaður og smurbrauðsstað-
urinn Jómfrúin.
Íbúar og ferðafólk bíða
„Það er gríðarlegur spenningur fyrir
þessu hjá fólkinu sem býr í hverfinu. Þarna
er þétt og vaxandi íbúðarbyggð en lítil
hverfisþjónusta í boði. Íbúarnir bíða eftir
nýjum veitingastöðum og matvörumarkaði,“
segir Haukur Már. Þá segir hann að ferða-
skipuleggjendur og hótel hafi verið að spyrj-
ast fyrir um starfsemina og vilji bæta
Hlemmi við sem áfangastað. Einnig fyrir-
tæki sem gefi út leiðarvísa fyrir ferðafólk.
Stefnt að opnun Mathallar í júní
Unnið á fullu við breytingar á biðstöð Strætó á Hlemmi Fyrirtækin bíða spennt eftir að komast
inn Brauð & Co, Jómfrúin og víetnamskur samlokustaður meðal fyrirtækja sem bætast í hópinn
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Framkvæmdir Iðnaðarmenn voru önnum kafnir á Hlemmtorgi í miðbæ Reykjavíkur þegar ljósmyndari Morgunblaðsins leit þar inn í gær.
Útlit er fyrir að veður breytist nokk-
uð á landsvísu næstu daga, en vetur-
inn mun minna vel á sig í dag. Ekki
er þó búist við mikilli úrkomu, heldur
gerir Veðurstofan ráð fyrir hæglátu,
björtu og köldu veðri.
Vindur verður á bilinu átta til
fimmtán metrar á sekúndu úr norðri.
Við suðurströndina verður vindur á
bilinu tíu til fimmtán metrar á sek-
úndu, en þar búast má við dálítilli
snjómuggu. Við Norður- og Austur-
ströndina verður aðeins lítils háttar
úrkoma, að sögn veðurfræðings.
Frosttölur munu að líkindum ná
upp undir tíu gráður, en kaldast
verður í uppsveitum norðanlands.
Um helgina hlýnar aðeins og úr-
koma eykst samhliða, sérstaklega á
Suður- og Suðvesturlandi. Þar má
búast við að hiti fari yfir frostmark
yfir daginn. Annars staðar má búast
við einnar til sex gráðu frosti.
Fram í næstu viku verður áfram
bjart og kalt og litlar líkur á öfgum í
veðri. jbe@mbl.is
Kalt, bjart og þurrt
víðast hvar á landinu
Fallegt vetrarveður næstu daga