Morgunblaðið - 17.03.2017, Blaðsíða 12
12 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 17. MARS 2017
15-60% AFSLÁTTUR
STÓRÚTSALA
Vara 28472
Fjölnota fræsi- og slípivél
Útsöluverð:11.850,- kr.
37%
Afsláttur
Dalvegi 10-14, 201 Kópavogi - Sími: 555-1212 - handverkshusid.is
Opið frá kl. 10 - 18 virka daga og 12 - 16 laugardaga
Magnús Heimir Jónasson
mhj@mbl.is
H
allfríður Eysteins-
dóttir hefur hannað
sjúkrabörur sem
henta íslenskum að-
stæðum og er hægt
að brjóta saman og bera á bakinu.
Hún er sjálf vön fjallgöngum og hef-
ur meðal annars verið í björgunar-
sveit. Hún fékk hugmyndina út frá
þeirri hugsun að þetta gæti nýst
fjallgöngufólki hér á landi. Sjálf hef-
ur hún verið með hópi á hálendinu
þegar fjallgöngumaður slasaðist og
biðu þau í fjóra klukkutíma eftir að-
stoð. Hún telur líklegt að ef sjúkra-
börunum sé komið fyrir í flestum
fjallaskálum megi auðveldlega að
koma í veg fyrir ofkælingu hins slas-
aða vegna þess hversu auðveldlega
er hægt að ferðast með þær. Sjúkra-
börurnar eru sérstakar og hægt er
að pakka þeim saman fyrir og eftir
notkun. Inni í börunum er sérstyrkt
plata til stuðnings við líkamann í
legu og þegar börurnar eru ekki í
notkun dregst platan eftir teinum
svo að hægt er að losa festingar.
Hægt er að brjóta börurnar saman í
þríbrot, bera á baki eða koma fyrir í
farangri og vega þær aðeins 4,9 kg.
„Ég hef verið mikið á fjöllum og ver-
ið í björgunarsveit áður. Það sem
maður verður var við er að það er
alltaf beðið eftir þessum hörðu skelj-
um (sjúkrabörum) sem koma með
þyrlu eða stórum jeppum,“ segir
Hallfríður.
Var viðstödd slys á fjöllum
Hallfríður segist sjálf hafa verið
viðstödd slys á hálendi Íslands þar
sem hún og aðrir þurftu að bíða í
fjóra tíma eftir aðstoð. „Oftast nær
þegar útkall er á fjöllum er nær-
liggjandi skáli. Ég fékk hugmyndina
út frá því að sjúkrabörurnar væri
hægt að hafa víða um landið.“ Þann-
ig gætu fjallgöngugarpar náð í bör-
urnar í fjallaskálann og komið þeim
slasaða í skjól. „Það er ekkert endi-
lega hægt að koma tveggja metra
börum á snjósleða á fullri ferð, bör-
urnar taka allan vindinn. Þyrlan get-
ur tekið langan tíma og sjúklingur
getur oft verið í mikilli hættu vegna
ofkælingar.“ Hún segir að ofkæling
sé ein hættulegasta váin þegar fólk
slasast á fjöllum. Börurnar henta því
vel ef hægt er að bera hinn slasaða í
nærliggjandi skála eða svo hann
þurfi ekki að liggja í snjó eða á
kaldri jörð.
Til sýnis á Hönnunarmars
Hallfríður hefur einnig hannað
vaðskálmar sem aðstoða fólk við að
komast yfir ár sem geta mætt fjall-
göngugörpum. „Það er hægt að setja
vaðskálmarnar utan um skó og
þannig er hægt að vaða yfir á.“
Hönnunarhugmyndirnar eru hennar
og hefur hún unnið að því að koma
börunum og vöðlunum á markað
gegnum fyrirtæki sitt Hallas ehf.
„Ég var með vörurnar til sýnis á al-
þjóðlegu ráðstefnunni Björgun í
Hörpu í október í fyrra.“ Hún segir
að börunum hafi verið sýnd mikinn
áhuga. Hún stefnir og fremst á ís-
lenskan markað og telur hún að ís-
lenskar björgunarsveitir og félög
geti notið góðs af því að hafa bör-
urnar meðferðis og hægt sé að koma
þeim fyrir í fjallaskálum víða. Bæði
Íslensk hönnun sem
gæti bjargað lífum
Hallfríður Eysteinsdóttir hefur hannað sjúkrabörur sem hægt er að brjóta saman
og ferðast með á bakinu. Þá hefur hún einnig gert vaðskálmar til að auðvelda
fjallagörpum að komast yfir ár á ferðum sínum um hálendið. Hún segir ofkælingu
vera helstu vána þegar slys ber að á fjöllum og telur að sjúkrabörurnar gætu kom-
ið mörgum að góðum notum. Sjúkrabörurnar hafa fengið CE-vottun hérlendis.
Létt Auðvelt er að ferðast með sjúkrabörurnar en þær eru 4,9 kg. á þyngd.
Hönnunarverðlaun Reykjavík Grape-
vine verða afhent í dag og hefst at-
höfnin klukkan 20. Verðlaunaafhend-
ingin fer fram á gistiheimilinu
Oddsson á Hringbraut 121 (JL hús-
inu). Afhent verða verðlaun fyrir
bestu vöruna, vörulínuna, fatahönn-
unina og fyrir verkefni ársins. Að at-
höfninni lokinni verður boðið upp á
léttar veitingar í boði Tuborg Gull. DJ
Ívar Pétur mun síðan þeyta skífum og
sjá um stuðið. Reykjavík Grapevine
og Hönnunarmars bjóða alla vel-
komna til þess að vera viðstödd verð-
launaafhendinguna og þiggja veigar
að henni lokinni. Hönnunarverðlaun
Grapevine er hluti af Hönnunarmars,
sem hefst formlega í næstu viku.
Vefsíðan Facebook: Reykjavík Grapevine Design Awards
Stuð! Þessir tveir héldu uppi heilmiklu fjöri á síðustu hönnunarverðlaunum.
Stuð, stemming og hönnun
hóp margra þekktra einstaklinga í
Bretlandi sem hafa gefið út barna-
bækur. Meðdómari hennar í Britain’s
Got Talent, David Williams, hefur
Breska söngkonan og módelið Alesha
Dixon ætlar að gefa út barnabók í ár.
Dixon varð fyrst fræg með R&B
þríeykinu Mis-teeq en hljómsveitin
lagði upp laupana árið 2005. Dixon,
sem nú er dómari í Britain’s Got Tal-
ent skrifaði undir samning við bóka-
útgáfufyrirtækið Scholastic um að
skrifa tvær bækur. Bækurnar munu
fjalla um unga stelpa sem heitir Aur-
ora Beam og er ofurhetja.
Vildi skapa sterka kvenpersónu
Dixon segir í samtali við breska
ríkisútvarpið BBC að sig hafi langað
til að skapa sterka kvenpersónu sem
ungar stelpur og strákar gætu litið
upp til. Hún staðfesti fréttirnar af
bókasamningi sínum á Instagram-
síðu sinni og ritaði að hún væri yfir
sig ánægð með að vera að byrjuð að
vinna að fyrstu bókinni. Áætlað er að
fyrsta bókin um Aurora Beam komi
út næsta vor. Dixon bætist þannig í
meðal annars gefið út fjölda barna-
bóka eins og Mr. Stink, Gangsta
Granny og Demon Dentist en þær
hafa verið geysivinsælar í Bretlandi.
Söngkonan og módelið Alesha Dixon ætlar að gefa út ...
Vinsæl Ferill Dixon fékk nýtt líf eftir að hún tók sæti í Britain’s Got Talent.
... ofurhetjubók fyrir ungar stelpur
Skannaðu kóðann
til að fara inn á
vefsíðuna.
Það verða sannkallaðir stórtónleikar í
Hofi á Akureyri, kl. 20 í kvöld þegar
Greta Salóme og Alexander Rybak
mæta ásamt rokkbandi, strengja-
sveit, dönsurum og kór. Gestum verð-
ur boðið upp á fjölbreytta tónlist, allt
frá poppi og rokki yfir í klassík, og
Greta og Alexander fara eflaust ham-
förum með fiðlurnar. Greta Salóme er
landsmönnum kunn, en hún hefur
keppt tvisvar í söngvakeppni Evr-
ópskra sjónvarpsstöðva fyrir Íslands
hönd. Alexander Rybak keppti árið
2009 fyrir Noreg í sömu keppni og
fór með sigur af hólmi. Í boði er 40%
afsláttur af miðaverði fyrir 12 ára og
yngri. Þau spila í Hörpu á morgun
laugardag. Miðar á tix.is og mak.is
Flugeldasýning með fiðlum
Morgunblaðið/Eggert
Fiðlufjör Alexander Rybak, sem vann Eurovision 2009, og Greta Salóme.
Eurovision-stjörnur sameina
krafta sína á Akureyri í kvöld