Morgunblaðið - 17.03.2017, Blaðsíða 16
16 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 17. MARS 2017
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
Á vettvangi Umhverfisstofnunar
er um þessar mundir unnið að frið-
lýsingu Kerlingarfjalla og er þess
vænst að málið verði komið í höfn
fyrir mitt þetta ár. Fjallaklasinn
er innan marka
Hrunamanna-
hrepps og nú er
unnið að endur-
skoðun á aðal-
skipulagi sveit-
arfélagsins þar
sem gert er ráð
fyrir friðlýstu
svæði í fjöll-
unum. Frestur
til að gera at-
hugasemdir við
skipulagstillöguna er ekki liðinn,
en að því loknu er undirbúnings-
vinnunni nánast lokið.
„Nú þegar njóta nokkrir staðir í
Kerlingarfjöllum landslagsverndar
og eru á svonefndum C hluta nátt-
úruminjaskrár. Sem umhverfis-
ráðherra talaði Sigrún Magnús-
dóttir fyrir friðlýsingu svæðisins
og við svöruðum því kalli. Það var
árið 2015 en áður höfðu verið tekin
nokkur skref til undirbúnings og
það starf nýttist í yfirstandandi
vinnu,“ segir Jón G. Valgeirsson,
sveitarstjóri Hrunamannahrepps, í
samtali við Morgunblaðið.
Stórbrotin líparít-
og móbergsfjöll
Sveitarstjórinn vekur athygli á
að á svæðinu séu heitir reitir
hverasvæða sem hafi verið skoð-
aðir með tilliti til orkunýtingar.
Nú séu þeir komnir í verndarflokk
rammaáætlunar. Allt þetta hafi
opnað augu fólks betur fyrir því að
hlúa beri að Kerlingarfjallasvæð-
inu sem sé ein af perlum sveitarfé-
lagsins.
Náttúra í Kerlingarfjöllum ein-
kennist af stórbrotnum líparít- og
móbergsfjöllum, sem sjást víða að.
Þar er háhitasvæðið sem skiptist í
þrjú meginsvæði og eru Hveradal-
ir þeirra þekktastir. Þá hefur hiti í
einum hveranna í svonefndum
Hverabotni mælst 145-150°C og er
það hæsta skráða mæling í hver á
Íslandi. Algengustu hverirnir eru
gufuaugu, soðpönnur og gufu- og
leirhverir. Margt fleira markvert
mætti nefna á þessu friðlýsingar-
svæði sem er alls 367 ferkílómetr-
ar að flatarmáli. Þekkt fjöll eða
tindar á svæðinu eru Loðmundur,
Fannborg, Höttur, Ögmundur og
Kerlingartindur og Snækollur,
sem er þeirra hæstur – 1.477
metrar.
Nýir möguleikar
Samráðshópur fólks frá Um-
hverfisstofnun og Hrunamanna-
hreppi vinnur að friðlýsingarferl-
inu – svo og fulltrúi Skeiða- og
Gnúpverjahrepps þar sem lítil
sneið af friðlýsingarsvæðinu í
Kerlingarfjöllum er innan afrétt-
arlands þeirrar sveitar. Hruna-
maðurinn Jón G. Valgeirsson segir
að friðlýsingin muni annars litlu
breyta viðvíkjandi þeirri starfsemi
sem þar er fyrir. Þjónustumiðstöð
svæðisins í Ásgarði verði áfram og
raunar sé starfsemin þar alltaf að
eflast og styrkjast og nýir mögu-
leikar að opnast enda gert ráð fyr-
ir hálendismiðstöð í Kerlingar-
fjöllum.
Hverir, soðpönnur og gufuaugu
Kerlingarfjallasvæðið verður friðlýst á næstunni Hrunamannahreppur svaraði kalli Aðal-
skipulagi verður breytt 367 ferkílómetrar eru undir Orkunýting á svæðinu í verndarflokki
Gil Hveradalir einkennast af djúpum giljum og skorningum - og þegar
studdaþoka læðist yfir verður landið á þessum slóðum sveipað dulúð.
Fegurð Á kraumandi háhitasvæðinu í Kerlingarfjöllum má finna og sjá ýmis
óvenjuleg litaspjöld, sem eru síbreytileg eins og annað í náttúrunni.
Jón G.
Valgeirsson
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Klasi Frá vinstri talið eru hér Loðmundur, Snækollur, Fannborg og loks lengst í suðri Ögmundur.
Hildur Vésteinsdóttir, teymis-
stjóri hjá Umhverfisstofnun, seg-
ir að margt þurfi að skoða og
taka með í breytuna þegar land-
svæði eru friðlýst. Útfærslurnar
á friðlýsingu séu breytilegar út-
færslur milli staða og fari til
dæmis eftir markmiðum friðlýs-
ingar, eðli svæðisins og sam-
komulagi við þá sem hagsmuna
eigi að gæta. Í Kerlingarfjöllum
muni til dæmis gilda mismun-
andi reglur á hverasvæðum, til
dæmis í Hveradölum, á þjón-
ustusvæðinu í Ásgarði og öðrum
hlutum verndarsvæðisins. Þá
fylgi friðlýsingu að umsjón með
svæðinu færist til Umhverfis-
stofnunar. Því fylgi aukin land-
varsla á svæðinu, sem væntan-
lega verði sinnt af þeim hafa
umsjón með friðlýstum svæðum
á Suðurlandi.
Breytilegar
útfærslur
AUKIN LANDVARSLA
N Ý F O R M
h ú s g a g n a v e r s l u n
Komið og skoðið úrvalið
Strandgötu 24 | 220 Hafnarfjörður | Sími 565 4100 | nyform.is
Klassísk gæða húsgögn
á góðu verði
Opið virka dag
a
11-18
laugardaga
11-15
EITT
ER VÍST:
ALNO
FRJÁLS VERSLUN 3 tbl. 2016 63
Suðurlandsbraut 26 Sími: 587 2700
Opið 11-18 virka daga og 11-16 laugardaga. www.alno.is
eldhús er
90 ára í ár