Morgunblaðið - 17.03.2017, Síða 15
FRÉTTIR 15Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 17. MARS 2017
Laugavegi 63 • Skipholti 29b • Sími 551 4422 • www.laxdal.is
Opnum í dag kl. 13
nýja og glæsilega verslun í
Skipholti 29b
Bernharð Laxdal er umboðsaðili
GERRY WEBER á Íslandi
(sama verð og á hinum norðurlöndunum)
ásamt mörgum öðrum þekktum
vörumerkjum s.s. BETTY BARCLAY,
CREENSTONE, CINZIA-ROCCA og JUNGE.
GERRY WEBER
20-25% afsláttur
Ýmis önnur opnunartilboð
Glæsileg
opnunar-
tilboð
Verið velkomin
Hæstiréttur Íslands dæmdi í gær ís-
lenska ríkið til að greiða karlmanni
á sextugsaldri miskabætur, alls
tvær milljónir króna, vegna þving-
unarráðstafana sem lögregla hafði
uppi gegn honum að ósekju, við
rannsókn á meintum stórfelldum
fíkniefnaviðskiptum hans.
Í dóminum segir að brotið hafi
verið gegn manninum við handtöku
og síðar í gæsluvarðhaldsvist, en
maðurinn var í einangrun í ellefu
daga. Taldi rétturinn vistina hafa
falið í sér vanvirðandi meðferð.
Sími mannsins var hleraður og
ólöglega var leitað í bankahólfi
hans, stigagangi og geymslu hans.
Í dómi Hæstaréttar segir að að-
gerðirnar hafi ekki aðeins valdið
manninum andlegum þjáningum,
heldur hafi umfang þeirra, „sem
var langt úr hófi fram miðað við til-
efnið, orðið honum til alvarlegs
álitshnekkis, en hann gegndi á þeim
tíma, sem um ræðir, stjórnunar-
stöðu hjá einkafyrirtæki“.
Milljónir
í bætur
frá ríkinu
„Vanvirðandi
meðferð“ lögreglu
Morgunblaðið/Þórður
Dómur Maðurinn var grunaður um
stórfelld fíkniefnaviðskipti.
Agnes Bragadóttir
agnes@mbl.is
Drög að frumvarpi til laga um
breytingu á lögum um íslenskan
ríkisborgararétt eru nú til kynn-
ingar á vef innanríkisráðuneytisins.
Fram kemur í tilkynningu á
heimasíðu ráðuneytisins að tilgang-
ur breytinganna sé sá að styrkja
lagastoð með hliðsjón af undirbún-
ingi fullgildingar tveggja samninga
Sameinuðu þjóðanna um ríkis-
fangsleysi.
Fram kemur í tilkynningunni að
breytingunum er ætlað að draga úr
ríkisfangsleysi, að einfalda mögu-
leika ungs fólks sem búið hefur hér
á landi að óska eftir íslenskum rík-
isborgararétti og að einfalda skrán-
ingu íslensks ríkisfangs við fæð-
ingu ef foreldri er íslenskur
ríkisborgari.
Samráð haft við aðra
Frumvarpið var unnið í
innanríkisráðuneytinu að höfðu
samráði við Þjóðskrá Íslands, Út-
lendingastofnun og Sýslumanninn á
höfuðborgarsvæðinu. Í 1. grein lag-
anna gera nýju drögin ráð fyrir að
foreldri komi í stað móður og því
verði hún svohljóðandi: „Barn öðl-
ast íslenskt ríkisfang við fæðingu:
1. ef foreldri þess er íslenskur
ríkisborgari,
2. ef foreldri þess er látið
og var þá íslenskur ríkisborgari.“
Í greininni eru jafnframt ákvæði
um að hafi barn verið getið við
tæknifrjóvgun erlendis og foreldri
þess er íslenskur ríkisborgari geti
það óskað þess að Þjóðskrá Íslands
skrái ríkisfang barnsins í þjóðskrá.
Drögin gera ráð fyrir að 2. grein
núgildandi laga falli brott, en við-
auki komi við 1. greinina, þar sem
segir meðal annars : „Sá sem fædd-
ur er hér á landi, og hefur verið
ríkisfangslaus frá fæðingu, öðlast
íslenskt ríkisfang með skriflegri til-
kynningu til Útlendingastofnunar
áður en hann nær 21 árs aldri. Til-
kynning skal lögð fram af forsjár-
mönnum hans hafi hann ekki náð
18 ára aldri.
Sá sem óskar að öðlast íslenskt
ríkisfang skv. 1. mgr. skal hafa
dvalið samfellt hér á landi frá fæð-
ingu og í að minnsta kosti þrjú ár
þegar tilkynning er lögð fram.“
Tilmæli Flóttamannastofnunar
Fram kemur í athugasemdum
með frumvarpinu að með tillögum
um breytingar á lögum um íslensk-
an ríkisborgararétt sé brugðist við
tilmælum Flóttamannastofnunar
Sameinuðu þjóðanna (UNCHR) um
að draga úr ríkisfangsleysi.
Er ætlað að draga úr ríkisfangsleysi
Frumvarp um ríkisborgararétt, í samræmi við baráttu Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna
Leit lögreglu og
björgunarsveita
að Arturi Jar-
moszko verður
fram haldið á
morgun, laugar-
dag. Þyrla Land-
helgisgæslu Ís-
lands mun hins
vegar í dag fljúga
yfir leitarsvæðið.
Leitað verður á
sömu slóðum og áður, þ.e. við
strandlengjuna í Reykjavík og
Kópavogi. Mun þyrla Gæslunnar
einnig taka þátt í leitinni.
Ekkert hefur spurst til Arturs frá
því aðfaranótt 1. mars sl. og vinnur
lögregla nú að því að fara yfir ýmis
gögn, s.s. úr farsíma og tölvu Arturs
og upptökur úr eftirlitsmyndavélum.
Lögregla telur ekkert benda til sak-
næms athæfis í tengslum við hvarf
Arturs og mjög ólíklegt þykir að
hann hafi farið úr landi.
Áfram verður
leitað á landi
og úr lofti
Artur
Jarmoszko