Morgunblaðið - 17.03.2017, Side 21
FRÉTTIR 21Erlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 17. MARS 2017
Kringlunni • Sími 568 7777 • heyra.is
Beltone Legend gengur með iPhone 6s og eldri gerðum, iPad Air, iPad (4. kynslóð), iPad mini með Retina, iPad mini og iPod touch (5. kynslóð) með iOS eða nýrra stýrikerfi. Apple, iPhone, iPad og iPod touch eru vörumerki sem tilheyra Apple Inc, skráð í Bandaríkjunum og öðrum löndum.
HEYRNARSTÖ‹IN
Beltone Legend
™
Enn snjallara heyrnartæki
Nýja Beltone Legend™ heyrnartækið tengist þráðlaust beint í iPhone, iPad og iPod touch.
Komdu í ókeypis heyrnarmælingu og fáðu heyrnartæki lánað til reynslu.
Ókeypis
heyrnarmælingsíðan 2004
Bogi Þór Arason
bogi@mbl.is
Donald Trump Bandaríkjaforseti vill
meðal annars draga stórlega úr út-
gjöldum utanríkisráðuneytisins
vegna aðstoðar við önnur ríki og út-
gjöldum til umhverfisverndar með
það að markmiði að stórauka út-
gjöldin til varnarmála og eftirlits við
landamærin að Mexíkó. Þetta kemur
fram í frumvarpi sem forsetinn lagði
fram í gær til fjárlaga næsta árs.
Fréttaskýrendur The Wall Street
Journal segja að öruggt sé að fjár-
lagafrumvarpið mæti mikilli and-
stöðu á Bandaríkjaþingi því að þing-
menn í báðum stóru flokkunum
tveimur hafi þegar gefið til kynna að
ólíklegt sé að þeir styðji sparnaðar-
tillögur forsetans þegar þær verði
afgreiddar á þinginu.
Niðurskurðurinn verður mestur í
utanríkisráðuneytinu og Umhverfis-
verndarstofnun Bandaríkjanna, þar
sem útgjöldin verða minnkuð um
þriðjung nái tillögur Trumps fram að
ganga, að sögn fréttaveitunnar AFP.
Það gæti orðið til þess að ráðuneytið
drægi stórlega úr aðstoð við önnur
ríki og fjárframlögum til stofnana
Sameinuðu þjóðanna. Stjórnarerind-
rekar og nokkrir fyrrverandi emb-
ættismenn í varnar- og öryggismál-
um, þeirra á meðal repúblikanar,
hafa varað við því að ef Bandaríkin
minnki fjárframlög til mannúðarað-
stoðar og aðgerða til að stuðla að
friði og lýðræði í heiminum geti það
haft alvarlegar afleiðingar fyrir ör-
yggi landsins síðar. Helsta röksemd
þeirra er að ekki sé hægt að leysa
mörg af öryggisvandamálunum sem
steðja að Bandaríkjunum með því
einu að beita hernaði og auka landa-
mæraeftirlit.
Forsetinn vill auka útgjöldin til
varnarmálaráðuneytisins um 54
milljarða dala (6.000 milljarða
króna), eða tæp 10%, að sögn AFP.
„Dauðar fyrir komu“
Auk niðurskurðarins í Umhverfis-
verndarstofnuninni vill forsetinn
m.a. minnka útgjöld til Heilbrigðis-
stofnunar Bandaríkjanna og stöðva
framlög til lista- og menningarstarfs.
Enn fremur er stefnt að því að
minnka fjárframlög til rannsókna á
loftslagsbreytingum og framlög til
sambandsríkja og sveitarfélaga til að
fyrirbyggja manntjón af völdum
náttúruhamfara.
Fjárlagafrumvarpið nær ekki til
almanna- og sjúkratrygginga og
annarra lögbundinna útgjalda, sem
nema um 2,8 billjónum dollara á ári.
Að sögn fréttaskýrenda The Wall
Street Journal sýnir fjárlagafrum-
varpið hversu lítið svigrúm forsetinn
hafi til að efna loforð sín um að lækka
skatta og stórauka útgjöldin til
varnarmála án þess að auka fjárlaga-
hallann. Þeir skírskota m.a. til and-
stöðu meðal þingmanna repúblikana
við mikinn niðurskurð á útgjöldum
til utanríkisráðuneytisins vegna að-
stoðar við önnur ríki. Þegar fjárveit-
ingarnar til einstakra ráðuneyta
verða afgreiddar þurfa þær að njóta
stuðnings að minnsta kosti 60 þing-
manna af 100 í öldungadeildinni.
Repúblikanar eru með 52 þingsæti í
deildinni og forsetinn þarf því að
treysta á stuðning demókrata. Flest-
ar sparnaðartillögur Trumps njóta
ekki stuðnings 50 þingmanna, hvað
þá 60, að sögn Steve Bell, fyrrver-
andi ráðgjafa Repúblikanaflokksins í
fjárlagamálum. Fréttaskýrendur
The Wall Street Journal telja líklegt
að margar af tillögunum verði
„dauðar fyrir komu“ í sali þingsins.
Skilaboð til stuðningsmanna
Í sögu þingsins eru mörg dæmi
um að forseti leggi fram fjárlaga-
frumvörp með ákvæði sem hann vissi
að næðu ekki fram að ganga. Til að
mynda lagði Obama oft til nýja
skatta þótt þeir nytu ekki stuðnings
allra demókrata, hvað þá repúblik-
ana. Fjárlagafrumvörpin hafa oft
verið notuð sem tæki til að senda
skilaboð um stefnu forsetans.
Líta má því á frumvarp Trumps
sem pólitíska yfirlýsingu og skilaboð
til stuðningsmanna hans um að hann
sé „maður aðgerða“ og ekki „dæmi-
gerður stjórnmálamaður“. Skoðana-
kannanir benda til þess að Trump
njóti lítils stuðnings meðal almenn-
ings, miðað við síðustu forvera hans í
embættinu, en að margir repúblik-
anar styðji stefnu hans í efnahags-
málum og treysti honum til að
tryggja öryggi Bandaríkjanna.
Andstaða við tillögur Trumps
Talið er að margar tillögur í nýju fjárlagafrumvarpi njóti ekki nægilegs stuðnings á þinginu Þing-
menn úr röðum repúblikana eru andvígir því að draga stórlega úr útgjöldum til utanríkisráðuneytisins
Atkvæðamiklir þingmenn í full-
trúadeild Bandaríkjaþings segja að
leyniþjónustunefnd hennar hafi
ekki fengið neinar upplýsingar sem
staðfesti ásökun Donalds Trumps
forseta um að forveri hans í emb-
ættinu, Barack Obama, hafi látið
hlera síma á heimili hans og skrif-
stofu í Trump-turni í New York fyr-
ir kosningarnar 8. nóvember.
„Við höfum ekki fengið nein
gögn sem sýna að þetta hafi gerst,“
sagði repúblikaninn Devin Nunes,
formaður leyniþjónustunefndar-
innar. „Ég tel ekki að símar hafi í
raun verið hleraðir í Trump-turni.“
Adam Schiff, atkvæðamesti þing-
maður demókrata í leyniþjónustu-
nefndinni, tók undir þetta.
Trump tísti á Twitter fyrr í mán-
uðinum að hann hefði komist að því
að Obama hefði fyrirskipað síma-
hleranirnar skömmu fyrir kosning-
arnar og lét m.a. þau orð falla að
forsetinn fyrrverandi væri „sjúkur
maður“. Fjölmiðlafulltrúi Trumps
hefur sagt að ekki eigi að taka
þessa ásökun bókstaflega.
AFP
Þingmenn Repúblikaninn Devin Nunes (t.h.) og demókratinn Adam Schiff.
Trúa ekki hlerunarásökun