Morgunblaðið - 17.03.2017, Side 27
MINNINGAR 27
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 17. MARS 2017
✝ Sigurgeir Ing-ólfur Jónsson
fæddist á Gests-
stöðum 2. mars
1915. Hann lést á
Droplaugarstöðum
26. febrúar 2017.
Foreldrar hans
voru Jón Þor-
steinsson, f. 1859,
d. 1930. Seinni
kona hans var
Guðbjörg Jóns-
dóttir, f. 16. febrúar 1874, d.
27. nóvember 1944. Bræður
Sigurgeirs: Jón Bjarni, f. 4. júlí
1907, d. 3. apríl 2001, kona
hans Branddís Aðalsteins-
dóttir, f. 12. júlí 1906, d. 27.
september 1997. Þau áttu fjög-
ur börn og eina fósturdóttur.
Þórður Annas, f. 10. maí 1910,
d. 28. maí 2005, kona hans
Magnelja Guðmundsdóttir f.
15. mars 1914, d. 1997. Þau
áttu fjögur börn og einn fóst-
urson. Hálfbræður: Magnús,
Guðjón og Guð-
laugur.
Sigurgeir ólst
upp á Gestsstöðum
og átti þar heimili
þar til hann flutti
til Reykjavíkur. Á
Gestsstöðum vann
hann við búið með
bróður sínum og
við ýmis störf sem
buðust utan heim-
ilis. Í Reykjavík
vann hann fyrst við bygging-
arvinnu, en lengst sem lager-
maður hjá ÁTVR. Sigurgeir
kvæntist 29. desember 1962
Ragnhildi Gunnarsdóttur, f.
12. mars 1919, d. 28. janúar
1994, frá Hleinargarði, S-Múl.
Þau bjuggu síðast að Hæðar-
garði 35. Árið 2014 fór Sig-
urgeir á Droplaugarstaði, þar
sem hann dvaldi til æviloka.
Útför Sigurgeirs fer fram
frá Bústaðarkirkju í dag,17.
mars 2017, klukkan 13.
Nú hefur Geiri frændi lokið lífs-
göngu sinni. Hann var einstaklega
vandaður maður sem öllum vildi
gott gera. Þegar ég man fyrst eftir
mér átti hann heima á Gestsstöð-
um. Hann vann heima á sumrin en
annars við ýmislegt annað og kom
heim um helgar. Ég man eftir lít-
illi stelpu sem vaknaði á sunnu-
dagsmorgni, hentist fram úr rúm-
inu og gáði hvort Geiri hefði komið
heim. Læddist fram og aftur við
rúmið, það mátti ekki vekja hann.
Hann var að hvíla sig. Þegar rifaði
í augun var sú litla fljót að skríða
upp í með sína köldu fætur. Svo
var spilað eða lesin bók. Það var
fátt sem hann vildi ekki gera fyrir
þessa frænku sína og flest óbeð-
inn. En svo hætti hann að koma
heim um helgar og sumardvölin
styttist. Flutti til Reykjavíkur og
kvæntist Ragnhildi Gunnarsdótt-
ur, einstakri úrvalskonu. Þau
bjuggu sér fallegt heimili þar sem
ást og velvilji ríkti. Ég kveð
frænda minn og þakka honum ást
og umhyggju sem hann sýndi mér
og okkur á Gestsstöðum. Guð
blessi minningu hans.
Ragnheiður Guðbjörg.
Þeim heiðurshjónum Ragnhildi
Gunnarsdóttur frá Beinárgerði á
Völlum og Sigurgeiri Jónssyni frá
Gestsstöðum í Steingrímsfirði
kynntist ég fyrir um aldarfjórð-
ungi. Þá stóð þeirra fallega heimili
í Gautlandinu. Síðar fluttu þau í
Hæðargarðinn og nutu sín vel þar
í góðum félagsskap. Ég minnist
þess að fyrst þegar ég heimsótti
Sigurgeir eftir andlát Rögnu dró
hann fram fínirís bakkelsi úr
frystinum, góðgæti úr smiðju
elskulegrar og hlýrrar húsmóður.
Margar góðar stundir áttum við
síðan við eldhúsborðið og ávallt
eitthvað til með kúfuðum kakó-
bolla. Ekki má gleyma tréskurð-
arlistaverkum og ullarleistum og
vettlingum sem hann framleiddi í
bunkum og var ósínkur á og hlýja
enn litlum tásum.
Sigurgeir var hæglátur maður
en launstríðinn og gat hæglega
gefið sig kæti og tilhlökkun á vald,
eins og til dæmis þegar hann leit
inn í Mosfellsbænum eitt sinn og
var þá á leið til Kanarí með góð-
vinkonu sinni Ragnhildi. Tókst
hann nánast á loft af einskærri
ánægju yfir fyrirhugaðri ferð.
Kunnu þau að njóta daganna þó að
færri yrðu en hjörtun hefðu kosið.
Mér hlotnaðist sá heiður að
vera veislustjóri í níræðisafmæl-
inu hans og þar ríkti mikil gleði í
góðra vina hópi, sungið og trallað
og ræður fluttar. Í eitt hundrað
ára afmælinu sem haldið var í nýj-
um heimkynnum, á Droplaugar-
stöðum, var líka glatt á hjalla þó
að eitthvað væri fólkinu farið að
fækka. Og aðeins örfáir dagar
voru í 102 ára afmælið þegar Sig-
urgeir lét gott heita og hélt á vit
nýrra heimkynna. Hann hélt per-
sónueinkennum sínum alveg til
síðasta dags og sagði mér til dæm-
is nýlega frá því hvernig hann var
nærri orðinn of seinn í eigin ferm-
ingu þar sem illa gekk að sækja
hestana. Eitt sinn er ég kom til
hans í vetur spurði hann mig hvort
ferðin hefði verið löng og hvort ég
hefði kannski villst á leiðinni.
Fyrst hélt ég að nú væri eitthvað
farið að slá út í fyrir honum en átt-
aði mig svo á því að þegar ég heim-
sótti hann síðast var ég á leið í
ferðalag. Eitthvað hefur Geira
þótt dragast að ég kæmi til hans
eftir þá ferð og lýsti óánægju sinni
með þessari góðlátlegu stríðni. En
nú er það hann sem er farinn í
ferðina löngu eftir langt og gott líf
og veit ég að fyrir þá ferð var hann
meira en tilbúinn. Guð blessi
minningu Sigurgeirs Jónssonar.
María Ágústsdóttir.
Sigurgeir Ingólfur
Jónsson
✝ Jóhanna Arn-órsdóttir fædd-
ist á Ísafirði 24. júlí
árið 1925.
Hún lést á hjúkr-
unarheimilinu
Sunnuhlíð í Kópa-
vogi 12. mars 2017.
Foreldrar henn-
ar voru hjónin Arn-
ór Magnússon, f.
17.10. 1897, d. 12.2.
1986, og Kristjana
Gísladóttir, f. 4.7. 1900, d. 13.10.
1970.
Systkini Jóhönnu voru Þor-
lákur Halldór Arnórsson, látinn,
Bjarni Arnórsson, dó í bernsku,
Hilmar Ægir Arnórsson, látinn,
Magnús Arnórsson, Jónatan
Arnórsson, Júlíus Arnórsson og
Guðbjörg Arnórsdóttir, látin.
Eiginmaður Jóhönnu var
Hjörtur Kristinn Hjartarson, f. í
Vestmannaeyjum 17. desember
1921, d. 3. apríl 2012. Þau gengu
í hjónaband 24.12. 1943.
Jóhanna fluttist 18 ára að
María Sólveig Hjartardóttir,
f. 1946, maki Jón Marteinsson.
Þau eiga þrjú börn og tíu barna-
börn.
Arndís Kristjana Hjartardótt-
ir, f. 1949, maki Francisco Fern-
andez Bravo. Þau eiga tvö börn
sex barnabörn. Fyrir á Arndís
dóttur með Guðmundi Guð-
mundssyni.
Eydís Ósk Hjartardóttir, f.
1953, maki Viggó Jóhannsson.
Þau eiga tvær dætur og sjö
barnabörn.
Kristín Gyða Hjartardóttir, f.
1958, maki Guðni Benjamínsson.
Börn þeirra eru sex og eitt
barnabarn.
Jóhanna var lengst af hús-
móðir í Vestmannaeyjum og
helgaði líf sitt og starf börn-
unum sínum fimm . Síðar meir
eftir að fjölskyldan fluttist frá
Vestmannaeyjum starfaði Jó-
hanna hjá efnagerðinni Val í
Kópavogi eða þar til að hún lét
af störfum.
Þau hjónin voru virk í fé-
lagsstarfi eldri borgara í Kópa-
vogi til margra ára. Jóhanna var
lengi vel formaður eldri borg-
ara í Kópavogi.
Útför Jóhönnu fer fram frá
Kópavogskirkju í dag, 17. mars
2017, kl. 11.
aldri frá Ísafirði til
Vestmannaeyja og
fór þar að búa með
Hirti Kristni hjá
foreldrum Hjartar í
Hellisholti, en þau
byggðu sér síðan
hús í Eyjum sem
þau nefndu Lyng-
holt. Síðar byggðu
þau sér stærra hús
þegar fór að fjölga í
barnahópnum sem
þau nefndu Hátún og standa
bæði húsin enn þann dag í dag.
Þau hjónin fluttust búferlum frá
Eyjum árið 1966 og bjuggu þau
á ýmsum stöðum í Kópavogi.
Seinustu árin bjuggu þau í Gull-
smára 11. Kópavogi eða þar til
þau fóru á hjúkrunarheimilið
Sunnuhlíð árið 2012.
Börn Jóhönnu og Hjartar eru:
Hjörtur Viðar Hjartarson, f.
1944, d. 1989, maki Hrefna Víg-
lundsdóttir. Þau eignuðust þrjú
börn og eru barnabörnin orðin
sjö og barnabarnabörnin tvö.
Til ástkærrar móður sem við
elskuðum svo mikið.
Sem ungu barni þú ruggaðir mér
í svefninn, með söng á vörum þér,
svaf ég þá vel og svaf ég fast
því ég vissi, alla þína ást mér gafst.
Er erfitt ég átti þú studdir mig,
kenndir mér hvernig á að virða sjálfan
sig,
vera góð og heiðarleg,
muna það, virða hvar sem ég dvel.
Ólst mig upp með von í hjarta
mér til handa um framtíð bjarta.
Hamingjusöm ég á að vera,
elskuleg móðir sem allt vill gera.
Með þessum orðum vil ég þakka þér
alla þá ást og umhyggju sem gafst þú
mér.
Ég elska þig, mamma, og mun ávallt
gera,
vil ég þú vitir það hvar sem ég mun
vera.
(Sumarliði Halldórsson)
Elsku mamma.
Takk fyrir alla þína ást og um-
hyggju og allt það góða sem þú
kenndir okkur.
Megi Guð og englarnir vaka yf-
ir þér. Þínar dætur,
María Sólveig, Arndís
Kristjana, Eydís Ósk
og Kristín Gyða.
Amma kær, ert horfin okkur hér,
en hlýjar bjartar minningar streyma
um hjörtu þau er heitast unnu þér,
og hafa mest að þakka, muna og
geyma.
Þú varst amma yndisleg og góð,
og allt hið besta gafst þú hverju sinni,
þinn trausti faðmur okkur opinn stóð,
og ungar sálir vafðir elsku þinni.
Þú gættir okkar, glöð við undum hjá,
þær góðu stundir blessun, amma
kæra.
Nú hinstu kveðju hjörtu okkar tjá
í hljóðri sorg og ástarþakkir færa.
(Ingibjörg Sigurðardóttir.)
Jóhanna Sigríður Viggós-
dóttir (Hanna Sigga).
Elsku hin amma okkar, eins og
við systkinin kölluðum hana allt-
af, er fallin frá. Elsku amma, sem
alltaf var svo ljúf og góð við alla og
sem allir elskuðu. Við systkinin
elskuðum að koma í heimsókn og
fá nýbakaðar ömmupönnukökur,
engin hefur bakað jafn góðar
pönnukökur og hún amma okkar.
Amma elskaði að spila og nýttum
við systkinin okkur það, þar sem
við elskuðum það líka. Við erum
svo heppin að eiga endalausar
minningar um hana elsku hina
ömmu okkar sem verða vel
geymdar.
Guð og englarnir vaka yfir þér,
elsku hin amma okkar.
Vertu yfir og allt um kring
með eilífri blessun þinni,
sitji Guðs englar saman í hring
sænginni yfir minni.
(Sig. Jónsson frá Presthólum)
Þín,
Guðfinna Gróa og
Viggó Smári.
Þá er komið að því sem ég hef
kviðið fyrir. Elsku gullið hún
amma mín kvaddi þennan heim.
Ég hélt að hún amma mín væri
eilíf. En svo er auðvitað ekki. Hún
er mín stærsta fyrirmynd og
henni á ég margt að þakka.
Amma var með hjarta úr gulli.
Allar bænirnar sem ég kann,
hún kenndi mömmu þær, hún
mér og ég mínum börnum … Við
spiluðum saman, sungum, hlóg-
um og gerðum svo margt
skemmtilegt. Ég gæti skrifað
heila bók um þær gæðastundir
sem við höfum átt saman. Og það
var svo yndislegt að hafa getað
haft þig með vestur sumarið 2012,
það var ógleymanlegt. Og þessar
minningar mun ég ylja mér við.
Elsku hjartans amma mín, það
er svo sárt að sjá á eftir þér.
Megi Guð geyma þig, elsku fal-
legi engillinn okkar. Þín,
Ásdís Ósk.
Elsku amma mín.
Nú ertu komin til afa og á betri
stað. Þín verður ávallt minnst
sem kærleiksríkrar og góðrar
ömmu. Ég á margar góðar minn-
ingar um þig en ég ætla að fá að
deila nokkrum. Ég gleymi því
aldrei þegar ég kom í heimsókn til
ykkar í Kópavoginn og þú leyfðir
mér að mala kaffi í kaffikvörninni
þinni. Mér fannst það mikið sport
og ein af mínum bernskuminning-
um sem ég man alltaf. Þú reyndir
alltaf að hafa eitthvað handa okk-
ur börnunum að gera þegar við
komum.
Ég á líka mjög skýra minningu
um það þegar við fórum öll saman
í berjamó í Aðaldalinn, gistum í
gömlu sumarhúsi sem með fylgdi
bátur og við tíndum margar fötur
af aðalbláberjum. Kvöldið fór síð-
an í það að hreinsa öll þessi ber
sem var mjög skemmtilegt. Mér
fannst það ferðalag svo skemmti-
legt því það var ekki oft sem ég
fór í ferðalag með ömmu og afa í
Kópavogi.
Það er samt eitt sem aldrei
mun gleymast. Það eru pönnu-
kökurnar þínar. Ég mun aldrei fá
jafn góðar pönnukökur aftur á
minni ævi. Ég held ég geti alveg
fullyrt það.
Elsku amma mín. Takk fyrir
samveruna og allar góðu stund-
irnar og kærleikann sem þú gafst
öllum sem þú varst nálægt. Takk
fyrir hvatninguna sem þú gafst
mér í íþróttum og trúna sem þú
hafðir alltaf á mér. Ég mun alltaf
minnast þín og aldrei gleyma þér.
Jón Kristinn.
Jóhanna
Arnórsdóttir
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma,
langamma og langalangamma,
RAGNA INGIBJÖRG
RÖGNVALDSDÓTTIR,
Sólvangi,
Blönduósi,
lést á Heilbrigðisstofnun Norðurlands, Blönduósi, mánudaginn
6. mars. Útförin fer fram frá Blönduóskirkju laugardaginn
18. mars klukkan 14.
Guðmundur Eyþórsson
Ragnar Eyþórsson Gróa Herdís Ingvarsdóttir
Eyþór Stanley Eyþórsson Sigríður Inga Björnsdóttir
Elvar Ólafsson Jóna Margrét Hreinsdóttir
Þorsteinn Ragnar Ólafsson Þórunn Sigurðardóttir
og fjölskyldur
Ástkær eiginkona mín, móðir, tengdamóðir,
amma og langamma,
SÓLVEIG JÓNSSON
hjúkrunarfræðingur og píanóleikari,
Hrafnistu Hafnarfirði,
áður Lyngrima 15, Reykjavík,
lést að morgni 14. mars.
Útförin verður auglýst síðar.
Jón Hjörleifur Jónsson
Sólveig, Kristín, Jón Árni, Kolbrún Sif og makar
barnabörn og barnabarnabörn
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
AÐALBJÖRG JÓNA
GUÐMUNDSDÓTTIR,
Lalla,
Garðabraut 45,
Akranesi,
lést á Landspítalanum mánudaginn 13. mars. Útför hennar fer
fram frá Akraneskirkju föstudaginn 24. mars klukkan 13.
Þeim sem vilja minnast hennar er bent á líknarfélög.
Gylfi Þórðarson
Hafdís Fjóla Ásgeirsdóttir
Sólveig Jóna Ásgeirsdóttir
Ásgeir Ásgeirsson Hege Viken
Guðmundur Ásgeirsson Margrét Ýr Einarsdóttir
Agnar Ásgeirsson Elsa Jóna Björnsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
VALDÍS ERLENDSDÓTTIR,
sem lést 13. mars, verður jarðsungin frá
Bústaðakirkju þriðjudaginn 21. mars
klukkan 15.
Blóm vinsamlegast afþökkuð en bent er
á Félag nýrnasjúkra.
Örn Pálsson, Margrét Haraldsdóttir
Erlendur Pálsson
barnabörn og barnabarnabörn
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og
vinarhug við andlát og útför ástkærrar
móður minnar og tengdamóður,
MARÍU KRISTJÁNSDÓTTUR,
Sléttuvegi 21.
Arinbjörn Arnbjörnsson Sigurlaug Kristjánsdóttir
Morgunblaðið birtir minningargreinar endurgjaldslaust alla
útgáfudaga.
Skil | Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega
beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Smellt á Morgunblaðslógóið í
hægra horninu efst og viðeigandi liður, „Senda inn minningargrein,“
valinn úr felliglugganum. Einnig er hægt að slá inn slóðina
www.mbl.is/sendagrein
Minningargreinar