Morgunblaðið - 17.03.2017, Blaðsíða 37
DÆGRADVÖL 37
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 17. MARS 2017
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Finndu út hvar þú best getur komið
skoðunum þínum á framfæri því þú vilt að
hlustað sé á þig. Ekki fá utanaðkomandi
hjálp, byrjaðu á að hreinsa til innra með þér.
20. apríl - 20. maí
Naut Þið megið hvergi slaka á við að vinna
fólk á ykkar band. Hvaðeina sem viðkemur
veisluhöldum og skemmtun hefur tilhneig-
ingu til að ganga of langt.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Hvernig væri að meta framfarir
seinustu vikna? Það er nauðsyn til að vita
hvert næsta skref verður. Ef þú vilt vera svo-
lítið brjálaður, vertu það þá með hjartanu,
ekki munninum.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Finnst þér þú vera að drukkna? Nú
veistu hvaða tilgangi sundkennsla þjónar.
Taktu þig nú á og gerðu eitthvað fyrir sjálfan
þig. Karma þitt batnar umtalsvert á næst-
unni.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Skrifaðu niður tvær hugmyndir sem
bæta aðstæður á vinnustað eða upplifun þína
í vinnunni. Finndu þeim því farveg þar sem
þær fá notið sín.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Gefðu þér tíma til að gera heimili þitt
meira aðlaðandi. Vertu því óhræddur við að
leita til þess vinar er veitir þér visku og skjól
þegar þú þarft á slíku að halda.
23. sept. - 22. okt.
Vog Eyddu orku í smáatriðin og þá sjá aðal-
atriðin um sig sjálf. Taktu við gjöfunum með
bros á vör, sérstaklega þeim sem virðast hafa
blendin skilaboð.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Félagi lætur skoðun í ljós sem er
ólík þinni. Ekki það að þú viljir að fólk þjóni
þér, heldur hefurðu sýn sem þarfnast sam-
vinnu.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Skilningur er þemað bæði heima
fyrir og í vinnunni. Hikaðu ekki við að leita
uppi sálufélaga sem kann að meta gjörðir
þínar.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Spurðu sjálfa/n þig að því hvort
þér líki nógu vel við vini þína. Gleymdu ekki
heldur að þú þarft líka tíma fyrir sjálfan þig.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Sannleikurinn er furðulegri en
argasti skáldskapur. Hvað getur þú gert til
þess að bæta aðstæðurnar í vinnunni og
hvernig ætlarðu að fara að því?
19. feb. - 20. mars
Fiskar Þér ætti að ganga flest í haginn í dag.
Smáatriði vefjast ekki fyrir þér og þú finnur
fljótlegustu leiðina að réttri lausn. Vertu með
augun galopin.
Jón H. Ásbjörnsson sendi mér gottbréf þar sem hann lætur þess
getið, að það sé eitt atriði hjá hag-
yrðingum sem pirri hann svolítið:
„Eins og alkunna er þá er limru-
formið sennilega einfaldasta vísna-
formið og tiltölulega lítið mál að
buna þeim úr sér. Þess vegna finnst
mér leiðinlegt að sjá jafnvel hina
ágætustu hagyrðinga sniðganga
bragfræðina og virða það ekki að
nota ljóðstaf í 3. og 4. línu og höfuð-
staf í 5. línu. Oftast er það 5. línan
sem klikkar og úr verður „ambaga“.
Getur þú ekki fengið þetta ágæta
fólk til að laga þetta?
Læt fljóta með eina vafasama
„fjölskyldulýsingu“ í limruformi.
Smákrimminn Guðmundur Gauti,
var “gangster og alræmdur fauti“.
Hans formóðir líka,
hún „Friðdóra píka“,
sem og faðirinn „Arngrímur blauti“.
Það er rétt hjá Jóni að það var
sameiginlegt þeim sem „íslenskuðu“
limruna, – ég nefni Jóhann S. Hann-
esson, Kristján Karlsson og Þorstein
Valdimarsson, – að þeir stuðluðu
gjarna þriðju og fjórðu línu á móti
höfuðstafnum í þeirri fimmtu. En
limran er ekki við eina fjölina felld. Í
„Á hænsnaloftinu“ hefur Þorsteinn
báða stuðlana í fjórðu hendingu og
hugsar limruna þá sem ferhendu að
þessu leyti:
Nú hættið þið hérna við tónvarp
og hefjið hið fullkomna stjónvarp –
verpið í þögn –
látið sjón bera af sögn!
Ég annast sjálfur tónvarp og grjónvarp.
Hér hefur Kristján Karlsson tvo
stuðla í fimmtu línu:
Ein karlfugl í Kaplaskjóli,
bæði kargur og ósvífinn fóli,
kvaðst þola þá verst
sem þyldu sig best,
„en ég slæ ekki hendi við hóli“.
Og hér Jóhann S. Hannesson:
Án einlægni- og alúðarsparnaðar,
ég óska þér gæfuríks farnaðar.
En ef á skyldi bjáta,
ég bið þig að láta
mig nýtast sem víti til varnaðar.
Hrólfur Sveinsson orti um mark-
aðsbúskapinn:
Egill fór vestur um ver
með vélstrokkað tilberasmér
og fékk fyrir það
þegar í stað
hausinn á sjálfum sér.
Hér bregður Hermann Jóhannes-
son út af hinu klassíska limrulagi:
Úr vinnunni hann fékk oft far með Hildi.
Hann fattaði samt aldrei hvað hún vildi.
En kvöld eitt kát og rjóð
þau keyrðu fram á stóð, –
og þá var eins og blessuð skepnan skildi.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Limran er ekki
við eina fjölina felld
Í klípu
„HEPPINN ÞÚ. Á MÍNUM VINNUSTAÐ
ER EKKERT PLÁSS FYRIR ÞAÐ.“
VÆRUKÆRÐ
eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger
„VIÐ GETUM SETT ALLT GAMLA
DRASLIÐ OKKAR HINGAÐ UPP.“
Hermann
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... þegar fjöldi
freknanna er jafn þeim
ástæðum sem þú elskar
hana út af.
BANK!
BANK!
ÞETTA ER EKKI
AUÐVELT
ÞETTA
ER ÞAÐ
VINIR MÍNIR, JARL OG
KARL ÆTLA AÐ SNÆÐA
MEÐ OKKUR MORGUNMAT…
ÉG BÝST
VIÐ ÞVÍ…
ER ÞÉR
EKKI
SAMA?
HVENÆR
EIGUM
VIÐ VON
Á ÞEIM?
ÞEIR ERU
KOMNIR!
VIÐ ÆTLUM AÐ SPILA
FRAM AÐ MORGUNMAT!
Í veðurfréttum ríkissjónvarpsins sl.mánudagskvöld var fólk varað við
snjókomu um allt land að morgni.
Íbúum var ráðlagt að vera snemma á
ferðinni og gefa sér nægan tíma til
þess að skafa af bílrúðum og hreinsa
bílinn áður en haldið yrði út í umferð-
ina sem yrði með hægara móti,
hvernig svo sem það er hægt í
Reykjavík. Síðdegis var spáð allt að
15 sm jafnföllnum snjó.
x x x
Víkverji tók veðurkonuna alvar-lega, eins og alltaf, hafði til vetr-
arfötin, skóflu og sköfu og athugaði
með strætóferðir, en taldi það reynd-
ar gagnslaust því að fenginni reynslu
liggja strætóferðir niðri í Reykjavík
við þessar aðstæður. Lausnin fólst í
því að að leggja strax í hann, en mið-
að við spána var ekki á það hættandi.
x x x
Yfirvöld lýstu yfir neyðarástandi ínokkrum ríkjum Bandaríkjanna
vegna óveðursins sem átti að ganga
yfir Ísland sl. þriðjudagsmorgun, en í
Reykjavík var bongóblíða, þó ekki
norðanmönnum að þakka eins og
borgarstjóri heldur fram á kostnað
borgarbúa, og það tók Víkverja hálf-
tíma að aka í vinnuna leið sem hann á
að fara á tíu mínútum.
x x x
Ungur lærði Víkverji að veður-fræðingar ættu í erfiðleikum
með að spá fyrir um veðrið í gær
hvað þá á morgun. Stjórnendur fjöl-
miðla, sem hafa áttað sig á alvarleika
málsins, hafa látið misklæðlitlar kon-
ur sjá um veðurfréttirnar með góð-
um árangri og enn koma norðan-
menn ekkert við sögu, eins og
borgarstjóri þó heldur.
x x x
Finnsk útvarpsstöð, sem einnigsendir út í mynd, hefur sennilega
gengið lengst í þessu klæðlitla efni,
en nakin kona gerði þar grein fyrir
veðrinu og vakti mikla lukku. Eng-
inn, sem horft hefur, hefur tjáð sig
um spána og takmarkinu þar með
náð. Þetta er í anda meirihluta
Reykjavíkurborgar og miðað við
stefnu hans er næsta víst að klæð-
lausar veðurfréttir verða settar í
styrkjaforgang. vikverji@mbl.is
Víkverji
Orðið varð hold Í upphafi var Orðið
og Orðið var hjá Guði og Orðið var
Guð.
(Jóh.l 1:1)
LEYNIVOPN ÞJÓÐARINNAR
* Til að DHA skili jákvæðum áhrifum
þarf að neyta 250 mg á dag.
OMEGA-3
FYRIR SJÓN
OG AUGU
Omega-3 augu er ný vara frá Lýsi
sem er einkumætlað að viðhalda
eðlilegri sjón.
Omega-3 augu inniheldur lútein,
zeaxanþín og bláberjaþykkni. Ásamt
omega-3 fitusýrunni DHA*, sinki og
ríblóflavíni (B2 vítamín) sem stuðla
að viðhaldi eðlilegrar sjónar.
Fæst í öllum helstu apótekum landsins.