Morgunblaðið - 17.03.2017, Síða 41
MENNING 41
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 17. MARS 2017
Helgi Snær Sigurðsson
helgisnaer@mbl.is
Elly Vilhjálms, réttu nafni Henný
Eldey Vilhjálmsdóttir, fæddist árið
1935 í Merkinesi í Höfnum á Reykja-
nesskaga og hóf söngferil sinn í
Reykjavík aðeins 17 ára eftir að hafa
séð auglýsingu í Morgunblaðinu frá
KK sextettinum þar sem söngkonu
var leitað. Hún
söng með nokkr-
um hljómsveitum
á ferli sínum, m.a.
Hljómsveit
Bjarna Böðvars-
sonar, föður dæg-
urlagasöngvarans
Ragnars, KK
sextettinum og
Hljómsveit Svav-
ars Gestssonar en
Svavar var þriðji
eiginmaður hennar og hljómplötu-
útgefandi og söng Elly inn á fjölda
platna sem hann gaf út. Þau hjón lét-
ust bæði af völdum krabbameins,
Elly árið 1995 og Svavar ári síðar.
Saga þessarar merku listakonu er
rakin í bók Margrétar Blöndal, Elly
– ævisaga Ellyjar Vilhjálms, frá
árinu 2012 og á laugardaginn kl. 20
verður frumsýndur nýr söngleikur,
Elly, sem Gísli Örn Garðarsson og
Ólafur Egill Egilsson sömdu að hluta
til upp úr bókinni. Gísli leikstýrir
sýningunni sem er samstarfsverk-
efni Borgarleikhússins og Vestur-
ports og með hlutverk Ellyjar fer
Katrín Halldóra Sigurðardóttir.
Björgvin Franz Gíslason snýr aftur á
leiksvið eftir nokkurra ára hlé og fer
með nokkur hlutverk, leikur m.a.
söngvarana Ragga Bjarna og Vil-
hjálm, bróður Ellyjar og aðrir leik-
arar eru einnig í mörgum hlut-
verkum, þau Hjörtur Jóhann
Jónsson, Katla Margrét Þorgeirs-
dóttir og Björn Stefánsson. Leik-
myndahönnuðurinn Börkur Jónsson
á heiðurinn af því að hafa breytt saln-
um í klúbb eða félagsheimili í anda 6.
og 7. áratugarins. Sýningargestir
sitja við hringborð sem dreift hefur
verið um salinn, framan við svið þar
sem ævi Ellyjar verður rakin og
hennar þekktustu lög flutt af leik-
urum og hljómsveit.
Stór kafli í menningu okkar
Gísli segir sýninguna unna af mikl-
um kærleik og virðingu fyrir umfjöll-
unarefninu. „Það ganga allir út
meyrir en sáttir,“ segir hann um
gesti sem setið hafa æfingar á söng-
leiknum í vikunni.
– Er þetta þá tilfinningaþrungin
sýning?
„Já, þetta var náttúrlega stór ævi
sem Elly átti, þrjú hjónabönd og svo
lést hún úr krabbameini aðeins 59
ára. Þetta er mikil saga og hún var
brautryðjandi sem dægurlaga-
söngkona á Íslandi, söng á tímum
þegar litið var á slíkar söngkonur
sem gleðikonur. Ferill hennar er stór
kafli í menningu okkar og hún er
ákveðin birtingarmynd á þessum tíð-
aranda og hvernig var að vera kona í
skemmtanabransanum á þessum
tíma. Það á ekki bara við um hana
heldur allar konur sem voru í brans-
anum, þær voru allar í sömu sporum
og við vörpum ljósinu á Elly. Hún er
fyrsta íslenska dægurlagasöngkonan
sem fær atvinnusamning, KK gerði
við hana samning þannig að hún var
á föstum launum,“ segir Gísli.
Fer „alla leið“ í túlkun
sinni á Ragga Bjarna
Þeir Ólafur leituðu fanga í bók
Margrétar við handritsskrifin en öfl-
uðu einnig annarra heimilda. Í bók
Margrétar kemur fram að erfitt hafi
reynst að finna heimildir um ævi og
feril Ellyjar og Gísli segir að þeim
hafi að miklu leyti verið fargað við
andlát hennar. Gísli segir þá Ólaf
hafa rætt við syni Ellyjar, barna-
Brautryðjandi í sinni list
börn, vin hennar og samstarfsmann
Ragga Bjarna o.fl. og sankað að sér
heimildum sem þeir nýttu við skrifin.
„Raggi Bjarna kemur mikið við sögu,
Vilhjálmur bróðir hennar, eiginmenn
hennar og fleiri,“ segir Gísli um
söngleikinn.
– Björgvin Franz leikur Ragga
Bjarna. Leitaði Björgvin til Ragga til
að ná honum sem best?
„Já, þeir hafa hist og Björgvin
Franz fer á kostum, það er ekkert
öðruvísi. Þetta er á einhverju plani
sem er alveg meiriháttar,“ segir Gísli
og hlær. Björgvin fari alla leið í túlk-
un sinni á söngvaranum ástsæla.
Forðaðist sviðsljósið
Elly var lítt hrifin af því að fjallað
væri um hana í fjölmiðlum og forð-
aðist sviðsljósið að undanskildu því
sem beint var að henni á tónleikum.
Gísli er spurður að því hvort hann
haldi að Elly væri sátt við að gerður
væri um hana söngleikur. „Ég held
það. Ég veit að synir hennar eru sátt-
ir við það, ég ræddi við þá áður en
þetta fór í gang. Maður þekkir það úr
listaheiminum að það vilja ekki allir
láta klappa fyrir sér og hún var ein af
þeim. Hún talaði þannig að henni
þætti það sem hún var að gera ekk-
ert svo merkilegt en við sem komum
á eftir og horfum til baka sjáum að
það er stórmerkilegt,“ segir hann.
Elly hafi verið brautryðjandi í sinni
list og saga hennar áhugaverð og eigi
erindi við fólk í dag.
Gísli segir að þegar hann hafi lesið
bók Margrétar hafi hann áttað sig á
því að hann vissi ekkert um ævi Ell-
yjar, enda heimildir um hana af
skornum skammti. „Hún hættir að
koma fram og maður spyr sig hvort
það hafi verið tíðarandinn sem
stimplaði það inn í hana að hún ætti
ekki að koma fram, því þá væri hún
gleðikona? Eða var það raunveruleg
ósk hennar? Hún segir sjálf í viðtali
undir lokin að hún hefði gert þetta
allt öðruvísi ef hún hefði fengið ann-
að tækifæri,“ segir Gísli.
Hefur allt til að bera
– Fékkstu hugmyndina að því að
setja upp þessa sýningu þegar þú
last bókina?
„Já, ég hafði oft gælt við hug-
myndina um að gera eitthvað um
Villa því mér fannst hann svo áhuga-
verður líka. Svo las ég bókina og átt-
aði mig á því að ég vissi ekkert um
Elly og fannst það skrítið því hún er
stórmerkileg. Mig langaði að kafa í
hennar heim og ævi og gera sýningu
fyrir sjálfan mig, í raun og veru.“
Gísli segir hlutverk Ellyjar mikla
áskorun fyrir Katrínu. Það sé ekki
nóg að líkjast Elly heldur þurfi hún
að halda heilli sýningu uppi. „Katrín
hefur allt til að bera eins og Elly
sjálf,“ segir hann um leikkonuna.
Nýja sviði Borgarleikhússins breytt í klúbb fyrir söngleik um Elly Vilhjálms
„Þetta er mikil saga,“ segir leikstjórinn Gísli Örn Garðarsson um ævi Ellyjar
Gísli Örn
Garðarsson
Ljósmynd/Grímur Bjarnason
Dúett Katrín Halldóra Sigurðardóttir og Björgvin Franz Gíslason í hlutverkum Ellyjar og Ragga Bjarna.
Húsgagnahönn-
uðurinn Guð-
mundur Lúðvík
Grétarsson flyt-
ur fyrirlestur í
Gestagangi,
fyrirlestraröð
hönnunar- og
arkitektúr-
deildar Listahá-
skóla Íslands, í
fyrirlestrasal A í
Þverholti 11 í dag kl. 12.15.
„Guðmundur rekur eigið stúdíó í
Vejle og er auk þess meðlimur í
hönnunarfyrirtækinu Welling/
Ludvik industrial design í Kaup-
mannahöfn,“ segir í tilkynningu.
Hann hyggst ræða um verkefni sín
sem og eigin náms- og starfsferil.
„Guðmundar starfaði sem smiður
og húsgagnasmiður í fjöldamörg
ár, áður en hann hóf nám við skúlp-
túrdeild Listaháskóla Íslands. Hann
flutti til Kaupmannahafnar 1999 og
útskrifaðist sem húsgagnahönn-
uður frá Danmarks Design Skole
2002. Guðmundur vinnur á skap-
andi hátt og tvinnar saman tækni-
legar og fagurfræðilegar hliðar
hönnunar en að eigin sögn hefur sú
námsleið sem hann fór átt þátt í
þeirri þróun.“ Fyrirlesturinn fer
fram á ensku. 23. mars kl. 18 opnar
Guðmundur sýningu í Mengi er
nefnist Glíma og er hún hluti af á
Hönnunarmars 2017.
Fyrirlestur og
sýningin Glíma
Guðmundur Lúðvík
Grétarsson
Vor 2017
Opið virka daga frá 10-18, laugardag 11-15.
Faxafeni 14, 108 Reykjavík | Sími 551 6646 | Laura Ashley á Íslandi
Miðasala og nánari upplýsingar
5%
SÝND KL. 8
SÝND KL. 5.15, 10.30 SÝND KL. 4, 6 SÝND KL. 8, 10.30
SÝND KL. 8, 10.15
SÝND KL. 5.45
TILBOÐ KL: 5.45
TILBOÐ KL: 4
TILBOÐ KL: 3.30
TILBOÐ KL: 3.30
SÝND KL. 3.30
SÝND KL. 3.30