Morgunblaðið - 17.03.2017, Side 44
Keflvíkingar gerðu góða ferð á Sauð-
árkrók í gærkvöld og unnu þar Tinda-
stól í tvíframlengdum leik í fyrstu
umferð úrslitakeppni karla í körfu-
bolta. Þeir sneru því heimaleikja-
forgjöfinni sér í hag. Grindvíkingar
unnu sannfærandi sigur á Þór frá
Þorlákshöfn en Stjarnan lenti í miklu
basli með ÍR-inga og hafði að lokum
sigur. »2-3
Keflvíkingar sóttu
sigur á Sauðárkrók
FÖSTUDAGUR 17. MARS 76. DAGUR ÁRSINS 2017
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 548 KR. ÁSKRIFT 5.950 KR. HELGARÁSKRIFT 3.715 KR. PDF Á MBL.IS 5.277 KR. I-PAD ÁSKRIFT 5.277 KR.
1. Artur tók út óverulega upphæð
2. Fimmti ættliðurinn í beinan legg
3. Kærasta Harrys verður ekki …
4. Skemmdir eftir norðurljósaferðir
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Hljómsveitin Mógil leikur uppá-
haldslög sín af plötunum Ró frá
2008, Í stillunni hljómar frá 2011 og
Korríró frá 2015 í bland við nýja tón-
list á tónleikum í Salnum í kvöld kl.
20. Í hljóðheimi Mógils renna saman
klassík, þjóðlagatónlist, djass og til-
raunatónlist. Sveitina skipa Heiða
Árnadóttir söngkona, Hilmar Jensson
á gítar, Kristín Þóra Haraldsdóttir á
víólu, Eiríkur Orri Ólafsson á trompet
og Joachim Badenhorst á klarinett.
Sveitin kemur einnig fram á tón-
leikum í Mengi ásamt Mikael Lind
annað kvöld, laugardag, kl. 21. Þar
verður á efnisskránni ný tónlist með
frjálsu spunaívafi. Mikael Lind leikur
lög af Intentions og Variations í
bland við lög af nýrri plötu sem er
væntanleg frá honum á árinu. Með
honum á sviðinu verður Julius
Rothlaender úr hljómsveitinni Vil.
Mógil kemur fram á
tvennum tónleikum
Sigurður Sigurjónsson leggur land
undir fót og sýnir einleikinn Maður
sem heitir Ove, í Valaskjálf á Egils-
stöðum annað kvöld og í Miðgarði í
Skagafirði 25. mars. Sýningin hefur
gengið fyrir fullu húsi í Þjóðleikhús-
inu í vetur auk þess sem hún var sýnd
á Akureyri í janúar. Leikferðirnar eru
liður í þeirri áætlun Þjóðleikhússins
að færa leiklistina nær áhorfendum á
landsbyggðinni. Einleikurinn fjallar
um hinn 59 ára gamla Ove, sem er
reglufastur ná-
kvæmnismaður.
Líf hans tekur
stakkaskiptum
þegar hann
kynnist nýjum
nágrönnum
sínum.
Maður sem heitir Ove
sýnd á Egilsstöðum
Á laugardag Austlæg átt, víða 8-15 m/s og snjókoma eða él, en
suðvestan 5-10 syðst. Frost 1 til 6 stig.
Á sunnudag Norðaustan 10-15 m/s og éljagangur, en hægara og
léttskýjað S- og V-lands. Frost víða 0 til 5 stig.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Austan og suðaustan 10-15 við S-ströndina,
annars hægari. Dálítil snjókoma S-lands síðdegis. Frost 0 til 10 stig.
VEÐUR
Hið unga lið Ynja á Akureyri
gerði sér lítið fyrir og varð
Íslandsmeistari kvenna í ís-
hokkí í gærkvöldi. Ynjurnar
unnu þá deildarmeistarana,
Ásynjur, sem einnig eru hluti
af Skautafélagi Akureyrar,
4:1, í oddaleik um Íslands-
bikarinn í Skautahöllinni á
Akureyri. Úrslitin réðust í
síðasta leikhlutanum
eftir æsispennu frá
upphafi til enda
leiksins. »1
Ynjurnar glöddust
á svellinu
Atvinnukylfingurinn Ólafía Þórunn
Kristinsdóttir fór vel af stað á þriðja
LPGA-móti sínu,sem hófst í Phoenix í
Arizona í gær. Hún lék fyrsta hringinn
á þremur höggum undir
pari vallarins og var
seint í gærkvöld í
kringum 35. sæti af
144 keppendum.
Ólafía náði fyrsta
erni sínum á LPGA-
móti þegar hún
lék par fjögur
holu á tveimur
höggum. »1
Ólafía Þórunn fór
vel af stað í Phoenix
ÍÞRÓTTIR
Skannaðu
kóðann með
símanum þínum
og fylgstu með
veðrinu á
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Einstök börn, stuðningsfélag barna
með sjaldgæfa sjúkdóma og heil-
kenni, er 20 ára um þessar mundir.
Félagið bryddar upp á ýmsu í ár í
tilefni afmælisins. Þar ber hæst mál-
þing, sem haldið var 28. febrúar, á
degi sjaldgæfra sjúkdóma, og dags-
ferð í Legoland í Danmörku, sem
farin verður í byrjun maí. Í haust
verður boðið upp á fjölbreytta dag-
skrá í formi fræðslu fyrir foreldra
barnanna og systkini þeirra.
Hlutverk stuðningsfélagsins er að
gæta hagsmuna þessara barna og
aðstandenda þeirra, halda utan um
þær fjölskyldur sem eiga börn með
sjaldgæfar greiningar. Guðrún
Helga Harðardóttir, framkvæmda-
stjóri félagsins, segir að stöðugt
þurfi að gæta að réttindum hópsins,
sinna fræðslumálum og vekja at-
hygli á málaflokknum og sértækum
þörfum hópsins.
Alls fara yfir 200 manns með
fylgdarfólki og starfsmönnum í ferð-
ina í Legoland. „Með þessu gefum
við börnum og systkinum þeirra
tækifæri til þess að gera eitthvað
gaman saman,“ segir Guðrún. Í
sumum tilfellum þurfa börn tvo
fylgdarmenn, en annars er einn
fylgdarmaður með hverju barni.
„Við gefum líka börnum sem hafa
misst systkini sín færi á því að fara
með.“
Guðrún segir fjármögnun ferðar-
innar mikið púsluspil. „Þrátt fyrir að
vera eitt stærsta líknarfélag lands-
ins erum við ekki á fjárframlögum
ríkisins og erum því eingöngu háð
framlögum frá einstaklingum og
fyrirtækjum,“ segir hún.
Starfsemi félagsins byggist á
sjálfboðavinnu foreldra og er Guð-
rún eini launaði starfsmaðurinn.
„Vinna okkar gengur út á að berjast
í réttindamálum og stuðningsmálum
fjölskyldunnar,“ segir hún. Baráttan
hafi nýlega skilað þeim árangri að
nú megi fjölskylda með tvö veik börn
samnýta tvo styrki frá Trygginga-
stofnun til kaupa á einum bíl, en áð-
ur mátti það ekki. Oftar en ekki sé
nauðsynlegt að sérhanna reglur
vegna barna með sjaldgæfa sjúk-
dóma.
Félagið helsta stoð foreldra
„Kerfið virkar þannig að þegar
einstaklingar greinast með algeng-
ari veikindi tekur ákveðið kerfi við,
teymi sérfræðinga leiðir fjölskyld-
una áfram og heldur utan um hana í
ferlinu,“ segir Guðrún. „Veikindin
eru þekkt innan kerfisins og vitað er
hvernig á að bregðast við þeim. Þeg-
ar barn greinist með sjaldgæfan, al-
varlegan sjúkdóm eða sjaldgæft
heilkenni upplifa foreldrar sig eina
og þess eru mörg dæmi að þeim sé
sagt að fara heim og gúgla á netinu
til þess að fá nánari upplýsingar. Þá
komum við til sögunnar, reynum að
leiðbeina og vinna með foreldrunum,
hjálpum þeim að komast að í úr-
ræðum, ráðgjöf og aðstoð, en það er
svo sannarlega það sem foreldrar
þurfa.“
Guðrún segir að þeir sem leiti til
félagsins eigi ekki aðgang að öðrum
félögum. Foreldrar hafi stofnað fé-
lagið til þess að geta betur átt sam-
skipti við foreldra í sömu sporum og
starfsemin hafi eflst í áranna rás. Öll
fagþjónusta innan félagsins hafi
aukist mikið. Í því sambandi bendir
hún á að flest námskeið í boði séu frí
fyrir aðstandendur barnanna.
„Starfsemin er byggð upp á stuðn-
ingi samfélagsins,“ áréttar Guðrún.
Þannig hafi félagið til dæmis fengið
styrki til þess að halda námskeið í
skyndihjálp, námskeið um styrkingu
samskipta hjóna og námskeið um
hvernig styrkja megi systkini barna
með sjaldgæfar greiningar, sem ver-
ið sé að undirbúa. „Mikilvægt er að
auka lífsgæði barnanna og fjöl-
skyldna þeirra og er það megin-
markið félagsins alla daga,“ segir
Guðrún.
Einstök börn fara í Legoland
Stuðningsfélag barna með sjaldgæfa sjúkdóma og heilkenni er 20 ára
Ljósmynd/Sigurður William Brynjarsson
Bessastaðir Hópur frá Einstökum börnum heimsótti forsetahjónin nýverið og næsta stórverkefni er ferð í Legoland í Danmörku.