Morgunblaðið - 28.03.2017, Qupperneq 1
Þ R I Ð J U D A G U R 2 8. M A R S 2 0 1 7
Stofnað 1913 74. tölublað 105. árgangur
EIN MEÐ
ÖLLU
Fullt verð 390 kr.
N1 kortatilboð
199 punktar
ERLA Í LANDI
SVEFNS OG
LANDI VÖKU VALTÝR Í SVIÐSLJÓSINU
NÝIR BÍLAR
FYRIR TVÆR
MILLJÓNIR
GÁFU Á ANNAÐ ÞÚSUND VERK 30 BÍLAR OG VINNUVÉLARBÓK UM SVEFN 12
Ríkisstjórnin kemur saman til
aukafundar í dag og hyggst af-
greiða fjölda mála af þingmála-
skrá sinni.
Ríkisstjórnin afgreiddi á fundi
sínum á föstudag um fimmtán mál
og sennilega verður annar eins
fjöldi mála afgreiddur á ríkis-
stjórnarfundinum í dag.
Fram hefur komið að þingmála-
listi ríkisstjórnarinnar er samtals
101 mál og um 30 þeirra eru kom-
in til Alþingis í formi frumvarpa,
þingsályktunartillagna eða innleið-
inga á tilskipunum.
„Það er rétt, að þótt þingmála-
listi ríkisstjórnarinnar sé 101 mál
eru aðeins um 30 þeirra komin til
þingsins. En ég hef í sjálfu sér
engar áhyggjur af því, vegna þess
að á næstu dögum og vikum mun
mikill fjöldi mála ríkisstjórn-
arinnar koma til Alþingis,“ sagði
forsætisráðherra í samtali við
Morgunblaðið í gær.
Frestur til þess að leggja fram
þingmál á vorþingi rennur út 1.
apríl. Það þýðir þó ekki að eftir þá
dagsetningu sé ekki hægt að
leggja fram ný þingmál, heldur
þarf þingið þá að samþykkja af-
brigði fyrir hvert mál sem lagt er
fram. »6
Morgunblaðið/Ómar
Málaskrá Ríkisstjórnin vinnur að
því að koma málum til þingsins.
Mörg mál til
þingsins frá
ríkisstjórn
Aukafundur í dag
Minjastofnun Íslands sem eftirlit
hefur með friðlýstum fornleifum á
Helgafelli á Snæfellsnesi frétti
fyrst um ákvörðun landeigenda
um gjaldtöku á staðnum í Morgun-
blaðinu í gær. Kristín Huld
Sigurðardóttir, forstöðumaður
stofnunarinnar, segir að ekki komi
til greina að starfsmenn greiði
gjaldið við eftirlitsferðir. Hún hef-
ur skilning á fjárþörf landeigenda
vegna umhverfisbóta, en telur
gjaldtöku af hverjum og einum
gesti ekki réttu leiðina. Gjald-
takan er umdeild og hafa spunnist
um hana heitar umræður á netinu.
»14
Girða ekki fyrir að-
gang að Helgafelli
Ráðagóð amma varð til þess að
vegabréf sonardóttur hennar, sem
hafði ekki skilað sér tíu dögum eftir
tilsettan afhendingartíma, fannst
heima hjá bréfbera ásamt öðrum
pósti til fjölskyldunnar.
Stúlkan, sem býr á Völlunum í
Hafnarfirði, var að fara í ferð með
fjölskyldunni til Frakklands í byrj-
un mars þegar kom í ljós að nýtt
vegabréf hennar hafði ekki skilað
sér þrátt fyrir svör frá Þjóðskrá um
að það hefði farið í póst á tilsettum
tíma. Amman starfaði sem bréfberi
á árum áður og ákvað að kanna
málið, samkvæmt Fjarðarfréttum.
Hún kemst að því hver er bréfberi í
hverfi fjölskyldunnar og fer heim
til hans. Þar kemur faðir bréfber-
ans til dyra og þegar hann var
spurður hvort þar lægi póstur á við-
komandi nafni fór hann inn og kom
til baka með vegabréfið og ýmsan
annan póst til fjölskyldunnar, m.a
ökuskírteini annars fjölskyldu-
meðlims. Móðir stúlkunnar segir að
ekkert hafi átt að tefja fyrir því að
vegabréfið bærist í tæka tíð. Atvik-
ið er enn til rannsóknar hjá Íslands-
pósti. ingveldur@mbl.is »4
Bréfberi var með vegabréfið
Morgunblaðið/Eyþór
Pósturinn Vegabréfið fannst heima
hjá bréfberanum í Hafnarfirði.
Hafði upp á pósti fjölskyldunnar heima hjá bréfberanum
Landspítalinn ráðgerir að taka jáeindahluta á
nýjum jáeindaskanna í notkun í september.
Íslensk erfðagreining færði þjóðinni skannann,
allan tilheyrandi tækjakost og sérhæft húsnæði
undir hann að gjöf, en fyrsta skóflustungan að
húsnæðinu var tekin fyrir rúmu ári. »6
Morgunblaðið/Eggert
Styttist í jáeindaskönnun á Landspítalanum
Guðni Einarsson
Jón Birgir Eiríksson
Útlit er fyrir að þriðjungur starfa í
samsteypu HB Granda á Akranesi
verði lagður niður, en áform eru um
að sameina botnfiskvinnsluna í bæn-
um þeirri sem er í Reykjavík. Um er
að ræða 93 störf og er samráðsferli
við stéttarfélög og trúnaðarmenn haf-
ið. Að sögn trúnaðarmanns er starfs-
fólkið slegið.
„Við gætum verið að reka okkar
botnfiskvinnslu í Reykjavík í dag og
vinna þar 24 þúsund tonn eða svo. Við
höfum ekki aðstöðu til þess hér,“ seg-
ir Vilhjálmur Vilhjálmsson, forstjóri
HB Granda.
Vilja koma til móts við Granda
Bæjaryfirvöld á Akranesi munu á
næstu dögum funda með forsvars-
mönnum HB Granda um úrbætur á
Akranesshöfn. Lengi hefur verið rætt
um að laga höfnina betur að starfsemi
fyrirtækisins, en Sævar Freyr Þrá-
insson, bæjarstjóri á Akranesi, segir
að bæjaryfirvöld muni gera allt sem
þau geti til að koma til móts við fyr-
irtækið. Hann segir að vinnslunni sé
betur borgið á Akranesi en á núver-
andi stað, í Reykjavík.
Endanleg ákvörðun hefur ekki ver-
ið tekin um uppsagnirnar, en á morg-
un er að vænta frekari upplýsinga um
hvort af áformunum verður. Verði
niðurstaðan sú að starfsfólkið missi
störf sín, verður samband haft við
Vinnumálastofnun, að sögn Vil-
hjálms.
Fjöldi starfa í uppnámi
HB Grandi hyggst segja upp 93 starfsmönnum á Akranesi Samráðsferli hafið
Ástæður áformanna rekstrartengdar Bæjaryfirvöld funda með fyrirtækinu
HB Grandi
» HB Grandi hyggst flytja
botnfiskvinnslu sína frá Akra-
nesi.
» 93 störf samsteypunnar
yrðu lögð niður.
» Bæjaryfirvöld funda með HB
Granda á næstu dögum um úr-
bætur í Akraneshöfn.
MHættir botnfiskvinnslu »10