Morgunblaðið - 28.03.2017, Side 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 28. MARS 2017
Amman náði að fá uppgefið hver
bæri út í hverfinu sem stúlkan býr í,
fór heim til bréfberans og þar kom
faðir hans til dyra, segir í frétt
Fjarðarfrétta. Þegar hann var
spurður hvort þar lægi póstur á við-
komandi nafni fór hann inn og kom
til baka með vegabréfið og ýmsan
annan póst til fjölskyldunnar, m.a
ökuskírteini til yngri systur stúlk-
unnar, boðskort og jólakveðjur.
Fleiri bíða eftir póstinum
Móðir stúlkunnar segir í samtali
við Morgunblaðið nöfn allra fjöl-
skyldumeðlima vera á útidyrahurð-
inni og að hún hafi verið merkt eftir
leiðsögn fyrrum bréfbera. Þau hafi
alltaf fengið sinn póst þar til nýlega
þegar það fór að bera á brestum í
póstútburðinum á Völlunum. „Við
settum þessa sögu inn á Facebook-
síðu hverfisins og þá kom í ljós að
það voru margir að bíða eftir pósti,
nefndu að þeir væru búnir að bíða
eftir ökuskírteinum, vegabréfum og
greiðslukortum í lengri tíma, þannig
að það er eitthvað að í póstdreifing-
unni. Sem sýnir sig m.a í því að við
höfum ekki fengið neinn póst heim til
okkar núna í rúma viku,“ segir móð-
irin en nokkrir íbúar hverfisins hafa
Ingveldur Geirsdóttir
ingveldur@mbl.is
Vegabréf sem hafði ekki borist með
póstinum á tilsettum tíma fannst eft-
ir dálitla eftirgrennslan heima hjá
bréfbera ásamt öðrum pósti.
Fjarðarfréttir greindu frá atvikinu.
Málavextir eru þeir að stúlka sem
býr ásamt fjölskyldu sinni á Völl-
unum í Hafnarfirði átti von á nýju
vegabréfi með póstinum en fjöl-
skyldan var að fara saman í ferðalag
til Frakklands. Hún fær tilkynningu
frá Þjóðskrá um að vegabréfið eigi
að berast í síðasta lagi 25. febrúar.
Daginn fyrir brottför, 3. mars, er
vegabréfið ekki komið og hjá Þjóð-
skrá fást þær upplýsingar að það
hafi farið í póst á tilsettum tíma.
Vegabréfið finnst ekki en stúlkan
kemst úr landi með ökuskírteini.
Amma stúlkunnar, sem vann við
póstburð á árum áður, ákvað að at-
huga málið og fór og ræddi við
starfsmann hjá Póstinum en mætti
dónaskap. Sá sakaði fjölskylduna um
að vera með illa merkta lúgu en þeg-
ar amman sýndi mynd til sönnunar
um að svo væri ekki spurði starfs-
maðurinn hvort hún hefði ekki bara
verið að merkja lúguna í þessu.
líka nefnt að bréfberatöskur hafi leg-
ið úti í lengri tíma.
Auk vegabréfsins var ökuskírteini
yngri dóttur líka heima hjá bréfber-
anum. Hana var farið að lengja eftir
því og ræða um að það væri miklu
lengur á leiðinni en talað hefði verið
um. „Íslandspóstur þarf að skoða
hvað er að þessu ferli hjá þeim. Það
er slæmt að pósturinn manns skuli
liggja heima hjá einhverjum en það
er tilfinning tengdamóður minnar að
þessi póstur hafi legið þarna í marga
daga,“ segir móðirin.
Fjölskyldan skrifaði litla grein-
argerð um málið og sendi Íslands-
pósti án þess að vera að fara fram á
neitt. Fyrsta svarið frá fyrirtækinu
var; „Við erum ekki skaðabóta-
skyldir“ og litlar útskýringar feng-
ust á atvikinu.
Í geymslu yfir helgina
„Það er engin skaðabótaskylda
fyrir almenn bréf því þau eru hvorki
rekjanleg né tryggð. En við berum
að sjálfsögðu ábyrgð á því að koma
öllum pósti til skila og tökum það
mjög alvarlega. Það er alls ekki rétta
leiðin að viðskiptavinir fari heim til
starfsmanns og fái póstinn afhentan
þannig,“ segir Brynjar Smári Rún-
arsson, forstöðumaður markaðs-
deildar Íslandspósts.
Atvikið er enn til rannsóknar en að
sögn Brynjars Smára bar bréfberinn
því við að það hafi ekki verið merk-
ing á viðkomandi hurð og hann því
haldið bréfinu, búið var að loka dreif-
ingarstöðinni eftir útburð þennan
föstudag og því hafi hann sett óskil-
apóstinn í geymslu heima hjá sér yfir
helgina. „Á mánudeginum fær hann
annan póst heim til sín og þá átti að
ná í þennan póst en það var ekki búið
þegar þetta kom upp,“ segir Brynjar
Smári, slík atvik séu alls ekki algeng.
Spurður hvort það sé eðlilegt að
bréfberar geymi póst heima hjá sér
segir hann það ekki vera en það hafi
verið búið að loka dreifingarstöðinni
og því ekki annað í stöðunni, en ef
slík staða komi upp eigi pósturinn
ekki að vera fyrir sjónum annarra,
mjög óeðlilegt sé að faðir hans hafi
farið í póstinn.
Spurður hvers vegna vegabréfið
hafi verið svona lengi á leiðinni svar-
ar Brynjar Smári að eitthvað hafi
verið óljóst með rétt heimilisfang
viðtakandans. „Í póstfangagrunn-
inum okkar eru tvær skráningar.
Þjóðskráin og okkar póstfanga-
grunnur. Þjóðskráin var með rétt
heimilisfang en það var vitlaust í
okkar kerfi sem bjó til þennan mis-
skilning á hvorn staðinn bréfið ætti
að fara,“ segir Brynjar Smári.
Samkvæmt móður stúlkunnar var
fullt nafn hennar á umslaginu, með
heimilisfangi lögheimilis þar sem
hún býr og er nafn hennar merkt
skýrum stöfum á lúguna þar. „Þetta
bréf hefði átt að fara inn um lúguna
hjá okkur, það er ekkert flókið við
það.“
Amman bankaði upp á hjá bréfberanum
Fann vegabréf sem hafði ekki skilað sér tíu dögum eftir tilsettan afhendingartíma Léleg póst-
dreifing á Völlunum í Hafnarfirði Bréfberinn ber því við að póstlúgan hafi ekki verið merkt
Borið út Íslandspóstur ber ábyrgð á
því að koma öllum pósti til skila.
Heimssýn hreyfing sjálfstæðissinna í Evrópumálum
Aðalfundur Heimssýnar
verður haldinn þriðjudaginn 28. mars kl. 20
í húsakynnum Heimssýnar í Ármúla 6, Reykjavík
Ræðumaður: Guðni Ágústsson fyrrverandi ráðherra
Fundarstjóri: Haraldur Ólafsson veðurfræðingur
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf
2. Kosningar
3. Önnur mál
Allir félagsmenn og stuðningsfólk Heimssýnar velkomið
Framkvæmdastjórn Heimssýnar
Guðni Einarsson
Hólmfríður Gísladóttir
Stjórnendur United Silicon (USi) í
Helguvík hvetja til þess að leitað
verði skýringa á uppruna mengunar,
sem mælst hefur á Suðurnesjum, áð-
ur en hrapað verði að ályktunum.
Sérfræðingar frá fyrirtækinu skoða
mæligögn, sem verið hafa til umræðu
síðustu daga, um niðurstöður á grein-
ingu á PAH-efnum, sem eru lífræn
efnasambönd, og fleiri efnum, þar á
meðal þungmálmum. Efnin hafa
greinst í svifryki frá mælistöð í eigu
USi sem Orkurannsóknir ehf. reka
við Hólmbergsbraut. Stöðin er um
800 metra sunnan við verksmiðjuna.
Dularfull aukning mengunar
Ríkisútvarpið greindi frá því að ar-
senmengun frá verksmiðjunni hefði
mælst yfir 20 sinnum meiri en starfs-
leyfi hennar leyfði. Kristleifur
Andrésson, öryggis- og mannauðs-
stjóri USi, benti á í samtali við Morg-
unblaðið að mæliniðurstöður fyrir
styrk arsens frá mars 2016 og fram
að mánaðamótum september og
október sama ár væruu nánast flöt
lína, um eitt nanógramm á rúmmetra
(ng/m3). Í byrjun október 2016 hækk-
aði gildið í um 6 ng/m3 og hélst nokk-
uð stöðugt í október, nóvember og
desember. Það sem mesta athygli
vekur er að verksmiðja USi var ekki
gangsett fyrr en 13. nóvember 2016.
Gildið hækkaði því um sex vikum áð-
ur en verksmiðjan fór í gang. Gildið
hækkaði í lok desember í 6,9 ng/m3
sem kann að stafa frá skoteldum.
Kristleifur sagði mjög sérstakt að
sjá að mæligildin hefðu ekkert breyst
við það að verksmiðjan fór í gang.
Hann sagði að fulltrúar USi hefðu
rætt við Orkurannsóknir ehf. sem
segðu að mælistöðin hefði verið í
góðu lagi. Einnig sagði Kristleifur að
í október, nóvember og desember
2016 hefði sunnanátt verið ríkjandi á
svæðinu. Vindur stóð því af mæli-
stöðinni í átt til verksmiðjunnar en
ekki öfugt.
Íbúar í Reykjanesbæ hafa kvartað
yfir lykt frá verksmiðjunni og óþæg-
indum sem henni fylgir. Kristleifur
sagði að svo virtist sem lyktin kæmi
þegar slökkt væri á ofninum. USi
hefur samið við fyrirtæki um að taka
sýni í kring um næsta ofnstopp.
Þannig á að athuga hvort efnið sem
veldur lyktinni finnst.
Í tilkynningu frá USi í gær sagði
að undanfarið hefði verið lögð
áhersla á „að lagfæra og endurbæta
búnað verksmiðjunnar til að tryggja
að hvorki starfsmönnum hennar né
íbúum í nágrenninu stæði heilsufars-
leg ógn af rekstri hennar.“
Bærinn vill lokun tímabundið
Bæjaryfirvöld Reykjanesbæjar
hafa óskað eftir því við Umhverfis-
stofnun (UST) að verksmiðju USi
verði lokað þar til gerðar hafa verið
úrbætur sem koma í veg fyrir um-
hverfismengun frá henni. Fulltrúar
UST munu mæta á fund bæjarráðs
Reykjanesbæjar á fimmtudag, að
ósk Guðbrands Einarssonar, forseta
bæjarstjórnar. Hann skrifaði UST sl.
sunnudag. Í bréfinu sagði m.a.:
„Ég mun ekki styðja það að gerðar
verði tilraunir á íbúum í heilt ár til
þess að fá úr því skorið hvort verið sé
að úða hættulegum efnum yfir þá.
Það er alveg ljóst að þær upplýsingar
sem lagðar voru fram til grundvallar
starfsleyfi standast alls ekki og held
[ég] að það sé eðlileg krafa að rekstur
verksmiðjunnar verði stöðvaður á
meðan farið er yfir þetta.“
Mat á umhverfisáhrifum gerði ráð
fyrir að magn arsens, eða arseníks, í
andrúmsloftinu frá verksmiðjunni
færi mest í 0,32 ng/m3. Þá hafði Rík-
isútvarpið eftir dósent í eiturefna-
fræðum að full ástæða væri til að
hafa áhyggjur af þessari mengun þar
sem arseník væri krabbameinsvald-
andi.
Friðjón Einarsson, formaður
bæjarráðs Reykjanesbæjar, sagði að
svo virtist sem USi hefði ekki staðið
við gefin loforð um að menga ekki
umhverfið. Hann sagði að þolinmæði
íbúa væri brostin og að bæjarfulltrú-
ar í Reykjanesbæ hefðu fengið nóg.
Bæjaryfirvöld funduðu síðast með
forsvarsmönnum USi fyrir nokkrum
vikum. Þá var farið yfir kvartanir
íbúa vegna mengunar frá verksmiðj-
unni. Að sögn Friðjóns viðurkenndu
fulltrúar USi að þetta hefði ekki
gengið eins vel og þeir ætluðu en það
væri verið að skoða hönnun verk-
smiðjunnar og lagfæringar og annað
slíkt. Hann sagði það fara eftir vind-
átt í hvaða hverfum fólk yrði vart við
mengunina hverju sinni.
Leita verður skýringa
Mæligildi arsens í lofti hækkuðu áður en verksmiðja Unit-
ed Silicon var gangsett Bærinn vill harðar aðgerðir strax
Ljósmynd/United Silicon
Helguvík Verksmiðja United Silicon er sú eina sinnar tegundar á landinu.
Héraðssaksóknari hefur birt ákæru
gegn lögreglumanni sem sakaður er
um að hafa ráðist á fanga í fanga-
geymslu lögreglustöðvarinnar við
Hverfisgötu í maí á síðasta ári.
Atvikið náðist á upptökur eftirlits-
myndavéla og eru þær meðal sönn-
unargagna í málinu.
Í ákærunni segir að eftir að lög-
reglumaðurinn hafi handjárnað
manninn fyrir framan búk, hafi hann
tekið um hálsmál á peysu hans, ýtt
honum upp við vegg og tekið hann
svo niður í gólfið þar sem maðurinn
lenti á bakinu. Lögreglumaðurinn
setti þá hægra hné á bringu manns-
ins og skellti höfði mannsins tvisvar
sinnum í gólfið auk þess sem hann
ógnaði honum með krepptum hnefa
sínum framan við andlit hans.
Dreginn eftir fangaganginum
Lögreglumaðurinn dró fangann
síðan á fætur og skellti honum upp
við vegg, eins og segir í ákærunni.
Maðurinn hneig svo niður og dró lög-
reglumaðurinn hann þá eftir fanga-
ganginum og að lyftu í fangageymsl-
unni. Hlaut maðurinn blæðingu í og
undir húð á hnakka, eymsli og væga
bólgu yfir liðbandi í hægri ökkla.
Maðurinn krefst tveggja milljóna
króna í skaðabætur.
Skellti höfði fang-
ans tvisvar í gólfið
Lögreglumaður ákærður fyrir árás
Morgunblaðið/Golli
Hverfisgata Atvikið átti sér stað í
fangageymslu lögreglustöðvarinnar.