Morgunblaðið - 28.03.2017, Side 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 28. MARS 2017
Í gær spurði Smári McCarthy,þingmaður Pírata, Benedikt Jó-
hannesson, efnahags- og fjár-
málaráðherra, út í tryggingagjald.
Smári vildi vita hvort ráðherra
hygðist leggja til lækkun gjaldsins,
hvort eitthvað stæði
í vegi fyrir lækkun
þess og hvort það
væri rétt að það
hefði hlutfallslega
meiri áhrif á rekst-
ur lítilla og með-
alstórra fyrirtækja
en á rekstur stærri
fyrirtækja.
Benedikt stað-festi að mæl-
ingar ráðuneytisins
sýndu að trygginga-
gjaldið vægi mun
þyngra hjá minni fyrirtækjum en
þeim stærri, jafnvel tvöfalt þyngra.
Hann sagði líka að ríkisstjórninstefndi að lækkun trygginga-
gjalds „á kjörtímabilinu“ en að ná-
kvæm tímasetning mundi ráðast af
aðstæðum.
Ráðherra lagði einnig áherslu áað gjaldið hefði mikilvæg
sveiflujafnandi áhrif. Hann svaraði
því ekki beint hvort eitthvað stæði í
vegi lækkunar gjaldsins, en ekki
fór á milli mála að yfirmenn hans í
ráðuneytinu hafa miklar efasemdir
um að leyfa honum að lækka þrátt
fyrir kjöraðstæður.
Og það sérkennilega var að þeg-ar Smári fékk þessi óljósu svör
varð hann himinlifandi með þau og
fór að fabúlera um mögulega
þrepaskiptingu gjaldsins í stað þess
að þrýsta á um lækkun þess.
Skattgreiðendur skulu með öðr-um orðum ekki reikna með að
þessir tveir standi saman um lækk-
un tryggingagjaldsins á næstunni.
Leyfi til lækkunar
ekki fengist enn
STAKSTEINAR
Benedikt
Jóhannesson
Smári McCarthy
Veður víða um heim 27.3., kl. 18.00
Reykjavík 5 skýjað
Bolungarvík 0 skýjað
Akureyri 5 heiðskírt
Nuuk -3 skýjað
Þórshöfn 6 skýjað
Ósló 13 léttskýjað
Kaupmannahöfn 9 þoka
Stokkhólmur 17 heiðskírt
Helsinki 10 léttskýjað
Lúxemborg 16 heiðskírt
Brussel 17 heiðskírt
Dublin 12 léttskýjað
Glasgow 13 heiðskírt
London 14 þoka
París 18 heiðskírt
Amsterdam 16 heiðskírt
Hamborg 16 heiðskírt
Berlín 17 heiðskírt
Vín 13 heiðskírt
Moskva 1 snjóél
Algarve 17 heiðskírt
Madríd 13 skýjað
Barcelona 15 léttskýjað
Mallorca 18 skýjað
Róm 13 léttskýjað
Aþena 11 léttskýjað
Winnipeg 1 skýjað
Montreal 1 rigning
New York 5 súld
Chicago 9 þoka
Orlando 25 heiðskírt
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
28. mars Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 6:59 20:08
ÍSAFJÖRÐUR 7:01 20:16
SIGLUFJÖRÐUR 6:44 19:59
DJÚPIVOGUR 6:28 19:38
Afar fáir kennarar stóðu við uppsagn-
ir sem tilkynntar voru meðan kjara-
deila kennara og sveitarfélaga lands-
ins stóð yfir síðastliðið haust. Allir
þeir tólf kennarar sem skiluðu inn
uppsagnarbréfi í Norðlingaskóla í
Reykjavík drógu uppsögn sína til-
baka samkvæmt upplýsingum frá
skólanum. Rúmlega fjörutíu upp-
sagnarbréf bárust Reykjanesbæ í
flestum af þeim sex grunnskólum í
sveitarfélaginu og drógu flestir upp-
sögn sína til baka. „Það voru samtals
fjörutíu sem sögðu upp hjá okkur, það
voru þrír sem stóðu við uppsögnina
sína og það voru starfsmenn sem
höfðu unnið stutt og voru með mán-
aðaruppsagnarfrest,“ segir Helgi
Arnarsson, sviðstjóri fræðslusviðs
Reykjanesbæjar.
„Þetta fór bara eins vel og maður
gat vonað, þó að einn sé of mikið þá er
alltaf einhver hreyfing á fólki.“
Flestir dregið til baka í borginni
Fjöldi uppsagna var tilkynntur hjá
Reykjavíkurborg en í svörum
Reykjavíkurborgar við fyrirspurn
Morgunblaðsins var sagt að flestir
hefðu dregið til baka. Það vantar ekki
nema 4,5 stöðugildi kennara hjá
Reykjavík og ætti því að vera ljóst að
flestir hefðu dregið uppsögn sína til-
baka.
Fáir kennarar stóðu við uppsagnir
Allir tólf kennararnir sem tilkynntu
uppsögn í Norðlingaskóla hættu við
Morgunblaðið/Kristinn
Norðlingaskóli Ekki kom til 12
uppsagna hjá Norðlingaskóla.
Fyrstu lóur vorsins sáust í gær. Í
fyrra var greint frá fyrstu lóunum
26. mars en 18. mars árið 2015. Í
þessari upptalningu eru ekki taldar
með þær lóur sem eru á landinu á
veturna líka en þær voru áberandi
margar í ár, líklega vegna hlýnandi
loftslags.
Í samtali við mbl.is í gær sagði
Stefán Áki Ragnarsson, sjávarlíf-
fræðingur hjá Hafrannsókna-
stofnun, sem er mikill áhugamaður
um fuglinn, að þær lóur sem héldu
til á landinu í vetur væru aðallega á
suðvesturhorninu, til að mynda á
Seltjarnarnesi og Reykjanesi.
Það er því hægt að gera ráð fyrir
því að lóurnar sem sáust á Einars-
lundi á Höfn í gær hafi verið að
koma að utan og því fyrstu vorboð-
arnir.
Morgunblaðið/Ómar
Komin Vorboðinn ljúfi lét sjá sig við
Einarslund á Höfn í Hornafirði í gær.
Lóan komin
til landsins