Morgunblaðið - 28.03.2017, Page 13

Morgunblaðið - 28.03.2017, Page 13
Morgunblaðið/Árni Sæberg vegar svolítið sér á parti. Í könnun Lýðheilsustofnunar fyrir nokkrum árum kvaðst tæplega fjórðungur Ís- lendinga sofa aðeins sex tíma eða skemur á sólarhring. Innri klukkan og veggklukkan „Rannsóknir hafa sýnt að Íslend- ingar fara um klukkustund seinna að sofa en fólk í löndunum í kringum okkur, þótt vinnudagurinn byrji á svipuðum tíma. Mig grunar að við séum á röngum tíma. Eftir að hætt var að breyta klukkunni tvisvar á ári, vor og haust, erum við föst í sumartíma, sem að mínu mati er skekkja miðað við stöðu landsins. Birtan stillir okkar innri klukku, ekki klukkan á veggnum. Öfgarnar – þetta mikla myrkur á veturna og birtan allan sólarhringinn á sumrin, geta valdið svefntruflunum. Margir finna fyrir drunga og þreytu og eiga erfitt með að vakna í svartasta skammdeginu eða geta ekki sofnað í birtunni á sumrin,“ segir Erla og lík- ir ástandinu við króníska flugþreytu. Hún hefði ekkert á móti því að klukkunni væri seinkað um klukku- tíma. Könnun frá í fyrra leiddi í ljós að nemendur í 10. bekk sofa yfirleitt ekki meira en sex tíma á virkum dögum. Erla segir krakka á þessum aldri þurfa níu til tíu tíma nætur- svefn. Hún skellir skuldinni að hluta á nýjustu tæki og tól. „Unglingar eru stöðugt í snjall- símunum sínum, allt er svo spenn- andi og þeir vilja ekki missa af neinu. Eftir að þeir bjóða pabba og mömmu góða nótt fara þeir með símana inn í herbergið sitt undir því yfirskyni að þeir séu vekjaraklukka. Síðan hanga þeir á samfélagsmiðlum, netinu eða í tölvuleikjum fram undir morgun. Auk svefnleysis hefur viðvarandi ljósáreiti af þessu tagi hamlandi áhrif á melatónínframleiðslu lík- amans. Bæði börn og fullorðnir þurfa frí frá þessum áreitum. Við þurfum ekki að vera tengd umheim- inum allan sólarhringinn.“ Ofneysla svefnlyfja Erlu finnst sérstakt áhyggjuefni að Íslendingar taka margfalt meira af svefnlyfjum en þekkist annars staðar í heiminum. „Svefnlyf virka í skamman tíma, um það bil fjórar vikur. Fólk er fljótt að mynda þol fyrir þessum lyfjum og þótt áhrifin séu því bara sálræn getur það lent í vítahring. Langtímanotkun er ekki að- eins tilgangslaus heldur líka skaðleg heilsunni,“ segir Erla og nefnir slæm áhrif lyfjanna á minni, hugsun og jafnvægi. „Þar af leiðandi eru þau sér- staklega slæm fyrir eldra fólk með tilliti til þess að detta og meiða sig, jafnvel beinbrotna,“ bætir hún við. Helstu áhættuþættir langvar- andi svefnleysis eru mikið álag og áhyggjur, streita, óreglulegar svefnvenjur, ýmsar breytingar í lífinu, svo sem flutningar, nýtt starf og barneignir. Og ekki síst lífsstíllinn. „Það getur verið svo ótal margt sem hrindir af stað svefn- vanda. Við drekkum of mikið kaffi, erum of mikið í tölvunni og þar fram eftir götunum.“ Spurð hvað hafi komið henni mest á óvart í doktorsrannsókninni segist hún hafa uppgötvað að svefnleysi og kæfisvefn séu nátengdir sjúkdómar. Enn fremur að birtingarmynd svefn- leysis hjá kæfisvefnssjúklingum sé mismunandi og hafi ólík áhrif á lífs- gæði þeirra. „Þetta hljómar kannski bara spennandi fyrir „svefnnörda“ eins og mig en getur haft mikla þýð- ingu í áframhaldandi rannsóknum. Ef okkur tekst að lækna svefnleysi hjá kæfisvefnssjúklingum verður vonandi auðveldara að meðhöndla kæfisvefninn, sem er bæði algengur og vangreindur sjúkdómur,“ út- skýrir hún. Það er hennar draumur. DAGLEGT LÍF 13 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 28. MARS 2017 Erla Björnsdóttir fæddist í Reykjavík árið 1982. Hún er gift Hálfdani Steinþórssyni og eiga þau fjóra syni. Erla lauk BA-prófi í sálfræði frá Háskóla Íslands 2007, kandídatsprófi frá Háskól- anum í Árósum 2009 og doktorsprófi í líf- og læknavísindum frá HÍ 2015. Í doktors- námi sínu rannsakaði hún svefnleysi og andlega líðan og lífsgæði sjúklinga með kæfisvefn. Erla hefur sérhæft sig í hugrænni at- ferlismeðferð við svefnleysi og vinnur að rannsóknum á því sviði ásamt samstarfs- mönnum í Evrópu og Bandaríkjunum. Hún hefur birt fjölda greina í erlendum ritrýndum tímaritum og einnig skrifað um svefn á innlendum vettvangi. Erla rekur eigin stofu, Sálfræðiráð- gjöfina, vinnur sem nýdoktor í HÍ og að svefnrannsóknum á Landspítalanum. Hún hefur umsjón með vefsíðunni www.betrisvefn.is, þar sem hún er í beinu sambandi við notendur síð- unnar. NÁM OG STÖRF Rannsóknir og hugræn atferlismeðferð Ráðgáta Erla segir svefninn trúlega alltaf verða ráðgátu að einhverju leyti. HUGLEIÐINGAR OG HEILLARÁÐ UM SVEFN Í BÓKINNI SVEFN: „Á Alþingi Íslendinga er hins veg- ar ekki gert ráð fyrir átta tíma svefni. Kannski er það ástæðan fyrir því að þar eru stundum teknar slæmar ákvarðanir.“ Katrín Jakobsdóttir, alþm. „Verði maður andvaka um nótt er heillaráð að sækja sér heitt vatn í hitapoka og leggja til fóta.“ Vigdís Finnbogadóttir, fyrrverandi forseti Íslands. „Góður svefn er miði á fyrsta far- rými lífsins,“ Bubbi Morthens, tónlistarmaður. „Sú tilfinning að sofna þreyttur og sáttur, setja einhvers konar punkt aftan við daginn, hefur mér lærst að vera farsælasta byrjun næsta dags. [...] Í löngum lotum í vinnunni eru kommurnar, upphrópunarmerkin eða jafnvel spurningarmerkin algengari í lok dags en punkturinn. Það er ekki gott til lengdar.“ Helgi Seljan, sjónvarpsmaður. Helgi Seljan Bubbi Morthens Katrín Jakobsdóttir Vigdís Finnbogadóttir Hringbraut-Fjölmiðlar ehf. | Eiðistorgi 17 | 170 Seltjarnarnesi | www.hringbraut.is | Sími +354 561 3100 Missið ekki af áhugaverðum þætti um starfsemi Alp hf. og viðtali við forstjóra auk lykil stjórnenda. Hringbraut næst á rásum 7 (Síminn) og 25 (Vodafone) ATVINNULÍFIÐ Á dagskráHringbrautar í kvöld kl. 20.00 • Ein stærsta bílaleiga landsins með flota uppá 3.500 bifreiðar • Ýmsar tegundir bílaleigu þ.m.t. langtímaleiga, vetrarleiga o.fl. • Ný þjónustumiðstöð við Vatnagarða • Hótelrekstur við Mývatn og ör vöxtur í starfseminni Heimsókn til Alp hf. – AVIS og Budget í þættinum Atvinnulífið sem er á dagskrá Hringbrautar kl. 20.00 í kvöld

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.