Morgunblaðið - 28.03.2017, Qupperneq 15

Morgunblaðið - 28.03.2017, Qupperneq 15
FRÉTTIR 15Innlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 28. MARS 2017 Hlíðasmára 11 · 201 Kópavogur · Sími 534 9600 · heyrn.is Enn er bætt um betur með nýju ReSound heyrnartækjunum sem gefa eðlilega og áreynslulausa heyrn. Taktu þátt í framþróuninni og prófaðu þessa hágæða tækni. Aldrei hefur verið auðveldara að heyra GOLDEN LOBE AWARDS 2014 ASSOCIATION OF INDEPENDENT HEARING HEALTHCARE PROFESSIONALS Most Innovative Concept 2014 presented to: Resound - LiNX made for iPhone Magnús Heimir Jónasson mhj@mbl.is Verndarsjóður Skálholtskirkju var nýlega stofnaður en aðalmarkmið sjóðsins er að safna fé til viðgerðar á gluggum Skálholtskirkju. Gerður Helgadóttir smíðaði glugga kirkj- unnar fyrir rúmri hálfri öld. Hún varð hlutskörpust í hugmyndasam- keppni um útlit á gluggum kirkjunn- ar og hafa þeir verið í kirkjunni allt frá því að hún var vígð 21. júlí 1963. Gerður vann verkið á verkstæði Oidtmann í Þýskalandi og voru það stórkaupmennirnir Edw. Storr og Sv. L. Foght sem kostuðu verkið. Gluggar Gerðar þjóðargersemi „Þessir gluggar eru þjóðarger- semi og hafa notið mikillar hylli. Þeir hafa ekki farið í neina viðgerð síðan þeir voru settir upp og nú er komið að því að það þarf að efla til viðamikillar viðgerðar,“ segir Jón Sigurðsson, formaður stjórnar Verndarsjóðs Skálholtskirkju. Hann segir að um stóra viðgerð sé að ræða og þarf að framkvæma alla í einu. „Það er ekki hægt að taka einn og einn glugga niður heldur þarf að taka þá alla í einu. Það þarf að flytja þá til Þýskalands á verkstæði Oidt- mann þar sem þeir voru upphaflega gerðir og Gerður Helgadóttir vann við að setja þá saman. Þetta verður að gerast í einu átaki.“ Jón segir að viðgerðin muni kosta um 70 milljónir og hafa fyrstu mánuðir söfnunarinn- ar gengið ágætlega. „Við erum búin að vera í gangi núna í fjóra mánuði og metum það svo að þetta sé tveggja til þriggja ára verk en við dirfumst ekki að leggja af stað í við- gerðir fyrr en við sjáum fyrir end- ann á þeim.“ Verndarsjóðurinn varanlegur Jón segir að verndarsjóðurinn muni starfa áfram eftir að viðgerð á gluggunum lýkur. „Eftir að það er búið að gera við gluggana þá þarf að gera við tröppurnar, kjallarann, gluggana, hitaofnana og altaristöfl- una.“ Jón segir að altaristaflan sé í mjög slæmu ásigkomulagi og sjást sprungur eftir jarðskjálfta víða í töflunni. Hann vill jafnframt benda fyrirtækjum á að verndarsjóðurinn er sjálfseignarstofnun og eru styrkir í sjóðinn frádráttarbær frá skatti. „Fyrirtæki og aðilar sem styrkja Verndarsjóðinn fá nafn sitt ritað á þakkarskjöld sem verður hengdur í veggrými við anddyri skólahússins. Þar verða nöfn allra þeirra fyrir- tækja sem láta af hendi rakna,“ seg- ir Jón. Morgunblaðið/RAX Ljós Gluggar Gerðar Helgadóttur veita kirkjunni einstaka lýsingu. Vernda Skálholts- kirkju um ókomna tíð  Verndarsjóður Skálholtskirkju safnar fyrir viðgerðum Bændurnir á býlinu Espihóli í Eyja- fjarðarsveit fengu um helgina við- urkenningu Landssambands kúa- bænda – Fyrirmyndarbú ársins 2017. Þá fengu ræktendur nautsins Bolta frá Birtingaholti í Hruna- mannahreppi viðurkenningu Ráð- gjafarmiðstöðvar landbúnaðarins fyrir besta naut úr árgangi 2009. Félagsbú er á Espihóli, rekið af bræðrunum Kristni V. og Jóhannesi Æ. Jónssonum og konum þeirra, Ástu G. Sveinsdóttur og Sigurlaugu Björnsdóttur. Á búinu eru liðlega 60 árskýr og meðalnytin sú þriðja hæsta á landinu á síðasta ári, 8.206 kg. „Þykir búið til fyrirmyndar í hví- vetna og er þátttakandi í félags- og ræktunarstarfi svo eftir er tekið,“ segir í umsögn LK. Miklar afurðakýr Bolti 09021 var fæddur í Birt- ingaholti 4 í Hrunamannahreppi í febrúar 2009. Ræktendur hans eru Ingveldur Kjartansdóttir og Sig- urður Ágústsson. Bolti fékk nafnbótina Besta naut fætt árið 2009. Í umsögn um dætur hans kemur meðal annars fram að þær eru afurðakýr, stórar og há- fættar, júgurgerð úrvalsgóð, spena- gerð góð og þær eru góðar í mjölt- um. Bolti hlaut sömu örlög og önnur naut sem fara á sæðingastöð. Hann var felldur þegar búið var að taka úr honum 6.500 skammta til notkunar við sæðingar. helgi@mbl.is Espihólsbændur taldir til fyrirmyndar Ljósmynd/RML Tuddi Bolti frá Birtingaholti hefur lagt sinn skerf til kynbótastarfsins. Dýrahjálp Íslands hafa borist fjöl- margar fyrirspurnir um Tjúasveit- ina svokölluðu sem sagt var frá í Morgunblaðinu í gær. „Mikki og Max eru komnir mjög langt með það að fá heimili,“ segir Sonja Stef- ánsdóttir, sjálfboðaliði hjá Dýra- hjálp og umsjónarmaður hundanna, í samtali við mbl.is. Dýrahjálp hóf nýverið söfnun fyrir dýralæknakostnaði vegna Chihuahua-hundanna Ísólar, Hebu, Mikka, Max og Heru sem kallast Tjúasveitin en þá vantar alla heim- ili. Flestar umsóknir hafa borist um Mikka sem er yngstur en Sonja seg- ir einhverja ætla að koma og heim- sækja Ísold í dag og á næstu dögum. „Við erum síðan enn að reyna að ákveða hvort Heba og Hera eigi að vera saman. Það var planið en sú sem fóstrar þær var núna að segja að þær myndu örugglega standa sig vel hvor í sínu lagi.“ Margir áhugasamir um Tjúasveitina

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.