Morgunblaðið - 28.03.2017, Side 19

Morgunblaðið - 28.03.2017, Side 19
19 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 28. MARS 2017 Draumur Húsbyggjendur vita að ekki er gott að byggja á sandi en í draumheimum leyfist allt og þegar sápukúlur í Reykjavík eiga í hlut má leika sér með form og innviði að vild. Eggert Að undanförnu hef- ur skapast mikill íbúða- og lóðaskortur á höfuðborgarsvæðinu sem hefur valdið miklum hækkunum á fasteignamarkaði. Einnig hefur orðið ófremdarástand á leigumarkaði þar sem eftirspurn er mun meiri en framboð sem hefur leitt til mikillar hækkunar á húsaleigu. Margar ástæður liggja að baki þessum miklu hræringum á íbúðamarkaði, bæði hefur aukinn ferðamanna- straumur til landsins og sú stað- reynd að lítið var byggt á árunum eftir 2008 leitt til þess að mikið ójafnvægi er nú á milli framboðs og eftirspurnar. Sum sveitarfélög hafa ekki staðið sig sem skyldi í lóðaframboði sem hefur leitt til þess að byggingaframkvæmdir eru töluvert á eftir áætlun. Einstakir aldurshópar, s.s. fólk á aldrinum 20-35 ára, aldraðir, fólk sem þarf á félagslegri aðstoð sveitarfélaga að halda og þeir sem eru að kaupa sína fyrstu íbúð hafa þurft að leita inn á rándýran og ótryggan leigu- markað. Séreignastefna á íbúða- markaði er í flestum tilfellum besta stefnan eins og undanfarin ár hafa undirstrikað, sérstalega hjá þeim sem hafa minni kaup- mátt og eru að taka sín fyrstu skref á íbúðamarkaði. Lager sveitarfélaga á félagslegum íbúðum hefur nánast tæmst á undanförnum miss- erum og lager hús- næðis á almennum markaði hefur farið úr tæplega 8.000 nið- ur í um 800 íbúðir. Miklvægt er að hefja þjóðarátak í íbúðarmálum Íslend- inga með því að koma með einfaldar og hag- kvæmar lausnir. Lífs- hættir fólks eru að breytast hratt þar sem fólk vill einfaldar og snjallar lausnir í íbúðarmálum sín- um. Þar skiptir miklu máli að hús- næðið sé ódýrt og taki mið af kaupmætti fólks. Auk þess skiptir öryggi í húnæðismálum flesta ein- staklinga miklu máli . Mikilvægt er að fyrstu kaup séu hagkvæm og skynsamleg fyrir sem flesta á íbúðamarkaði. Ódýrar og hagkvæmar íbúðir til að mæta skorti Einfaldar og hagkvæmar lausnir í íbúðamálum geta falist í því að byggja ódýrar og hagkvæmar íbúðir sem eru 50-60 m2 að stærð með haganlegu fyrirkomulagi. Á sjötta áratugnum voru t.a.m. byggð háhýsi við Austurbrún í Reykjavík sem eru 12 hæðir, en stærð íbúðanna er á bilinu 45-60 m2. Sams konar íbúðir gætu mætt þeirri brýnu eftirspurn sem er nú á íbúðamarkaði. Ég tel að sveit- arfélög á höfuðborgarsvæðinu eigi að hafa nægilegt lóðframboð til bygginga á slíkum háhýsum, með íbúðum sem væru á bilinu 50-60 m2. Hægt er að hugsa sér að á hverri hæð væru sex íbúðir þannig að 48 íbúðir væru í einu slíku há- hýsi. Gera má ráð fyrir sex háhýs- um saman í klasa, eða samtals 288 íbúðum, og þar af leiðandi 1.152 í fjórum klösum. Gera má ráð fyrir að í hverju sveitarfélagi á höf- uðborgarsvæðinu væru byggðar 1.152 íbúðir og þar af leiðandi 4.608 íbúðir í fjórum sveit- arfélögum. Reykjavíkurborg gæti verið með átta klasa sem eru þá 2.304 íbúðir í Reykjavík. Úlfars- árdalur er kjörið svæði undir slík- ar lausnir í íbúðamálum. Ef gert er ráð fyrir að verð á m2 sé 350.000 kr. myndi verð á slíkum íbúðum vera á bilinu 17,5-21 millj. kr. eftir stærð íbúða. Ef gert er ráð fyrir sjóðfélagaláni frá lífeyr- issjóði sem næmi 80% af heild- arverðmæti og lánstími væri 25 ár, væri greiðslubyrði af slíku láni 70-85 þús. kr. á mánuði. Slík greiðslubyrði er vel ásættanleg fyrir flesta íbúðakaupendur. Eigið fé þyrfti að vera á bilinu 3,5-4 millj. kr. Þessi greiðslubyrði er miklu lægri en það sem gerist á leigumarkaði með sams konar íbúðir en heimilsöryggi er flestum fjölskyldum mjög mikilvægt. Það er ljóst að þörf er á þjóðarátaki flestra hagsmunaðila með góðum vilja og forystu. Sveitarfélög þurfa að bretta upp ermar og á það sér- staklega við Reykjavíkurborg sem hefur ekki haft nægilegt lóðafram- boð til einfaldra og hagkvæmra lausna á íbúðamarkaði. Úlfars- árdalur er gott dæmi um hvernig uppbygging hefur tekið langan tíma, en þar er í boði frábært byggingasvæði en framkvæmdir í miklum hægagangi meðan lóða- framboð og byggingahraði hefur verið mun meiri í öðrum sveit- arfélögum á höfuðborgarsvæðinu. Þjóðarátak sveitarfélaga, stéttarfélaga og lífeyrissjóða Í ljósi þessa mikla ójafnvægis sem er nú á íbúðamarkaði er mik- ilvægt að sveitarfélög, stéttarfélög og lífeyrissjóðir taki höndum sam- an í að lyfta grettistaki í húsnæð- ismálum Íslendinga. Sveitarfélög þurfa að tryggja nægt lóðafram- boð, stéttarfélög að standa vaktina og tryggja hagsmuni sinna fé- lagsmanna og lífeyrissjóðir geta veitt sjóðfélagalán sem eru mjög hagkvæmur kostur fyrir flesta sjóðfélaga. Þar er lánstími langur og vaxtakjör með því besta sem gerist á markaði. Mikilvægt er síðan að fá vandaða og góða verk- taka til að taka þetta verkefni að sér og koma þessu af stað og reisa 5.000-6.000 litlar íbúðir á næstu tveimur árum sem eru með við- ráðanlegri greiðslubyrði fyrir flesta og útrýma þannig íbúða- skorti hjá fyrstu íbúðarkaup- endum og öðrum sem vilja búa í einföldu og hagkvæmu húsnæði á viðráðanlegu verði. Sjóðfélagalán lífeyrissjóða eru mjög góður kostur fyrir flesta íbúðakaupendur og flestir eru í líf- eyrissjóði og eiga rétt á sjóð- félagaláni til fasteignakaupa. Líf- eyrissjóðir veittu lán til sjóðfélaga fyrir um 80-90 milljarða á árinu 2016 og eftirspurn hefur verið mikil á undanförnum misserum. Öll verkfæri eru fyrir hendi til að byggja einfalt og hagkvæmt íbúðarhúsnæði fyrir fólk sem er að koma nýtt inn á íbúðamarkað og vill eiga eigið húsnæði og búa við öryggi í íbúðarmálum sínum. Finna þarf þá þegar öflugan bygg- ingaverktaka sem getur tekið for- ystu í þessu máli og byrjað á þessu þjóðarátaki í húsnæðis- málum. Nú þurfa sveitarfélög og stéttarfélög að bretta upp ermar og láta verkin tala. Keflið er í höndum sveitarfélaga og stétt- arfélaga á höfuðborgarsvæðinu að taka forystu og fyrsta skrefið í lausn á þessu þjóðþrifamáli. Eftir Albert Þór Jónsson » Öll verkfæri eru fyr- ir hendi til að byggja einfalt og hagkvæmt íbúðarhúsnæði fyrir fólk sem er að koma nýtt inn á íbúðamarkað. Albert Þór Jónsson Höfundur er viðskiptafræðngur með MCF í fjármálum fyrirtækja og 30 ára starfsreynslu á fjármálamarkaði. Einfaldar og hagkvæmar lausnir í húsnæðismálum

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.