Morgunblaðið - 28.03.2017, Page 20

Morgunblaðið - 28.03.2017, Page 20
20 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 28. MARS 2017 Í tilefni af 20 ára af- mæli Beinverndar á þessu ári er ekki úr vegi að undirstrika mikilvægi hreyfingar á beinheilsu. Í ljósi vit- undarvakningar um mikilvægi hreyfingar fyrir líkama og sál vill stundum gleymast að áhrif líkamsþjálfunar er ekki síst mikilvæg fyrir beinin. Beinin eru lifandi vefur þar sem eðlileg efnaskipti og end- urmyndun þarf að eiga sér stað út ævina, til að halda í beinþéttni og draga úr líkum á beinþynningu. Beinþynning er sjúkdómur í beinum sem er einkennalaus þar til bein brotnar við tiltölulega lítinn áverka. Talið er að um 1.200-1.400 beinbrot á ári á Íslandi séu rakin til beinþynn- ingar. Langalgengustu beinþynn- ingarbrotin eru úlnliðsbrot, mjaðm- abrot og samfallsbrot í hrygg, oft með tilheyr- andi verkjum, minnk- andi færni, skerðingu á lífsgæðum og jafnvel örorku og dauða. Því er til mikils að halda bein- unum sterkum og heil- brigðum. Beinþéttni nær há- marki upp úr tvítugu og um áratug síðar byrja beinin að gisna, sem er hluti af eðlilegu öldrunarferli. Hækk- andi aldur er því stór áhættuþáttur fyrir beinþynningu sem við fáum ekki breytt. Hins vegar er kyrrseta og hreyfingarleysi annar áhættu- þáttur, sem við getum haft veruleg áhrif á. Aðrir áhættuþættir eru m.a. ættarsaga, ótímabær tíðahvörf, reykingar, óhófleg áfengisnotkun, ýmsir sjúkdómar og lyf og síðast en ekki síst vannæring, þar á meðal kalk- og/eða D-vítamínskortur. Rannsóknir sýna að til að byggja upp og viðhalda beinmassa og draga úr líkum á beingisnun með hækk- andi aldri skiptir næring og líkamleg áreynsla miklu máli. Þungaberandi (t.d. rösk ganga, hopp og skokk) og endurtekin áreynsla er talin skila mestum árangri fyrir beinin, þó öll hreyfing hafi jákvæð áhrif. Reglu- bundin styrktarþjálfun og áreynsla er talin góð fyrir alla aldurshópa, en fyrir eldra fólk bætist við mikilvægi jafnvægisþjálfunar og samhæfingar. Ekki einungis fyrir vöðva, bein og almennt heilsufar, heldur einnig sem forvörn gegn byltum, en byltur aukast gríðarlega með hækkandi aldri og eru vaxandi lýðheilsuvanda- mál. Æfingaálag þarf að aðlaga eftir aldri, getu og líkamlegu ástandi hvers og eins. Aukin ákefð í æfing- um er líklegri til að hafa meiri áhrif á beinin, en léttari æfingar koma engu að síður að gagni. Æskileg tíðni þjálfunar er ekki fyllilega ljós en oft er talað um að dagleg hreyfing að lágmarki 30 mín. samanlagt á dag sé nauðsynleg til að viðhalda bein- massa. Ef þjálfað er af mikilli ákefð nægja þrír dagar vikunnar, en létt þjálfun er æskileg a.m.k. fimm daga vikunnar. Til að byggja upp og við- halda sterkum og heilbrigðum bein- um þarf þjálfunin að reyna vel á, vera fjölbreytt og þungaberandi. Ef beinþynning er til staðar þarf að huga sérstaklega að líkamsstöðunni, stunda léttar þungaberandi æfingar og gæta þess að beinin verði ekki fyrir of miklu álagi og höggum. Um- fram allt þarf að huga vel að jafn- vægisþjálfun, því byltur eru stærsti áhættuþáttur brota. Það er vel þekkt að fólk sem hefur dottið og brotnað óttast að detta aftur og dregur því úr virkni og hreyfingu. Þar með getur myndast vítahringur, hreyfingarleysi veldur beintapi og vöðvarýrnun, sem eykur enn á hætt- una á byltum og brotum. Þótt mikilvægi hreyfingar sé óum- deilt reynist mörgum erfitt að gera hana að venju. Einföld leið til að auka hreyfingu í daglegu lífi gæti verið að nýta tækifærin, s.s. að taka stigann frekar en lyftuna, velja erf- iðari og lengri gönguleiðir í stað þeirra styttri og einfaldari og standa endrum og eins á öðrum fæti við hversdagslegar athafnir. Óháð teg- und hreyfingar eða þjálfunar þá er líklega einna mikilvægast að hún sé ánægjuleg, sem eykur líkur á að fólk haldi áfram að stunda sína hreyfingu alla ævi. Þar geta góðir æfinga- félagar verið gulls ígildi. Eftir Guðrúnu Gestsdóttur » Í ljósi vitundarvakn- ingar um mikilvægi hreyfingar fyrir líkama og sál vill oft gleymast að áhrif líkamsþjálfunar er ekki síst mikilvæg fyrir beinin. Guðrún Gestsdóttir Höfundur er sjúkraþjálfari og situr í stjórn Beinverndar. Bein áhrif þjálfunar Föstudaginn 24. mars sl. birtist á síð- um Morgunblaðsins aðsend grein eftir þingmanninn Teit Björn Einarsson þar sem fjallað er um mikilvægi almanna- heillasamtaka og nauðsyn þess að breyta íslensku laga- umhverfi til þess að auðvelda og hvetja einstaklinga að styrkja slík sam- tök fjárhagslega. Mér þótti einstaklega ánægju- legt að sjá grein þingmannsins. Þá fagna ég frumvarpinu, sem þingmaðurinn og nokkrir kollegar hans í Sjálfstæðisflokknum hafa lagt fram á Alþingi, þar sem gert er ráð fyrir að einstaklingum verði á ný heimilt að draga gjafir og framlög til almannaheilla- samtaka frá skattskyldum tekjum sínum. Sjálfur hef ég áður talað fyrir slíkri nálgun á síðum þessa blaðs. Þegar litið er til ríkja sem við berum okkur alla jafna saman við kemur í ljós að flest þeirra hvetja einstaklinga og fyrirtæki til að styrkja samtök sem leggja samfélaginu lið, með því að bjóða skattaívilnanir eða einhvers konar önnur skattafríðindi. Það er löngu tímabært að á Íslandi verði skattaumhverfi samtaka sem sinna mikilvægu samfélagslegu hlutverki tekið til endurskoðunar með það fyrir augum að hvetja skattgreiðendur til góðra gjafa- verka og án þess að ríkið taki óþarflega mikinn hluta gjafanna eins og við búum í dag við. Um leið og ég fagna fram- komnu frumvarpi kalla ég eftir frekari aðgerðum þannig að ís- lenskum skattgreiðendum og samfélagslega eflandi frjálsum fé- lagasamtökum og sjálfseigna- stofnunum bjóðist sambærilegt skattaumhverfi og nágrannar okkar búa við. Í þeim efnum er nauðsynlegt að leiðrétta ákveðinn misskilning sem lesa má út úr grein þing- mannsins hvað varðar fullyrðingu um stöðu almannaheillasamtaka á Íslandi í dag og árétta þörfina á víðtækari lagabreytingum en frumvarp þing- mannsins gerir ráð fyrir. Félagasamtök sem vinna að al- mannaheill njóta nefnilega afar tak- markaðra undanþága frá skattgreiðslu hér á landi og myndi ég seint fullyrða að slík félagasamtök hafi lengi notið und- anþága frá skatt- greiðslum í víð- tækum skilningi. Í fyrsta lagi var það árið 2016 sem núgildandi lög- um um erfðafjárskatt var breytt á þann veg sem nú er að ekki skuli greiða fjárskatt af gjöfum sem falla til félagasamtaka og sjálfs- eignarstofnana sem starfa að al- mannaheill. Þessi undanþága er því ný af nálinni en vissulega skref í rétta átt. Í öðru lagi eru heimildir fyrir- tækja til skattafrádráttar vegna framlaga til almannaheilla- samtaka afar takmarkaðar, eða eingöngu 0,75% af tekjum. Þetta lága hlutfall hvetur ekki sér- staklega mikið til samfélagslegrar þátttöku og ábyrgðar fyrirtækja. Framlagt frumvarp leggur til hækkun á þessari heimild upp í 1,00% en betur má ef duga skal og vona ég að tillögumenn leggi til breytingartillögu með enn hærri heimild. Í þriðja lagi er nauðsynlegt að breyta virðisaukaskattslögum. Það er vissulega rétt sem fram kemur í grein þingmannsins að í núgildandi lögum sé að finna ákvæði þess efnis að „góðgerð- arstarfsemi“ sé undanþegin skatt- skyldu. Þó að ákvæðið hljómi nokkuð rúmt er heimildin þröng og hefur takmarkaða þýðingu fyr- ir flest almannaheillasamtök. Ákvæðið felur í sér að tiltekin fé- lög geti staðið í þröngt skýrðri sölu, s.s. merkjasölu eða bas- arsölu, án þess að leggja á vör- urnar virðisaukaskatt. Lengra nær undanþágan ekki. Endur- greiðsla greidds virðisaukaskatts er afar mikilvægt mál og al- mannaheillasamtök geta ekki fengið slíkan skatt endurgreiddan í dag. Þetta er hvimleitt, enda fel- ur þetta í sér að ríkið taki til sín tiltekið hlutfall gjafa og styrkja sem renna til góðgerðarsamtaka þegar fjármunirnir eru nýttir. Fé- lagasamtök sem leggja af stað í uppbyggingu á húsnæði eða þurfa að standa í viðhaldi á húsnæð- iskosti finna sérstaklega mikið fyrir þessu. Meira að segja á tím- um þegar heimili gátu fengið virð- isaukaskattinn endurgreiddan af tilteknu viðhaldi þar sem „allir unnu“ voru almannaheillasamtök skilin eftir og u.þ.b. 20% af pen- ingagjöfum fórnfúsra einstaklinga og fyrirtækja runnu beint í ríkis- kassann í stað þess að renna til frekari uppbyggingar á starfsem- inni. Þetta ástand varir enn. Á 145. löggjafarþingi var lagt fram frumvarp um breytingu á virðisaukaskattslögum þar sem lögð var til tímabundin endur- greiðsla á virðisaukaskatti sem íþrótta- og æskulýðsfélög greiða vegna byggingaframkvæmda. Þó að frumvarpið hafi verið afar íþróttafélagsmiðað er grunn- hugmyndin mikilvæg. Nauðsyn- legt er að fram komi sambærileg lagabreytingartillaga nú, þar sem virðisaukaskattsumhverfi al- mannaheillasamtaka er tekið til endurskoðunar og endurgreiðsla greidds virðisaukaskatts tryggð. Ekki eingöngu til hagsbóta fyrir félögin, heldur til hagsbóta fyrir þá sem velja að styrkja þau. Það skiptir máli að gjafir til sam- félagslega eflandi verkefna, sem iðulega eru borin uppi af sjálf- boðaliðum, nýtist 100% í þau verkefni. Það er óþolandi að ríkið taki ávallt til sín hlut af slíkum gjöfum Tökum því nauðsynlegu skrefin í þessum málaflokki til heilla fyrir samfélagið. Endurskoðun á skattalöggjöf almannaheillasamtaka brýn Eftir Davíð Örn Sveinbjörnsson »Nauðsynlegt er að endurskoða skatta- umhverfi almannaheilla- samtaka til þess að auka getu þeirra til þess að sinna samfélagslega mikilvægum verk- efnum. Davíð Örn Sveinbjörnsson Höfundur er lögmaður og situr jafn- framt í stjórnum nokkurra frjálsra fé- lagasamtaka. david@advel.is Fiskiskipaflotinn lá bundinn við bryggju á meðan ný ríkisstjórn var upptekin við að semja frumvarp um sölu brennivíns í mat- vörubúðum. Tímanum hefði betur verið varið í að semja lög um dag- peninga byggða á jafn- rétti. Sömu dagpen- inga fyrir alla, sem starfa í skemmri eða lengri tíma fjarri heimili sínu. Þá ættu kjara- samningar almennt ekki að dragast á langinn vegna dagpeninga. Einstaklingar og allar stofnanir, sem koma að heilbrigðismálum, hafa fært gild rök fyrir skaðsemi áfengis og að neysla aukist með léttara að- gengi og auglýsingum. Þrátt fyrir það skilja margir jólasveinanna, sem við kusum á þing, ekki í hvers kyns villu þeir vaða. Spaugilegast er að þeir segja breytinguna gerða til að bæta þjón- ustuna við viðskiptavini. Hvernig getur hún batnað við að færa sér- verslanir ÁTVR inn í kjörbúðir með lágmarksþjónustu? Betra væri fyrir skattborgarann að halda óbreyttum rekstri hjá ÁTVR í stað þess að flytja hann til gróðapunga, sem hafa það eitt að leiðarljósi að stækka markaðinn og græða sem mest. Margar góðar greinar hafa birst um afleiðingar aukinnar neyslu áfengis. Eftirminnilegar eru greinar í Mbl. eftir Andrés Magnússon: „Aukið aðgengi að áfengi“, sem birt- ist 2. mars og „Aftur í aldir með áfengismálin“ eftir Ólaf Hauk Árna- son, sem birtist 3. mars. Ólafur lýsir hvernig þetta var áð- ur og hvernig það breyttist til batn- aðar með tilkomu ÁTVR. Andrés segir frá eigin reynslu í starfi við göngudeild geðdeildar. Í viðbót við það, sem flestir vita, nema þeir sem vilja brennivínið í mat- vörubúðir, segir Andrés frá fóst- urskaða, sem áfengisdrykkja á með- göngutíma veldur. Hann segir meðal annars að skv. reynslutölum erlend- is megi áætla að af 300.000 Íslend- ingum hafi 300 fæðst með fullt hús fyrir heilkennið fósturskemmdir af völdum áfengis og önnur 1000 með vægari skaða, sem lýsir sér í ein- beitingar örðugleikum, ADHD, hegðunarvandamálum, afbrotum, áfengissýki o.s.frv. Lögmennirnir Jón Steinar og Hjörleifur Hallgríms eiga það sam- eiginlegt að hafa báðir glímt við Bakkus og ekki smakkað drykki með vínanda í áratugi. Þeir eru sammála um að hver og einn beri ábyrgð á eigin gjörðum, en ósammála um áfengi í matvörubúðir. Jón Steinar segist versla þar sem maltöl og pilsner er selt án þess að freistast. Það telur hann nægilega röksemd fyrir sölu áfengis í mat- vörubúðum. Í því sam- bandi er rétt að benda Jóni á að ekki eru allir jafn vilja- sterkir og hann. Maður sem ekki hefur smakkað það í áratugi stendur líka betur að vígi en sá, sem er á sínu fyrsta ári í edrúmennsku. Er það ekki, Jón? Er ástæða til að leggja freistingar fyrir þá sem eru veikastir fyrir? Af- leiðingarnar eru hærri skattar á al- menning. Ég trúi ekki að Jón Stein- ar sé svo mikill frjálshyggjupostuli að hann vilji að áfengissjúklingar greiði sjálfir fyrir eigin lækn- iskostnað. Hvað um þá sem verða fyrir heilaskaða í móðurkviði? Einhvers staðar stendur að í upp- hafi skyldi endinn skoða. Ég hvet Jón Steinar til að lesa grein Andrés- ar og hugsa málið upp á nýtt frá grunni. Kafteinn Birgitta vill þjóðarat- kvæðagreiðslu. Gallinn við þjóð- aratkvæðagreiðslur er mikill kostn- aður og ekkert víst að niðurstaðan verði virt, sbr. Reykjavíkurflugvöll. Til er önnur leið, sem kostar ekkert og virkar strax. Hún er sú að gefa út lista með nöfnum allra þingmanna og sveitarstjórnarmanna, sem styðja áfengissölu í matvörubúðum. Kjós- endur, sem ekki vilja áfengi í mat- vörubúðir, geta þá í næstu kosn- ingum strikað yfir nöfn þeirra í þeim flokki sem þeir kjósa. Þannig kæmi fram það beina lýðræði, sem Píratar hafa hampað mest. Ekki verður vafi á því, hvað þjóðin vill og í leiðinni losnum við strax við jólasveinana af þingi og úr sveitarstjórnum. Er svona mikið mál að fara í Ríkið? Eftir Sigurð Oddsson Sigurður Oddsson »Ég trúi ekki að Jón Steinar sé svo mikill frjálshyggjupostuli að hann vilji að áfeng- issjúklingar greiði sjálf- ir fyrir eigin lækn- iskostnað. Höfundur er verkfr. og eldri borgari. siggi@pmt.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.