Morgunblaðið - 28.03.2017, Page 24

Morgunblaðið - 28.03.2017, Page 24
24 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 28. MARS 2017 ✝ Elísabet ÁrnýÁrnadóttir fæddist að Miðgili í Langadal 31. des- ember 1925. Hún andaðist á sjúkra- húsinu á Blönduósi 16. mars 2017. Foreldrar henn- ar voru Vilborg Guðmundsdóttir og Árni Ásgrímur Guðmundsson. El- ísabet giftist Má Hall Sveinsyni sem lést 1. mars 2008. Börn þeirra eru Árni Ásgrímur Hall Másson, f. 1952, Sveinn Hall Másson, f. 1953, Aðalheiður Más- dóttir, f. 1955, Ómar Gísli Más- son, f. 1956, d. 2002, Guðmundur Másson, f. 1960, d. 1960, Erla Björg Másdóttir, f. 1962, og Vilborg Más- dóttir, f. 1964. El- ísabet bjó á Blönduósi síðustu ár ævi sinnar. Útför Elísabetar verður gerð frá Blönduóskirkju í dag, 28. mars 2017, klukkan 14. Elsku mamma, við kveðjum þig með söknuði en vitum að þér líður betur núna. Við þökk- um þér fyrir allt og geymum minningarnar um þig í hjörtum okkar. Ég þakka þau ár sem ég átti þá auðnu að hafa þig hér, og það er svo margs að minnast svo margt sem um hug minn fer, þó þú sért horfinn úr heimi ég hitti þig ekki um hríð, þín minning er ljós sem lifir og lýsir um ókomna tíð. (Þórunn Sigurðardóttir) Hvíldu í friði, elsku mamma. Þínar dætur, Aðalheiður, Erla og Vilborg. Jæja Bebbý mín, þú fékkst að fara á undan mér. Og það var nú ekki það sem ég bjóst við fyrir fáum árum. En þetta veit nú enginn hvenær gerist, við vitum bara að það gerist. Nú er ég orðin ein eftir af systrahópnum frá Miðgili. Elsku Gunna og Imma eru farnar fyrir nokkrum árum. En þessi hópur átti margar góðar og glaðar stundir saman á æskuárunum. Man ég þar best eftir öllum vísunum og versunum sem mamma var ólöt að kenna okkur og svo sátum við öll og sungum í eldhúsinu heima og pabbi raulaði undir með sinni fallegu bassarödd. Mig langar, Bebbý mín, að þakka þér fyrir allt á langri ævi okkar. Sérstaklega fyrir öll glöðu bernsku- og æskuárin okkar saman þar sem við vor- um alltaf saman í öllu. Þú varst alltaf „stóra“ systir mín sem ég stólaði á. Best man ég eftir okkur að stússast við hestana og allir reiðtúrarnir okkar, þá var nú oft gaman. Og alltaf varst það þú sem fyrst komst til aðstoðar þegar fór að fjúka í skjólin mín. Ég sendi öllum stóra hópn- um þínum samúðarkveðjur. Vertu sæl, elsku systir mín, og ég vona að þú sofir vel í draumalandinu. Þín systir Anna. Bebbý frænka okkar hefur kvatt í síðasta sinn og er farin inn í eilífðina. Hún er systir Önnu, mömmu okkar sem nú er ein eftir af systrahópnum frá Miðgili í Langadal. Þær systur Bebbý og Anna voru alltaf nánar og reyndu að hitt- ast eftir því sem færi gafst í dagsins önn en báðar voru þær önnum kafnar með stór heimili og stóra barnahópa. Við systk- inin eigum minningar um heim- sóknir til Bebbýjar og fjöl- skyldu á Skagaströnd þar sem hún bjó lengi með fjölskyldu sinni. Við minnumst Bebbýjar sem atorkusamrar kjarnakonu sem alltaf var á ferðinni, önn- um kafin og alltaf hlæjandi. Hún var völundur í höndunum, listræn og orðhög. Þær systur allar voru lagnar við að setja saman vísur og ljóð en það var arfur úr foreldrahúsum á Mið- gili. Á efri árum var Bebbý ekkert á því að slaka á eða setjast í helga stein heldur hjálpaði hún m.a. vinum sín- um í sveitinni, prjónaði af kappi og bauð handverk sitt til sölu í söluskála á Blöndu- ósi. Hún naut þess að taka virkan þátt í félagsstarfi ásamt mörgu öðru. Bebbý var mömmu okkar stoð og stytta alla tíð og ekki síst síðustu árin og hún var alltaf tilbúin til aðstoðar ef eftir því var leitað. Fyrir það verður aldr- ei fullþakkað. Við systkinin frá Varðbergi sendum samúðarkveðjur til fjölskyldu Bebbýjar. Hvíldu í friði, kæra frænka. Hörpu þinnar, ljúfa lag lengi finn í muna. Því ég minnist þín í dag, þökk fyrir kynninguna. (Á.K.) Vilborg, Hrönn, Arndís, Anna, Hrafn og Ásgeir. Elísabet Árný Árnadóttir ✝ HólmarHenrysson fæddist 5. janúar 1953 í Reykjavík. Hann lést 8. mars 2017. Foreldrar hans voru Guðbjörg Guðmundsdóttir, fædd 30. ágúst 1911 og látin 6. júlí 1992, og Ósk- ar Henry Herulf Franzson, fæddur 1. apríl 1912 og látinn 13. nóvember 1990. Hálfsystir Hólmars, sam- feðra, Brynja Sears, bjó lengst af í Bandaríkj- unum og lést fyrir nokkrum árum. Hólmar var ókvæntur og barn- laus. Síðari hluta ævinnar var Hólm- ar öryrki og dvaldi á sambýlum og hjúkrunarheim- ilum, síðast á hjúkrunarheim- ilinu Mörk í Reykjavík, þar sem hann lést. Útför Hólmars fer fram frá Háteigskirkju í dag, 28. mars 2017, klukkan 15. Á fyrstu árum ævinnar virtist Hólmar frændi minn í engu ólík- ur öðrum kornabörnum. En þegar á barnæskuna leið kom í ljós að hann gekk ekki andlega heill til skógar. Skólagangan var honum erfið en sjálfstraust og færni jókst mikið á fullorðins- árum. Þegar Hólmar var barn var honum gefin munnharpa. Hólm- ar var tónelskur með afbrigðum og hafði tónlistarhæfileika. Hann var því settur til náms í harmónikuleik. Hann stundaði námið af alúð árum saman og varð glettilega góður harmón- ikuleikari. Hann lék við marg- vísleg tækifæri og kom meðal annars fram í sjónvarpi. Á full- orðinsárum var hann ætíð fús til að grípa í nikkuna og leika fyrir fólk á mannamótum. Á síðari ár- um lék hann, meðan líkamleg geta leyfði, með harmóniku- hljómsveit sem heitir Markar- bandið. Hann æfði og lék á harmónikuna alla ævi og hélt þeim sið að kaupa nýjar nótur fram á dánardægur. Hólmar bjó á ýmsum sam- býlum og meðferðarstofnunum á vegum ríkis og borgar. Síðustu árin dvaldi hann á hjúkrunar- heimilinu Mörk þar sem hann dvaldi við gott atlæti. Hólmar ferðaðist mikið með foreldrum sínum til útlanda. Hann hafði alla tíð mikinn áhuga á ferðalögum. Á fullorð- insárum fór hann oftast til út- landa einu sinni eða tvisvar sinnum á ári, oftast til Spánar. Þegar lungnasjúkdómur hans ágerðist og lungun dugðu ekki lengur til ferða í 30.000 feta hæð, varð hann að leggja utan- landsferðir af, sér til mikillar mæðu. Hólmar var mannblendinn og félagslyndur og átti marga vini og kunningja. Hann hélt síma- sambandi við fjölda fólks. Hólm- ar var höfðingi og á hverjum jól- um gaf hann og fékk fjölda jólagjafa. Flestum gaf hann bækur. Snemma í desember var hann kominn með lista, sem hann geymdi í kollinum, yfir vini og ættingja sem hann ætlaði að gefa jólagjöf. Löngu fyrir jól hafði hann ákveðið hvaða gjöf hver skyldi hljóta. Hólmar dvaldi á mörgum stofnunum um ævina. Við þetta tækifæri vil ég þakka öllu því góða starfsfólki sem annaðist hann af alúð. Einkum er mér ljúft og skylt að þakka tveimur konum sem hafa reynst honum vinir og stoðir og styttur um langa hríð. Það eru Lilja Hauks- dóttir og Sesselja systir hennar. Hólmar frændi minn var sterkur og eftirminnilegur per- sónuleiki. Hann tók nokkuð til sín hvar sem hann var. Hann var gæðablóð sem vildi öllum vel. Hólmar hefur verið stór hluti af lífi okkar hjóna um langt skeið og hans er sárt saknað. Blessuð sé minning hans. Björk Finnbogadóttir. Frændi minn og vinur, Hólm- ar Henrysson, er látinn 63 ára að aldri. Hólmar lést á Hjúkr- unarheimilinu Mörk þar sem hann hafði búið síðustu 7-8 árin. Hólmar lauk barnaskólaprófi frá Breiðagerðisskóla í Reykja- vík og framundan var gagn- fræðanám við Réttarholtsskól- ann. Fljótlega á unglingsárunum fór að bera á andlegum veikindum hjá Hólm- ari, veikindum sem hann átti við að stríða öllum stundum síðan og stóðu í vegi fyrir frekara námi. Það aftraði þó ekki Hólm- ari frá því að halda áfram að læra á harmonikku, það nám hóf hann strax á barnsaldri, og náði fínni færni á nikkuna. Harm- onikkan átti hug hans allan öll- um stundum það sem eftir var ævi Hólmars. Þrátt fyrir að þurfa að hætta námi á unglingsaldri þurfti hann að stunda vinnu eins og flestir unglingar á þeim árum og vann hann ýmis störf í bæjarvinnunni sem svo var kölluð. Við Hólmar unnum saman í Búrfellsvirkjun árið 1969 þegar bygging hennar stóð sem hæst en þar unnum við við járnabindingar í vinnuflokki föður hans, Henrýs, og seinna við fóðrun hinna miklu vatns- ganga sem sáu um að flytja vatnið ofan úr uppistöðulóninu og niður í túrbínurnar. Á kvöld- in eftir vinnu kom það fyrir að Hólmar skemmti mannskapnum með harmonikkuleik. Upp úr tvítugu ágerðust veikindi Hólm- ars sem urðu til þess að hann var vistaður á stofnunum fyrir andlega fatlaða og var hann meðal annars vistmaður í Njörvasundi, Byggðarenda, Arnarholti og að endingu í Mörkinni og alltaf fylgdi nikkan með. Hólmar undi sér mjög vel í Mörkinni þar sem hann eign- aðist marga vini en þar komst hann meðal annars í kynni við Markarbandið sem einungis er skipað harmonikkuleikurum. Með Markarbandinu lék Hólmar við hin ýmsu tilefni allt undir það síðasta og veitti það honum ómælda ánægju. Það sat alltaf í Hólmari að hafa ekki getað lokið gagnfræðanámi svo hann ákvað að fara í Námsflokka Reykjavík- ur og ná sér í gagnfræðaprófið sem hann og gerði að lokum og þreyttist hann ekki á því að tala um það nú væri hann orðinn gagnfræðingur. Allra síðustu ár fór heilsu Hólmars hrakandi sem varð til þess að bíltúrarnir sem við áttum saman eins oft og ég hafði tíma til urðu styttri, en áður fórum við í lengri bíltúra t.d. austur fyrir fjall og á Þing- völl og Suðurstrandarveginn. Undir það síðasta fórum við nær eingöngu út á Granda og upp í Fossvogkirkjugarð að heim- sækja leiði foreldra hans. Síð- asta bíltúrinn fórum við saman um það bil 2 vikum fyrir andlát Hólmars. Að síðustu vil ég þakka Hólmari fyrir allar þær sam- verustundir sem við áttum sam- an. Takk fyrir allt, kæri frændi. Hvíl í friði. Finnbogi Karlsson. Hólmar Henrysson ✝ Guðrún Krist-jánsdóttir fæddist á Raufar- höfn 25. maí 1933. Hún lést á Land- spítalanum við Hringbraut 6. mars 2017. Foreldrar henn- ar voru Kristján Önundarson, f. 1901, d. 1945, og Jóna Jónsdóttir, f. 1909, d. 1991. Systkini hennar eru Helga, f. 1929, Una, f. 1931, Önundur, f. 1933, Alda, f. 1939, d. 2014, Guðni, f. 1942, d. 2005, og Gísli, f. 1950. Þann 25. maí 1960 kvæntist Guðrún Hauki Einarssyni, f. 1937, d. 2007. Foreldrar hans voru Einar S. Sigurðsson, f. 1897, d. 1972, og Helga Guð- björg Jónsdóttir, f. 1910, d. 1980. Guðrún og Haukur eiga fimm börn: 1) Jóna Helga, f. 1954. 2) Inga Guðný, f. 1960, maki Bernharð Antoniussen. Synir hennar og Magnúsar Karls Björgvinssonar eru: a) 1989, unnusta Helena Þóra Kærnested, og b) Rúrik Andri, f. 1992, unnusta Sandra Dögg Björgvinsdóttir. Börn Agnars eru Dóra Júlía, Helga Margrét og Hans Trausti. Guðrún ólst upp á Raufar- höfn til sex ára aldurs, þegar foreldrar hennar slitu sam- vistum. Hún bjó eftir það m.a. á Helgastöðum í Biskups- tungum með móður sinni og yngri systur auk þess sem hún dvaldi oft hjá móðurömmu sinni, Guðrúnu Þórðardóttur, í Hafnarfirði. Guðrún lauk námi frá Húsmæðraskólanum á Laugum í Suður-Þing. árið 1953 auk þess sótti hún ýmis námskeið alla tíð í tengslum við atvinnu sína og áhugamál. Í Reykjavík kynntist Guðrún eiginmanni sínum og bjuggu þau alla tíð í Reykjavík en síð- ast bjó hún í Sóleyjarima 21, en þangað flutti hún eftir lát Hauks. Guðrún sinnti ýmsum störfum ásamt því að vera húsfreyja á stóru heimili. Lengst af vann hún í sælgætisgerðinni Ópal en end- aði starfsferilinn sem skólaliði í Húsaskóla. Útförin fór fram í kyrrþey 20. mars 2017 að ósk hinnar látnu. Haukur Valgeir, f. 1980, maki Særún Jónsdóttir. Börn þeirra Aron Ingi, f. 2011, Hekla Rakel, f. 2014, og Hulda Karen, f. 2014, b) Heimir Orri, f. 1984, unn- usta Bergdís Ýr Guðmundsdóttir, c) Hlynur Atli, f. 1990, unnusta Laufey Elísa Hlynsdóttir, og d) Hörður Björgvin, f. 1993, unn- usta Móeiður Lárusdóttir. Dóttir Bernharðs er Bergdís Björt. 3) Einar Birgir, f. 1963, maki Kristín Óskarsdóttir. Börn þeirra eru: a) Birgir Eg- ill, f. 1991, b) Ilmur Björg, f. 1995, unnusti Gunnar Kol- beinsson og c) Haukur Breki, f. 2001. 4) Edda Kristín, f. 1964, sonur hennar og Arn- stein Sunde er Steinþór Helgi, f. 1984. 5) Anna Karen, f. 1966, maki Agnar Hansson. Synir hennar og Þorfinns Óm- arssonar eru: a) Hinrik Örn, f. Okkur langar til að minnast kjarnakonunnar, mömmu okkar sem oftast var kölluð Rúrý og nú síðustu ár alltaf amma Rúrý. Það er sárt að skilja við og tómlegt að hugsa til þess að hafa ekki lengur mömmu sem átti svo stóran þátt í lífi okkar allra. Hún gaf svo mikið af sér og miðlaði góðum gildum þann- ig að hún skilar samheldnum kjarna sem tekur við keflinu og miðlar til næstu kynslóðar. Hún mátti ekkert aumt sjá, var allt- af drífandi, lífsglöð og jákvæður dugnaðarforkur, faðmur hennar alltaf opinn fyrir okkur afkom- endur og vini okkar. Mamma fæddist ekki með silfurskeið í munni. Foreldrar hennar slitu samvistum þegar hún var sex ára og eftir það bjó hún ásamt móður sinni, m.a. á Helgastöðum í Biskupstungum þar sem amma Jóna réði sig sem ráðskonu, auk þess sem mamma dvaldi oft og undi sér afar vel hjá móðurömmu sinni, Guðrúnu Þórðardóttur, í Hafnarfirði. Hún var líka send í sveit eða vist um tíma eins og þá var oft gert og líkaði dvölin misvel. Eftir erfið uppvaxtarár kynnist hún pabba, stóru ást- inni í lífinu og gáfu þau okkur systkinunum fimm ástríkt og uppbyggilegt heimili. Þau voru samheldin í uppeldi barna sinna og gáfu okkur góðan grunn í lífið. Þau unnu sín störf sam- hliða uppeldi barna sinna. Þrátt fyrir andleg veikindi pabba bugaðist mamma aldrei og hélt fjölskyldunni alltaf saman sem klettur. Sennilega urðu hennar erfiðu æskuár til þess að gildi fjölskyldunnar var henni afar mikilvægt. Fyrir það erum við henni óendanlega þakklát. Þegar barnabörnin fæddust kom enn betur í ljós hversu mikið hún hafði fjölskyldugildin í heiðri. Hún var endalaust tilbúin að leika við þau og passa. Í veikindum sínum fannst henni erfiðast að geta ekki keyrt sjálf og sér í lagi í Kópavoginn til að heimsækja langömmugullin þrjú. En taldi það ekki eftir sér að mæta með okkur og spila tölvuleik við langömmubörnin sín. Ef okkur þótti nóg um ísdekur við börnin var viðkvæðið ávallt: „Ég er amma þessa barns og mitt hlut- verk er að dekra.“ Mamma var engin venjuleg manneskja þótt hún hafi viljað lítið á sér bera. Hún var alltaf ung í anda, hrókur alls fagn- aðar, með brennandi áhuga á íþróttum og veiði. Hún var ekki mikið að segja sögur af sjálfri sér eða að kvarta og kveina í samtölum við afkomendur sína. Hennar áhugi snerist fyrst og fremst um afkomendurna, að fá fréttir af námi, störfum, fram- kvæmdum, samböndum og af- rekum. Áhugann sýndi hún í verki með því að vera alltaf við- stödd, hvort sem var að mæta á fótboltaleiki, tónleika eða mannamót, mamma var alltaf með okkur. Hún hafði alltaf áhuga á því sem við tókum okkur fyrir hendur og gat ekki séð neitt drabbast niður, þá var hún ávallt fyrst á staðinn þegar fyrirhugaðar voru framkvæmd- ir og dreif alla áfram. Dugnað- urinn og drifkrafturinn var dyggð sem hún reyndi að kenna okkur allt til síðustu stundar. Mamma greindist með krabbamein sl. haust og fljót- lega var ljóst að engum vörnum var við komið. Hún tókst á við það verkefni með sama dugnaði og elju og henni var tamt. Hennar ósk var að vera sem lengst heima og með aðstoð heimahlynningar líknardeildar, ást og umhyggju ættingja og ástvina rættist sú síðasta ósk hennar og fyrir það erum við þakklát. Guðrún Kristjánsdóttir Ástkær mágkona og föðursystir, BJÖRG VALGEIRSDÓTTIR, fv. bankastarfsmaður og leiðsögumaður, Dalbraut 16, Reykjavík, andaðist á dvalar- og hjúkrunarheimilinu Grund 23. mars. Útförin verður auglýst síðar. Stefanía Stefánsdóttir Valgeir Hallvarðsson Aðalbjörg Kristinsdóttir Eva Hallvarðsdóttir Ásgeir Valdimarsson Herdís Hallvarðsdóttir Gísli Helgason Rannveig Hallvarðsdóttir Jóhannes Karl Jia Tryggvi Hallvarðsson Þuríður Vilhjálmsdóttir Hildur Björnsdóttir Ásgeir Bragason Dagný Björnsdóttir Skúli Gunnarsson Valgerður Helga Björnsdóttir Jón Hafberg Björnsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.