Morgunblaðið - 28.03.2017, Síða 26

Morgunblaðið - 28.03.2017, Síða 26
Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.  Unnið í samvinnu við viðmælendur. Lísa Björk Gunnarsdóttir, læknaritari á Sjúkrahúsi Akureyrar, á50 ára afmæli í dag. Hún er frá Grímsstöðum í Mývatnssveit enhefur búið á Akureyri síðan hún flutti að heiman 18 ára gömul. Hún hefur starfað sem læknaritari frá 2002. „Ég varð samt ekki löggildur læknaritari fyrr en 2008 en þá lauk ég námi frá Fjölbrautaskólanum í Ármúla og tók það allt í fjarnámi. Ég starfa á bæklunardeild, sé um að bóka fólk í tíma og röntgen, sé um skráningar og í sjúkragagnagrunn og gagnavörslu. Það er svona ýmis- legt sem ég geri.“ Lísa situr í stjórn Sundfélagins Óðins og hefur einnig tekið þátt í íþróttastarfi fatlaðra. „Elsti sonur minn er einhverfur og ég hef því ver- ið að taka þátt í þessu starfi. Svo æfðu öll börnin mín sund og sá yngsti er enn að æfa. Ég hef verið i stjórn Óðins í sjö ár og hef mjög gaman af þessu félagsstarfi. Ég er með dómararéttindi í sundi líka, get bæði dæmt á mótum fyrir fatlaða og ófatlaða, en það eru ekki alveg sömu reglurnar á þeim mótum. Ég hef mikla unun af myndlist og er á myndlistnámskeiði hjá Símey, fór fyrst á stutt námskeið í haust en byrjaði núna í janúar í tveggja anna námi sem lýkur um næstu jól. Ég er bæði í akrýlmálun og vatnslitum. Í tilefni afmælisins ákvað ég að dekra við mig og tók mér frí í vinnunni bæði í gær og dag til að æfa mig í vatnslitamálun. Svo koma krakkarnir heim seinnipartinn og þá ætla ég að elda góðan mat og njóta þess að vera með þeim.“ Börn Lísu eru Jón Gunnar, 25 ára, Lilja Rún, 21 árs, og Snævar Atli, 17 ára. Í Edinborg Lísa rakst á þessa uglu í Edinborgarkastala í nóvember sl. Tók sér frí og æfir sig í vatnslitamálun Lísa Björk Gunnarsdóttir er fimmtug í dag 26 ÍSLENDINGAR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 28. MARS 2017 Smiðjuvegi 4C | 200 Kópavogur | Sími 587 2202 | hagblikk@hagblikk.is | hagblikk.is HAGBLIKK Álþakrennur & niðurföll Þakrennurnar eru frá GRÖVIK VERK í Noregi Þær eru einfaldar í uppsetningu HAGBLIKK Ryðga ekki Brotna ekki Litir á lager: Svart, hvítt, ólitað, rautt silfurgrátt og dökkgrátt G uðmundur Ingi Guð- brandsson fæddist á sjúkrahúsinu á Akra- nesi 28. mars 1977. Mummi, eins og hann er alltaf kallaður, ólst upp í sveit á Brúarlandi í Hraunhreppi á Mýr- um til sextán ára aldurs. Á Brúarlandi bjuggu á þeim tíma auk nánustu fjölskyldu, föð- urbróðir Mumma, Eiríkur Ágúst Brynjúlfsson, bóndi og Halldóra Guðbrandsdóttir amma hans. „Gestagangur var nær daglegt brauð og fjöldi frændsystkina var í sveit á Brúarlandi. Þar var því mikið líf og fjör á sumrin og ég naut þess að kynnast stórum frændgarði. Á Mýrunum lærði ég ungur að lesa landið: flóann, mýr- arnar, fjallendið, túnið, úthagann, árnar og vötnin. Það mótaði lífs- Guðmundur Ingi Guðbrandsson, frkvstj. Landverndar – 40 ára Í Þjórsárverum Verkefninu Hjarta landsins hleypt af stokkunum hjá Landvernd haustið 2013. Lærði ungur að lesa landið á Mýrunum Náttúruverndarsinnar Guðmundur Hörður Guðmundsson, fv. form. Land- verndar, Vigdís Finnbogadóttur og Mummi á fundi um vernd hálendisins. Reykjavík Ísar Dalmar fæddist 11. nóvember 2016 kl. 11.04. Hann vó 3.520 g og var 52 cm langur. Foreldrar hans eru Bryndis Árný og Ómar Valur. Nýir borgarar Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks, svo sem stórafmælum, hjónavígslum, barnsfæðingum og öðrum tímamótum. Börn og brúðhjón Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð. Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.