Morgunblaðið - 28.03.2017, Side 36
ÞRIÐJUDAGUR 28. MARS 87. DAGUR ÁRSINS 2017
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 548 KR. ÁSKRIFT 5.950 KR. HELGARÁSKRIFT 3.715 KR. PDF Á MBL.IS 5.277 KR. I-PAD ÁSKRIFT 5.277 KR.
1. Konan mín er alltaf full
2. Í leggings og fengu ekki að fljúga
3. Stjórnendur Dominos baka …
4. „Sagan endurtekur sig“
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Tvö málþing verða haldin í vikunni
um list kanadíska listmálarans Ste-
ven Nederveen, að honum við-
stöddum, það fyrra í dag kl. 16 í
Deiglunni á Akureyri og það seinna
30. mars kl. 16 í Norræna húsinu.
Nederveen er þekktur listamaður og
hafa verk hans verið sýnd víða um
heim en á málþingunum mun hann
m.a. fjalla um verk sín í tengslum við
kanadíska listasögu. Málþinginu 30.
mars lýkur með móttöku þar sem af-
hjúpað verður nýtt verk sem hann
málaði í tilefni af 150 ára afmæli kan-
adíska samveldisins og verður það til
sýnis í sendiráði Kanada á Íslandi út
árið.
Málþing um list
Steven Nederveen
Píanistinn Sunna Gunnlaugsdóttir
leiðir tríó sitt á næstu tónleikum tón-
leikaraðarinnar Freyjujazz í Lista-
safni Íslands í dag kl. 12.15.
Tríóið hefur verið iðið við tónleika-
hald víða um heim og fengið jákvæð-
ar umfjallanir fyrir diska sína Long
Pair Bond, Distilled og Cielito Lindo.
Með Sunnu leika Þorgrímur Jónsson
á kontrabassa og Scott McLemore á
trommur. Markmið Freyjujazz er að
gera konur í djassi sýnilegri og er
skilyrði að ein kona sé
meðal flytjenda
hverju sinni, hið
minnsta. Sunna
er listrænn
stjórnandi
tónleikarað-
arinnar sem
hófst 28.
febrúar
síðastliðinn.
Tríó Sunnu leikur
í Freyjujazzi
Á miðvikudag og fimmtudag Austan 8-13 syðst á landinu og
smáskúrir, en annars hægari breytileg átt, skýjað með köflum og
yfirleitt þurrt. Hiti 1 til 6 stig að deginum.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Austan 5-15 m/s, hvassast syðst. Dálitlar
skúrir með austur- og suðausturströndinni en él inn til landsins.
Annars skýjað með köflum og yfirleitt þurrt. Hiti 1 til 7 stig.
VEÐUR
Íslandsmeistarar Snæfells
eru líklegastir til að landa
Íslandsmeistaratitlinum í
körfubolta kvenna í ár, en
undanúrslit Dominos-
deildarinnar hefjast í kvöld.
Þetta segir landsliðskonan
Helena Sverrisdóttir sem
spáir í spilin í Morg-
unblaðinu í dag fyrir undan-
úrslitarimmur Snæfells
og Stjörnunnar, og
Keflavíkur og Skalla-
gríms. »2
Snæfell er lang-
sigurstranglegast
„Pabbi þjálfaði mig í yngri flokkum
Selfoss og var einnig þjálfari U18 ára
landsliðsins á síðasta sumri þegar
við tókum þátt í lokakeppni EM í Kró-
atíu. Hann er síðan óspar á að segja
mér til. Maður þarf að standa sig,
annars ...“ segir Teitur Örn Einarsson,
handknattleiksmaðurinn efnilegi frá
Selfossi, sem er leikmaður 25. um-
ferðar í handboltanum. »4
Pabbi þjálfaði mig og er
óspar á að segja mér til
„Ég fann mig ekki nógu vel hjá
Stjörnunni. Mér leist vel á Hauka. Fé-
lagið flott og samherjarnir einnig.
Það hefur tekið mig svolítinn tíma að
takast á við nýtt hlutverk en mér
finnst sem ég sé öll að koma til í síð-
ustu leikjum. Mér líður vel í Haukum
og stefni ekki að öðru en að uppfylla
minn samning,“ segir Guðrún Erla
Bjarnadóttir handknattleikskona úr
Haukum. »2
Mér líður vel í Haukum
ÍÞRÓTTIR
Skannaðu
kóðann með
símanum þínum
og fylgstu með
veðrinu á
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
„Sjálfsagt væri oft tími til heim-
spekilegra hugleiðinga á þessu rölti
en ég kýs frekar að njóta útiverunnar
og teyga að mér súrefni. Bíð svo eftir
því að finna næstu dollu – rétt eins og
veiðimaðurinn er spenntur eftir því
að fiskur bíti á öngulinn,“ segir Guðni
Guðmundsson, sem býr á bænum
Þverlæk í Holtum í Rangárvalla-
sýslu.
Allt til íþróttastarfsins
Á Suðurlandi má oft sjá eldri
manni bregða fyrir þar sem hann
gengur meðfram veginum og horfir
fránum augum fram fyrir sig. Guðni
á Þverlæk veit af fenginni reynslu að
víða er verðmæti að finna og að
kynstrin öll af flöskum og dósum
liggja í vegabrúnum. Hann tínir þær
allar upp og setur í poka. Jafnframt
fer hann heim á bæi ef fólk þarf að
losa sig við dósir sem aðrir setja í
söfnunargáma sem eru víða í Holtum
og Landsveit. Allt í allt náði Guðni
um 75.000 stykkjum í fyrra og fyrir
hvert og eitt greiða endurvinnslu-
stöðvar 16 krónur og safnast þegar
saman kemur. Þetta gerir 1,2 millj-
ónir króna og hver einasti eyrir fer til
Íþróttafélagsins Garps, sem starfar í
sveitunum í vestanverðu Rang-
árþingi.
„Ég byrjaði á þessu fyrir ellefu
árum. Núna þegar þú hittir mig hef
ég verið á gangi í klukkustund, er
kominn með 35 flöskur og dósir af
um það bil fjórum kílómetrum. Það
er svona heldur í lægri kantinum, á
öðrum svæðum er oft mun meira að
finna. Oft skilar jafn langur spotti og
ég tók núna 80 til 90 stykkjum,“ segir
Guðni þegar blaðamaður Morgun-
blaðsins hitti hann á röltinu skammt
austan við Þjórsá um helgina. Þá var
kaldi í loftinu og svolítill næðingur,
sem Guðni lét þó ekkert bíta á sig.
Söfnunarstarfið er hans líkamsrækt.
Góð þátttaka er í íþróttastarfi
Garps, sem á bakland sitt í Lauga-
landsskóla í Holtum. Nærri lætur að
helmingur tekna félagsins sé flösku-
peningarnir frá Guðna á Þverlæk og
fyrir vikið hefur verið hægt að halda
uppi nokkuð öflugu íþróttastarfi í
sveitinni, það er í frjálsum íþróttum
og glímu. „Krökkunum hefur gengið
vel á mótum Héraðssambandsins
Skarphéðins og þeir hafa einnig
spjarað sig vel á landsvísu, enda höf-
um við ágæta þjálfara,“ segir Guðni.
Frá Reykjavík að Markarfljóti
En aftur að flöskusöfnuninni.
Svæðið við þjóðveg 1, sem Guðni
hefur undir, er frá Markarfljóti í
austri og út á Selfoss. Og jafnvel
meira, lengst til vesturs við hring-
veginn hefur Guðni náð að Gunn-
arshólma sem er nærri Lækjar-
botnabrekkunni, skammt ofan við
Reykjavík. Auk þess sem hann þræð-
ir kanta margra annarra vega á Suð-
urlandi, en séð af korti mætti líkja
vegakerfinu þar við þéttriðinn
kóngulóarvef.
„Ég fer oft út í kringum hádegið
og næ kannski 35 til 40 kílómetrum á
fjórum til sex klukkustundum. Þarf
svo að vera kominn aftur heim undir
kvöldið þegar farið er í fjósið. Reglan
hjá mér er annars sú að við hringveg-
inn leita ég dósa á þriggja mánaða
fresti en við aðra vegi dugar að fara
einu sinni á ári,“ segir Guðni, sem á
síðasta ári fékk Umhverfisverðlaun
Ungmennafélags Íslands fyrir „ötult
starf að umhverfismálum fyrir sam-
félagið,“ eins og komist var að orði
þegar viðurkenningin var afhent við
hátíðlega athöfn.
„Daufur er dellulaus maður“
„Jú, það hafa margir spurt mig um
ferðakostnaðinn,“ segir Guðni „Ég
hef hins vegar lagt þetta þannig nið-
ur fyrir mig að bensínreikningurinn
vegna flöskuferðanna sé svipaður og
utanlandsferð í eina viku myndi
kosta. Til útlanda langar mig ekki.
Flöskusöfnunin er hins vegar sport
sem varir allt árið og fín hreyfing,
þetta er í þágu umhverfisins og skilar
svo íþróttastarfi og samfélagi hér í
sveitinni heilmiklu. Það má ýmist
kalla þetta áhugamál eða dellu – og
sumir segja að daufur sé dellulaus
maður,“ segir Guðni og er rokinn af
stað áfram í söfnuninni.
Dósasöfnun er della Guðna
75.000 stykki á
ári og allur ágóði
rennur til Garps
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Vegbrúnin Guðni Guðmundsson þræðir helstu leiðir á Suðurlandi og tínir upp verðmætin sem liggja í grasinu.