Morgunblaðið - 08.04.2017, Blaðsíða 10
10 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. APRÍL 2017
Rafrænt stjórnarkjör 11. til 21. apríl
Rafrænt stjórnarkjör fer fram á vef sjóðfélaga á www.lifsverk.is
dagana 11. – 21. apríl. Samkvæmt samþykktum sjóðsins skal
kjósa um tvö laus stjórnarsæti, karls og konu, til þriggja ára.
Brynja Baldursdóttir er ein í framboði kvenna og er því sjálf-
kjörin. Í framboði um sæti karla eru Agnar Kofoed-Hansen og
Andrés Svanbjörnsson. Kynning frambjóðenda er á vefsvæði
sjóðsins. Sjóðfélagar eru hvattir til að nýta kosningarétt sinn.
Um Lífsverk lífeyrissjóð:
Lífsverk er opinn lífeyrissjóður fyrir háskólamenntaða en allir
geta greitt til séreignardeildar sjóðsins. Sérstaða sjóðsins er m.a.
sjóðfélagalýðræði, rafrænt stjórnarkjör, góð réttindaávinnsla og
hagstæð sjóðfélagalán. Hrein eign til greiðslu lífeyris í árslok 2016 var
samtals 73,0 milljarðar kr. og hækkaði um 6,4 milljarða kr. á árinu.
Í árslok 2016 var heildartryggingarfræðileg staða samtryggingar-
deildar jákvæð um 0,1%. Hrein raunávöxtun sl. 5 ár er 5,4%.
Nánari upplýsingar á www.lifsverk.is.
Hrein raunávöxtun samtryggingardeildar
Aðalfundur Lífsverks lífeyrissjóðs
Engjateigi 9 – Reykjavík - Þriðjudaginn 25. apríl kl. 17:00
5 ára meðaltal
Hrein raunávöxtun – Samtryggingardeild
Dagskrá fundar:
Hefðbundin aðalfundarstörf
Niðurstaða rafræns stjórnarkjörs
Önnurmál, löglega upp borin
Engjateigur 9 105 Reykjavík
www.lífsverk.is
9,0%
8,0%
7,0%
6,0%
5,0%
4,0%
3,0%
2,0%
1,0%
0,0%
2012 2013 2014 2015 2016
Hrein nafnávöxtun Hrein raunávöxtun
Samtryggingardeild 4,7% 2,6%
Lífsverk 1 0,5% -1,6%
Lífsverk 2 3,6% 1,5%
Lífsverk 3 5,1% 3,0%
Ávöxtun 2016:
Þorsteinn Friðrik Halldórsson
tfh@mbl.is
„Maður skilur þetta eiginlega ekki,
áhuginn er ótrúlegur. Við byrjuðum
að gefa út í Frakklandi fyrir tæpu ári
og seldum um 30 þúsund eintök af
fyrstu bókinni sem var innbundin og
sú bók verður gefin út í kilju í 60 þús-
und eintökum til viðbótar,“ segir
Ragnar Jónasson, rithöfundur og
lögfræðingur.
Glæpasagan Snjóblinda sem ber
íslenska titilinn Snjór á franska
markaðnum hefur hlotið mjög góðar
viðtökur og komst í tólfta sæti met-
sölulista yfir mest seldu kiljur
Frakklands. Að auki verður bókin
Náttblinda gefin út undir titlinum
Mörk í 20 þúsund eintökum þannig
að prentun á bókum Ragnars í
Frakklandi mun nema um 110 þús-
und eintökum þegar allt er tekið
saman.
„Það hefur hvergi gengið eins vel
og í Frakklandi. Þar er búið að
kaupa réttinn á þremur bókum og ég
held að þau vilji kaupa allar bæk-
urnar.“
Seldar til fimmtán landa
Glæpasögur Ragnars hafa víðar
átt góðu gengi að fagna. Í Bretlandi
er búið að selja 80 þúsund eintök en
samtals hafa bækurnar verið seldar
til fimmtán landa, síðast til Króatíu
og í næsta mánuði hefst útgáfa í
Portúgal. Þá er einnig áætlað að gefa
út nokkra titla í Japan og Þýskalandi
á árinu. Í janúar var fyrsta bókin
gefin út í Bandaríkjunum og fékk
dóma í New York Times, Wash-
ington Post og fleiri blöðum og í kjöl-
farið var keyptur réttur á fjórum
bókum til viðbótar. Ragnar segir að
áhugi á Íslandi hafi smitast yfir í
bókmenntir.
„Ég var í Lyon um helgina á hátíð
sem er kölluð stærsta glæpasagna-
hátíð Evrópu og ég fann fyrir mikl-
um áhuga á Íslandi. Þar var mikið
spurt og ég áritaði bækur í sex
klukkutíma samtals. Nánast annar
hver maður sem kom og fékk áritun í
bók var að fara til Íslands eða lang-
aði að fara til Íslands,“ segir Ragnar.
Spurður hvort útgáfa erlendis feli í
sér breytingar á innihaldi bókanna
segir Ragnar að séríslensk hugtök
séu skýrð nánar til að gera textann
aðengilegri útlendingum.
„Það sem við höfum gert með er-
lendu útgáfurnar er að við ritstýrum
þeim upp á nýtt. Ekkert efnislega,
en við skýrum betur atriði sem að-
eins Íslendingar kannast við, t.d.
staðhætti, veðráttu og fleira til að
gera þær aðgengilegri. Það er búið
að lauma inn skýringum hér og þar,“
segir Ragnar.
Glæpasögur Ragnars
seldar til 15 landa
Bækur Ragnars prentaðar í 110.000 eintökum í Frakklandi
Morgunblaðið/Ásdís
Skrif Sögusvið glæpasagnanna hefur jafnan verið á landsbyggðinni.
Um höfundinn
» Sautján ára byrjaði Ragnar
að þýða skáldsögur Agöthu
Christie og þýddi fjórtán bækur.
» Samhliða bókaskrifum starf-
ar hann sem yfirlögfræðingur
hjá fjármálafyrirtækinu
GAMMA.
» Ragnar kom að stofnun
Reykjavik international crime
writing festival Iceland Noir.
Pólska skipasmíðastöðin CRIST
S.A. sem samið var við um smíði á
nýrri Vestmannaeyjaferju er komin
á fullt í verkefninu. Stöðin hefur ný-
lega unnið teikningar að útliti nýs
Herjólfs, að því er fram kemur í
frétt á heimasíðu Vegagerðarinnar.
Pólverjarnir eru að hanna skipið
og gengur sú vinna vel. Skipið fer
svo í líkanprófanir eftir páska. Pönt-
un á aðalvélbúnaði, skrúfum og
fleiru slíku er lokið. Gert er ráð fyrir
að stálskurður hefjist í maí og
kjölurinn verði lagður í júlí/ágúst, en
þá hefst eiginleg smíði skipsins hjá
pólsku skipasmíðastöðinni.
Stefnt er svo á að ljúka smíðinni
næsta sumar samkvæmt áætlun.
„Enda reiknað með því að ný ferja
verði komin í gagnið fyrir þjóðhátíð-
ina í Eyjum 2018,“ segir í frétt Vega-
gerðarinnar.
Ljósmynd/CRIST S.A
Nýr Herjólfur Svona mun skipið líta út samkvæmt nýjum teikningum.
Kjölurinn verður
lagður í sumar
Smíði nýs Herjólfs er á áætlun
Opnuð hafa verið hjá Vegagerðinni
tilboð í fyllingu undir stálþil í Mjó-
eyrarhöfn á Reyðarfirði. Um er að
ræða fyllingu frá sjó við Mjóeyri.
Heildarmagn er áætlað um 156.000
rúmmetrar og skal fyllt í þremur
áföngum. Hafnasjóður Fjarða-
byggðar óskaði eftir tilboðum í
verkið.
Áætlaður verktakakostnaður var
146 milljónir og 850 þúsund krónur.
Tvö tilboð bárust í verkið.
Björgun ehf., Reykjavík bauðst
til að vinna verkið fyrir 111,4 millj-
ónir króna, eða 76% af kostnaðar-
áætlun.
Jan De Nul n.v. í Belgíu bauð 105
milljónir, eða 71,5% af kostnaðar-
áætlun. Var tilboð Belganna 41,8
milljónum undir áætlun. Tilboð Jan
De Nul var í evrum. Hér er það
reiknað í íslenskum krónum á
genginu 120,3.
Belgíska fyrirtækið hefur unnið
að dýpkun í Landeyjahöfn undan-
farin ár. sisi@mbl.is
Belgískt fyrirtæki með lægsta tilboðið
Matarmarkaður í Fógetagarði
verður með breyttu sniði í sumar
því veitingavagnar fá að vera með í
þeirri lifandi stemningu sem mynd-
ast hefur undanfarin ár, segir í
frétt á heimasíðu Reykjavíkur-
borgar.
Í sumar verður boðið upp á að-
stöðu fyrir veitingavagna á torginu
frá 15. maí til 31. ágúst og mun
Torg í biðstöðu, verkefni Reykja-
víkurborgar, hafa umsjón með
svæðinu og búa til umgjörð um
matarmarkaðinn.
Reykjavíkurborg óskar eftir um-
sóknum um aðstöðu fyrir matsölu-
vagna í Fógetagarði. Í boði eru
dagsöluleyfi fyrir fjóra matsölu-
vagna. Leyfið gildir á milli 9.00 og
21.00 alla daga á umræddu tímabili
en gerð verður krafa um að lág-
marksviðvera verði á milli 11.00 og
20.00 virka daga og 13.00 og 20.00
um helgar. Matsölubílar verða ekki
heimilaðir á torginu.
Frestur til að sækja um fyrir veit-
ingavagna er til mánudags.
Morgunblaðið/Freyja Gylfa
Matarmarkaður Góð stemning hefur
myndast í Fógetagarðinum á sumrin.
Veitingavagnar geta
fengið aðstöðu í
Fógetagarðinum