Morgunblaðið - 08.04.2017, Page 14
ÚR BÆJARLÍFINU
Albert Eymundsson
Höfn
Unga fólkið á Hornafirði hefur átt
sviðið undanfarið. Það er full ástæða
til að vekja athygli á framgöngu
unga fólksins þegar það stendur sig
vel og er að gera góða hluti. Það er
fátt meira þroskandi fyrir krakkana
en þátttaka í öguðum og krefjandi
félagsstörfum.
Þórdís Imsland komst í úrslita-
keppni Voice Island. Frammistaða
og framkoma hennar var til fyr-
irmyndar og á hún framtíðina fyrir
sér á þessu sviði ef hún velur þá
braut.
Hljómsveitin Misty, sem þrír
ungir tónlistarmenn, Birkir Þór
Hauksson, Þorkell Ragnar Grét-
arsson og Ísar Svan Gautason skipa,
komst í úrslit í Músíktilraunum um
daginn. Þeir sýndu góða færni og
ekki síður mikinn kjark að leika eig-
ið tónverk sem tók 15 mínútur. Enn
og aftur sannast mikilvægi Tónskól-
ans okkar og árangur af starfinu
þar.
Piltur og stúlka vöktu mikla
lukku í frumlegri og skemmtilegri
uppfærslu nemenda framhaldsskól-
ans og í samvinnu við leikfélagið og
uppselt var á allar sýningarnar.
Kardemommubærinn var svo
viðfangsefni nemenda í grunnskól-
anum.
Nemendur 1., 3., 5. og 7.-10.
bekkjar sáu um söng og leik en allir
nemendur skólans unnu að leikmynd
og búningagerð auk þess að útbúa
veitingar. Nemendur höfðu einnig
búið til leirblóm sem voru seld á há-
tíðinni en ágóði af þeirri sölu fer til
kaupa á leirrennibekk fyrir smiðj-
urnar. Hátíðin var vel sótt og seldust
yfir 400 miðar á sýninguna.
Jöklar í bókmenntum, listum
og lífinu er yfirskrift ráðstefnu sem
haldin verður á Hornafirði helgina
28.-30. apríl. Til ráðstefnunnar er
boðið rithöfundum og fræðimönnum
á sviði bókmennta, myndlistar og
jöklafræða. Settar verða upp ýmsar
sýningar, s.s. málverkasýning, ljós-
myndasýning, kortasýning, hand-
verkssýning, sýning á teikningum
barna og heimildarmyndin Jökla-
land.
Kóravertíðin stendur nú yfir og
það eru ekki aðeins heimakórarnir
sem halda uppskeruhátíðir með tón-
leikum og uppákomum heldur koma
ýmsir kórar í heimsókn og auðga
menningarlífið í héraðinu.
Atvinnulífið blómstrar. Hefð-
bundinni vetrarvertíð lauk um miðj-
an marsmánuð og eftir langt sjó-
mannaverkfall má segja að
þokkalega hafi ræst úr vertíðinni.
Afli var góður í flest veiðafæri og
humarveiðar eru hafnar. Þær fóru af
stað um leið og búið var að skipta um
veiðarfæri. Sömuleiðis gengu loðnu-
veiðar mjög vel enda Ósinn fær
flesta daga.
Ekkert lát er á uppgangi í
ferðaþjónustunni, miklar fram-
kvæmdir og þessu öllu fylgir eft-
irspurn eftir auknu vinnuafli og
íbúðarhúsnæði.
Morgunblaðið/Halldóra
Leikið Grunnskólinn á Höfn í Hornafirði setti nýlega upp Kardimommubæinn við góðar undirtektir.
Unga fólkið átti sviðið
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. APRÍL 2017
Við fjölgum
hagkvæmum
íbúðum
Upphaf fasteignafélag er eitt umsvifa-
mesta fyrirtæki í uppbyggingu íbúðar-
húsnæðis á Íslandi. Á næstu fimm árum
verða þróaðar og byggðar yfir 1.300
nýjar íbúðir sem ætlaðar eru litlum og
meðalstórum fjölskyldum.
Markmið Upphafs er að byggja yfir 250
hagkvæmar íbúðir á ári. Við viljum auka
framboð á íbúðamarkaði.
Upphaf er í eigu Novus, fagfjárfestasjóðs í
rekstri hjá GAMMA Capital Management.
ÍBÚÐIR Á ÁRI
250
ÍBÚÐIR Í ÞRÓUN
1.300
ÍBÚÐIR SELDAR
300
519 3300 | www.upphaf.is
Garðastræti 37, 101 Reykjavík
Það myndi kosta ríkið rúma 19 millj-
arða króna að fara að tillögum
mennta- og menningarmálaráðu-
neytisins um að færa menningararf-
inn yfir á stafrænt form samkvæmt
skýrslu sem ráðuneytinu var falið að
útbúa. Þá er ótalinn kostnaður við
nauðsynlegan tækjabúnað, lang-
tímavarðveislu og endurgjald til
rétthafa höfundarréttar. Þegar er
búið að færa um 6% safneignar
safna og stofnana landsins á staf-
rænt form og eru gerðar tillögur um
stafræna endurgerð 23% skjala og
handrita, sömuleiðis allra bóka frá
því fyrir 1850, allra dagblaða og
tímarita, og helming bóka sem eru
gefnar út síðar til að nefna nokkur
dæmi. Mestur kostnaður færi í end-
urgerð ljósmynda, filma og skyggna
eða um 12 milljarðar.
Í skýrslunni kemur fram að í
stofnun Árna Magnússonar í ís-
lenskum fræðum sé búið að færa um
20% handritanna á stafrænt form og
er stefnt að stafrænni endurgerð á
öllum safnkostinum en metið er að
eftir eigi að færa inn 480 þúsund
blaðsíður. tfh@mbl.is
Stafræn
varðveisla
dýrkeypt
19 milljarðar fyrir
nægilega ráðstöfun
Minningarskjöldur um rithöfundinn
Gunnar Gunnarsson var afhjúpaður
í Kaupmannahöfn í fyrradag.
Skjöldurinn var festur á húsið
Friðarhólma í Birkerød í útjaðri
borgarinnar.
Gunnar bjó í húsinu á árunum
1929 til 1939 ásamt konu sinni
Franziscu. Gunnar keypti húsið fer-
tugur að aldri og skrifaði þar meðal
annars sögurnar Svartfugl, Vikivaka
og Aðventu. Árið 1939 seldi hann
húsið og flutti til Íslands, þar sem
hann byggði herragarðinn á Skriðu-
klaustri. Á Friðarhólmi er nú rekinn
leikskóli og tóku börnin þátt í at-
höfninni. Það voru Gunnarsstofnun
og íslenska sendiráðið í Kaupmanna-
höfn sem stóðu að uppsetningu
minningarskjaldarins í samráði við
Rudersdal kommune og Børnehaven
Fredsholm.
Gunnar Björn Gunnarsson,
barnabarnabarn skáldsins, afhjúp-
aði skjöldinn með aðstoð nokkurra
leikskólabarna. mhj@mbl.is
Ljósmynd/Skúli Björn Gunnarsson
Skjöldurinn Gunnar Björn Gunnnarsson afhjúpaði minningarskjöldinn
ásamt börnum leikskólans og Hanne Engquist, forstöðukonu skólans.
Skjöldur um
Gunnar afhjúpaður