Morgunblaðið - 08.04.2017, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 08.04.2017, Blaðsíða 31
UMRÆÐAN 31 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. APRÍL 2017 Sími 788 2070 / 787-2070 | hotelrekstur@hotelrekstur.is | hotelrekstur.is Við tökum vel á móti þér Við bjóðum heildarlausnir fyrir hótel, gistiheimili, dvalarheimili, veitingahús, veisluþjónustur. ALLT Á EINUM STAÐ HOTELREKSTUR grein Ásmundar Magnússonar í Morgunblaðinu á dögunum þar sem sláandi tölur eru tíundaðar, skyldu- lesning allra hugsandi alþingis- manna eða eru þeir það annars ekki allir? Þeir mættu líka lesa hina skörpu grein Stefáns Mána rithöfundar, sem dregur ekkert undan og hvatn- ingin um synjun þessa frumvarps ótvíræð, þar talar sá sem veit og kann skil á þessu. Vilja menn á Alþingi í „frelsis“- hópnum kannski alls ekki hlusta á eða lesa annað en það sem hæfir þeirra þrönga hugsanaranni ? Þá er illa komið. Svo les ég líka vitnisburð þess mæta Þórarins Tyrfingssonar þar sem hann segir staðfest, að af þeim Íslendingum á aldrinum 15-64 ára sem dáið hafa fyrir aldur fram á síðustu 15 árum hafi tæplega 30 prósent leitað sér lækninga á Vogi. Og enn segir Þórarinn: Algengasta dánarorsök þeirra sem eru yngri en 25 ára er áfengisneyzla, beint eða óbeint. Finnst virkilega einhverjum að þessar tölur þurfi hækkunar við? Ágætu alþingismenn, segið nei og aftur nei við uppvakningnum. »Meðal þeirra yngstu hefur líka verið unnið markvisst forvarnarstarf sem hef- ur virkilega skilað sér Höfundur er form. fjölmiðlanefndar IOGT . Það eru gömul sann- indi að mikil gæfa get- ur fylgt því fyrir ein- staklinga að sveigja af rangri braut og taka þess í stað upp hollari breytni. Þetta á ekki síst við um kjörna full- trúa. Breytingar á Að- alskipulagi Reykjavík- ur og Svæðisskipulagi höfuðborgarsvæðisins geta í samráði við ríkisvaldið leitt til mikils og margþætts ábata fyrir borgarsamfélagið og þjóðarhag. T.d. er ávinningur af byggð í Vatnsmýri og flugvelli í Hvassa- hrauni margþættur. Stjórnlaus út- þensla borgarinnar stöðvast; íbúða- skortur hverfur; byggingarkostn- aður og leiguverð lækka; akstur, útblástur CO2 og mengun minnka; lýðheilsa batnar; ferðakostnaður flugfarþega minnkar; fjárfestingar í flugstarfsemi verða hagkvæmari; sjálfbært innanlandsflug verður mögulegt; „ferðafrelsi“ landsbyggð- arbúa eykst; dreifing erlendra ferðamanna verður markvissari o.s.frv. Árið 1946 ákvað ríkisstjórn Ólafs Thors að láta ekki rífa óhrjálegan bráðabirgðaherflugvöll Breta í Vatnsmýri heldur gera hann að borgaralegum flugvelli á besta byggingar- og mannvistarlandi Reykjavíkur, þar sem ella hefði óhjákvæmilega risið þétt og blönduð miðborgarbyggð á síðari helmingi 20. aldar í beinu framhaldi af þeirri byggð sem fyrir var norðan Hring- braut. Reykjavík fékk yfirráð yfir Vatns- mýri 1. janúar 1932 fyrir ört vaxandi byggð í höfuðborginni. Yfirtaka ríkisins á Vatnsmýri 1946 átti sér enga réttarfars- lega stoð. Ekki var haft samráð við Reyk- víkinga, engir samn- ingar voru gerðir, ekk- ert eignarnám fór fram. Engin þarfa- greining var unnin. Hvorki lóðarleiga né skaðabætur hafa verið greiddar í 70 ár. Ríkið braut gegn ákvæðum stjórnarskrár, sveitarstjórnarlaga, skipulagslaga og öðrum ákvæðum um eignarrétt, mannréttindi og al- mannahag. Engin dæmi eru um slíkt landrán án átaka og ófriðar. Og áhrif og afleiðingar flugstarfsem- innar sl. 70 ár á borgarmyndina, borgarsamfélagið og þjóðarhag eiga sér enga hliðstæðu í þróunarsögu borga heimsins á 20. og 21. öld. Á 70 árum hefur flugstarfsemi í Vatnsmýri því leitt til mikilla hörm- unga. Byggð á höfuðborgarsvæðinu þekur ferfalt stærra svæði en ann- ars hefði orðið og því eru allar göt- ur, stígar, lagnir, veitur, og leiðir borgarbúa að meðaltali tvöfalt lengri en ella. Höfuðborgarsvæðið er eitt það strjálbýlasta og óskilvirk- asta í heimi og óvíða ef nokkurs staðar er bílaeign meiri. Neikvæð áhrif flugsins bitna á flestum þáttum mannlífs og hag- kerfi þessarar einu borgar Íslands er svo óskilvirkt að áhrifa gætir á þjóðarhag. Óskilvirknin dregur nið- ur lífs- og launakjör landsmanna. Uppsafnað tjón á 70 árum er ólýs- anlegt en jafngildir mörgum þús- undum milljarða í krónum talið. En ábatinn af því að snúa nú við taflinu getur orðið gríðarlegur því með skynsamlegu ráðslagi má enn endurheimta hluta þeirra gæða og tækifæra, sem glötuðust sl. 70 ár. T.d. má leysa mörg af stærri sam- félagsverkefnum næstu missera og ára á einfaldan hátt. Með þéttri og blandaðri byggð í Vatnsmýri stöðvast áratuga stjórn- laus útþensla byggðar, borgin verð- ur mannvænni og hagkerfið skil- virkara til hagsbóta fyrir borgarbúa og aðra landsmenn. Hvergi annars staðar er mögulegt að byggja með jafn hagkvæmum hætti og leysa íbúðaskort, háan byggingarkostnað og hátt leiguverð. Borg og ríki geta mildað hér áhrif lóðaverðs á byggingarkostnað þegar það á við. Með því að takmarka strax lend- ingar í Vatnsmýri við sjónflug má byggja mun nær flugbrautum þó þær kunni enn að vera í rekstri og öll skerðingaráhrif flugsins á hæð bygginga í Reykjavík og Kópavogi hverfa (sbr. t.d. London City Air- port). Þétting byggðar í Vatnsmýri dregur úr þörf fyrir akstur og að- stæður skapast fyrir göngu, hjól- reiðar og almannasamgöngur. Þannig tekur lýðheilsa að batna og mengun og útblástur gróðurhúsa- lofttegunda að minnka (Ísland og Parísarsáttmálinn!). Fjarlægð frá miðju höfuðborg- arsvæðisins að nýjum flugvelli í Hvassahrauni er um þriðjungur fjarlægðar í Leifsstöð. Þar má byggja upp í hagkvæmum áföngum allt frá innanlandsflugvelli upp í stóran millilandaflugvöll skv. þörf- um samfélagsins hverju sinni. Hönnunar- og byggingartími 1. áfanga þarf ekki að vera lengri en 3-4 ár. Nýr innanlandsflugvöllur í Hvassahrauni, sem kostar innan við 25 milljarða króna, verður mun full- komnari en Reykjavíkurflugvöllur gæti nokkru sinni orðið. Til saman- burðar er nývirði flugtengdra mann- virkja í Vatnsmýri innan við 10 milljarðar. Á næstu áratugum gæti Hvassa- hraunsflugvöllur tekið við æ stærri hluta millilandaflugs. Þannig næðist mikill sparnaður m.a. vegna mun minni ferðakostnaðar og hagstæðari fjárfestinga en á Keflavíkurflugvelli því á sínum tíma var Leifsstöð ekki skipulögð af nægilegri framsýni. Með samþættingu á einum flug- velli gætu loks skapast skilyrði fyrir sjálfbært innanlandsflug því íbúar af landsbyggðinni komast þá milli- liðalaust í flug um víða veröld og er- lendir ferðamenn komast í beint innanlandsflug hvert á land sem er. Auk framantalinna atriða skapast t.d. gríðarlegur ávinningur af bætt- um borgarbrag, menningu og fjöl- breytilegum tækifærum og sam- legðaráhrifum m.a. með tengingu háskóla og hátæknifyrirtækja. Harmsaga höfuðborgar … Og hvað svo? Eftir Örn Sigurðsson » Ábati af því að snúa við taflinu getur orðið gríðarlegur því enn má endurheimta hluta þeirra gæða og tækifæra, sem glötuðust sl. 70 ár. Örn Sigurðsson Höfundur er arkitekt og stjórn- armaður í Samtökum um betri byggð.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.