Morgunblaðið - 08.04.2017, Blaðsíða 32
32 UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. APRÍL 2017
Ætihvönn (Angelica
archangelica) er
planta, sem vex eink-
um í norðlægum lönd-
um, svo sem Rúss-
landi, Grænlandi,
Finnlandi, Svíþjóð,
Noregi, Danmörku,
Færeyjum og Íslandi.
Hún hefur lengi verið
notuð sem fæða (græn-
meti) hér á landi enda
þótt heimildir um þetta séu af frek-
ar skornum skammti. Það er þó
næsta víst, að í hallærum fyrri alda
hafa rætur hennar og yfirborðs-
hlutar verið notaðir til að seðja
hungur landsmanna (1)-(4). Um og
eftir 1950 má þó fullyrða, að notkun
ætihvannar til manneldis hafi verið
hverfandi hérlendis. Höfundur
þessarar greinar minnist þess frá
æsku sinni (um 1940) að hvönn óx
hjá ánni nærri bænum og að brytj-
aðir stönglar af henni voru steiktir í
smjöri á pönnu. Þeir voru með sér-
kennilegu bragði. Hvannarót-
arbrennivín var eitt sinn fáanlegt
hér og í Frakklandi var og er
hvannarótarlíkjör (Chartreuse) vel
þekktur.
Ætihvönn er stórvaxin jurt og því
héldu menn í gamla daga að hún
væri öflug vörn gegn alls kyns sjúk-
dómum. Frægt er, að hún átti að
vera gagnleg við lífshættulegum
pestum á borð við svartadauða/
kýlapest. Þessir sjúkdómar orsak-
ast af sýklum (bakteríum – Yersinia
pestis), en engin sýkladrepandi efni
verðug því nafni eru þekkt í henni.
Raunar átti þessi ábending um téða
gagnsemi plöntunnar
að vera komin að hand-
an, þ.e. samkvæmt
draumi munks eins.
Þetta er enn eitt dæm-
ið um hjátrú manna um
handanlækna, sem
greinilega vita ekkert
umfram þá, sem hér
lifa – ef svo væri, væru
allir sjúkdómar upp-
rættir fyrir löngu (5).
Öll þessi della hefur
líklega orðið til þess að
hér hefur orðið til fyr-
irtæki, sem hefur markaðssett
a.m.k. fjórar vörutegundir grund-
vallaðar á ætihvönn, þ.e. Voxis,
SagaMemo, SagaVita og SagaPro.
Engin af þessum vörum hefur neina
vísindalega sannaða virkni. Engar
rannsóknir liggja að baki meintri
gagnsemi Voxis (særindi í hálsi?) né
SagaVita (ónæmisörvandi?). Að
baki SagaMemo (minnisaukandi?)
liggja ómarktækar athuganir á fá-
einum músum og SagaPro inniheld-
ur bara sykur (6). Þetta eru öm-
urleg dæmi um íslenzka fávizku,
sem eru því miður falboðin víða í
apótekum landsins.
Lyfjafræðingar eru eina heil-
brigðisstéttin, sem almenningur
hefur óheftan aðgang að. Allir geta
farið inn í næsta apótek og leitað
eftir upplýsingum og aðstoð. Vörur,
seldar í apótekum, hafa á sér ákveð-
inn gæðastimpil, eða svo ætla ég
a.m.k að vona. Hlutverk apóteka
hefur gerbreytzt á undanförnum
áratugum; t.a.m. fer engin lyfjagerð
fram í þeim lengur. Apótekin eru
orðin, eða a.m.k. ættu að vera, upp-
lýsingamiðstöðvar um lyf og skyldar
vörur. Til þess að svo geti orðið
þyrfti að auka menntun lyfjafræð-
inga í klínískri lyfjafræði og grunn-
fögum hennar svo sem líffærafræði,
lífeðlisfræði og sjúkdómafræði
verulega frá því sem nú er. Engu að
síður er núverandi þekking lyfja-
fræðinga einstök á þessum vett-
vangi.
Með hliðsjón af ofangreindu
skora ég á kollega mína í apótek-
unum að hætta að selja allar kukl-
vörur, þ. á m. vörurnar frá Saga-
Medica.
Tilvísanir:
(1) Fosså, O.: From Norvegian mountains
to English trifla. http://www.skogoglands-
kap.no/filearchive/angelica_fossaa.pdf.
(2) Eeva, M.J.M.: Plant secondary meta-
bolism in in Pseucedanum palustre and
Angelica archangelica and their plant cell
cultures. https://helda.helsinki.fi/
handle/10138/19080.
(3) Kylin, M.: Angelica archangelica L.
http://stud.epsilon.slu.se/818/4/
Kylin_M_100128.pdf.
(4) Bjarnadóttir, G.: Hefðbundnar gras-
nytjar á Íslandi með samanburð við Noreg
og nágrannalönd. http://skemman.is/en/
item/view/1946/18632.
(5) Nielsen, H.: Lægeplanter og trold-
domsurter. Politikens forlag. København.
1965. Bls. 231.
(6) Kowal, N.M. et al.: Investigations on
the constituents of SagaPro tablets, a food
supplement manufactured from Angelica
archangelica leaf. Pharmazie, 72, 3 (2017).
Ætihvönn – merkilegri
plöntu breytt í kukl
Eftir Reyni
Eyjólfsson » Staðhæfingar um
lækningamátt æti-
hvannar eiga ekki við
nein vísindaleg rök að
styðjast.
Reynir Eyjólfsson
Höfundur er doktor í náttúru-
efnafræði með diplómu
í jurtalækningum.
TECHNOLOGY
TAKE ON ANY MOUNTAIN.
HIGH-ALTITUDE
HIGH-POWER
HIGH-TECH
2018 M 8000 HARD CORE EVO
FORSÖLUTILBOÐ
150.000,- kr. afsláttur
fyrir þá sem staðfesta
kaup fyrir 1. maí.*
*Greiða þarf 200.000,- kr. staðfestingargjald inn á vöruna. Miðað við gengi 1. apríl 2017
VERÐ 2.540.000,-
Verðlistaverð 2.690.000,-
FORSÖLU
Ég vil biðja ökumenn að sýna okkur gangangi vegfarendum tillitssemi í
vætutíðinni sem nú ríkir. Ég bið þá að aka gætilega þar sem pollar eru á
götum. Ég varð fyrir því að ökumaður ók ógætilega yfir poll og eftir stóð-
um við barnabarn mitt, á leikskólaaldri, holdvot á gangstéttinni, helst til
ósátt.
Sýnum tillitssemi og aðgát í umferðinni.
Hulda Guðmundsdóttir.
Netverslun og vöruhólf
Netviðskipti verða sífellt algengari. Einn þáttur í kaupferlinu gæti verið
heimsendingarþjónusta og afhending vöru þó að kaupandi sé ekki við-
staddur. Einföld lausn er að hafa til staðar vöruhólf fyrir heimsendar
vörur, þar sem vöruflutningsaðili gæti skilið vöruna eftir á öruggum stað
ekki ósvipað og pósthólf eru notuð. Einn kostur við netverslun er tíma-
sparnaður og vöruhólf í heimahúsum gæti stuðlað að því.
Kristján.
Velvakandi Svarað í síma 569-1100 frá kl. 10-12 velvakandi@mbl.is
Tillitssemi eftir tíðarfari
Morgunblaðið/Ófeigur