Morgunblaðið - 08.04.2017, Blaðsíða 43

Morgunblaðið - 08.04.2017, Blaðsíða 43
Meðal rita Gunnars Þórs eru kennslubók í Íslands- og mann- kynssögu og fræðirit um brotthvarf Bandaríkjahers frá Íslandi. Árið 2012 sendi hann frá sér bókina Upp með fánann! Baráttan um upp- kastið 1908 og sjálfstæðisbarátta Íslendinga en hún hlaut menning- arverðlaun DV. Árið 2015 kom út rit hans, Þegar siðmenningin fór fjandans til. Íslendingar og stríðið mikla 1914-1918, en hún fékk Íslensku bókmenntaverðlaunin í flokki fræðibóka og rita almenns eðlis. Fyrir jólin 2016 kom verð- launabók Gunnars Þórs um Ísland og heimsstyrjöldina fyrri út í nýrri, aukinni og ríkulega myndskreyttri útgáfu undir heitinu Stríðið mikla 1914-1918. Um þessar mundir er Gunnar Þór að vinna að ritun bókar um fullveldi Íslands 1918 en hann hef- ur einnig verið að rannsaka spænsku veikina. Hann segir að markmið sitt með bókarskrifunum sé að skrifa læsileg rit sem hvíli jafnframt á traustum sagnfræði- legum grunni: „Í öllum blundar söguáhugi og mikilvægt er að fjalla um söguna á aðgengilegan hátt, rækta áhuga fólks og gæða fortíðina lífi.“ Gunnar Þór var annar stofnenda Sagna, ritstýrði Nýrri sögu um hríð og sat í stjórn Félags sögukennara. Hann var formaður Félags um átjándu aldar fræði í fjögur ár og situr nú í stjórn Sögufélags. Helstu áhugamál Gunnars eru saga og menning, í víðum skilningi, ekki síst bókmenntir og bóklestur. Hann hefur einnig mikið yndi af hjólreiðum og hefur farið í hjól- reiðaferðir í Austurríki, Frakklandi og Þýskalandi. Nú í sumar er stefnan sett á að hjóla frá Prag til Vínarborgar, vikuferð: „Það er mikið tilhlökkunarefni! En afmælinu ætla ég að fagna ásamt eiginkonunni í Kænugarði í Úkraínu og Varsjá í Póllandi, láta loksins verða af því að heimsækja þessar tvær borgir sem mig hefur svo lengi langað til að kynnast.“ Fjölskylda Eiginkona Gunnars Þórs er Jó- hanna Thelma Einarsdóttir, f. 8.6. 1958, dósent í talmeinafræði við heilbrigðis- og menntavísindasvið Háskóla Íslands. Foreldrar hennar eru Einar Grétar Þórðarson, f. 17.12. 1933, raffræðingur á Sel- tjarnarnesi, og k.h., Thelma Gríms- dóttir, f. 25.5. 1936, fyrrv. starfs- kona Landsbanka Íslands. Synir Gunnars Þórs og Jóhönnu eru: 1) Bjarni Þór, f. 18.4. 1980, tölvunarfræðingur og raftónlistar- maður í Hollandi en sambýliskona hans er Marie Guilleray, lögfræð- ingur og tónlistarkona frá Frakk- landi og eiga þau soninn Evan, f. 2013; 2) Einar, f. 9.12. 1986, stjórn- málafræðingur og starfsmaður Símans; 3) Jóhann Helgi, f. 3.11. 1994, nemi í tölvunarfræði við HR. Systkini Gunnars Þórs: Björn Ragnar, f. 15.5. 1943, viðskipta- fræðingur og fyrrverandi fram- kvæmdastjóri, og Þórdís, f. 25.4. 1948, d. 5.10. 1995. Foreldrar Gunnars Þórs: Bjarni Guðbjörnsson, f. 29.11. 1912, d. 29.1. 1999, útibússtjóri Útvegs- bankans á Ísafirði, og alþingis- maður og aðalbankastjóri Útvegs- bankans í Reykjavík, og k.h., Gunnþórunn Björnsdóttir, f. 14.11. 1919, sem nú býr við Sléttuveg í Reykjavík. Úr frændgarði Gunnars Þórs Bjarnasonar Gunnar Þór Bjarnason Kristveig Björnsdóttir húsfr. að Skógum Gunnar Árnason b. og smiður að Skógum í Öxarfirði Rannveig Björnsdóttir húsfr. að Víkingavatni Björn Kristjánsson b. á Víkingavatni, kaupfélags- stj. á Kópaskeri og alþm. Gunnþórunn Björnsdóttir húsfr. í Rvík Kristján Kristjánsson b. að Víkingavatni í Kelduhverfi, af Kjarnaætt Jens Guðbjörnsson bókbandsm., forstj. Íslenskra get- rauna og íþróttafrömuður í Rvík Friðjón Guðbjörnsson vélstj. og sundhallarvörður í Rvík Þórhallur Björnsson kaup- félagsstj. og aðalféhirðir SÍS Torfi Guðbjörnsson verslunarm. og fulltr. hjá tollstjóra í Rvík Friðjón Friðjónsson álitsgjafi og almannatengill Björn Þórhallsson viðskiptafr. og vara- forseti ASÍ Þórarinn Björnsson skólam.MA Karl Björnsson fyrrv. sveitarstj. Árborgar og frkvstj. Sambands íslenskra sveitarfélaga Guðrún Hlín Þórarinsdóttir innanhúshönnuður hjá IKEA Sigríður Daníelsdóttir húsfr. á Hóli Jens Jónsson b. og hreppstj. á Hóli í Hvammssveit Jensína Jensdóttir húsfr. í Rvík Guðbjörn Guðbrandsson prentari í Rvík Bjarni Guðbjörnsson bankastj. og alþm. Guðrún Tómasdóttir húsfreyja Guðbrandur Torfason b. og hreppstj. að Miklagarði í Saurbæ í Dalasýslu Jónína Aðalbjörg Þórarinsdóttir húsfr. á Víkingavatni, bróðurdóttir Ólafar, ömmu Benedikts Sveinssonar alþm., föður Bjarna forsætisráðherra eldri, og langafa Bjarna Benediktssonar forsætisráðherra yngri Björn Þórarinsson b. á Víkingavatni ÍSLENDINGAR 43 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. APRÍL 2017 Einar Sigurðsson fæddist áDjúpavogi 8.4. 1897. For-eldrar hans voru Guðrún Ög- mundsdóttir og Sigurður Einarsson, smiður í Odda á Fáskrúðsfirði. Fyrri kona Einars var Þórhildur Þorsteinsdóttir frá Löndum, sem lést 1940 en þau eignuðust sex börn og komust þrjú þeirra upp, Guðrún, Sig- urður og Guðlaugur, en seinni kona Einars var Unnur Pétursdóttir frá Rannveigarstöðum í Álftafirði. Einar hélt til Reykjavíkur um tví- tugt, lærði húsasmíði í Trésmiðjunni Völundi, lauk iðnskólanámi og varð meistari í húsasmíði. Síðar lærði hann skipateikningar í Reykjavík og hlaut meistararéttindi í skipasmíði. Árið 1921 stofnaði Einar Trésmíða- verksmiðju Austurlands á Fáskrúðs- firði, í daglegu tali nefnd Oddaverk- stæðið, sem stóð fyrir umfangs- miklum byggingaframkvæmdum og trésmíðavinnu. Þar var smíðaður fjöldi báta, árabáta, vélbáta af mörg- um stærðum og gerðum sem og stórir þilfarsbátar. Þar starfaði fjöldi manns þegar unnið var að stórum verkefnum en meðfram bátasmíðinni vann Einar við húsasmíði og gerð hafnarmannvirkja á Fáskrúðsfirði og í nálægum fjörðum. Hann reisti fjölda íbúðarhúsa og annarra bygg- inga fyrir sveitarfélagið, félags- heimili, sundlaugar, verksmiðjuhús og fleira. Einar hafði umsjón með niðurrifi Franska spítalans á Fáskrúðsfirði og endurbyggingu hans sem fjölbýlis- húss og barnaskóla í Hafnarnesi og sá um endurbætur á grafreit frönsku sjómannanna á Fáskrúðsfirði. Einar var velgjörðarmaður og máttarstólpi síns byggðarlags, varð heiðursborgari Búðakauptúns 1977 og var sæmdur riddarakrossi fálka- orðunnar 1972. Árið 1997 reisti Verkalýðs- og sjó- mannafélag Fáskrúðsfjarðar honum minnisvarða. Einar Sigurðsson lést 3.2. 1984. Einars verður minnst á frönskum dögum 2017 í Félagsheimilinu Skrúð laugardaginn 29.7. nk. kl. 14-17. Merkir Íslendingar Einar Sigurðsson Laugardagur 95 ára Elísabet Jónasdóttir 90 ára Halldóra Guðmundsdóttir 85 ára Svanborg Ólafsdóttir 80 ára Ólína Anna Guðjónsdóttir 75 ára Árni Kristján Sigurvinsson Ásthildur Theódórsdóttir Guðmundur Þórður Jónasson Kolbrún Sæmundsdóttir Ólafía Pétursdóttir Rósa Bergsdóttir Sigurbergur Hansson Sigurður Rúnar Símonarson 70 ára Arnfinnur Gísli Jónsson Hanna S. Frederiksen María Pétursdóttir Sjöfn Jóhannsdóttir 60 ára Ágúst Líndal Haraldsson Bergþór Jónasson Guðjón Þórhallsson Gunnar Þór Bjarnason Hrafnhildur Jónsdóttir Jóhann Liljan Arason Jónína Sigurbjörg Einarsdóttir Kristbjörg Marinósdóttir Kristín Aðalsteinsdóttir María Haraldsdóttir Nadezhda Budaeva Ramiz Kelmendi Sigríður Óskarsdóttir Sigurjón R. Ingvarsson Þorsteinn Egilson 50 ára Antanina Baranauskiené Arne Sólmundsson Einar Friðrik Þráinsson Erna Sævaldsdóttir Haukur Guðmundsson Ólöf Adda Sveinsdóttir Tumi Hafþór Helgason Þorgils Sævarsson Þórir Auðunn Gunnarsson 40 ára Bogumila Albo Einar Geir Ingvarsson Elín María Björnsdóttir Helga Árnadóttir Inga Tirone Jóhanna Jónsdóttir Mariusz Rafal Lisowski María Vesterg. Guðmundsdóttir Miroslaw Jozef Zielke Ólöf Huld Vöggsdóttir Sigurður Vífill Ingimarsson Svava Júlía Jónsdóttir 30 ára Aðalbjörg Eir Pétursdóttir Aðalheiður Björk Rúnarsdóttir Andri Þór Arnarsson April Antioquia Mendoza Árni Þór Þorgeirsson Barbara Bednarczyk-Szostak Guðni Alexandersson Hilmar Ólafsson Jens Guðmundur Hjörleifsson Karitas Ósk Ólafsdóttir Laufey Friðriksdóttir Mariusz Lukasz Kowal Matthías Steinarsson Ragnar Kristmundsson Pálmasunnudagur 90 ára Ingeburg Guðmundsson 85 ára Margrét Guðjónsdóttir Richard Hannesson Unnur Óskarsdóttir 80 ára Hallgrímur Þorsteinsson Ragnar Ingi Hálfdánsson 75 ára Ingvar J. Viktorsson Magnús Þór Einarsson Sævar Einarsson Victoria Namono Vilhjálmur Kristinn Skaftason Þráinn Traustason 70 ára Árný Björk Kristinsdóttir Borghildur Þorgeirsdóttir Kristín Unnsteinsdóttir Ólafur J. Bjarnason Páll Jónsson Ragnhildur Valgeirsdóttir Sigríður Guðmundsdóttir Tryggvi Eiríksson Þórunn Árnadóttir 60 ára Bjarni Helgason Guðrún Þorkelsdóttir Hafsteinn Guðjónsson Ingvar Garðarsson Jóna Vigfúsdóttir Marek Dziubinski Oddný Guðbjörg Harðardóttir Rannveig Svanhv. Þorvarðardóttir Sveinn Rúnar Sigmundsson 50 ára Björn Hallbjörnsson Brynjar Daníelsson Geir Örn Ingvarsson Guðný Björg Hauksdóttir Hörður Hinrik Arnarson James Phillip Schroeder Linda Björk Elíasdóttir Michal Roman Klejnowski Sigrún Pálsdóttir Sigurjón Þorkelsson Örn Arnarson 40 ára Arnbjörn Kristjánsson Bjarni Helgason Dagbjört Stefánsdóttir Gunnar Karl Ludwigsson Lea Marie Galgana Salómon Ingi Gunnlaugsson Vanda Cristina Agostinho Louro 30 ára Alexander Jensen Hjálmarsson Andri Sigurjónsson Áslaug Sigurðardóttir Björn Ingi Björnsson Eðvarð Þór Helgason Elín Edda Angantýsdóttir Eyrún Anna Emilsdóttir Gyða Rut Vildísardóttir Halldór Jón Gíslason Hulda Hrund Höskuldsdóttir Ívar Örn Axelsson Leonarda Maria Janczak Magnús Aðalsteinsson Natalia Tylewicz-Kiwitt Ómar Birgisson Páll Ammendrup Ólafsson Piotr Giedziuszewicz Sigríður Sif Gunnarsdóttir Sigurður Víðisson Sigurjón Örn Vilhjálmsson Soffía Erla Bergsdóttir Til hamingju með daginn EXPLORE WITHOUT LIMITS ® ARCTIC TRUCKS ÍSLAND EHF. KLETTHÁLSI 3 110 REYKJAVÍK SÍMI: 540 4900 NETFANG: info@arctictrucks.is www.arctictrucks.com VÖNDUÐ JEPPADEKK FYRIR ÍSLENSKAR AÐSTÆÐUR VÖNDUÐ OG HLJÓÐLÁT DEKK UNDIR FLESTAR GERÐIR JEPPA OG JEPPLINGA. STÆRÐIR FRÁ 29-44 TOMMU. ÖLL ALMENN DEKKJAÞJÓNUSTA TÍMABÓKANIR Í SÍMA 540 4900

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.