Morgunblaðið - 02.05.2017, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 02.05.2017, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 2. MAÍ 2017 Smiðjuvegur 10, 200 Kópavogur - Sími 588 60 70 hitataekni@hitataekni.is hitataekni.is ótorlokar ir allar stærðir kerfa. tum einnig boðið mótorloka llar algengustu gerðir loka frá öðrum framleiðendum. Gæðamótorlokar frá Sviss M fyr Ge á a Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/senda grein Prentun Landsprent ehf. Þorsteinn Friðrik Halldórsson tfh@mbl.is „Ég lít svo á að þetta sé sterkt til orða tekið hjá skólastjóra. Hún lýsir þessu sem sinni skoðun en þetta er kannski ekki ýtarlega rökstutt af hennar hálfu,“ segir Arnór Guðmundsson, forstjóri Menntamálastofnunar. Í Morgun- blaðinu í gær var greint frá gagn- rýni Brynhildar Sigurðardóttur, skólastjóra Garðaskóla, á fram- kvæmd samræmdra könnunar- prófa í 9. og 10. bekk og lýsti hún vantrausti á Menntamálastofnun vegna málsins. Meðal þess sem hún gagnrýndi var að ekki væri hægt að sjá svar nemenda á prófunum. „Við birtum ekki sjálfar prófspurningarnar heldur sambærilegar spurningar. Ástæðan er sú að við erum að þróa prófin þannig að þau verði betri og áreiðanlegri. Þannig getum við notað prófspurningarnar til lengri tíma og það gerir okkur kleift að skoða breytingar yfir tíma,“ segir Arnór. Geta dregið lærdóm Brynhildur fullyrti að kennarar vissu ekki lengur til hvers væri ætlast af þeim og ættu erfitt með að skilja prófin. Arnór segir að Menntamálastofnun taki gagnrýni á prófin alvarlega en sjái ekki stóra annmarka á framkvæmdinni. Vegna umfangs breytinganna hefði hinsvegar ekki gefist nægur tími til að kynna þær rækilega. „Lærdómurinn af þessu öllu hlýtur að vera sá að við þurfum að veita betri upplýsingar um þessi mál og tala beinna til nemenda, foreldra, kennara og skólastjórn- enda. Okkar næsta stóra verkefni er að gefa út upplýsingaefni og heyra fleiri sjónarmið varðandi þessi próf,“ segir Arnór. Í næstu viku mun Menntamálastofnun birta upplýsingar um heildarnið- urstöður samræmdra könnunar- prófa. Segir enga stóra annmarka á framkvæmd prófanna  Menntamálastofnun vísar gagnrýni skólastjóra á bug Flugstjórar fá allar upplýsingar Flugbrautin á Keflavíkurflugvelli er rudd fyrir allar lendingar, þegar snjókoma er, og hemlunarskilyrði mæld. Upplýs- ingum um mæl- ingarnar er jafn- framt komið til flugstjóranna. Það var gert áður en flugvél Primera Air með 143 innanborðs rann út af braut- arenda í lendingu á Keflavíkurflugvelli sl. föstudag, að sögn Guðna Sigurðs- sonar, upplýsingafulltrúa Isavia. Guðni segir að Isavia geti ekkert sagt um ástæður óhappsins á þessari stundu. Málið sé til rannsóknar hjá Rannsóknarnefnd flugslysa. Nefndin hafi fengið allar upplýsingar hjá Isavia. Snjókoma var þegar vélin lenti. Spurður hvort aðrar vélar hefðu lent í erfiðleikum í lendingu þennan dag sagði Guðni að svo hefði ekki verið. Fram hefur komið að Rannsóknar- nefndin ætlar að taka sér daga eða vik- ur til að rannsaka atvikið. Einnig að Primera Air framkvæmi eigin rann- sókn. Guðni segir að þegar niðurstaða nefndarinnar liggi fyrir muni Isavia og aðrir aðilar læra af henni, eftir því hver niðurstaðan verður. helgi@mbl.is Guðni Sigurðsson  Flugvél Primera ein í erfiðleikum Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Ríkislögreglustjóri leggur það mat á stöðu lög- gæslumála að þótt staðan hafi lagast nokkuð standi óbreytt það mat embættisins sem fram kom á fundi með allsherjarnefnd Alþingis haustið 2015 að staða löggæslumála sé almennt óviðunandi. Viðbúnaðargeta lögreglunnar sé óviðunandi og henni ekki fært að standa undir þjónustu- og ör- yggisstigi í samræmi við lögbundið hlutverk. Lög- reglumenn séu allt of fáir. Kemur þetta mat fram í umsögn ríkislögreglu- stjóra um þingsályktunartillögu fjármálaráðherra um fjármálaáætlun fyrir árin 2018 til 2022. Þar kemur fram að ekki verði séð að fjárveitingar til lögreglu aukist á tímabilinu umfram það sem hún hefur fengið í fjárlögum 2017. Í umsögn Lögreglu- stjórafélags Íslands kemur fram að svigrúm til bættrar almennrar löggæslu virðist ekki til staðar í fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar. Fækka þarf lögreglumönnum Í umsögn lögreglustjórans á höfuðborgarsvæð- inu er vakin athygli á aðhaldsmarkmiðum fjár- málaáætlunar. Það hafi í för með sér að fækka þurfi um 6-8 stöðugildi lögreglumanna strax á næsta ári og meira síðar. Í umsögn ríkislögreglustjóra segir að lögreglu- mönnum hafi fækkað frá árinu 2007 og séu þeir nú 50 færri en þá var auk þess sem samdráttur hafi orðið í öðrum rekstri. Lögreglan hafi enn ekki náð þeim styrk sem var fyrir árið 2008. Álag hafi hins vegar aukist mikið síðustu þrjú ár, vegna gríð- arlegrar fjölgunar ferðamanna sem og fjölgunar hælisleitenda og erlends vinnuafls. Lögreglumenn séu of fáir til þess að lögreglan geti sinnt þjónustu- og öryggishlutverki sínu með fullnægjandi hætti. Bent er á að áætlaður kostnaður við að ná sama fjölda lögreglumanna og var árið 2007 sé einn milljarður og 3 milljarðar til að ná tölunni 860, en lögreglumenn megi helst ekki vera færri en það. Innanríkisráðuneytið bendir á að ekki sé fjár- hagslegt svigrúm til að ráðast í ýmis verkefni á sviði almanna- og réttaröryggis sem tilgreind eru í fjármálaáætlun. Í kynningu hjá allsherjar- og menntamálanefnd kom fram hjá ráðuneytinu að 700 milljónir séu til ráðstöfunar aukalega á tíma- bilinu en áætluð útgjöld vegna verkefna á þessu sviði tæpir 6 milljarðar. Því þurfi að forgangsraða í löggæslu, landhelgi og fleiri málum. Viðbúnaðargeta óviðunandi  Lögreglan telur fjármálaáætlun ekki veita svigrúm til bættrar þjónustu  Ríkislögreglustjóri segir ekki unnt að standa undir þjónustu- og öryggisstigi Morgunblaðið/Styrmir Kári Mótmæli Álag á lögreglu hefur aukist mjög síðustu árin. Lögreglan á Suðurlandi hefur stað- fest að maðurinn sem lést við kajak- róður við mynni Þjórsár hafi verið íslenskur. Eftir því sem Morgun- blaðið kemst næst var hinn mað- urinn franskur. Ekki er vitað um til- drög slyssins að svo stöddu. Samkvæmt upplýsingum frá Land- helgisgæslunni var maðurinn sem lést meðvitundarlaus þegar hann var hífður um borð í þyrlu Gæslunnar, TF-GNA, og báru endurlífgunar- tilraunir á leiðinni til Reykjavíkur ekki árangur. Hefja rannsókn af krafti í dag Rannsókn lögreglunnar á til- drögum slyssins mun hefjast í dag að sögn Þorgríms Óla Sigurðssonar, aðstoðaryfirlögregluþjóns hjá lög- reglunni á Suðurlandi. „Við munum ná til allra aðila sem við þurfum að ná til. Við vitum ekki hvort þeir hafa verið að fara niður Þjórsá eða farið úr fjörunni. Það skýrist vonandi á morgun,“ sagði Þorgrímur í samtali við Morgun- blaðið í gær. Mikið brim og ölduhæð var þegar Landhelgisgæslan kom á svæðið og þurfti að nota nætursjón- auka til að finna mennina. Símhring- ingin sem barst Neyðarlínunni var frá ættingja annars mannanna, sem sá til þeirra frá landi. mhj@mbl.is Hinn látni var Íslend- ingur  Rannsaka tildrög slyssins í Þjórsá Hann var ekki sérlega upplitsdjarfur hundurinn sem fylgdi eiganda sínum í kröfugönguna í miðborg Reykjavíkur í gær. Því hefur ráðið væta og hráslagi. Þó má vænta þess að hann, líkt og aðrir ferfætlingar, taki gleði sína fljótt en strax á miðvikudag er spáð allt að 20 stiga hita á landinu. Stutt í að betur viðri til útivistar Ferfætlingarnir létu sig ekki vanta á Ingólfstorgi í gær Morgunblaðið/Árni Sæberg

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.