Morgunblaðið - 02.05.2017, Side 20

Morgunblaðið - 02.05.2017, Side 20
20 UMRÆÐAN Minningar MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 2. MAÍ 2017 Síðastliðinn vetur gerði þingmaður fyr- irspurn til fjár- málaráðuneytis- ins um launa- umhverfi lögreglumanna. Samkvæmt svari til þing- mannsins þá hafa laun/ grunnlaun lögreglumanna dregist verulega saman mið- að við fyrri viðmiðunarhópa. Landssamband lögreglu- manna hefur ítrekað bent á þetta misvægi, telur reyndar að launin hafi dregist meira saman en fram kom í nefndu svari. Stjórnvöld virðast una úr- skurði kjararáðs um miklar launahækkanir víða í op- inbera geiranum, þ.e. á þeim forsendum að viðkomandi hópar hafi dregist aftur úr í launum og álag á þá aukist. Hvers vegna stjórnvöld hafa ekki tekið undir ábend- ingar/rök LL varðandi nefnda launaskerðingu og aukið álag á lögreglumenn skal ósagt látið. Breyting hefur verið gerð á lífeyriskjörum lögreglu- manna og fleiri ríkisstarfs- manna án þess að trygging sé fyrir því að grunnlaun verði bætt til jafns við almenna markaðinn. Jafnframt hafa heyrst hug- myndir um að endurskoða eigi eftirmannsregluna í B- sjóðnum, þátt sem gjarnan var vitnað í við samningagerð til að réttlæta lág grunnlaun lögreglumanna og fleiri rík- isstarfsmanna gegnum tíðina. Til fróðleiks skal þess getið að lögreglumenn í B-sjóði sem sinnt hafa útkalls- vöktum/rannsókna um nætur og helgar, jafnvel í áratugi, fá ekkert af þeirri vinnu/vöktum til eftirlauna og ekki mun eft- irtekjan lagast ef keyra á fram nefnda eftirlaunabreyt- ingu. Vandi B-sjóðsins er ekki vegna aðildarfélaga, þeir hafa greitt sínar skyldur til sjóðs- ins frá upphafi, en svo mun ekki hafa verið hjá því op- inbera. Þegar síðustu kjarasamn- ingar stóðu yfir 2015, þá voru stjórnvöld hvött til að bæta kjör lögreglumanna og ýmis rök færð fram í því sambandi. Kröfu um starfsaldurhækk- anir og fleiri áhersluþáttum var vísað út af borðinu. Meirihluti lögreglumanna er ósáttur með þann samning sem gerður var, enda hékk samningurinn inni á nokkrum auðum (mikil kosningaþátt- taka) at- kvæðaseðlum. Laun/afkoma flestra lögreglumanna byggj- ast sem fyrr á álagi og yf- irvinnu um nætur og helgar. Hætt er við að auknar upp- sagnir geti komið til á næstu mánuðum/árum vegna launa- mála lögreglumanna, t.d. hjá yngri lögreglumönnum, sem er dýrt fyrir ríkið og slæmt fyrir liðsheildina. Það er með lögreglustarfið eins og önnur störf, að þjálfa þarf fólk upp í starfi þar til fullri virkni til starfsins er náð. Lögreglustarfið er sérhæft fagstarf víðtækrar þekkingar og tæknikunnáttu til að geta brugðist við hinum ýmsu að- stæðum með skjótum og öruggum hætti og þeim ekki einföldum oft á tíðum. Álag á lögreglumenn vex og afbrotin verða harðari því miður, sem kallar á kröfu- meiri úrlausnir við afgreiðslu mála. Slys og meiðsli í starfi hafa aukist hjá lögreglumönnum á undanförnum árum, þátt sem þarf að skoða nánar og leita úrbóta á. Miklar breytingar hafa verið gerðar á löggæsluum- hverfinu frá 1997 og hefur stundum ekki verið staðið þar nægjanlega vel að verki, t.d. varðandi fjármögnun og fleira. Vegna ástandsins í þjóð- félaginu eftir hrun, þá biðu lögreglumenn í reynd með raunhæfar launakröfur þrátt fyrir aukið álag í starfi og ætluðust því til að ásætt- anlegur samningur næðist við ríkið 2015. Það skiptir miklu máli fyrir land og þjóð að hafa starfs- reynda og öfluga lögreglu og að sæmileg sátt ríki innan stéttarinnar varðandi launa- kjör og að starfsálag fari ekki úr hófi fram vegna mann- fæðar og fleiri þátta. Það nægir ekki að færa menntun lögreglumanna al- farið upp á háskólastig og láta þar við sitja. Það þarf einnig að bæta kjörin, einnig hjá þeim sem hafa aflað sér víðtækrar menntunar/þekkingar (einnig á háskólastigi ) fram til þessa. Nauðsynlegt er að verk- legri kennslu verði ekki ýtt til hliðar við nefnda námsbreyt- ingu, sú kennsla/þjálfun er einnig afar mikilvæg í lög- reglustarfinu. Verkefni lögreglu aukast ár frá ári á ýmsum sviðum eins og fyrr er getið t.d. vegna síaukins ferðamanna- straums, harðari afbrota og þar með kröfumeiri verkefna. Hætt er við að margir lögreglumenn verði orðnir langþreyttir á sínum kjörum 2019/20 ef ekki verður bætt þar úr og þá verður vænt- anlega samið eftir Salek- samkomulaginu með jafn- launahækkunum, ekki hlust- að mikið á sérkröfur né leiðréttingu vegna fyrri samninga. Landsmenn og þeir sem sækja okkur heim vilja hafa gott öryggi í landinu og að skjótt sé brugðist við með faglegum hætti ef slys, afbrot eða önnur vá kemur upp. Stöndum saman að því sem fyrr og gerum Ísland að einu öruggasta landi í Evrópu með fjölhæfri lögreglu og öðrum mikilvægum öryggisstéttum/ faghópum. Slíkt mun fljótt borga sig fyrir þjóðfélagið með meira öryggi, fækkun afbrota og slysa. Jafnframt þarf að stórauka forvarnir með markvissum aðgerðum á hinum ýmsu sviðum og koma hér upp samhæfðri björgunarmiðstöð norðurslóða með öflugum manna- og tækjabúnaði. Lögreglumenn bera vænt- ingar til stjórnvalda um að bætt verði úr framangreind- um þáttum og fleiru sem bet- ur má fara í löggæsluum- hverfinu. Eftir Ómar G. Jónsson » Landsmenn og þeir sem sækja okkur heim vilja hafa gott öryggi í landinu og að skjótt sé brugðist við með faglegum hætti ef slys eða önnur vá kemur upp. Ómar G. Jónsson Höfundur er fulltrúi og tals- maður fyrir bættum kjörum lögreglumanna. Bæta þarf launa- og starfs- umhverfi lögreglumanna Hvers vegna þetta þras út af starfsemi Klíníkurinnar? Er það ekki af hinu góða ef hægt er að fækka á biðlistum? Ég tala af reynslu. Síðast þegar ég fór í mjaðmaaðgerð var ég búin að vera á biðlista í tvö ár. Er fólki ekki frjálst að borga úr eigin vasa til þess að kom- ast hjá því að bíða í mörg ár eftir lækningu og losna fyrr við þær þrautir sem því fylgja að vera með slitna liði? Þarf ríkið að vera með puttana í öllu? Guðrún Magnúsdóttir. Illa prentuð rit Mikið lifandis skelfing er ég orðin þreytt á að meðhöndla ritin sem gefin eru út af Há- skóla Íslands. Það virðist sem textinn renni allur inn að miðju, þó nóg pláss sé til hægri og vinstri. Maður er í vandræðum með að halda rit- inu opnu með veikum fingrum svo maður geti haft ánægju af lestrinum. SE. Velvakandi Svarað í síma 569-1100 frá kl. 10-12 velvakandi@mbl.is Klíníkin Morgunblaðið/Eggert Klíníkin Enn er beðið eftir ákvörðun ráðherra. ✝ Ingveldur Sig-ríður Filipp- usdóttir fæddist á Eyrarbakka 1. júlí 1916. Hún lést á Hjúkrunarheim- ilinu Mörk 19. apr- íl 2017. Foreldrar henn- ar voru Guðrún Pétursdóttir, hús- móðir/ráðskona, f. 1.10. 1875, d. 24.9. 1954, og Filippus Jóhannsson, bóndi/sjómaður/verkamaður, f. 20.10. 1877, d. 29.11. 1961. Ingveldur átti tvær systur, þær Guðbjörgu Filippusdóttur, f. 1.2. 1911, d. 18.12. 1930, og Jóhönnu Filippusdóttur, f. 19.11. 1913, d. 30.1. 1938. Ingveldur giftist Sigurði Bald- vin Einarssyni, verslunar- manni í Reykjavík, þann 25.6. 1947, f. 8.7. 1906, d. 25.8. 1963. Þau eignuðust þrjú börn: Eddu Jóhönnu Sigurð- ardóttur, f. 1.12. 1938, börn hennar: Helgi Halldórsson, f. 25.6. 1958, Baldvin Hall- ardóttir, f. 23.11. 2008, Elvar Jökull Tryggvason, f. 6.12. 2010, Eva Guðrún Tryggva- dóttir, f. 27.10. 2013. Sigurður Ingi Sigurðsson, f. 11.7. 1956, börn hans: Hrólfur Sigurðsson, f. 1.9. 1977, Iða Brá Ingadóttir, f. 4.10. 1986, Harpa Lind Ingadóttir, f. 9.12. 1988, Birta Hrund Ingadóttir, f. 24.5. 1995. Nora Eva Sig- urðsson, f. 27.11. 2002, Einar Hjálmar Sigurðsson, f. 10.6. 2006. Barnabörn: Bjartur Hrólfs- son, f. 19.2. 2002, Teitur Hrólfsson, f 21.7. 2004, Rakel Eva Hrólfsdóttir, f. 13.11. 2013, Rebekka Ásta Hrólfs- dóttir, f. 23.3. 2017. Ingveldur bjó að Halakoti í Flóa fyrstu 6 árin ásamt for- eldrum sínum, þaðan fluttu þau að Kumbaravogi, Stokks- eyri, síðan á Álftanes og frá unglingsárum í Reykjavík. Ingveldur starfaði m.a. sem verkstjóri á prjónastofu, sem fiskmatsmaður í frystihúsinu Ísbirninum, þerna á strand- ferðaskipi, starfaði á sauma- stofu, starfaði á Hótel Loft- leiðum og síðast við skrifstofustörf á Keflavíkur- flugvelli. Útför hennar fer fram frá Langholtskirkju í dag, 2. maí 2017, klukkan 13. dórsson, f. 27.5. 1960, Inga Guð- rún Halldórs- dóttir, f. 27.8. 1962, Þórður Jónsson, f. 29.1. 1971. Barnabörn: Fríða Edda Bald- vinsdóttir, f. 31.8. 1979, Aron Freyr Baldvinsson, f. 31.3. 1987, Árný Edda Guðjóns- dóttir, f. 1.9. 1990. Hanna Björg Guðjónsdóttir, f. 22.11. 1992, Salomón Örn Guð- jónsson, f. 7.3. 1996. Eydís Ása Þórðardóttir, f. 18.4. 1993, Kristófer Guðjón Þórðarson, f. 22.10. 1997, Sara Dagný Þórð- ardóttir, f. 2.6. 2003. Barna- barnabörn: Casandra Niklas- dóttir, f. 19.4. 2000, Colin Freyr Aronsson, f. 28.3. 2016. Rúnar F. Sigurðsson, f. 14.7. 1949, börn hans: Sig- urður Rúnarsson, f. 3.8. 1980, Una Rúnarsdóttir, f. 1.10. 1983. Barnabörn: Freydís María Sigurðardóttir, f. 29.9. 2006, Berglind Emilía Sigurð- Ég hitti tengdamóður mína Ingveldi, eða Ingu eins og hún var alltaf kölluð, í fyrsta sinn fyrir rúmum 40 árum. Hún tók á móti mér með yfirlætislausri hlýju og gestrisni sem aldrei hefur borið skugga á æ síðan. Í veisluskapi og nýjum kjól hélt hún upp á 100 ára afmæli sitt með vinum og vandamönnum 1. júlí síðastliðið ár. Ingveldur var þakklát fyrir langlífi sitt og naut þess að lifa. Ingveldi var ætíð umhugað um samferðafólk sitt og fjölskyldu sína. Fólki leið vel í hennar návist. Hún hafði gaman af ferðalögum bæði innanlands sem til út- landa. Ferðaðist mikið með eig- inmanni sínum, Sigurði, innan- lands á fyrri hluta síðustu aldar. Sigurður lést árið 1963. Þau hjónin voru bæði laghent og smíðaði Sigurður ýmsa muni og hafði áhuga á ljósmyndun og eru margar góðar fjölskyldu- myndir til frá fyrri tíð. Ingveld- ur prjónaði og saumaði mikið af fötum á fjölskylduna. Saumaði meðal annars nýjar flíkur upp úr gömlum fötum sem algengt var hér áður fyrr. Hún prjónaði peysur á börnin mín í fallegum litasamsetningum og hef ég aldrei séð eins gott handbragð á heimaprjónuðum flíkum. Ingveldur minntist foreldra sinna af mikilli hlýju – sagði móður sína Guðrúnu hafa verið mikla búkonu og útsjónarsama. Einnig hafi hún verið fengin til að semja erfiljóð. Föður sinn, Filippus „sterka“, sagði hún hafa verið einstaklega barngóð- an. Ingveldur missti báðar eldri systur sínar úr berklum þegar hún var sjálf ung að árum. Ingveldur var verkstjóri á prjónastofu á sínum yngri ár- um. Urðu glaðlyndar sam- starfsstúlkur hennar vinkonur alla tíð og héldu saman í saumaklúbbi. Við þann hóp bættust síðar vinkonur og frænkur. Ingveldur átti sínar listrænu hliðar sem nýttust ekki beint í daglegu brauðstriti. Hafði áhuga á ljóðum og ljóðlist, kveðskap og söng. Lærði á org- el þótt tveir fingur hennar væru krepptir eftir fall af kofa- þaki á barnsaldri. Ingveldur var lífsglöð og ung í anda. Hún var dálítil borg- ardama og jafnvel heimskona. Hafði áhuga á tísku og fallegum fötum. Hafði mikla ánægju af að dansa og spila. Vann oft til verðlauna í félagsvist. Guðrún móðir hennar orti um hana vísu þegar hún var barn að aldri: Sigríður mín er sómakvendi sú er pía engri lík henni mun verk ekki falla úr hendi fyrr en hún kemst í Reykjavík dansa, spila dag og nótt þá mun hjartað verða rótt. Ingveldur eignaðist marga góða vini í gegnum tíðina, allt frá unga aldri til hins síðasta. Sem dæmi má nefna að er son- ur hennar kom til að athuga með hana stuttu fyrir andlát hennar, komu í heimsókn til hennar fjórar ungar konur sem unnið höfðu á Mörkinni og voru hættar eða í barnaeignarfríi. Sagði sonurinn þannig frá að þær sungu vísur og lög sem hún hafði kennt þeim og trall- aði Ingveldur með. Fréttum við að sú fimmta hafi heilsað upp á hana stuttu seinna. Það er aðdáunarvert af hve miklu æðruleysi þessi kraft- mikla og athafnasama kona tók ellinni og þeim takmörkunum sem henni fylgdi. Það var og er mannbætandi og auðgandi að minnast og hugsa til hennar. Með samúðarkveðjum, Jónína Sigurðardóttir. Nú hefur hún elskulega amma mín kvatt þetta líf. Ég var þeirrar gæfu aðnjótandi að fá að eyða með henni stórum hluta ævi hennar. Amma missti báðar systur sínar ung, síðar foreldra sína og svo ástkæran eiginmann sinn aðeins 47 ára gömul. Þá voru einu ættingjar hennar börnin hennar og við bræður mínir, barnabörnin hennar, sem bjuggum hjá henni sum af okk- ar fyrstu árum. Þessu fólki helgaði hún líf sitt. Hún elskaði fjölskyldu sína, var félagslynd og naut þess að vera til enda nutu þess allir að vera í kringum hana, síðast þeir sem bjuggu og störfuðu í Mörk- inni þar sem hún dvaldi fimm síðustu árin. Amma var barngóð og frá- bær kokkur, en var hún mikið fyrir heimilið sitt sem var ein- staklega smekklegt og notalegt. Það var allt svo vandað og smekklegt sem amma gerði. Hún var þægileg og skemmti- leg heim að sækja, hafði létta lund þar sem hún raulaði vísur, spilaði bridge og Rússa og var mikið fyrir að bjóða í góðan mat. Hún hélt uppi stemmning- unni og passaði upp á að fólk fengi nóg að borða. Hún var selskapsmanneskja og hélt góð- um tengslum við vinkonur sínar alla tíð, var smekkleg í tauinu, elegant og kunni að njóta lífsins þar sem hún lét drauma sína rætast m.a. með að ferðast víða. Þrátt fyrir allan ástvinamiss- inn var ekki hægt að finna að það skerti lífslöngun hennar, varð það aðeins til þess að efla hana enn meir í að njóta hverr- ar stundar. Ég var dugleg að heimsækja ömmu alveg fram á síðasta dag. Við vorum góðar vinkonur enda amma svo skemmtileg með svo góða nærveru. Hún var frið- söm, einstaklega fórnfús og kvartaði aldrei, hún var öllum góð enda elskuðu hana ungir sem gamlir. Hún hafði einstakt jafnaðargeð, drifkraft og seiglu sem ég hef sjaldan kynnst. Mér leiddist aldrei en leið alltaf vel hjá ömmu, hvort sem það var þegar ég gisti hjá henni sem barn og fékk að leika með skartgripina hennar og sofa í fallega prinsessusloppnum eða gisti hjá henni sem unglingur þar sem ég vaknaði við ilmandi lambahrygginn, eða þá þegar ég heimsótti hana í Mörkina og hélt í höndina á henni meðan hún söng og raulaði skemmti- legar vísur. Hún var kletturinn í mínu framan af stormasama lífi, en síðar varð það svo að það kom m.a. í hlut minnar fjölskyldu að vera henni félagsskapur og vin- ir. Við heimsóttum hana iðulega og áttum margar góðar stundir saman þar sem vinátta okkar ömmu efldist með árunum. Þannig vorum við amma til staðar fyrir hvor aðra í lífinu. Ég var svo gæfusöm að fá að halda í hönd hennar og strjúka ennið á henni sem henni fannst alltaf svo gott þar sem við vor- um saman komin hennar nán- ustu þar til yfir lauk. Mun ég sakna hennar mikið. Vil ég þakka starfsfólki og heimilisfólki í Mörkinni fyrir að hafa gert síðustu ár ömmu svo ánægjuleg og skemmtileg sem og þeirra sem voru svo duglegir að heimsækja hana. Takk fyrir allt, elsku amma mín, það er búið að vera svo dýrmætt að fá að hafa þig svona lengi. Ég veit að þú ert í góðum höndum þar til við sjáumst að nýju í dýrðinni hjá Guði þar sem við getum haldið áfram að hafa það gaman sam- an. Inga Guðrún Halldórsdóttir. Ingveldur Sigríður Filippusdóttir  Fleiri minningargreinar um Ingveldi Sigríði Filipp- usdóttur bíða birtingar og munu birtast í blaðinu næstu daga.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.