Morgunblaðið - 02.05.2017, Page 13
áhugamál, eru vanir vinnu og úti-
veru og kunna að umgangast vélar
og tæki. Christian er ekki ókunnug-
ur á norðlægum slóðum því hann fór
oft með foreldrunum í frí til Svíþjóð-
ar.
Karen varaði þá við íslenska
skammdeginu, löngum vetri og lítilli
tilbreytingu en ótti hennar var
ástæðulaus því þessir bjartsýnu
ungu Þjóðverjar kunna ljómandi vel
við sig.
„Við erum engir „big-city strák-
ar,“ segja þeir, „við viljum njóta úti-
veru, fara í jeppaferðir, fjallgöngur
og síðast en ekki síst finnst okkur
gaman að vinna.“ Þeir tóku að sér
umsjón með búinu á Syðra-Álandi
frá miðjum desember og fram yfir
áramót þegar fjölskyldan fór í frí til
útlanda. Þann tíma var nóg að starfa
og enginn tími til að láta sér leiðast.
Glöggt er gests augað
Karen og Ólafur segja það hafa
verið gefandi og skemmtilegt að
kynnast þessum ungu mönnum:
„Þeir eru jákvæðir og kátir og hafa
kennt okkur að meta það sem við
höfum í kringum okkur. Þeir hafa
aðra sýn á svo margt, til dæmis það
sem okkur finnst hversdagslegt út-
sýni er í þeirra augum stórkostlegt.“
Þau nefna líka góða skipulagshæfni
og lengri tíma áætlanir strákanna,
sem telja megi dæmigert fyrir þjóð-
erni þeirra. Þar er ekki um að ræða
neitt íslenskt „það reddast,“ heldur
skal framkvæmt „the German way“.
Viðkvæðið varð hálfgerður brandari
hjá Birni og fjölskyldunni á Syðra-
Álandi. Þeir Christian ákváðu að
gera það að slagorði sínu og setja á
bílinn sem þeir keyptu fyrir Íslands-
ferðina.
Þeir sjá margt ólíkt með þjóð-
unum tveimur, t.d. kom þeim
skemmtilega á óvart hve mikil
tengsl eru á milli fólks alls staðar á
landinu, „Allir virðast þekkja alla og
fólk er almennt svo sveigjanlegt,
tilbúið að hliðra til þegar á liggur,
hvort sem er hjá þjónustustofnunum
eða bara einstaklingar,“ segja þeir.
Allt getur gerst á Íslandi
Björn og Christian segja að
miðað við þeirra reynslu á Íslandi
séu þeim allir vegir færir. Báðir hafa
áhuga á að læra til smiðs og stefna á
að öðlast réttindi í þeirri iðn. Slíkt
kemur sér vel fyrir þá sem eru að
gera upp gamalt hús.
Þeir treysta sér ekki til að full-
yrða neitt þegar þeir eru spurðir
hvort þeir sjái framtíðina fyrir sér í
litla samfélaginu á Þórshöfn. „Hér
er gott að vera og við erum opnir
fyrir öllu. Aðalástæðan fyrir því að
við komum aftur eru Óli og Karen,
sem hafa reynst okkur ómetanlega
vel, fólkið hér er einnig almennt vin-
gjarnlegt og opið og vinnuveitandinn
fínn. Ef við viljum, þá getum við báð-
ir snúið aftur heim í skólana okkar
þar sem við eigum ágæta sögu en
tíminn leiðir allt í ljós. Við erum
ánægðir hér og einstaklega þakk-
látir þeim Óla og Karen fyrir alla
hjálpina sem þau hafa veitt okkur.“
Sólgarður F.v. Björn, Karen og Ólafur ásamt dóttur sinni, Ásu Rut, og Christian fyrir framan Sólgarð. Upplifun Björn seig eftir svartfuglseggjum í hrikaleg björgin á Langanesi.
Þýska leiðin Sendibíllinn sem þeir
félagar keyptu og létu merkja.
DAGLEGT LÍF 13
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 2. MAÍ 2017
lÍs en ku
ALPARNIR
s
www.alparnir.is
P
P
Góð gæði
Betra verð
ÁRMÚLA 40 | SÍMI 534 2727
Lagersala
50%
afsláttur
af völdum
vörum