Morgunblaðið - 02.05.2017, Side 19

Morgunblaðið - 02.05.2017, Side 19
19 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 2. MAÍ 2017 Hátíð íslenska hestsins Hestadagar voru haldnir dagana 29. apríl til 1. maí og að venju var skrautreið farin í miðbæ Reykjavíkur í fyrradag. Alþjóðlegur dagur íslenska hestsins var í gær. Árni Sæberg Í dag eru liðin 25 ár frá því að samning- urinn um Evrópska efnahagssvæðið var undirritaður í borginni Óportó í Portúgal. EES-samningurinn hefur frá upphafi þjónað því hlutverki að vera brú Íslands og hinna EFTA-ríkjanna innan EES yfir á innri markað Evrópusam- bandsins. Samningurinn hefur þjónað þessu hlutverki sínu vel fram til þess og engin ástæða er til að ætla að svo verði ekki áfram. Mikilvægi EES-samningsins er áréttað í stefnuyfirlýsingu ríkis- stjórnar Sjálfstæðisflokksins, Við- reisnar og Bjartrar framtíðar þar sem segir, að ríkisstjórnin muni byggja samstarf við Evrópusam- bandið á samningnum um Evr- ópska efnahagssvæðið. EES-samningurinn er án efa áhrifamesti viðskiptasamningur sem Ísland hefur gert. Samningurinn tryggir ekki aðeins aðgang ís- lenskra fyrirtækja að mörkuðum í ríkjum Evrópusambandsins og gerir íslenskum rík- isborgurum kleift að leita sér atvinnu og menntunar innan alls Evrópska efnahags- svæðisins, heldur kall- ar einnig á að Ísland virði þær reglur sem teknar eru upp í EES- samninginn. Það er þessi síðarnefndi þáttur sem felur í sér stærstu áskorunina í EES-samstarfinu. Upptaka reglu- verks innri markaðarins í EES- samninginn kallar á stöðuga ár- verkni af hálfu íslenskra stjórn- valda. Hér þurfa allir að taka höndum saman til að tryggja að staðinn sé vörður um íslenska hags- muni af fullri einurð: utanríkisþjón- ustan, ráðuneytin, Alþingi, fyrir- tækin í landinu, sveitarfélögin og aðrir hagsmunaaðilar. Samkvæmt EES-samningnum hefur Ísland, líkt og öll EFTA-ríkin innan EES, rétt til þess að taka þátt í mótun reglna innri markaðarins. Það er einfaldlega skylda okkar að nýta þessi tækifæri til fulls og verja hagsmuni okkar í EES-samstarfinu eins og frekast er kostur. Ég hef því ákveðið að öflugri hagsmunagæsla í EES-samstarfinu verði eitt helsta forgangsverkefni utanríkisþjónustunnar. Í þeim efn- um er að ýmsu að huga. Í fyrsta lagi er mikilvægt að auka miðlun upplýsinga um hvað sé á döfinni þegar kemur að mótun nýrra EES- reglna. Í öðru lagi þarf að styrkja samráð stjórnvalda við Alþingi og hagsmunaaðila um það sem er efst á baugi innan EES og móta í nánu samstarfi við alla hlutaðeigandi að- ila afstöðu Íslands til nýmæla í EES-regluverkinu. Í þriðja lagi þarf að tryggja að sjónarmiðum Ís- lands sé rækilega komið á framfæri við Evrópusambandið og aðildarríki þess. EES-samningurinn hefur tryggt íslensku atvinnulífi aðgang að mik- ilvægum útflutningsmörkuðum og það er stefna ríkisstjórnarinnar að halda áfram að byggja samskiptin við Evrópusambandið á EES, eins og að framan greinir. Kostur EES- samningsins fyrir okkur Íslendinga felst ekki síst í því að samningurinn tekur til þess kjarna í samstarfi Evrópusambandsríkjanna sem lýt- ur að frjálsum viðskiptum með vörur, þjónustu og fjármagn, sem og frjálsri för fólks, en bindur ekki hendur okkar þegar kemur að öðr- um samstarfssviðum ESB. Hér er ekki aðeins rétt að nefna stefnu ESB í sjávarútvegs- og landbún- aðarmálum, heldur einnig, og ekki síður, hina sameiginlegu við- skiptastefnu ESB. Sú staðreynd að Ísland stendur utan hennar þýðir að við getum sjálf mótað okkar eig- in utanríkisviðskiptastefnu og þannig samið sjálf við önnur ríki um fríverslun og önnur viðskipta- kjör. Þegar EES-samningurinn var undirritaður stóð Evrópa á kross- götum. En sú er líka reyndin í dag, enda hefur Evrópusambandið aldr- ei áður staðið fyrir álíka áskorun og nú, þegar viðræður munu senn hefjast um útgöngu Bretlands úr Evrópusambandinu. Fyrir framtíð- arhagsmuni Evrópu - sem og ís- lenska hagsmuni - skiptir það gríð- arlega miklu að útganga Bretlands úr Evrópusambandinu leiði ekki til þess að nýir tollmúrar eða við- skiptahindranir rísi í Evrópu. En Brexit sýnir enn og aftur mikilvægi þess að Ísland geti mótað sína eigin utanríkisviðskiptastefnu. Enn er margt á huldu um hvernig Evrópu- sambandið muni þróast á næstu ár- um. Í dag býr Ísland hins vegar yf- ir þeirri ákjósanlegu stöðu að í krafti EES-samningsins eigum við áfram greiðan aðgang að innri markaði ESB en getum um leið tekið okkar eigin ákvarðanir um hvernig við viljum móta samskipti okkar við þau ríki sem standa utan þess. Eftir Guðlaug Þór Þórðarson » Þegar EES-samn- ingurinn var undir- ritaður stóð Evrópa á krossgötum. Guðlaugur Þór Þórðarson Höfundur er utanríkisráðherra. Aldarfjórðungur frá undirritun EES - hornsteinn utanríkisviðskipta Íslands

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.