Morgunblaðið - 02.05.2017, Page 19
19
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 2. MAÍ 2017
Hátíð íslenska hestsins Hestadagar voru haldnir dagana 29. apríl til 1. maí og að venju var skrautreið farin í miðbæ Reykjavíkur í fyrradag. Alþjóðlegur dagur íslenska hestsins var í gær.
Árni Sæberg
Í dag eru liðin 25 ár
frá því að samning-
urinn um Evrópska
efnahagssvæðið var
undirritaður í borginni
Óportó í Portúgal.
EES-samningurinn
hefur frá upphafi
þjónað því hlutverki
að vera brú Íslands og
hinna EFTA-ríkjanna
innan EES yfir á innri
markað Evrópusam-
bandsins. Samningurinn hefur
þjónað þessu hlutverki sínu vel
fram til þess og engin ástæða er til
að ætla að svo verði ekki áfram.
Mikilvægi EES-samningsins er
áréttað í stefnuyfirlýsingu ríkis-
stjórnar Sjálfstæðisflokksins, Við-
reisnar og Bjartrar framtíðar þar
sem segir, að ríkisstjórnin muni
byggja samstarf við Evrópusam-
bandið á samningnum um Evr-
ópska efnahagssvæðið.
EES-samningurinn er án efa
áhrifamesti viðskiptasamningur
sem Ísland hefur gert.
Samningurinn tryggir
ekki aðeins aðgang ís-
lenskra fyrirtækja að
mörkuðum í ríkjum
Evrópusambandsins
og gerir íslenskum rík-
isborgurum kleift að
leita sér atvinnu og
menntunar innan alls
Evrópska efnahags-
svæðisins, heldur kall-
ar einnig á að Ísland
virði þær reglur sem
teknar eru upp í EES-
samninginn.
Það er þessi síðarnefndi þáttur
sem felur í sér stærstu áskorunina í
EES-samstarfinu. Upptaka reglu-
verks innri markaðarins í EES-
samninginn kallar á stöðuga ár-
verkni af hálfu íslenskra stjórn-
valda. Hér þurfa allir að taka
höndum saman til að tryggja að
staðinn sé vörður um íslenska hags-
muni af fullri einurð: utanríkisþjón-
ustan, ráðuneytin, Alþingi, fyrir-
tækin í landinu, sveitarfélögin og
aðrir hagsmunaaðilar. Samkvæmt
EES-samningnum hefur Ísland,
líkt og öll EFTA-ríkin innan EES,
rétt til þess að taka þátt í mótun
reglna innri markaðarins. Það er
einfaldlega skylda okkar að nýta
þessi tækifæri til fulls og verja
hagsmuni okkar í EES-samstarfinu
eins og frekast er kostur.
Ég hef því ákveðið að öflugri
hagsmunagæsla í EES-samstarfinu
verði eitt helsta forgangsverkefni
utanríkisþjónustunnar. Í þeim efn-
um er að ýmsu að huga. Í fyrsta
lagi er mikilvægt að auka miðlun
upplýsinga um hvað sé á döfinni
þegar kemur að mótun nýrra EES-
reglna. Í öðru lagi þarf að styrkja
samráð stjórnvalda við Alþingi og
hagsmunaaðila um það sem er efst
á baugi innan EES og móta í nánu
samstarfi við alla hlutaðeigandi að-
ila afstöðu Íslands til nýmæla í
EES-regluverkinu. Í þriðja lagi
þarf að tryggja að sjónarmiðum Ís-
lands sé rækilega komið á framfæri
við Evrópusambandið og aðildarríki
þess.
EES-samningurinn hefur tryggt
íslensku atvinnulífi aðgang að mik-
ilvægum útflutningsmörkuðum og
það er stefna ríkisstjórnarinnar að
halda áfram að byggja samskiptin
við Evrópusambandið á EES, eins
og að framan greinir. Kostur EES-
samningsins fyrir okkur Íslendinga
felst ekki síst í því að samningurinn
tekur til þess kjarna í samstarfi
Evrópusambandsríkjanna sem lýt-
ur að frjálsum viðskiptum með
vörur, þjónustu og fjármagn, sem
og frjálsri för fólks, en bindur ekki
hendur okkar þegar kemur að öðr-
um samstarfssviðum ESB. Hér er
ekki aðeins rétt að nefna stefnu
ESB í sjávarútvegs- og landbún-
aðarmálum, heldur einnig, og ekki
síður, hina sameiginlegu við-
skiptastefnu ESB. Sú staðreynd að
Ísland stendur utan hennar þýðir
að við getum sjálf mótað okkar eig-
in utanríkisviðskiptastefnu og
þannig samið sjálf við önnur ríki
um fríverslun og önnur viðskipta-
kjör.
Þegar EES-samningurinn var
undirritaður stóð Evrópa á kross-
götum. En sú er líka reyndin í dag,
enda hefur Evrópusambandið aldr-
ei áður staðið fyrir álíka áskorun og
nú, þegar viðræður munu senn
hefjast um útgöngu Bretlands úr
Evrópusambandinu. Fyrir framtíð-
arhagsmuni Evrópu - sem og ís-
lenska hagsmuni - skiptir það gríð-
arlega miklu að útganga Bretlands
úr Evrópusambandinu leiði ekki til
þess að nýir tollmúrar eða við-
skiptahindranir rísi í Evrópu. En
Brexit sýnir enn og aftur mikilvægi
þess að Ísland geti mótað sína eigin
utanríkisviðskiptastefnu. Enn er
margt á huldu um hvernig Evrópu-
sambandið muni þróast á næstu ár-
um. Í dag býr Ísland hins vegar yf-
ir þeirri ákjósanlegu stöðu að í
krafti EES-samningsins eigum við
áfram greiðan aðgang að innri
markaði ESB en getum um leið
tekið okkar eigin ákvarðanir um
hvernig við viljum móta samskipti
okkar við þau ríki sem standa utan
þess.
Eftir Guðlaug Þór
Þórðarson » Þegar EES-samn-
ingurinn var undir-
ritaður stóð Evrópa á
krossgötum.
Guðlaugur Þór
Þórðarson
Höfundur er utanríkisráðherra.
Aldarfjórðungur frá undirritun
EES - hornsteinn utanríkisviðskipta Íslands