Morgunblaðið - 02.05.2017, Qupperneq 22
22 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 2. MAÍ 2017
✝ Ingibergur Að-alsteinsson
fæddist 22. október
1950 á Hrauni í
Tálknafirði. Hann
lést á gjörgæslu-
deild Landspítalans
í Fossvogi 24. apríl
2017.
Foreldrar hans
voru Aðalsteinn
Einar Einarsson, f.
5. desember 1907,
d. 1. febrúar 1984, og Ingibjörg
Þorsteinsdóttir, f. 24. október
1912, d. 26. febrúar 2009. Systk-
ini Ingibergs eru: 1) Birgir Aðal-
steinsson, f. 11. ágúst 1939.
Eiginkona hans var María Jóns-
dóttir, f. 26. ágúst 1941, d. 17.
febrúar 2012. Börn þeirra eru:
a) Ingibjörg Helga, hennar synir
með Jónasi Róbertssyni eru Ró-
bert Þór og Arnar Dofri. b) Ein-
ar Þór, hans börn með Sigríði
Evu Rafnsdóttur eru María
Katrín og Einar Rafn. c) Birgir
Karl, hans börn með Elínborgu
ur Dagmar Lilju og Aron Elvar.
b) Gunnar Örn, trúlofaður Ingi-
björgu Ósk Erlendsdóttur. Þau
eiga synina Ástráð Elí og Borg-
þór Gauta. Áður átti Ingibjörg
soninn Hafþór Nóa. 4) Stella Að-
alsteinsdóttir, f. 22. október
1958. Hennar maður er Örn
Þórisson, f. 3. janúar 1958.
Þeirra börn eru Svava og
Snorri. Ingibergur ólst upp á
Tálknafirði og gekk í Barna- og
unglingaskólann þar. Síðar fór
hann í nám á Reykjanesi við Ísa-
fjarðardjúp. Hann fór í Fram-
reiðslu- og veitingaskóla Íslands
og lærði til þjóns á Hótel Loft-
leiðum og útskrifaðist þaðan
1973. Hann fluttist til Noregs
1975, starfaði við þjónsstörf þar
um 9 ára skeið, m.a. á Grand
hóteli í Osló, Tyin-fjallahóteli og
á Strand Bar og Grill í útjaðri
Osló. Heimfluttur vann hann
m.a. á Glóðinni í Keflavík, tré-
smiðju Þorvaldar Ólafssonar,
Ásakaffi í Grundarfirði, Plast-
prenti í Reykjavík og víðar. Síð-
ustu 19 árin vann hann við
Laugardalslaug í Reykjavík.
Hann hætti þar störfum 2015
vegna veikinda.
Útförin fer fram frá Foss-
vogskirkju í dag, 2. maí 2017,
klukkan 13.
Sigríði Freysdóttur
eru Arnheiður,
Auður og Brimir.
Áður átti Elínborg
soninn Ými. 2) Þor-
steinn Aðal-
steinsson, f. 26. des-
ember 1943, í
fjarbúð með Svan-
dísi Jeremíasdótt-
ur, f. 7. apríl 1942.
Synir Þorsteins
með Dagbjörtu Sig-
ríði Höskuldsdóttur, f. 10. febr-
úar 1948, eru Aðalsteinn Eyþór,
kvæntur Helgu Finnbogadóttur.
Þeirra börn eru Böðvar og Dag-
björt. Höskuldur. 3) Guðrún Að-
alsteinsdóttir, f. 30. júní 1949.
Hennar maður er Ástráður Örn
Gunnarsson, f. 30. mars 1948.
Þeirra börn eru: a) Þórey, gift
Ragnari Halldóri Ragnarssyni.
Þeirra dætur eru Ásta Guðrún
og Íris Arna. Brynja, í sambúð
með Ögmundi Rúnari Steph-
ensen. Þau eiga Margréti Yrsu
og Ágúst Inga. Fyrir á Ögmund-
Góður vinur Ingibergur Aðal-
steinsson hefur nú kvatt þetta
jarðlíf og þó að hann hafi tekist á
við veikindi um hríð bar andlát
hans nokkuð brátt að eins og
stundum vill verða. Við Ingiberg-
ur, eða Ingi eins og hann var kall-
aður, kynntumst fyrir um 18 árum
þegar hann hóf störf við Laugar-
dalslaug. Koma hans leiddi til
góðs samstarfs milli okkar og þró-
aðist er fram liðu stundir í vináttu
sem aldrei bar skugga á. Ég náði
því að kynnast Inga ágætlega en
hann var maður heilsteyptur,
reglusamur og vildi öðrum vel. Í
vinnunni í Laugardalslaug átti
hann til að vera spaugsamur og
gat með hnyttnum tilsvörum blás-
ið talsverðu fjöri inn á vaktina. Við
sem unnum samhliða honum í
lauginni til margra ára sjáum því á
eftir vinsælum og að vissu leyti
nokkuð sérstæðum manni sem
okkur þótti vænt um. Með árunum
mynduðust nokkrar hefðir í sam-
skiptum okkar Inga. Hann var
snillingur í að baka rúgbrauð og
naut ég góðs af þeirri færni hans.
Ingi heitinn var seinni árin alltaf
tilbúinn með heimabakað brauð
fyrir mig tímanlega fyrir Þorláks-
messuskötuna og ég gat á móti
fært honum lagköku sem kom
honum vel fyrir jólin. Yfirleitt
heimsótti ég því Inga fyrir hver jól
og sá þá hversu mikill heimilis-
maður hann var og að snyrti-
mennska var honum í blóð borin.
Alltaf fór Ingi til sinna nánustu á
stórhátíðum og einnig fór hann
hvert sumar vestur á Tálknafjörð
sem var honum mikil upplyfting
ekki síst meðan móðir hans bjó
þar. Samskipti Inga við skyldfólk-
ið voru honum mikils virði veit ég.
Eftir að ég hætti að vinna sá ég
minna til Inga en fljótlega eftir
það varð hann að hverfa frá störf-
um sökum veikinda sinna. Við Ingi
heitinn héldum áfram okkar sam-
skiptum þótt við værum hætt
störfum í Laugardalslaug. Kring-
um jólin eins og áður kom fram og
eins með heimsóknum. Við töluð-
umst reglulega á í síma og eftir að
Ingi fór að takast verulega á við
sjúkdóm sinn urðu símtölin tíðari.
Hann var alltaf bjartsýnn og við-
ræðugóður en vissulega var þetta
erfið glíma.
Ég bauð Inga heim í haust er
leið og við áttum saman skemmti-
lega dagsstund. Slógum á létta
strengi og rifjuðum upp spaugileg
atvik frá vinnustað okkar gegnum
árin. Þrátt fyrir erfið veikindi var
Ingi tilbúinn með heimabakaða
brauðið sitt handa mér fyrir sl. jól.
Ég fór heim til hans af því tilefni
og renndi mig þá í grun að bar-
áttan við sjúkdóminn væri senni-
lega töpuð. Við töluðum oft saman
í síma undanfarna mánuði og mér
fannst aðdáunarvert að fylgjast
með því æðruleysi sem Ingi heit-
inn sýndi í veikindum sínum. Ég
kveð Inga með þakklæti í huga en
því fylgir líka eftirsjá þegar góðir
drengir kveðja þetta jarðlíf. Bið
hans nánustu guðsblessunar.
Dagný Elíasdóttir.
Ég kom á Hraun sumarið 1965 í
fyrsta sinn. Það var gaman að
koma inn í hópinn á Hrauni,
Gunna ári yngri en ég og Bergur
tveim árum yngri. Svo litla Stella.
Vel var tekið á móti mér af verð-
andi tengdaforeldrum og systkin-
unum. Okkur Bergi varð strax vel
til vina. Fyrsta morguninn á
Hrauni var fallegt veður. Tálkna-
fjörðurinn spegilsléttur. Ég stóð
og horfði yfir fjörðinn. Þá kom
Bergur út í rósóttum slopp og
glottir sínu einstaka glotti og
sagði bíddu þangað til eftir hádeg-
ið þá verður orðið hvasst. Þetta
fannst mér ótrúlegt, ekki þekkj-
andi innlögnina blessaða.
Ég fann strax að Bergur var
frábrugðinn öðrum strákum sem
ég þekkti. Seinna skildi ég ástæð-
una. Hann var á þessum árum í
skólanum í Reykjanesi. Ekki vissi
ég þá að honum leið oft illa í skól-
anum, en lét sig hafa það. Hann
lærði til þjóns á Hótel Loftleiðum
með ágætum árangri. Svo flutti
hann til Noregs. Réð sig á Grand
hótel á Karl Jóhann. Ég átti leið á
þessum tíma til Óslóar og heim-
sótti hann á Grand og fékk kaffi og
kökur hjá honum. Seinna vann
hann á tveimur veitingastöðum
stutt frá Fornebu-flugvellinum og
síðar á fjallahóteli sem hann lét vel
af. Fer svo aftur til Óslóar og að
vinna hjá hreingerningarfyrir-
tæki. Vann fyrir þetta fyrirtæki
með einhverjum hléum sem hann
eyddi í að ferðast um Evrópu. Ég
átti aftur leið um Ósló á þessu síð-
asta ári Bergs í Noregi. Hann
hafði verið lasinn og var á sjúkra-
húsi. Ég fann að hann var orðinn
leiður á Noregi og hvatti hann til
að koma heim. Hann hringdi svo í
bróður sinn stuttu seinna og við
aðstoðuðum hann við flutning
heim. Þegar Bergur ákvað eitt-
hvað stóð hann við það. Hann
ákvað að hætta áfengisneyslu, fór
í meðferð og snerti ekki áfengi eft-
ir það.
Ingibergur var sérstakur per-
sónuleiki og gaman að slúðra við
hann. Hann var snillingur í hönd-
unum, á tímabili saumaði hann
talsvert út og það eru til falleg
stykki eftir hann. Margir vina
hans fengu box með smákökum
frá honum fyrir jólin, enda snilld-
arbakari. Honum leið oft illa vissi
ég en reyndi að gera það besta úr
lífinu. Hann hafði alltaf dreymt
um að fljúga. Hann hringdi í mig í
einu sinni og var afar glaður. Hon-
um hafði verið boðið í flugferð og
ekki nóg með það, heldur með
flugkennara svo hann fékk að
fljúga sjálfur. Ég held að sonur
Stellu, Snorri, hafi haft frum-
kvæðið að þessu ævintýri og ég
veit ekki hvort Snorri veit alveg
hversu glaður Bergur var yfir
þessu.
Mörg síðustu árin vann hann
við sundlaugina í Laugardal og
það hentaði honum mjög vel. Ég
hef fylgst með baráttu hans við
krabbamein nú síðustu mánuði og
dáðst að því hvernig hann höndl-
aði þann slag. Steini stóð allan
þann tíma við hlið hans eins og
klettur og fór með honum í lækn-
isrannsóknir og annað sem þurfti.
Þau systkin hans reyndust honum
afar vel í veikindum hans. Ég
hringdi í Berg viku áður en hann
kvaddi og var hann þá bara hress í
tali. Systur hans fóru í utanlands-
ferðir og voru að koma heim dag-
inn sem hann dó. Hann notaði
Hraunsþrjóskuna sína og beið eft-
ir þeim til að kveðja. Ég tel mig
ríkari að hafa fengið að kynnast
Bergi og bið systkinum hans allr-
ar blessunar.
Dagbjört S. Höskuldsdóttir.
Hvar skal eiginlega byrja þeg-
ar manns eins og Bergs frænda er
minnst? Bergur, sem hefur alla tíð
verið í lífi okkar og verið okkur
innan handar? Við erum þakklát
fyrir tímann sem við höfum varið
saman. Bergur var sannarlega
ekki allra, en hann elskaði sitt fólk
innilega. Hann var ósérhlífinn,
ferlega fyndinn og mikill prakkari.
Við systkinin vorum svo heppin að
fá að verja flestöllum jólum, pásk-
um, áramótum og ótal laugar-
dagskvöldum með Bergi frænda í
faðmi fjölskyldunnar. Á tímamót-
um sem þessum hellast minning-
arnar yfir okkur og við gleðjumst
yfir öllum gullkornunum. Hvort
heldur sem það var þegar hann
grínaðist við ótal tilefni og reytti
af sér brandara, eða þegar hann
fékk sér netfang og reyndi að
senda tölvupóst á heimilisfangið
okkar! Við minnumst þess að
Bergur kunni allar kúnstarinnar
reglur um framreiðslu matar,
borðbúnaðar og matarsiði. Við
minnumst þess hversu þrjóskur
elsku Bergur okkar var. Hann
vildi alls ekki borða lakkrís, kunni
ekki að meta neitt gult og var
mörg ár að sættast við að borða
kjúkling. Bergur þurfti eitt sinn
að mæla sér mót við iðnaðarmann
sem lofaði að hringja. Ekkert ból-
aði á iðnaðarmanninum og biðin
lengdist sífellt. Bergur harðneit-
aði að hafa samband að fyrra
bragði, enda hafði maðurinn ætlað
að hringja! Þar við sat og ekki
leystist úr málinu fyrr en annar
aðili gekk í verkið rúmum 3 árum
síðar!
Síðustu árin fórum við fjöl-
skyldan að ræða meira um mark-
mið og drauma sem hvert og eitt
okkar langaði að uppfylla. Í ljós
kom að Berg dreymdi um að fara
til Viðeyjar, hann langaði að skoða
Vestmannaeyjar og Grænland.
Einn draumur stóð þó rækilega
upp úr, en Berg langaði að fljúga
flugvél. Við systkinin drifum í að
útvega honum æfingatíma á oggu-
lítilli rellu frá Reykjavíkurflug-
velli. Bergur svaf ekkert aðfara-
nótt flugsins, hann var svo ægilega
spenntur og las sér mikið til. Við
systkinin fengum að sitja í aftur-
sætinu á meðan Bergur fékk fulla
stjórn á vélinni. Við héldum að við
yrðum ekki eldri! Bergur flaug þó
eins og foringi og ljómaði allur.
Þetta er ein af fjölmörgum ynd-
islegum minningum sem við eigum
um ástkæran frænda okkar. Nú er
víst kominn tími til að kveðja í bili.
Eftir situr fullvissan um að Bergur
elskaði, og var elskaður.
Hvíl í friði, að eilífu þín,
Svava og Snorri Arnar- og
Stellubörn.
Örn Þórisson
Ingibergur
Aðalsteinsson
HINSTA KVEÐJA
Ég fel í forsjá þína,
Guð faðir, sálu mína,
því nú er komin nótt.
Um ljósið lát mig dreyma
og ljúfa engla geyma
öll börnin þín, svo blundi rótt.
(Matthías Jochumsson)
Kveðja frá systkinum,
Birgir, Þorsteinn,
Guðrún og Stella.
✝ Rafn Haralds-son var fæddur
í Reykjavík 1. júní
1948. Hann lést á
Heilbrigðisstofnun
Suðurlands aðfara-
nótt 25. apríl 2017.
Foreldrar Rafns
voru Haraldur
Ólafsson, sjómaður
frá Breiðabólstað í
Ölfusi, f. 21.3.
1904, d. 18.9. 1991,
og Hrefna Hjörleifsdóttir, starf-
aði hjá LSH frá Neðra-Hálsi í
Kjós, f. 26.4. 1912, d. 29.12.
1984. Bræður Rafns eru: 1)
Ólafur Rafn framkvæmdastjóri,
f. 1937, maki Ásgerður Hösk-
uldsdóttir, 2) Hörður þjónn, f.
1944, 3) Haraldur loft-
skeytamaður, f. 1948, maki
Ragnheiður Snorradóttir. Rafn
un og frumkvöðlafræði, f. 23.7.
1984, sambýlismaður Manello
Marakabei múrari, börn þeirra
eru Fríða Dineo og Margrét
Mamello. Rafn ólst upp á Sjafn-
argötu 10 í Reykjavík. Hann tók
gagnfræðapróf frá Gagnfræða-
skóla Austurbæjar 1965, kenn-
arapróf frá Kennaraskóla Ís-
lands 1970 og lauk
stúdentsprófi frá sama skóla
1971. Rafn kenndi við Gagn-
fræðaskóla Akureyrar 1971-
1974, Hólabrekkuskóla 1974-
1975, Hlíðaskóla 1975-1979 og
Gagnfræðaskóla Selfoss 1979-
1994. Hann hóf búskap á
Bræðrabóli í Ölfusi 1979 og
stundaði ásamt kennslu refa-
búskap fyrstu árin í Ölfusinu en
söðlaði um og hóf kjúklinga-
ræktun 1985 en lét af störfum
2014. Rafn sat um tíma í stjórn
Ísfugls
Útför Rafns fer fram frá
Fossvogskirkju í dag, 2. maí
2017, klukkan 15.
kvæntist 5. júlí
1975 Sigurbjörgu
Jónsdóttur hjúkr-
unarfræðingi, f. 3.
september 1952.
Heimili þeirra var
lengst af á Bræðra-
bóli í Ölfusi. Börn
þeirra eru: 1) Daði
knattspyrnuþjálf-
ari, f. 17.2. 1976,
maki Thelma
Hrönn Sigurdórs-
dóttir söngkona, 2) Hlín fram-
haldsskólakennari, f. 13.9. 1977,
sambýlismaður Derek Murphy
sem starfar hjá Alvotech, 3)
Rafn Haraldur íþróttafræð-
ingur, f. 18.6. 1982, sambýlis-
kona Ásgerður Kristrún Sig-
urðardóttir jarðfræðingur, börn
þeirra eru Sólveig Lóa og
óskírð, 4) Sigríður MSc í stjórn-
Það var árið 1974 sem ég
kynntist Rafni þegar Sibba syst-
ir mín kom með hann í Skeið-
arvoginn til þess að kynna fyrir
fjölskyldunni. Við sátum í stof-
unni og ég, unglingurinn,
jórtraði ákaft tyggigúmmí. Rafn
horfði á mig stífum augum, dró
upp úr vasa sínum Wrigleys-
pakka og sagði: „Ég skal gefa
þér þennan pakka ef þú treður
honum öllum upp í þig í einu.“
Og það gerði ég. Svona voru
samskiptin, hrein og bein.
Ég man þegar ég var búin að
vandræðast lengi í leit að minni
fyrstu íbúð. Þegar Rafn frétti
það dreif hann mig á fasteigna-
sölu og spurðist fyrir um bestu
íbúðina á ákveðnu verðlagi,
íbúðin skoðuð og keypt. Þetta
tók innan við klukkutíma og
hefði ég ekki getað gert betri
kaup.
Sibba og Rafn gengu í hjóna-
band 1975 og hófu búskap á
Gunnarsbrautinni. Þar eignuð-
ust þau Daða og Hlín. Rafn
hafði þá löngun að flytja í sveit
en Sibba var ekki eins áköf en
samþykkti að fara í eitt ár til
reynslu. Keyptu þau Bræðraból
í Ölfusi 1979 og hafa ekki farið
þaðan síðan. Þar eignuðust þau
Rafn Harald og Siggu. Síðan
hófst ótrúleg uppbygging á
Bræðrabóli, bæði á húsakynnum
og umhverfi. Rafn gróðursetti
þúsundir trjáa á landi sínu sem
myndað hefur góðan skjólgarð.
Allt var þetta gert af miklum
smekklegheitum. Rafn hafði
auga fyrir gömlum munum og
amboðum. Sankaði hann þeim
að sér héðan og þaðan m.a. úti í
mýri og má segja að hann hafi
bjargað gömlum verðmætum frá
eyðileggingu. Skreyta þeir nú
húsið bæði að utan og innan.
Frá upphafi hafa ég og dætur
mínar verið tíðir gestir á
Bræðrabóli þar sem alltaf hefur
verið tekið vel á móti okkur með
miklum rausnarskap. Stórfjöl-
skyldan safnaðist þar oft saman
um verslunarmannahelgar og
var þar oft mikil gleði, bæði fyr-
ir börn og fullorðna. Við Fríða
systir fórum oft austur fyrir fjall
í heimsókn þar sem farið var í
göngutúra og Rafn dekraði við
okkur systurnar þrjár, grillaði
og færði okkur drykki í heita
pottinn. Það má segja að Rafn
hafi stundum setið uppi með
ekki aðeins eina systur heldur
þrjár sbr. New York-ferðina
góðu. Börnin í fjölskyldunni,
sem nú eru orðin fullorðin,
hugsa með miklum hlýhug til
þess tíma þegar þau fengu að
koma á Bræðró og gista til
lengri eða skemmri tíma. Rafn
hafði mikla gleði af barnabörn-
um sínum sem eru orðin fjögur
og fimmta á leiðinni.
Rafn var stór, hjarthlýr og
örlátur maður en hafði einnig
gaman af að ögra. Hann var
mikill jafnaðarmaður. Í huga
mér er þakklæti fyrir að hafa
kynnst Rafni. Elsku Sibba,
Daði, Hlín, Rafn Haraldur,
Sigga, tengdabörn og barna-
börn, minning um góðan mann
lifir í huga okkar.
Jónína Margrét Jónsdóttir.
Það var mikið tilstand í
Skeiðarvogi 1 í byrjun júlí 1975.
Elsta dóttir Sigrúnar og Jóns
var að fara að gifta sig og veisl-
an haldin heima. Húsið fylltist af
gestum og öllu var tjaldað til á
þessum fallega sumardegi. Gleði
og hamingja sveif yfir vötnum í
brúðkaupi Sigurbjargar og
Rafns Haraldssonar, þessa hæg-
láta manns sem við þekktum lít-
ið en átti eftir að verða lífstíð-
arvinur. Þar spillti ekki fyrir að
hann var orðheppinn og oft
meinfyndinn.
Rafn var hár og vörpulegur
maður og hafði verið liðtækur í
körfubolta á unglingsárum. Okk-
ur er minnisstætt þegar Austin
Mini renndi í hlað í Skeiðarvog-
inum og út steig Rafn, nýbúinn
að festa kaup á bílnum sem var
eins og skókassi við hliðina á bíl-
stjóranum. Seinna söðlaði hann
yfir í stóra ameríska dreka sem
óneitanlega hæfðu honum betur.
Eftir fáein ár á Gunnars-
brautinni fluttu þau Sibba á
Bræðraból í Ölfusi og reistu þar
bú. Fyrstu árin vann Rafn við
kennslu meðfram refarækt en
sneri sér seinna alfarið að kjúk-
lingarækt og farnaðist vel. Hann
var ekki dæmigerður bóndi,
stundaði ekki hefðbundinn bú-
skap og gerði oft stólpagrín að
landbúnaðarkerfinu. Heimili
hans og Sibbu á Bræðrabóli var
frá upphafi sambland af Skeið-
arvogi 1 og góðu íslensku sveita-
heimili; frjálslegt, iðandi af lífi
og alltaf opið gestum og gang-
andi. Á árum áður sóttust börn-
in í stórfjölskyldunni eftir að
dvelja þar frjáls og óheft af for-
eldrayfirráðum í mildri umsjá
Sibbu og Rafns og góðum fé-
lagsskap barna þeirra, Daða,
Hlínar, Rafns Haraldar og Sig-
ríðar. Nú er ný kynslóð að bæt-
ast í hópinn en stórt skarð er
fyrir skildi þegar afa nýtur ekki
lengur við.
Bóndinn á Bræðrabóli hafði
sterkar skoðanir á mönnum og
málefnum og fór oft eigin leiðir
en þó var ekki hávaðanum fyrir
að fara. Röddin var djúp en allt-
af stutt í kímni og kraumandi
hlátur. Rafn var tilfinningaríkur
maður en var lítið fyrir að bera
persónuleg mál sín á torg. Um-
hyggja hans fyrir fjölskyldu
sinni duldist engum. Við kveðj-
um kæran mág og svila og
þökkum honum samfylgdina.
Guðmundur og Sæunn.
Rafn Haraldsson
Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir
og afi,
MATTHÍAS EGGERTSSON,
fyrrv. ritstjóri Búnaðarblaðsins Freys,
Hagamel 37,
lést á dvalar- og hjúkrunarheimilinu Grund
mánudaginn 24. apríl. Útförin fer fram frá Neskirkju við
Hagatorg miðvikudaginn 3. maí klukkan 15.
Margrét Guðmundsdóttir
Sigríður Matthíasdóttir Jón Pálsson
Jóhann Eggert Matthíasson Þórhildur Halla Jónsdóttir
Pétur Ólafur Matthíasson Anna Eleonora Hansson
og barnabörn