Morgunblaðið - 02.05.2017, Side 10
10 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 2. MAÍ 2017
Vísbending
um áhrif
bráðnunar
FRÉTTASKÝRING
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
Ör bráðnun ísaldarjökulsins yfir Ís-
landi fyrir um 20.000 árum kann að
gefa vísbendingar um hvers má
vænta varðandi breytingar á lofts-
lagi og yfirborði sjávar á okkar dög-
um. Þetta kemur fram í nýlegri frétt
frá Alpha Galileo-fréttaveitunni.
Sambærilegt við bráðnun nú
Vísindamenn við háskólana í
Stirling í Skotlandi, Aberystwyth í
Wales og Tromsø í Noregi hafa
rannsakað hvernig ísaldarjökullinn
yfir Íslandi breiddi sig langt út á
landgrunnið og bráðnaði svo á til-
tölulega skömmum tíma. Niður-
stöður sýna að örustu breytingarnar
urðu þegar hitastig á norðurhveli
jarðar hækkaði um 3°C á aðeins 500
árum. Bráðnunin á íslenska ísaldar-
jöklinum er talin hafa verið ámóta ör
og nú sést á jöklum á Suðurskauts-
landinu vestanverðu og í Grænlandi.
Það er talið vera til marks um hvern-
ig loftslagsbreytingar geta haft áhrif
á jökla heimsins og valdið hækkun
sjávarborðs.
Jökulgarðar á hafsbotni
Vísindamennirnir reyndu að
gera sér grein fyrir því sem gerðist
þegar íshellan yfir Íslandi bráðnaði.
Dr. Tom Bradwell, við náttúruvís-
indadeild Stirling-háskóla, sagði að
loftslagsbreyting hafi orðið fyrir um
22.000 árum, það er á síðustu ísöld.
Þá hófst hlýnunarskeið með síhækk-
andi lofthita sem olli bráðnun risa-
stórra jökla sem huldu hluta Norð-
ur-Ameríku og Evrasíu. Stuðst var
m.a. við gögn um jökulgarða á sjáv-
arbotni til að gera sér grein fyrir
umfangi ísaldarjökulsins yfir Ís-
landi. Þessar upplýsingar voru sett-
ar inn í jöklalíkan. Einnig var líkanið
matað á gögnum úr borkjörnum úr
Grænlandsjökli til að líkja eftir
hegðun jökulsins síðustu 35.000 árin.
Af þeim má m.a. sjá hvenær bráðn-
unin var örust.
„Við komumst að því að íslenski
jökullinn hopaði mjög hratt á vissum
tímabilum - meira en tvöfalt hraðar
en bráðnun miklu stærri jökulbreiðu
er á Vestur-Suðurskautslandinu - og
það olli umtalsverðri hækkun sjáv-
arborðs,“ sagði Bradwell.
Nánar er greint frá tilrauninni
með líkanið nákvæma í Earth-
Science Reviews. Það sýnir hvernig
íshellan yfir Íslandi minnkaði mikið
fyrir 21.000 til 18.000 árum, aðallega
við það að það brotnaði af jöklinum í
sjó. Segja má að jökullinn hafi svo
hrunið fyrir um 14.000 árum vegna
örrar hlýnunar loftslagsins.
5,5 sinnum stærri en Ísland
Ísaldarjökullinn yfir Íslandi
varð stærstur um 562.000 ferkíló-
metrar eða nærri 5,5 sinnum stærri
en flatarmál landsins er (103.000 fer-
kílómetrar). Jökulskjöldurinn var
stærstur ámóta stór og Frakkland.
Eftir að bráðnunin hófst virðist hún
hafa verið á öllu yfirborði jökul-
skjaldarins og minnkaði stærð jök-
ulsins um nærri tvo þriðju á aðeins
750 árum. Þessi mikla bráðnun olli
46 sentimetra hækkun yfirborðs
sjávar á heimsvísu. Hraði bráðn-
unarinnar var sambærilegur við það
sem nú er í Grænlandi. Talið er að
ísaldarjökullinn yfir Íslandi hafi
myndast á um 10.000 árum og er
hraði bráðnunar hans mjög athygl-
isverður í ljósi myndunartímans.
Vitnað er í dr. Henry Patton við
Háskólann í Tromsø sem segir að
gögn úr gervihnöttum sýni að ísinn á
pólum jarðar geti brugðist mjög
hratt við breytingum á loftslagi og í
hafinu. Upplýsingar úr jarðsögunni
um bráðnun jökla fyrir þúsundum
ára auðveldi mönnum að segja fyrir
um hvernig jöklar nútímans muni
líklega bregðast við í framtíðinni og
áhrifum þess á sjávarstöðu.
Alun Hubbard, prófessor við
Háskólann í Tromsø og Aberyst-
wyth-háskóla sagði að bráðnun
Grænlandsjökuls valdi nú um 1,2
mm hækkun sjávarborðs á heims-
vísu líkt og bráðnun Íslandsjökuls-
ins gerði fyrir um 20.000 árum. Þótt
þetta hljómi ekki sem mikið þá sé
ástæða til að hafa áhyggjur af þess-
ari þróun, sérstaklega fyrir íbúa á
strandsvæðum jarðar sem liggja
lágt yfir sjó. Stór hluti mannkyns
búi einmitt við þær aðstæður.
Ísjaðar
Jökulgarður
Hubbard (2006)
Ísaldarjökullinn Efst til vinstri er litakvarði sem sýnir hraða framskriðs ísaldarjökulsins í metrum á ári. Mæliein-
ingin „ka BP“ merkir þúsund ár „Before Present“. Miðað er við upphaf ársins 1950 sem valið var sem staðalár. 22.9
ka BP merkir því 22.900 árum fyrir árið 1950. Bláa línan sýnir mörk jökulsins sem Hubbard og félagar drógu 2006.
Ísaldarjökullinn sem huldi Ísland
hvarf á undraskömmum tíma
Morgunblaðið/RAX
Jökulsárlón Þegar hlýnaði á ísöld fór að brotna úr jökuljaðrinum sem lá í
sjó fram líkt og við verðum vitni að í minni mæli í Breiðamerkurjökli.
STRÍÐ
gegnmosa
Mosaeyðing í grasflöt
1. Notum mosaeyði eða
tætum, rökum eða klórum
mosann í grasflötinni.
2. Berum grasáburð á
grasflötina.
3. Berum kalkáburð á grasflötina.
4. Sáum grasfræi í sárin.
5. Gott að blanda grasfræi saman
við úrvals gróðurmold áður en sáð er.
6. Munum að vökva vel. Græn og
falleg grasflöt eftir 2 - 3 vikur.
4.990kr
Mosaeyðir 5 kg
Birta lífeyrissjóður hefur gert sátt
við Fjármálaeftirlitið vegna brots
sjóðsins gegn 40. grein laga um
fjármálafyrirtæki. Með samkomu-
laginu viðurkennir sjóðurinn að
hafa ekki tilkynnt FME um virkan
eignarhlut í fjármálafyrirtæki inn-
an þeirra tímamarka sem fram
koma í fyrrnefndu ákvæði.
Málsatvik voru þau að við sam-
runa Sameinaða lífeyrissjóðsins og
Stafa 1. desember 2016 eignaðist
Birta 14,58% eignarhlut í Virðingu
hf. sem hefur starfsleyfi sem verð-
bréfafyrirtæki. Fjármálaeftirlitinu
var hins vegar ekki tilkynnt um
eignarhlutinn fyrr en 30. desember
síðastliðinn. Virkur eignarhluti er
skilgreindur sem bein eða óbein
hlutdeild í félagi sem nemur 10%
eða meira af hlutafé, stofnfé eða at-
kvæðisrétti eða gerir viðkomandi
kleift að hafa veruleg áhrif á stjórn-
un viðkomandi félags.
Birta greiðir sekt að upphæð 1
milljón króna vegna brotsins.
Birta gerir sátt við Fjármálaeftirlitið
Fjölskylduhátíð
VR, upphitun
fyrir kröfugöngu
verkalýðsfélag-
anna, sem vera
átti á Klambra-
túni í gær, á bar-
áttudegi verka-
lýðsins, var
frestað vegna
veðurs.
Ákveðið hefur
verið að halda hátíðina nk. laug-
ardag kl. 11. Félagsmönnum og
gestum er boðið upp á eins og hálfs
kílómetra, létta og skemmtilega
göngu eða hlaup í kringum
Klambratún. Sóli Hólm verður
kynnir en meðal þeirra sem koma
fram er Emmsjé Gauti. Að loknu
hlaupinu verða grillaðar pylsur.
Fjölskylduhátíð VR
verður á laugardag
Klambratún Börn-
in skemmta sér.