Morgunblaðið - 02.05.2017, Qupperneq 30
30 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 2. MAÍ 2017
Vistvænna prentumhverfi
og hagkvæmni í rekstri
Með Prent+ fæst yfirsýn, aðhald í rekstri
og fyrsta flokks þjónusta.
www.kjaran.is | sími 510 5520
IB ehf | Fossnes A | 800 Selfoss | ib.is
Nánari upplýsingar ib.is
Ábyrgð og þjónusta fylgir öllum nýjum bílum frá IB
Bílar á lager
og á leiðinni
Sími 4 80 80 80
2017 Chevrolet
Silverado High Country
Summit White/brúnn að innan.
Nýja 6.6L Duramax Diesel vélin,
445 HÖ, vel útbúinn bíll t.d.
upphitað stýri, BOSE hátalara-
kerfi, upphituð og loftkæld sæti
og heithúðaður pallur.
VERÐ
10.430.000
2016 Suburban LTZ
Keyrður 3000 km.
7 manna bíll, fjórir kapteinsstólar,
Blu Ray spilari með tvo skjái,
sóllúga og fl. 5,3L V8, 355 Hö.
VERÐ
14.890.000
2017 Ram Limited 3500
6,7L Cummins. Vel útbúnir bílar
með loftpúðafjöðrun, Aisin sjálf-
skipting, Ram-box, upphitanleg
og loftkæld sæti, sóllúga, hita í
stýri og fl. Einnig til hvítu, silfur
og dökk blár.
VERÐ
10.590.000
2017 GMC Denali
Glæsilegur bíll.
Nýja 6.6L Duramax Diesel
vélin, 445 HÖ. Með sóllúgu,
heithúðaðan pall, hita í stýri og fl.
VERÐ
10.490.000
Einnig til í Bright White, og Bright Silver
Þorsteinn Friðrik Halldórsson
tfh@mbl.is
Hjá Bókaútgáfunni Sæmundi er
flautuverkið albúm eftir Elínu
Gunnlaugsdóttur tónskáld komið út
á geisladiski í flutningi
Pamelu De Sensi
flautuleikara. Elín hef-
ur sent frá sér fjölda
tónverka á undan-
förnum árum og verk
eftir hana komið út á
hljómdiskum og í bók-
um.
„Verkið nefnist albúm
vegna þess að þetta er dálítið eins
og fjölskyldualbúm. Í stað þess að
skoða myndir af fólki eru upphafs-
stafir allra notaðir sem tónefni í
verkinu,“ segir Elín. „Það fjallar
ekki bara um fjölskylduna mína,
þetta gæti verið fjölskyldualbúm
hvers sem er.“
Sækir tónefni í bókstafi
Verkið er fyrir altflautu og er tón-
efni verksins unnið út frá fanga-
mörkum allra í fjölskyldu Elínar.
„Verkið skrifa ég þannig að tónefnið
er byggt á upphafsstöfum allra í
fjölskyldunni. Það er grunn-
hugmyndin og síðan þróar maður
hugmyndina áfram, þetta er út-
gangspunktur, eitthvað sem hálpar
mér að byrja að semja. Ég bý til
stef út frá þessum upphafsstöfum
og síðan nýti ég mér líka morse-
kóða, þessa gömlu samskiptatækni,
þannig að allir bókstafirnir fá sinn
morse-hryn,“ segir Elín og
bætir við að undanfarin ár
hafi hún í miklum mæli
notast við bókstafi til að
skapa tónlist.
„Það hafa mörg önnur
tónskáld notað þessa að-
ferð í tónsmíðum sínum
en hugmyndin að verkinu
kom eiginlega af sjálfu
sér. Síðustu fjögur eða fimm ár hef
ég verið að vinna með bókstafi sem
ég umtúlka yfir í nótur og þróa síð-
an í ýmsar áttir. Einn daginn fór ég
svo að hugsa um fjölskylduna, að
það væru allir í fjölskyldunni með
fangamark sem vísaði í eitthvert
nótnaheiti.“
Taktur ofan á takt
Í verkinu notar Elín lykkjur með
þeim hætti að flautuleikarinn hleður
taktbútum ofan á taktbúta og út-
koman verður að lokum eins og fjór-
ar flautur séu að spila saman. Elín
segir að verkið, sem er tíu mínútur
að lengd, sé þrískipt. „Verkið er í
þremur hlutum. Það er hægur inn-
gangur, þá er verkið meira íhugult
og fljótandi, síðan kemur taktfastur
kafli og verkið endar á svipuðum
nótum og það byrjaði.“
Gott samstarf gefur af sér
Disknum fylgir ritlingur sem er
af sömu stærð og tíðkast á um-
slögum 45 snúninga hljómplatna og
má í honum finna myndlýsingu
þeirra Önnu Giudice og Alex Raso
af verkinu. Um upptökur og eftir-
vinnslu sá Þorkell Máni Þorkelsson
en verkið var samið að beiðni flautu-
leikarans Pamelu De Sensi og frum-
flutt vorið 2015 á tónleikum Tón-
leikasyrpunnar 15:15. Pamela og
Elín hafa átt í löngu og frjósömu
samstarfi.
„Við höfum unnið saman reglu-
lega í um tíu ár. Það skiptir máli, ég
held að verkið hefði orðið öðruvísi ef
ég hefði ekki getað unnið svona vel
með flytjandanum,“ segir Elín sem
er byrjuð að vinna að næsta tón-
verki.
„Ég er að byrja að skrifa verk
fyrir Sinfóníuhljómsveit Íslands fyr-
ir næsta vor. Þetta er barnaverk
fyrir Tónsprotann og fjallar um litla
stúlku og dreka.“
Hægt er að nálgast albúm í bóka-
og plötuverslunum eða einfaldlega
hjá Elínu sjálfri.
Morgunblaðið/Eggert
Útgangspunktur „Verkið skrifa ég þannig að tónefnið er byggt á upphafsstöfum allra í fjölskyldunni. Það er
grunnhugmyndin og síðan þróar maður hugmyndina áfram, þetta er útgangspunktur,“ segir Elín.
„Gæti verið fjölskyldu-
albúm hvers sem er“
Verk eftir Elínu Gunnlaugsdóttur tónskáld á nýjum diski
Tónlistarhátíðin Iceland Airwaves
tekur þátt í nýju og metnaðarfullu
Evrópusamstarfi þar sem stuðlað
er að þátttöku kvenna í tónlist og
tónlistariðnaði, að því er fram kem-
ur í tilkynningu frá stjórnendum
hátíðarinnar. Þar segir að verkefn-
inu, sem nefnist Keychange, sé
stjórnað af PRS Foundation of
Music í Bretlandi, stofnun sem hafi
undanfarin ár rekið sjóðinn Women
Make Music með frábærum ár-
angri. Sá sjóður hafi skapað mörg-
um listamönnum tækifæri á alþjóð-
legum vettvangi. PRS Foundation
hafi nú fengið til liðs við sig nokkr-
ar af stærstu tónlistarhátíðum Evr-
ópu og Kanada og markmið verk-
efnisins sé að stuðla að frekari
þátttöku kvenna í tónlist og tónlist-
ariðnaði. Þetta verði gert með því
að efla tengslanet og auka sam-
vinnu á milli landa með ýmiss konar
samstarfsverkefnum. Í tilkynning-
unni segir einnig að hlutdeild
kvenna á Iceland Airwaves hafi
vakið athygli langt út fyrir land-
steinana og til að mynda hafi konur
verið 24 af 36 aðalnúmerum hátíð-
arinnar árið 2016.
Airwaves tekur þátt í Keychange