Morgunblaðið - 02.05.2017, Page 31
MENNING 31
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 2. MAÍ 2017
Sýningum á söngleiknum Mamma
mia!, sem frumsýndur var í mars
2016, lýkur um miðjan næsta mán-
uð. Alls verða sýndar 188 sýningar
á verkinu í heildina, en lokasýn-
ingin er dagsett 15. júní.
Fyrir helgi var samkvæmt upp-
lýsingum frá Jóni Þorgeiri Krist-
jánssyni, markaðsstjóra í Borgar-
leikhúsinu, búið að selja um 94
þúsund miða og ljóst að ef allir mið-
ar sem eftir eru seljast upp þá verð-
ur gestafjöldi á sýninguna rúmlega
102 þúsund gestir.
Þegar sýningum lýkur verða
leikarar uppfærslunnar búnir að
standa á sviðinu í hlutverkum sín-
um í samtals 21,5 sólarhringa.
Í janúar sl. sló Mamma mia! að-
sóknarmet í íslenskri leiklistar-
sögu, en fyrra met átti Hellisbúinn
sem 81 þúsund leikhúsgestir sáu á
sínum tíma.
Ljósmynd/Grímur Bjarnason
Þrekraun Í júní hafa leikarar uppfærsl-
unnar staðið á sviðinu í 21,5 sólarhringa.
Sýningum á Mamma mia! lýkur í júní
Sinfóníuhljómsveit Íslands hélt 19.
apríl síðastliðinn tónleika fyrir fullu
húsi í hinu kunna tónleikahúsi Gauta-
borgar og hefur flutningurinn fengið
lofsamlega dóma í fjölmiðlum ytra.
Aðalstjórnandi hljómsveitarinnar,
Yan Pascal Tortelier, hélt um tón-
sprotann og einleikari á tónleikunum
var Víkingur Heiðar Ólafsson. Á efn-
isskrá voru verk eftir Önnu Þor-
valdsdóttur, Richard Strauss og
Jean Sibelius.
Gagnrýnendur Dagens Nyheter
og breska tónlistarvefjarins Bach-
track gáfu tónleikunum fjórar stjörn-
ur. Rýnir Bachtrack skrifar að tón-
leikaferð SÍ til Gautaborgar hafi
verið „sannkölluð sigurför og sýnir
að hljómur sveitarinnar verðskuldar
að heyrast oftar erlendis“.
Í Gautaborgarpóstinum skrifar
Magnus Haglund að það sýni hug-
rekki að koma með 2. sinfóníu Sibeli-
usar til Gautaborgar, þar sem sinfón-
íuhljómsveit borgarinnar hafi flutt
verkið margoft víða um heim. Flutn-
ingur SÍ þótti honum gæddur ljósari
litum en hann átti að venjast, bað-
aður nærri því impressjónísku ljósi.
„Hér voru hafsvindar og breiður
sjóndeildarhringur í stað hinna
djúpu skóga norrænnar melankólíu.“
Haglund hrósar einnig verki Önnu
Þorvaldsdóttur og segir flutning
hljómsveitarinnar einkennast af
næmi og fágun.
Gagnrýnandi Dagens Nyheter,
Martin Nyström, heillaðist einnig af
verki Önnu, Aeriality, sem hann seg-
ir að hefjist með þéttum og hráum
hljóðmassa en sæki í sig veðrið og nái
slíku flugi að það nálgist ljóshraða.
„Glæsilegt!“ segir Nyström um verk-
ið. Þar hafi bæst við að hin „nýja pí-
anóstjarna“ Íslands, Víkingur Heið-
ar Ólafsson, hafi í Burlesku eftir
Richard Strauss boðið upp á flug-
eldasýningu á píanóið sem hæfði tón-
listarmanni frá eldfjallaeyjunni í
norðri.
Morgunblaðið/Einar Falur
Hrósað Gagnrýnandi Dagens Nyhe-
ter segir Víking Heiðar Ólafsson
hafa boðið upp á flugeldasýningu.
Lofsamleg skrif um
tónleika SÍ í Gautaborg
Neonbiblían er uppvaxtar-saga frá SuðurríkjumBandaríkjanna og ger-ist um miðbik tutt-
ugustu aldar. Söguhetjan, David,
er jafnframt sögumaður og lesand-
inn fylgist með hvernig hann upp-
götvar og upplifir heiminn með
hans augum. Hann elst upp vinafár
við kröpp kjör og hans helsta stoð
er litrík frænka
hans, sem kem-
ur að dveljast
hjá fjölskyldu
hans þegar
fremur rislítill
ferill hennar í
skemmtibrans-
anum virðist
kominn á enda-
stöð.
Íbúar þorps-
ins, sem hann býr í, eru forpokaðir
og þröngsýnir með ákaflega tak-
markað umburðarlyndi gagnvart
frávikum. Eitt dæmið um það er
frænkan, sem vegna klæðaburðar
síns og framkomu lendir á milli
tannanna á bæjarbúum.
Sagan gerist á fjórða og fimmta
áratug liðinnar aldar. Heimsstyrj-
öldin kallar yfir breytingar. Karl-
arnir hverfa í stríðið og konurnar
þurfa að fara að vinna, meðal ann-
ars í hergagnaframleiðslu. Hin ráð-
andi öfl í bænum þrjóskast hins
vegar við með prestinn í broddi
fylkingar. Hermenn, sem sneru
aftur í dalinn með konur frá Evr-
ópu, eru ekki virtir viðlits og
hrökkva í burtu. Í safnaðarheimili
kirkjunnar er stofnað „félag til
verndar kynstofninum í dalnum,
svo að ættirnar héldust hreinar og
kristnar og óspilltar af heiðnu blóði
sem gæti tortímt þeim og kallað
bölvun yfir dalinn“. Svo bætir
sögumaður við: „Það gengu býsna
margir í þetta félag, þó ekki allir
bæjarbúar.“ David skynjar að hinir
kristnu eru ekki alltaf kristilegir
og hefur samúð með hinum úthróp-
uðu.
Neonbiblían er eftir John Ken-
nedy Toole. Toole skrifaði einnig
Aulabandalagið, sem kom út eftir
hans dag og hlaut Pulitzer-
verðlaunin. Aulabandalagið hlaut
hins vegar litla náð fyrir augum út-
gefandi meðan hann lifði. Hann
sendi þær til margra útgefanda og
fékk höfnun. Einn þeirra kvaðst
tilbúinn að gefa bókina út, en
krafðist mikilla breytinga á henni.
Toole fæddist í Louisiana 1937.
Hann lærði ensku við Columbia-
háskóla og var vinsæll háskóla-
kennari. Miklum sögum fer af orð-
heppni Tooles og beittri tungu
hans. Hann gat reytt af sér brand-
ara og dritað eiturörvum í allar átt-
ir. Virtist örvamælirinn ótæmandi
og er hermt að aldrei hafi hann
endurtekið sig. Toole svipti sig lífi
árið 1969, 31 árs að aldri.
Móðir hans var sannfærð um
ágæti sonar síns og var staðráðin í
að sjá til þess að Aulabandalagið
kæmi út. Það tókst loks með mikl-
um eftirgangsmunum árið 1980 og
ári síðar hlaut bókin Pulitzer-
verðlaunin. Neonbiblían kom út
tæpum áratug síðar, 1989, og kem-
ur nú út á íslensku í afbragðsþýð-
ingu Ugga Jónssonar, sem skrifar
fróðlegan eftirmála um höfundinn.
Toole skrifaði Neonbiblíuna þegar
hann var sextán ára og mun hafa
afgreitt hana sem bernskubrek.
Aulabandalagið fjallar um Igna-
tius C. Reilly, vel lesinn og húðlat-
an furðufugl og erkisóða, sem er
sannfærður um að aular heimsins
hafi snúið bökum saman gegn sér.
Bókin er uppfull af beiskju, galli og
kaldhæðni, meinfyndin á köflum og
skemmtileg þrátt fyrir sundurleysi.
Neonbiblían er af allt öðrum
toga. David er ekki kaldhæðinn
rugludallur eins og Reilly, hann er
saklaus og einlægur. Hann er að
uppgötva heiminn og átta sig á
mótsögnum hans. Fyrsta orðið,
sem kemur í hugann, er ljúfsár, ef
leyfilegt er að nota svo útjaskað
lýsingarorð.
Það er í raun með ólíkindum að
16 ára gamall unglingur hafi skrif-
að þessa bók. Það er ekki úr lausu
lofti gripið að kalla höfundinn
undrabarn eins og gert er aftan á
bókarkápu.
Stíllinn er agaður og litríkur og
lýsingar á umhverfi og persónum
sterkar. Toole tekst að halda sjón-
arhóli barnsins og unglingsins, sem
segir frá því, sem fyrir augu ber án
þess að skilja til fulls, en þannig að
lesandinn getur getið sér til um
það sem undir býr. Eina stílbrotið
er endir bókarinnar, sem er full
svakalegur og stingur í stúf við það
sem á undan er gengið.
Undrabarn John Kennedy Toole.
Uppvaxtarsaga
eftir undrabarn
Skáldsaga
Neonbiblían bbbbn
Eftir John Kennedy Toole.
Uggi Jónsson þýddi.
Bókaútgáfan Sæmundur, 2017. 248 bls.
KARL BLÖNDAL
BÆKUR
Ert þú á leið í leikhús? Pantaðu ljúffengar veitingar til
að njóta fyrir sýningu eða í hléi á borgarleikhus.is
Elly (Nýja sviðið)
Mið 3/5 kl. 20:00 aukas. Sun 14/5 kl. 20:00 aukas. Þri 6/6 kl. 20:00 aukas.
Fim 4/5 kl. 20:00 aukas. Mið 17/5 kl. 20:00 aukas. Mið 7/6 kl. 20:00 48. sýn
Fös 5/5 kl. 20:00 aukas. Fim 18/5 kl. 20:00 30. sýn Fim 8/6 kl. 20:00 49. sýn
Lau 6/5 kl. 20:00 19. sýn Fös 19/5 kl. 20:00 31. sýn Fös 9/6 kl. 20:00 50. sýn
Sun 7/5 kl. 20:00 20. sýn Lau 20/5 kl. 20:00 32. sýn Lau 10/6 kl. 20:00 51. sýn
Mið 10/5 kl. 20:00 21. sýn Sun 21/5 kl. 20:00 33. sýn Sun 11/6 kl. 20:00 52. sýn
Fim 11/5 kl. 20:00 22. sýn Fim 1/6 kl. 20:00 43. sýn Mið 14/6 kl. 20:00 53. sýn
Fös 12/5 kl. 20:00 23. sýn Fös 2/6 kl. 20:00 44. sýn Fim 15/6 kl. 20:00 54. sýn
Lau 13/5 kl. 13:00 aukas. Lau 3/6 kl. 20:00 45. sýn
Opnar kl. 18:30, frjálst sætaval. Panta verður veitingar með dags fyrirvara.
Úti að aka (Stóra svið)
Fim 4/5 kl. 20:00 27. sýn Sun 7/5 kl. 20:00 29. sýn Fim 18/5 kl. 20:00 31. sýn
Fös 5/5 kl. 20:00 28. sýn Fim 11/5 kl. 20:00 30. sýn Lau 20/5 kl. 20:00 32. sýn.
Sprenghlægilegur farsi! Síðustu sýningar leikársins komnar í sölu.
MAMMA MIA! (Stóra sviðið)
Lau 6/5 kl. 20:00 166 s. Fim 25/5 kl. 20:00 174 s. Mið 7/6 kl. 20:00 182 s.
Fös 12/5 kl. 20:00 167 s. Fös 26/5 kl. 20:00 175 s. Fim 8/6 kl. 20:00 183 s.
Lau 13/5 kl. 13:00 168 s. Lau 27/5 kl. 20:00 176 s. Fös 9/6 kl. 20:00 184 s.
Sun 14/5 kl. 20:00 169 s. Sun 28/5 kl. 20:00 177 s. Lau 10/6 kl. 20:00 185 s.
Fös 19/5 kl. 20:00 170 s. Mið 31/5 kl. 20:00 178 s. Sun 11/6 kl. 20:00 186 s.
Lau 20/5 kl. 13:00 171 s. Fim 1/6 kl. 20:00 179 s. Mið 14/6 kl. 20:00 187 s.
Sun 21/5 kl. 20:00 172 s. Fös 2/6 kl. 20:00 180 s. Fim 15/6 kl. 20:00 188 s.
Mið 24/5 kl. 20:00 173 s. Lau 3/6 kl. 20:00 181 s.
Allra síðustu sýningar komnar í sölu!
Blái hnötturinn (Stóra sviðið)
Sun 7/5 kl. 13:00 aukas. Sun 14/5 kl. 13:00 aukas. Sun 21/5 kl. 13:00 aukas.
Fjölskyldusöngleikur byggður á verðlaunasögu Andra Snæs Magnasonar
Elly - haustið 2017 (Stóra sviðið)
Fim 31/8 kl. 20:00 1. sýn Lau 2/9 kl. 20:00 3. sýn Fös 8/9 kl. 20:00 5. sýn
Fös 1/9 kl. 20:00 2. sýn Fim 7/9 kl. 20:00 4. sýn Sun 10/9 kl. 20:00 6. sýn
Sýningar í haust komnar í sölu.
www.solning.is