Morgunblaðið - 02.05.2017, Qupperneq 11
FRÉTTIR 11Innlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 2. MAÍ 2017
3 litir
Teygja í mittið
Bæjarlind 6, sími 554 7030
Við erum á facebook
Gallabuxur
Verð kr. 12.900
Hringbraut-Fjölmiðlar ehf. | Eiðistorgi 17 | 170 Seltjarnarnesi | www.hringbraut.is | Sími +354 561 3100
Missið ekki af áhugaverðum þætti um starfsemi
Lambhaga og viðtali við Hafberg Þórisson,
eiganda og stofnanda fyrirtækisins.
Hringbraut næst á rásum
7 (Síminn) og 25 (Vodafone)
ATVINNULÍFIÐ ÁdagskráHringbrautar
í kvöld kl. 20.00
Heimsókn til
gróðrarstöðvarinnar Lambhaga
í þættinum Atvinnulífið sem er á dagskrá Hringbrautar kl. 20.00 í kvöld
• Stærsta gróðrarstöð á Íslandi, stofnuð
1979 með starfsemi í 15.000 m2 húsnæði
• Frumkvöðull í framleiðslu á salati,
spínatkáli og kryddjurtum
• Hveitigrassafi, Lollo Rosso,
Lambhagasalat, Vatnakarsi o.fl. tegundir
• Mikil sjálfvirkni og stöðug vöruþróun
Björn Björnsson
bgbb@simnet.is
Fjöldi fólks tók þátt í setningar-
athöfn Sæluviku Skagfirðinga sem
fram fór í Safnahúsinu á Sauðárkróki
sl. sunnudag. Meðal atriða var vígsla
„Hannesarskjóls“ uppi á Nöfum.
Sæluvika er gömul hátíð, með
djúpar rætur í samfélaginu og sína
föstu punkta, en hefur eigi að síður
þróast og breyst í gegnum tíðina.
„Sérstaka athygli vekur hvað unga
fólkið kemur sterkt inn að þessu
sinni, og frábært að sjá að hér hefur
skapast vettvangur fyrir alla aldurs-
hópa til fjölbreyttrar sköpunar á öll-
um sviðum lista og menningar,“
sagði Gunnsteinn Björnsson, for-
maður atvinnu-, menningar- og
kynningarnefndar, í ræðu við setn-
ingu hátíðarinnar. Hann minnti á að
einn af hápunktum Sæluvikunnar
yrði afmælishátíð Sögufélags Skag-
firðinga og Héraðsskjalasafns Skag-
firðinga, en Sögufélagið fagnar 80
ára afmæli en Héraðsskjalasafnið 70
ára. Afmælinu er fagnað með mál-
þingi, sem haldið verður í menning-
arhúsinu Miðgarði 7. maí undir yfir-
skriftinni „Skagfirsk fræði í fortíð og
nútíð“.
Fræðimaður heiðraður
Ásta Pálmadóttir sveitarstjóri til-
kynnti um veitingu Samfélagsviður-
kenningar sveitarfélagsins, sem nú
er veitt í annað sinn. Að þessu sinni
hlaut viðurkenninguna Kristmundur
Bjarnason, fræðimaður frá Sjávar-
borg, sem nú dvelur á Dvalarheimili
aldraðra. Rakti Ásta mikil og frábær
rit- og fræðistörf Kristmundar í
þágu skagfirskra fræða, en hann var
fyrsti forstöðumaður Héraðs-
skjalasafnsins, auk þess sem eftir
hann liggja fjölmörg verk um skag-
firska sögu og menningu.
Kynnt voru úrslit í árlegri vísna-
keppni Safnahússins. Var bæði um
að ræða að botna fyrriparta, en einn-
ig að senda inn vísur um tiltekið efni.
Fjöldi frábærra vísna bárust, en
að mati dómnefndar báru tveir höf-
undar af, báðir burtfluttir Skagfirð-
ingar, þeir Ingólfur Ómar Ármanns-
son og Magnús Geir Guðmundsson,
sem af alkunnri snilli léku sér að hinu
bundna máli.
Ungur maður, Pálmi Jónsson,
sigurvegari í Stóru skagfirsku upp-
lestrarkeppninni, las ljóð Hannesar
Péturssonar: „Bláir eru dalir þínir“.
Sólborg Una Pálsdóttir skjalavörður
sagði frá sýningu í Safnahúsinu á
völdum verkum Jóhannesar Geirs
Jónssonar listmálara og ljóðum og
tilvitnunum úr verkum Hannesar
Péturssonar sem hún sagði að sam-
eiginlega vísuðu til einstakrar ástar
og væntumþykju frábærra lista-
manna til heimahéraðsins.
Kær sjónarhóll
Að lokinni athöfn í Safnahúsinu
var haldið „upp á Nafir“ þar sem
formlega var vígt „Hannesarskjól“,
en um er að ræða listilega hlaðinn
hálfhring úr torfi og grjóti, og vísar
þetta til upphafsorða í bók Hannesar
„Jarðlag í tímanum“, en einmitt á
Nöfunum var sá sjónarhóll sem
skáldinu var alla tíð kærastur, þaðan
sem sá um héraðið nánast allt og
raunar frá hafsbrún og fram til jökla.
Sigurður Svavarsson, systursonur
Hannesar, átti hugmyndina að þessu
verki og hannaði það. Afhjúpaður
var skjöldur inni í skjólinu með til-
vitnun í verk Hannesar og las Sig-
urður þakkar- og ávarpsorð frá
skáldinu sem ekki sá sér fært að vera
viðstatt.
Ljóst er að Skagfirðingar og gestir
sem sækja vilja þá heim geta haft
nóg fyrir stafni þessa vikuna, enda
eru fjölmargir viðburðir á hverjum
degi, leiksýningar, tónleikar og
uppákomur um allt hérað, þannig að
um margt er að velja hvort sem er til
skemmtunnar eða fróðleiks.
Morgunblaðið/Björn Björnsson
Hannesarskjól Sigurður Svavarsson og Viggó Jónsson tylla sér niður á
bekk í Hannesarskjóli uppi á Nöfunum á Sauðárkróki.
Hannesarskjól hlaðið á Nöfunum
Fjölbreytni á Sæluviku Skagfirðinga
Sýslufundarvika
» Upphaf Sæluviku má rekja
til hátíðar á Reynistað árið
1874, þegar Íslendingar fögn-
uðu stjórnarskrá.
» Héraðshátíðin tengdist fljót-
lega sýslufundum á Reynistað
og síðar á Sauðárkróki og köll-
uð Sýslufundarvika.
» Heitið Sæluvika hefur verið
tungutamt frá því um 1920.
mbl.is
alltaf - allstaðar