Morgunblaðið - 02.05.2017, Side 14

Morgunblaðið - 02.05.2017, Side 14
14 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 2. MAÍ 2017 www.VBL.is REYKJAVÍK Krókháls 5F 110 Reykjavík Sími: 414-0000 AKUREYRI Baldursnes 2 603 Akureyri Sími: 464-8600 LIPUR GRIPUR AVANT - ER TIL Í ALLT - ALLT ÁRIÐ UM KRING Hvort sem þig vantar öflugt hjálpartæki í skógræktina, fyrir bæjarfélagið, til meðhöndlunar á vörubrettum, í moksturinn eða snjó- og jarðvinnu, þá getur þú verið viss um að AVANT leysir málið fyrir þig. Yfir 100 mismunandi aukatæki eru fáanleg á vélina. Raf- diesel- bensín- eða gasknúinn – þitt er valið. Framleiddur í Finnlandi – fyrir norðlægar slóðir. Guðni Einarsson gudni@mbl.is Fyrirtækið Icelandlastminute ehf. sendi sveitarfélögum nýlega tilboð um að safna upplýsingum um Airbnb-gististaði, það er heimagist- ingar, innan þeirra. Nú þegar hafa fengist nokkur viðbrögð. Hermann Valsson, ráðgjafi hjá Icelandlastminute.ehf., kvaðst hafa séð viðskiptatækifæri í þessu. Hann er kerfisfræðingur, ferða- málafræðingur, leiðsögumaður og landvörður og hefur starfað lengi í ferðaþjónustu. Hermann sagði það vera mikil- vægt fyrir sveitarfélögin að fylgjast með út- breiðslu heima- gistinga, bæði til að missa ekki af tekjum og eins til að standa með íbúunum. „Sveitarfélögin þurfa að vita af heimagistingu sem er rekin í atvinnuskyni. Það er þeg- ar gistinætur eru fleiri en 90 eða veltan fer yfir tvær milljónir á ári. Þá má hækka fasteignagjöld úr því sem gildir um íbúðarhúsnæði upp í gjöld af atvinnuhúsnæði,“ sagði Hermann. Fasteignagjöld af íbúð- arhúsnæði í Reykjavík eru nú 0,2% af fasteignamati en 1,65% af fast- eignamati af atvinnuhúsnæði. Her- mann sagði sum sveitarfélög þegar hafa gert þetta. „Við hjá Icelandlastminute ehf. sóttum á tölvutæku formi alla Airbnb-gististaði á Íslandi í tengslum við gerð smáforrits (apps) með þessum gististöðum. Við höf- um þegar gert smáforrit með öllum hótelum og gistihúsum. Hugmynd kviknaði út frá þessari vinnu og áhuga sveitarstjórnarmanna á að skoða þetta með okkur. Sveitar- félögin eru að missa af hundruðum milljóna og eins ríkið vegna van- framtalinna tekna og gistinátta- gjalda,“ sagði Hermann. Tekjur upp á marga milljarða Hann sagði miðlun heimagistinga og frístundahúsa vera miklu víð- tækari en aðeins Airbnb og nefndi auk þess Bungalo.is, Viator.com, Homeaway.co.uk og fleiri. „Það var um ein milljón óskráðra gistinátta í Reykjavík einni í fyrra sem gætu hafa skilað 10-14 millj- örðum króna í tekjur, samkvæmt tölum frá Hagstofunni. Þetta vekur spurningar um hvort þetta var gef- ið upp og hvort húsnæðið hafi verið rétt skráð,“ sagði Hermann. Hann sagði fjölgun ferðamanna vera orðna yfirgengilega. Talað sé um 700.000 fleiri ferðamenn á þessu ári en í fyrra. Aftur búist menn við annarri 40% fjölgun frá fyrra ári, sömu fjölgun og var í fyrra. Þar áður var hún 30%, 24% og 21%. Meðalaukning ferðaþjón- ustu á heimsvísu er 4% síðustu tíu ár. „Það er að verða samfélagslegt stórslys, að mínu mati. Þar bera sveitarfélögin mikla ábyrgð á að sporna við ruðningsáhrifum ferða- þjónustunnar. Þau valda því að efnaminna fólk, t.d. aldraðir og ungt fólk sem er að byrja búskap, hefur ekki ráð á að leigja húsnæði hvað þá að kaupa það,“ sagði Her- mann. Hann sagði íbúa margra sveitarfélaga hafna því að íbúðar- húsnæði sé í stórum stíl lagt undir rekstur sem fylgi stöðugt ónæði, mikil bílaumferð og fólk að koma og fara á öllum tímum sólarhringsins. Íbúar séu farnir að þrýsta á að það verði tekið á þessu. „Vöxtur ferðmannastraumsins á Íslandi hefur verið svo hraður að það hefur enginn náð að laga sig að honum. Ekki íbúarnir, ferðaþjón- ustan, landið eða varan sem við er- um að selja. Það er ósnortið, hreint og fallegt landslag. Þessi vara er að grotna niður í höndunum á okkur,“ sagði Hermann. Hann benti á að ferðaþjónusta muni veita um 560 milljörðum króna inn í hagkerfið á þessu ári. Hermann kvaðst vona að hækkun virðisaukaskatts á gistingu muni slá eitthvað á eftirspurnina eftir gistingu og færa ástandið í húsnæðismálum eitthvað nær því sem má teljast eðlilegt. Sveitarfélög verða af miklum tekjum  Óskráðar heimagistingar velta 10-14 milljörðum á ári Morgunblaðið/RAX Ferðamenn Stöðugt þyngist ferðamannastraumurinn. Gestirnir þurfa gist- ingu og eins starfsfólkið sem starfar í greininni. Það veldur húsnæðisskorti. Hermann Valsson Stefán E. Stefánsson ses@mbl.is Minjastofnun hefur nú tilkynnt hvaða verkefni hljóta styrki úr húsafriðunarsjóði á árinu 2017. Alls hlutu 182 verkefni styrki í sex flokkum og nam heildarupphæð veittra styrkja ríflega 168 millj- ónum króna. Alls var sótt um styrki að fjárhæð 772 milljónir króna í 257 verkefni. Þannig mæta styrkirnir tæplega 22% af umbeð- inni fjárhæð. Úthlutunin í ár er nokkuð veg- legri en í fyrra en þá voru veittir styrkir að fjárhæð 131 milljón króna í 158 styrkjum. Þá var hins vegar sótt um styrki að fjárhæð 940 milljónir króna og hlutfall veittra styrkja því um 14%. Alls runnu 57,3 milljónir til verkefna sem falla undir flokkinn friðuð hús og mannvirki en þar var 76 styrkjum úthlutað. Næstmest fór til friðlýstra kirkna eða 51,2 milljónir í 36 styrkjum. 36,1 millj- ón fór til friðlýstra húsa og mann- virkja í 27 styrkjum. Önnur hús og mannvirki hlutu 13,7 milljónir í 26 styrkjum. Þá runnu 6,4 milljónir til 9 rannsóknarverkefna og 3,6 millj- ónir til sex verkefna tengdum byggða- og húsakönnunum. Hæstu einstöku styrkirnir runnu til verkefna tengdum þremur frið- lýstum kirkjum, Eyrarbakka- kirkju, gömlu kirkjunnar á Djúpa- vogi og Stóra-Núpskirkju. Hlaut hvert þeirra 5 milljónir í styrk. Meðal annarra styrkja sem veittir voru má nefna 3 milljóna styrk til framkvæmda við Hljóm- skálann í Reykjavík, 1,5 milljónar styrk til Læknishússins við Skóg- argötu 10b á Sauðárkróki og 1,2 milljóna styrk til Gamla spítalans á Patreksfirði, sem stendur við Að- alstræti 69. Sé rýnt í það hvert styrkirnir renna eftir landshlutum kemur í ljós að um 22% af heildarupphæð- inni renna til verkefna á Norður- landi. 19% renna til verkefna á Austurlandi og jafnmikið til verk- efna á höfuðborgarsvæðinu og á Reykjanesi. Um 18% renna til verkefna á Suðurlandi og álíka mikið til Vestfjarða. Um 4% renna til verkefna á Vesturlandi. Ljósmynd/Rebekka Hilmarsdóttir Endurbætur Meðal verkefna sem hlutu styrk að þessu sinni er uppgerð á Gamla spítalanum á Patreksfirði en framkvæmdir við húsið hófust 2015. 182 styrkir veittir til húsafriðunar  Hæstu styrkirnir til friðaðra kirkna  Hljómskálinn hlaut 3 milljóna styrk Sveinn Heiðar Jóns- son, byggingameistari á Akureyri, lést á Sjúkrahúsinu á Akur- eyri síðastliðinn sunnudag. Sveinn fæddist á Akureyri 26. mars 1944, sonur Jóns Gíslasonar bygg- ingameistara og Jó- hönnu Zophusdóttur. Hann lauk meistara- námi á Akureyri 1967 og starfaði alla tíð sem byggingameistari á Akureyri. Hann starfrækti Trésmíðaverk- stæði Sveins Heiðars frá árinu 1980 og kom að byggingu fjölda bygginga á Akureyri og víðar á Norður- og Austurlandi. Sveinn var virkur þátttakandi í at- vinnulífi bæjarins og kom að stofnun ýmissa fyrirtækja til að efla atvinnusköp- un í Eyjafirði. Hann tók virkan þátt í fé- lagsmálum og var meðlimur í Odd- fellow-reglunni. Hann varð snemma félagsmaður í Sjálf- stæðisflokknum og virkur í starfi hans. Hann var á fram- boðslista fyrir Sjálf- stæðisflokkinn og var virkur í skipulags- nefndum bæjarins um tíma. Hann lætur eftir sig fjögur af fimm börnum sínum en eiginkona hans, Erla Oddsdóttir, lést sama dag fyrir fjórum árum. Útför Sveins verður gerð frá Akureyrarkirkju föstudaginn 5. maí kl. 10:30. Andlát Sveinn Heiðar Jónsson ÞÚ FINNUR ALLT Á FINNA.IS VANTAR ÞIG PÍPARA?

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.