Morgunblaðið - 02.05.2017, Qupperneq 18

Morgunblaðið - 02.05.2017, Qupperneq 18
18 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 2. MAÍ 2017 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Hátíðisdagurverkalýðs-ins 1. maí eins og dagurinn er stundum kallaður fór fram í gær og hefði mátt viðra betur á hann. Dagurinn er há- tíðisdagur með breytilegum brag í löndum, og með rætur langt aftur fyrir þann tíma þegar kommúnistar og sósíal- istar helguðu sér hann. Það eðli hans hefur víðast breyst eftir hrun múrs og sovéts. En það fer áfram prýðilega á því að þennan dag sé hugað sér- staklega að málefnum launa- manna. Vegna þjónkunar við söguna verður þó minna gagn að umræðum og hugleiðingum en æskilegt væri. Hátíðar- ræður eru óþægilega klisju- kenndar og oft ekki annað en endurtekningar á fornum full- yrðingum, sem mönnum fyrir- gefst. Þegar hugað er að ræðum sem fluttar voru hér á landi í tilefni dagsins var hefðbundin áhersla á jöfnuð og nauðsyn að auka hann. Tal um jöfnuð hljómar góðkynja og notalegt. Líka þótt vitað sé að lítið er meinað með því. Sagt er að „við“ þurfum að fara að dæmi annarra landa og koma á jöfn- uði eins og þar ríkir. Þetta eru kunnuglegar klisjur sem að- eins þeir sem ekkert vita halda að standist skoðun. Á Íslandi þykir engum neitt að því að forystumenn verka- lýðshreyfinga hafi 3-5-föld meðallaun almennings. Þeir bera þunga ábyrgð. Væri eitt- hvað að þessu hefði því vænt- anlega verið breytt fyrir langa löngu. Það finnst fáum nema frægustu fjösurum neitt að því þótt forsvarsmenn lífeyris- sjóða séu með margföld með- allaun lífeyrisþega. Á hátíðis- dögum eru þeir þó sagðir eiga lífeyrissjóðina. Það stenst varla skoðun heldur. Ef svo væri mundu erfingjar manns sem hætti að vinna á 70 afmæli sínu og hefði áður misst maka sinn og orðið bráðkvaddur um kvöldið að fá eitthvað í sinn hlut af því sem hinn látni hafði lagt til ásamt mótframlagi vinnuveitanda, sem í samn- ingum var litið á sem ígildi launahækkunar. Væri inni- stæðan eign lífeyrisþegans er það eignaupptaka að dánarbúið fái ekkert. Það hverfur kvöldið sem hann deyr í sameign þeirra sem eftir lifa í sjóðnum. Hefði umræddur maður staðið af sér sjötugsafmælið og orðið 100 ára þá hefði hann borið meira úr býtum en hans vegna var lagt inn. Það er margt gott og sanngjarnt við þetta kerfi en frasinn um að lífeyris- sjóðirnir séu í „eigu“ sjóðs- félaganna er ekki nákvæmur. Þeir ráða enda litlu um það hverjir stjórna sjóðunum. Allir eru „þvingaðir“ til þátttöku í kerfinu með lagaboði. Menn eru ekki endilega í verkalýðsfélagi vegna þess að þeir ákveði það. Þeir komast ekki upp með annað. Það eru þó ekki lög landsins sem segja fólki að vera í félagi launþega. Það stangaðist á við ákvæði stjórnarskrár um félagafrelsi. Löggjafarsamkundan tekur ekki ákvörðun um hvort ein- staklingar skuli vera í slíku fé- lagi. Það ákveður miklu rétt- hærri samkoma: Sjálfir „aðilar vinnumarkaðarins“. Hefði lög- gjafarsamkundan tekið af ein- staklingum þennan rétt myndu dómstólar ekki hika og grípa inn í. En fyrst næsta valda- stofnun þar fyrir ofan á í hlut versnar málið. Eftir að múr- arnir hrundu og loftið lak úr sovétunum eru aðeins örfá lönd sem skikka einstaklinga í laun- þegafélög, án þess að spyrja þá. Vissulega hefur „aðilum vinnumarkaðar“ tekist margt vel og þar safnast fyrir marg- vísleg þekking sem er gott að sé til staðar í þeirri eldfimu, viðkvæmu og flóknu tilveru sem kjaramál eru. En það rétt- lætir ekki að á degi eins og 1. maí séu hlutir ekki kallaðir sín- um réttu nöfnum. Það má krefjast aukins jöfnuðar á Ís- landi en hæpið að vísa til ann- arra landa. Þegar horft er til 193 „fullvalda ríkja“ sem eiga aðild að Sameinuðu þjóðunum þá er snúið að finna lönd þar sem meiri „jöfnuður“ ríkir. Það má nefna ríki og telja á fingr- um annarrar handar, en ekki víst að það standist. Nema ver- ið sé að hugsa um jöfnuð niður á við. Í þeim samanburði stend- ur Ísland illa á meðan Kúba, Venesúela og Norður-Kórea hampa bikurum. Jafnvel í lönd- um eins og Svíþjóð og Dan- mörku hafa þing og þjóðar- leiðtogar verið að vinda ofan af „jafnaðarstiginu“ sem var að sliga þau. Jafnaðarmanna- flokkar hafa fyrir löngu tapað þar sinni yfirburðastöðu. Hér heimta menn í öðru orðinu að menntun sé metin til launa. Ekki jöfnuð. Kaupmáttur launa hefur vaxið hvað hraðast hér á landi af öllum „saman- burðarlöndum“ síðustu ár. Af hverju er það ekki fagnaðar- efni á degi launamanna? Er það ekki baráttumálið stóra? Fyrsti maí er gleðiríkur dag- ur og getur verið gagnlegur fyrir allan þorra fólks. En það er ástæðulaust búa sér til gerviveröld í tilefni hans. Standast hinar hefðbundnu 1. maí ræður skoðun mikið lengur?} Dagurinn á betra skilið U ndirritaður er ekki ýkja mikill sjónvarpsglápari, enda má hann ekki vera að því að sitja fyrir framan skjáinn meðan allar þessar dýrindis bækur bíða þess að vera lesnar. En stöku sinnum kemur fram á sjónarsviðið sjónvarpsefni sem fangar hug og hjarta að því marki að annað víkur ein- faldlega. Sama hvað það kann að vera. Stórtíðindi maímánaðar – ef ekki ársins 2017 – er frumsýning nýrrar þáttaraðar úr smiðju Davids Lynch þar sem hann tekur upp þráðinn á ný í smábænum Twin Peaks, 25 ár- um eftir að hann hvarf þaðan eftir eitt almagn- aðasta sakamálaspennudrama sem nokkurn tímann hefur verið sýnt á skjánum. Flestir góðkunningjanna eru komnir aftur (nema Lara Flynn Boyle; hún á ekki afturkvæmt, stelpugreykvölin, því hún er búin að bótoxa sig til óbóta og líkist ekki Donnu Hayward vitundarögn lengur) og spennan nálgast suðumark. Ég hef oft leitt hugann að því hvers vegna ég fór á hlið- ina haustið 1990 þegar Stöð 2 hóf sýningar á Tvídröngum, eins og þáttaröðin hét á íslensku. Sjónvarpið hefur jú ver- ið fleytifullt af morðsögum frá því í árdaga miðilsins og lítil sérstaða fólgin í því að farga einhverjum. En það er dulrænn þráður í Twin Peaks, undiralda óútskýrðs óhugnaðar í annars fallegum smábæ og einhver ævagöm- ul illska sem býr í myrkum og eldfornum furuskógunum í nágrenninu, og líkamnast þegar hentar sem illilegur, glottandi náungi í gallabuxum og gallajakka, með axlasítt stálgrátt hár. Killer Bob kallaðist hann, einn illræmdasti morðvargur sjónvarps- sögunnar, og ásótti hálfa heimsbyggðina í draumi og vöku meðan þættirnir voru í sýn- ingu enda ekta illmenni úr smiðju Lynch. Frank Booth og Marcello Santos eru af sömu sortinni, líka sprottnir upp úr hugarheimi leikstjórans. Lynch fyllti þættina af furðulegu fólki, sem var knúið áfram af skrýtnum hvöt- um, og í þá daga þegar ekki var um neitt að velja nema að beygja sig undir línulega dag- skrá og þar af leiðandi vikulanga bið eftir næsta þætti, þá beið maður þess helspenntur að fá að vita meira, fá einhver svör. En fyrir hvert svar sem bauðst varpaði Lynch fram tveimur nýjum spurningum og hungrið eftir meiru jókst eftir því sem vikurnar liðu. Ugl- urnar voru ekki allar þar sem þær voru séðar í þá daga og ekki hef ég trú á því að það hafi breyst hið minnsta. En þar komum við að kjarna málsins; mun uppskriftin sem sló í gegn árið 1990, þegar fyrri serían var sýnd, enn heilla sjónvarpsáhorfendur árið 2017? Og hafi David Lynch uppfært stemninguna einhvern veginn, eru þá gömlu galdrarnir fyrir bí? Er einhver leið að vera viss um að uppskrift sem virkaði fyrir aldarfjórðungi falli bragð- laukunum enn í geð? Það er bara ein leið til að komast að því og persónulega get ég ekki beðið eftir því að heimsækja Tvídranga á ný. jonagnar@mbl.is Jón Agnar Ólason Pistill Tvídrangar hinir síðari STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjóri: Davíð Oddsson Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Ritstjóri og framkvæmdastjóri: Haraldur Johannessen FRÉTTASKÝRING Guðni Einarsson gudni@mbl.is Bæjar- og sveitarstjórar áAusturlandi og Vest-fjörðum eru mótfallnirfrumvarpi umhverfis- og auðlindaráðherra um nýtt skipulag haf- og strandsvæða. Þeir telja það vera „alvarlega aðför að sjálf- stjórn sveitarfélaga“ og að forræði þeirra í skipulagsmálum. Allir bæjar- og sveitarstjórar á Austur- landi ásamt bæjar- og sveitar- stjórum Ísafjarðarbæjar, Vestur- byggðar, Tálknafjarðarhrepps og Súðavíkurhrepps skrifa undir yf- irlýsingu um málið. Þar benda þeir á að Samband íslenskra sveitarfélaga hafi mótað þá stefnu að skipulag strandsvæða verði á forræði sveitarfélaga allt að einni sjómílu (1.852 metrum) út frá grunnlínu landhelginnar. Einn- ig kemur þar fram að með því að skilja ekki á milli hafsvæða og strandsvæða geri frumvarpið ráð fyrir því að innfirðir og flóar verði slitnir úr eðlilegu samhengi við staðbundnar skipulagsáætlanir. Í bréfi til Bjartar Ólafsdóttur, umhverfis- og auðlindaráðherra, segja bæjar- og sveitarstjórarnir að þeir mótmæli harðlega „þeirri aðför að sjálfstjórn sveitarfélaga og forræði þeirra í skipulags- málum sem í frumvarpinu felst. Undirritaðir taka undir og leggja áherslu á þau sjónarmið að skipu- lagsskylda haf- og strandsvæða ut- an netlaga verði bundin í lög, ekki hvað síst með hliðsjón af vaxandi umsvifum á strandsvæðum, s.s. vegna fiskeldis og siglinga far- þegaskipa. Sveitarfélögin verða að hafa beina aðild að skipulagi strandsvæða, enda mikið í húfi fyrir þau að vel takist til á svæð- um sem varða beinlínis þeirra efnahags- og samfélagsmál.“ Bæjar- og sveitarstjórarnir benda ráðherranum einnig á að skipulagsmál séu eitt mikilvæg- asta stjórntæki sveitarstjórna. Þeir óska tafarlaust eftir samtali við umhverfis- og auðlinda- ráðherra um frumvarpið og ljúka bréfi sínu á þessum orðum: „Hvernig sem framlögðu frumvarpi reiðir af þá er mikil- vægt að þegar verði hafin vinna við nýtingaráætlanir einstakra strandsvæða, þar sem hags- munaðilar fái að koma að borðinu. Þar þurfa sveitarfélögin að vera leiðandi afl, enda geta hagsmunir þeirra staðið og fallið með því sem gerist á fjörðunum,“ segir í bréf- inu. Markar ákveðin tímamót Í 2. grein frumvarpsins kemur m.a. fram að lögin gildi um skipu- lag haf- og strandsvæða þar sem mörkuð er stefna um nýtingu og vernd auðlinda þeirra. Þau gildi þó ekki um nýtingu og vernd fiski- stofna eða annarra lifandi auðlinda hafsins og hafsbotnsins, að undan- skilinni nýtingu sem háð er leyfi til efnistöku og eldis eða ræktunar nytjastofna. Lögin munu ná til haf- og strandsvæða frá línu sem afmörkuð er 30 m landmegin við meðalstórstraumsflóð út að ytri mörkum efnahagslögsögunnar. Í greinargerð með frumvarp- inu kemur m.a. fram að lengi hafi verið unnið að undirbúningi lög- gjafar um skipulag á haf- og strandsvæðum. Í nokkrum skýrslum og greinargerðum um málið komi fram skýr þörf fyrir gerð skipulags á haf- og strand- svæðum og setningu laga um slíkt skipulag. Verði frumvarpið að lög- um muni það marka ákveðin tíma- mót því ekki hafi áður verið sett lög um skipulag á haf- og strand- svæðum Íslands. Deilt um skipulag haf- og strandsvæða Morgunblaðið/Golli Reyðarfjörður Sveitarstjórnarmenn vilja ekki missa skipulagsvald yfir sjónum í fjörðunum. Það skiptir máli fyrir hafnir, siglingar og fiskeldi. „Firðir liggja með landi sem skipulagsvald sveitarfélaga nær yfir. Það er skrítið að búa til aðra umgjörð um sjálfan fjörð- inn en landið,“ sagði Páll Björgvin Guðmunds- son, bæjarstjóri Fjarðabyggðar, um frumvarp umhverfis- og auðlindaráðherra um skipulag haf- og strandsvæða. Hann sagði þetta snerta skipulag og byggingu hafna og hafnarmann- virkja, siglingaleiðir til og frá höfnum og efnistöku úr sjó. Einnig snerti þetta umhverfis- og náttúruvernd. Þá sagði Páll það vekja furðu að setja eigi á fót allt að sjö manna svæðisráð um strandsvæðisskipulag. Sveit- arfélög á svæðinu fái 1-2 full- trúa en ráðherrar fái fjóra full- trúa sem allir hafi neitunarvald. Skipt skipu- lag í fjörðum SKIPULAGSMÁL Páll Björgvin Guðmundsson.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.