Morgunblaðið - 02.05.2017, Side 24

Morgunblaðið - 02.05.2017, Side 24
24 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 2. MAÍ 2017 Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, GUNNAR SIGURÐSSON trésmíðameistari, frá Hlíð, Þingeyri, andaðist 24. apríl á hjúkrunarheimilinu Eyri, Ísafirði. Útförin fer fram frá Þingeyrarkirkju laugardaginn 6. maí klukkan 14. Jóhanna Jónsdóttir Hrafn Ingvar Gunnarsson Einar Albert Gunnarsson Sunee Photlya Chatchai Photlya Lamduan Seejaem Amonrat Photlya Gunnar Páll Ingvarsson Ólöf Jóhanna Ingvarsdóttir Hrafnhildur Stefánsdóttir ✝ Kristinn Jó-hann Trausta- son sjómaður fæddist í Ólafs- firði 14. maí 1936. Hann lést 23. apríl 2017. Foreldrar hans voru Anna Frið- riksdóttir, f. 28. desember 1914, d. 13. júní 2009, og Trausti Gunn- laugsson, f. 5. október 1910, d. 11. ágúst 1980. Kristinn var elstur þriggja bræðra, næstur var Gunnlaugur, f. 30. júní 1937, þá Friðrik Gylfi, f. 1. mars 1949. Þann 1. júní 1963 giftist Kristinn eftirlifandi eig- inkonu sinni Björk Gísladótt- ur, f. 5. júní 1941. Börn þeirra eru: 1) Helga Luna, f. 14. júní 1959, maki Þor- mar Úlfur Þor- kelsson, f. 3. apríl 1962. 2) Snjólaug, f. 23. maí 1962, maki Óli Hjálmar Ingólfsson, f. 9. september 1957. 3) Sigríður, f. 12. ágúst 1964 maki Jón Emil Gylfason, f. 22. janúar 1958, 4) Trausti, f. 26. ágúst 1965, maki Naree Kerdthale, f. 13. mars 1966. 5) Kristinn, f. 6. apríl 1974. Barnabörnin eru 12 og barna- barnabörnin eru 24. Útför Kristins fer fram frá Ólafsfjarðarkirkju í dag, 2. maí 2017, klukkan 14. „Ég er dáinn Helga mín,“ sagðir þú við mig síðustu nóttina sem hjartað þitt sló… og bleikt ljósið í kringum þig var eins og neyðarljósin sem Stjáni skip- stjóri kveikti á gamlárskvöld… og ég dáðist svo mikið að. „Dáinn, það getur ekki verið,“ sagði ég… Það er mamma sem er svo veik… Ertu ekki að fara til Taílands 8. maí..? Og svo romsaði ég upp úr mér heilum ósköpum og bleika ljósið varð að stóru húsi… Stóru ómáluðu húsi sem ég þekkti ekki neitt. „Hvað á ég þá að gera?“ spurði ég og þú svaraðir: „Þú átt að mála húsið en fyrst þarf að þrífa það … þú ræður sjálf hverja þú færð með þér í verkið.“ Þegar ég vaknaði strauk ég mér yfir bringuna og hvíslaði að sjálfri mér: „Ég vona að enginn að heiman hringi í mig dag.“ Elsku pabbi þú gafst mér svo margar dýrmætar minningar. Ég er skellihlæjandi á árbakk- anum… Snjólaug systir rígheld- ur um hálsinn á þér og klemmir litlu spóaleggina um mittið og þó að ég hafi ekkert vit á því þá veit ég að mamma er bálskotin í þér því hún horfir svo fallega á þig þegar þú veður út í ána með litlu systur mína á bakinu og með buxnaskálmarnar brettar uppað hnjám … Við erum að fara í berjamó að Hreppsendá. Ég man líka svo vel þegar þið mamma fór- uð með okkur fram að Reykjum. Þá vorum við systkinin orðin fjögur, Trausti yngstur og seinna bættist Kristinn við. Það var sól- skinsdagur og við busluðum í heitri lindinni og fórum svo að leita að fjögurra blaða smára. Sigga fann einn og þú sýndir henni hvernig hún ætti að krjúpa með hann í litlu lófunum og óska sér … Töfrastund sem ég gleymi aldrei. „Ég vildi óska að ég fengi hvolp,“ hvíslaði litla systir og ósk- in var hvít og tær eins og hárið hennar. Þú keyrðir með okkur til frænda þíns á Kálfsá og þar feng- um við Tátu, yndislegan hvolp sem vann hjörtu okkar allra. Nú hoppar hún þér við hlið í Sum- arlandinu. Svo fékk ég unglinga- veikina og öskraði og æpti eins og óhemja því ég mátti ekki fara með sætaferðum á útihátíð. Þú komst inn í herbergi til mín sallarólegur og sagðir: „Hvernig litist þér á að við færum út í Kleif- arhorn? Ég skal lofa þér að keyra.“ Svo þurrkaðir þú framan úr mér skælurnar og á meðan vinir mínir sátu í rútu þá var ég að keyra „Ó 98“, himinbláan Skoda. Þannig varst þú pabbi minn … ráðagóður og hjartahlýr og þú vildir alltaf allt fyrir okkur gera. Ég veit, ég var oft erfið við ykkur mömmu, en ég vona að ég hafi bætt ykkur það upp. Eitt af því sem mér hefur þótt best og ég hef hlakkað mest til eftir að ég varð fullorðin er þegar þið mamma komuð til okkar Þormars í Svarta húsið. Mér leið svo vel í hjartanu þegar ég horfði á þig lesa úti í garði og svo þótti mér ósköp gott þegar þú slóst þér á lær á kvöldin og sagðir: „Ja … þetta er nú aldeilis veislan.“ Ég held að þú hafir komið til mín í draumnum til að segja mér að sorgin hefur sinn tíma. Að hús- ið sem ég sá sé sálin mín, litlaus sorgin, en með tímanum geti ég farið að mála hana með dýrmæt- um minningum og að þú munir lýsa mér áfram eins og neyðar- blys sjómannsins. Töfrafaðmur, þín Helga Luna. Við vorum að tala um það í gær systkinin að þú hefðir verið svo- lítill einfari… að þú hefðir helst viljað fara þínar gönguferðir einn. Enda var það svo að eftir að þú hættir á sjónum þá undir þú þér best á Holtinu þar sem þú gast dundað í friði og ró í nánu sambandi við náttúruna sem þú umgekkst eins og væri hún þús- und ára gömul ættmóðir þín. Okkur varð hugsað til lómsins sem þú bjargaðir úr netinu… Lómsins sem hvorki barðist um eða reyndi að bíta þig þegar þú leystir hann úr flækjunni. Og ein- stakt var það þegar hann svo hneigði sig fyrir þér, frelsinu feg- inn, þegar þú lagðir hann á gras- balann. Þú þekktir hann ári seinna þegar hann kom með spúsu sína til að sýna þér þakk- læti og þið lölluðuð um túnin með hendur í vösum. Í dag hefði þetta orðið frægt video á Youtube. Þau eru líka ófá börnin hér í firðinum fagra sem hafa staðið við hliðina á þér á bryggjunni með veiðistöng- ina á meðan þú sagðir þeim krassandi sögur og gafst þeim góð ráð. Þú komst okkur á óvart þegar þú byrjaðir að syngja í Kór eldri Kristinn Jóhann Traustason ✝ Sigrún Guð-brandsdóttir fæddist 3. janúar 1921 í Lækjar- skógi, Laxárdal í Dalasýslu. Hún lést á hjúkrunarheim- ilinu Grund 24. apríl 2017. Foreldar hennar voru Guðbrandur Kristjón Guð- mundsson, bóndi í Lækjarskógi, f. 1887, d. 1978, og eiginkona hans Arndís Magnúsdóttir húsfreyja, f. 1891, d. 1948. Systkini Sigrúnar eru Guðrún Magnea Magnúsdóttir, f 1913, d 1993, Magnús, f 1918, d 1968, Kristín Þórhildur, f 1922, d 2010, Helga Áslaug, f 1923, d 2011, Guðmundur, f. 1925, d. 2002, Inga Aðalheiður, f. 1929, og Böðvar Hilmar, f 1933, d 2016. Sigrún var gift Ásgeiri Jónssyni, f. 10. júlí 1910 í Köldukinn, Haukadalshreppi, Dalasýslu, d. 28. ágúst 1981 í Reykjavík. Foreldar hans voru Jón Óli Árnason, f. 1874, d. 1954, og Lilja Þorvarðardóttir, f. 1872, d. 1944. Börn þeirra: 1) Mjöll skrifstofumaður, f. 21. apríl 1942, d. 20. nóvember 2016, og 2) Óli Knöttur bifvéla- barnsfaðir Svanur Heiðar Tryggvason. b) Ásrún, f. 25. mars 1973, maki Kristján Þór Finnsson, börn þeirra eru Óli, f. 1999, og Bryndís f. 2001 og c) Einar Óli, f. 10. október 1982. Sigrún og Ásgeir hófu búskap í Lækjarskógi, árið 1944 byggðu þau nýbýlið Aflstaði út frá Köldukinn. Þau flytja til Reykjavíkur árið 1961 og sett- ust að á Nökkvavogi 33, síðar að Hlunnavogi 10. Sigrún vann í Borgarþvottahúsinu frá því hún kom til Reykjavíkur til ársins 1967. Þá hóf hún störf hjá Tré- smiðjunni Meiði, TM- húsgögnum, til ársins 1993. Þar sá hún um húsvörslu og mötu- neyti starfsmanna ásamt þrif- um. Sigrún var mikil hann- yrðakona, prjónaði og saumaði. Hún stundaði íþróttir og var í fimleikahópi hjá Ástrós Gunn- arsdóttur. Hópurinn sýndi fim- leika innanlands sem og erlend- is. Eftir að hún hætti störfum hjá TM húsgögnum 72 ára göm- ul fengu áhugamál hennar meiri tíma. Hún flutti aftur inn á Hlunnavoginn og bjó þar fram yfir 90 ára afmælið sitt. Þaðan flutti hún í Furugerði 1 og bjó þar fram að desember síðast- liðnum, þá fór hún inn á hjúkr- unarheimilið Grund þar sem hún lést 24. apríl síðastliðinn eftir stutt veikindi. Útför Sigrúnar fer fram frá Grensáskirkju í dag, 2.maí 2017, og hefst athöfnin klukkan 15. virki, f. 3. apríl 1944. Börn Mjallar og Sæmundar Guð- mundssonar mál- arameistara, f. 1941 á Ísafirði, a) drengur f. 17. des- ember 1968, d. 17. desember 1968, b) Ásgeir, f. 7. júlí 1970. Sambýlis- kona Heiðrún Björnsdóttir, börn Ásgeirs: 1) Fróði Ásgeirsson, f. 2003, barnsmóðir Edda Hlín Gunnarsdóttir, og 2) Arnór Leó Ásgeirsson, f. 2013. Börn Heið- rúnar eru Karen Líf og Björn Matthías, c) Guðmundur Elías, 10. febrúar 1972, sambýliskona Guðrún Jóna Sigurðardóttir börn þeirra eru: 1) Sæmundur, f. 2000, 2) Sigríður Dóra, f. 2006, og 3) Margrét Lilja, f. 2009, og d) Arna Björk, f. 26. október 1973. Maki Steinþór Bragason, börn þeirra eru, 1) Lára Sigrún, f. 2000, 2) Sædís Mjöll, f. 2003, 3) Arnar Bragi, f. 2005, og 4) Katrín Lísa, f. 2012. Börn Óla Knattar og Jónínu Guðrúnar Einarsdóttur skrif- stofumanns, f. 1948, a) Sigríður f. 29. september 1970, barn hennar Snædís Hekla, f. 2005, Amma Sigrún var kona sem gat allt, sjálfstæð, kraftmikil og gaf ekkert eftir, hún var snagg- araleg án fyrirferðar, verklagin og vinnusöm. Hún hafði ekki tekið inn verkjatöflu fyrr en hún mjaðmakúlubrotnaði 92 ára gömul. Á níræðisafmælinu stjórnaði hún hókí póki og stóla- leik með langömmubörnunum og skemmti sér ekki síður en börn- in. Amma nýtti alla hluti vel, hvort sem það var fatnaður, matvara, búsáhöld eða annað. Fór alltaf vel með hluti og kenndi okkur að sjá nýtnina í öllu. Hún endurnýtti umbúðir og skyrdollurnar sem til voru í Síðumúlanum urðu oft að háum húsum þegar við stöfluðum þeim upp. Í TM gátum við fengið út- rás fyrir hreyfiþörf okkar eftir að búðin lokaði. Það var ekki leiðinlegt að hlaupa um þessa flennistóru húsgagnaverslun, þar var hægt að stunda sprett- hlaup og langhlaup og feluleik- irnir gátu tekið marga klukku- tíma. Síðumúlinn var ævintýraheimur; stóra þvotta- húsið, vinnusalurinn, verkstæðið og þarna stjórnaði amma húsinu, var húsvörður, matráður og þreif bæði búð og matsal. Bjó ein í þessu svaka húsi. Á kvöldin prjónaði hún og horfði á sjónvarpið. Amma var ekki lengur en tvö kvöld með eina peysu og afraksturinn því mikill. Líka var hún snillingur á prjónavélinni. Saumaði margar fígúrur og prjónaði ýmiskonar bangsa. Henni féll aldrei verk úr hendi, ef það var ekki prjóna- skapur, þá var það berjatínsla, ef ekki í Arnardal fyrir vestan þá með okkur á Bergstöðum. Svo kom sláturtíð og þá var verkað fyrir veturinn og alltaf var hátíð þegar við komum í heitt slátur með sykri, kartöflum og rófustöppu. Einhvern veginn átti hún alltaf nýbakaðar kleinur og stæður af pönnukökum. Hún neitaði okkur aldrei um neitt þótt skynsemin hafi alltaf verið við völd og alltaf var von á henni í afmæli með stóran disk af upp- rúlluðum fullkomnum pönnsum. Amma stundaði fimleika með Ástrós Gunnarsdóttur, þar var hún í góðum félagsskap og hóp- urinn var með sýningar innan- lands sem og erlendis. Þegar amma bjó í Síðumúl- anum og við í Löngubrekku þá gekk hún iðulega á milli í heim- sókn. Leiðin styttist þegar við fluttum í Birkigrundina og hún tók það ekki í mál að láta skutla sér heim eða sækja. Ef hún þurfti að fara lengri vegalengdir þá var strætó traustur ferða- máti. Eftir að hún hætti í T.M. hélt hún áfram að prjóna og ferðaðist meira til sinna ættingja. Peys- urnar héldu áfram að detta af prjónunum, þó að svörtum hafi fækkað um og upp úr áttræðu því sjóninni hrakaði en þá var auðveldara að sjá ljósu litina. Amma fylgdist vel með sínu fólki og vissi hvað var að gerast án þess að vera hnýsin. Hún las blöðin meðan hún gat og missti ekki af fréttum. Á aðfangadag kom amma til okkar og við til hennar í hangi- kjöt á jóladag og gullbollarnir dregnir fram og drukkið heitt kakó með rjóma. Amma ferðaðist mikið með okkur innanlands. Ferðir í dal- ina og vestur til Mjallar og fjöl- skyldu voru mjög reglulegar. Hún ferðaðist því mikið með okkur fjölskyldunni um landið. Takk amma, fyrir allt sem þú kenndir okkur og samfylgdina öll þessi ár, þín Sigríður, Ásrún og Einar Óli. Elsku langamma. Takk fyrir allt. Takk fyrir pönnukökur og kleinur. Gamla jólatréð. Allar hlýju og fallegu peysurnar. Hvíl í friði. Vertu yfir og allt um kring með eilífri blessun þinni, sitji Guðs englar saman í hring sænginni yfir minni. (Sig. Jónsson frá Presthólum) Þín Óli, Bryndís og Snædís Hekla. Sigrún Guðbrandsdóttir ✝ BjörgvinBjarki Krist- björnsson fæddist 18. febrúar 1987. Hann andaðist 14. apríl 2017. Foreldrar hans eru Kristbjörn Jónsson bóndi, fæddur 27. október 1961, og Þórhildur Sigurbjörg Þor- grímsdóttir, hús- móðir og bóndi, fædd 12. maí 1964, dáin 23. febrúar 2017. Sambýliskona Björgvins er Sandra Björk Bergsdóttir, fædd 26. maí 1993. Systkini Björgvins eru: Guðmundur Birkir, fæddur 7. mars 1985, Þorgrímur Gísli fæddur, 18. júlí 1989, og Anna Rún, fædd 3. júní 1991. Björgvin ólst upp ásamt systkinum sínum við almenn sveitastörf í Bónd- hól. Að loknu grunnskólanámi í Grunnskólanum á Varmalandi í Borgarfirði, skráði hann sig í Fjöl- brautaskólann á Akranesi og klár- aði þar nám í húsasmíði. Húsa- smíðin hefur verið hans at- vinna síðan, fyrst hjá ýmsum fyrirtækjum í Borgarnesi, í tvö ár í Noregi og núna síðustu fimm árin hjá Loftorku í Borg- arnesi við að byggja og reisa einingahús. Björgvin Bjarki verður jarð- sunginn frá Borgarneskirkju í dag, 2. maí 2017, klukkan 14. Ég sit hér í gamla herberginu þínu með tár á kinn og söknuð í hjarta. Það er stundum svo skrítið hvernig lífið getur breyst á örskammri stundu, mikið sem ég vildi óska þess að þú hefðir verið með í lífi okkar allra áfram um ókomna tíð. Ég vil þakka þér fyrir hvað þú varst alltaf góður við Jón Anton okkar Guðmundar, það var mér mikils virði. Það sem það vakti mikla lukku hjá litla manninum þegar Baddi og Sandra komu í heimsókn, Jón brosti hringinn af kátínu og gleði. Ég vil minnast þín sem hjarthlýs og góðs drengs, sem vildi allt fyrir alla gera og gerði það vel sem þú tókst þér fyrir hendur hverju sinni. Ég tel mig heppna að hafa kynnst þér, elsku Baddi, alltaf gleðin við völd og stríðinn á góðan máta. Takk fyrir allt, elsku Björg- vin okkar, við munum varðveita minningarnar áfram. Elsku bróðir minn, ég elska þig og mun alltaf sakna þín. Þín mágkona og bróðir, Ólöf Kristín Jónsdóttir og Guðmundur Birkir Krist- björnsson. Mig langar að minnast hans Badda með örfáum fátæklegum orðum en leiðir okkar lágu sam- an í Varmalandsskóla. Fyrsta myndin sem er í huga mínum af honum er frá öskudegi og bræð- urnir á Bóndhól voru að fara í búningana sína. Allir voru með vel gerða og fallega búninga sem fóru þeim vel og ég man að ég hugsaði: „Mikið eru þetta fal- legir bræður og vel um þá hugs- að“. Ég kenndi Badda ekki fyrr en hann kom í sjötta bekk og við fylgdumst að þangað til grunnskólagöngu hans lauk. Hann var heiðarlegur og mikill ljúflingur og afar vel á sig kom- inn líkamlega. Auðséð var að þau systkini brölluðu margt og ég er ekki viss um að alltaf hafi verið beitt vettlingatökum. Einnig var auðvelt að sjá að þarna var hagleiksmaður á ferð sem kunni til verka. Í náminu var Baddi vinnusamur og leysti þau verkefni sem fyrir hann voru lögð af þolinmæði og sam- viskusemi. Veturinn sem hann var í 10. bekk voru síðustu tveir tímarnir á miðvikudögum nýttir til þess að tefla skák. Baddi var ekkert sérlega spenntur fyrir því en gerði þó eins og fyrir hann var lagt og tefldi við þá sem skák- taflan kvað á um. Í upphafi kunni hann rétt mannganginn og ýmist tapaði hann eða vann, það fór eftir andstæðingnum. Þegar á leið urðu unnar skákir Badda sífellt fleiri. Ég man að hann varð hálfhissa þegar sterk- ustu skákkrakkarnir fóru að biðja hann um að tefla við sig í frímínútum og áhugi hans og skákgleði jukust. Síðan var það í náttúrufræðitíma að hann virt- ist vera með hugann víðs fjarri, sat skakkur við borðið og var alltaf eitthvað að vesenast í þeim sem sat fyrir aftan hann. Að lokum fór ég til hans að at- huga málið. Þá höfðu þeir fé- lagar komið taflborði fyrir ofan í stresstöskunni og sátu að tafli og reyndu að láta lítið bera á. Eiginlega var ekki hægt að fetta fingur út í þennan skák- áhuga þótt í náttúrufræðitíma væri. Á stundum sem þessum leitar hugurinn í þær minningar sem hann geymir. Baddi er einn af þeim nemendum sem ég á ein- göngu góðar minningar um og þær gera mig ríka. Ég er þakk- lát fyrir að hafa fengið að kynn- ast honum og starfa með honum þessi ár. Ég sendi fjölskyldu hans mín- ar innilegustu samúðarkveðjur og veit að minningar um góðan dreng munu lifa og hugga. Ingibjörg, á Fróðastöðum. Björgvin Bjarki Kristbjörnsson

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.