Morgunblaðið - 02.05.2017, Síða 26
26 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 2. MAÍ 2017
Ármúla 24 - s. 585 2800
www.rafkaup.is
Opið virka daga 9-18,
laugardaga 11-16
Við hjónin vorum að koma úr 20 daga ferð í Suður-Ameríku ogþað var mín aðferð til að halda upp á afmælið,“ segir BergþórHalldórsson verkfræðingur sem á 70 ára afmæli í dag.
„Þetta var mjög fín ferð, við vorum aðallega í Perú en líka í Argent-
ínu. Við vorum í 60 manna hópi með íslenskum fararstjórum og við
fórum á inkaslóðir í Perú og það sem var sérstakast við Argentínu
voru þessir gríðarmiklu fossar sem við sáum við landamærin við
Brasilíu og Paraguay.
Við hættum bæði að vinna fyrir þó nokkuð mörgum árum og eyðum
töluverðu af tíma okkar í ferðalög. Við förum í nokkrar ferðir erlend-
is á hverju ári, bæði til dóttur okkar sem býr í Kaliforníu og síðan
ferðir sem eru skipulagðar af öðrum en okkur sjálfum og þá yfirleitt á
nýja staði, höfum ekki mikið verið að endurtaka okkur.“
Bergþór fæddist í Heiðarbæ í Villingaholtshreppi og ólst þar upp.
Hann lauk stúdentsprófi frá MR 1967, fyrrihlutaprófi í verkfræði frá
HÍ 1970, stundaði nám í rafmagnsverkfræði við Háskólann í Lundi
1970 - 72 og lauk þaðan prófi 1972.
Bergþór var stundakennari við MR 1968 - 70, við MT 1972 - 73, hóf
störf sem verkfræðingur hjá Pósti og síma 1972 og starfaði þar allan
sinn starfsaldur. Hann varð framkvæmdastjóri fjarskiptasviðs Símans
þegar fyrirtækinu var breytt í hlutafélag og gegndi því starfi til
starfsloka. Bergþór sat um tíma í stjórn Rafveitu Hafnarfjarðar og í
stjórn Sólvangs í Hafnarfirði.
Eiginkona Bergþórs er Margrét Friðbergsdóttir, fyrrverandi
myndmenntakennari við Myndlistarskólann í Reykjavík. Börn þeirra
eru Högni, Sigurbjörg Hlín, og Halldóra. Sigurbjörg býr í Kaliforníu,
en að öðru leyti býr öll fjölskyldan í Hafnarfirði.
Bergþór og Margrét verða að heiman í dag.
Heima í Hafnarfirði Bergþór og Margrét ásamt barnabörnum sínum.
Duglegur að ferðast
Bergþór Halldórsson er sjötugur í dag
B
jarni Thor Kristinsson
fæddist í Hafnarfirði
2.5. 1967 en ólst upp í
Garðinum: „Ég fór
hvorki í sveit né æfði
knattspyrnu. En í Garðinum var
samt gott að alast upp enda víðátta
og frelsi í allar áttir. Þar var starf-
rækt Litla leikfélagið, sem setti upp
hvert stórvirkið á fætur öðru. Þar
steig ég ungur mín fyrstu skref á
sviði og smitaðist af leikhúsbakt-
eríunni. Óperur eru sambland af leik-
list og söng og þessi baktería er því
afar hjálpleg fyrir óperusöngvara –
ég hef ekki læknast ennþá.“
Bjarni stundaði nám á blokkflautu
í Tónlistarskólanum í Garðinum og
söng í barnakór. Hann var 18 ára er
fjölskyldan flutti til Keflavíkur, hóf
þá nám í klassískum gítarleik hjá
Þórarni Sigurbergssyni, lauk stúd-
entsprófi, sótti sína fyrstu söngtíma
hjá Ragnheiði Guðmundsdóttur í
Tónlistarskólanum í Njarðvík og síð-
an við Tónskóla Sigursveins í Reykja-
vík. Hann stundaði síðan söngnám
við Söngskólann í Reykjavík, lauk
áttunda stigi í söng vorið 1994 en
kennari hans síðustu önnina var
Garðar Cortes.
Bjarni hélt til söngnáms við óperu-
deild Tónlistarháskólans í Vínarborg
en kennarar hans þar voru Helene
Karusso og Curt Malm.
Vorið 1997 var Bjarni ráðinn aðal-
bassasöngvari Þjóðaróperunnar í
Vínarborg og var þar fastráðinn til
þriggja ára. Að þeim tíma liðnum
sneri hann sér að lausamennsku.
Meðal helstu óperuhlutverka hans
má nefna Barón Ochs í Rósaridd-
aranum; Osmin í Brottnáminu úr
kvennabúrinu; Pímen í Boris God-
unov; Rocco í Fidelio; John Falstaff í
Kátu konunum frá Windsor; van Bett
í Zar und Zimmermann og fjölda
hlutverka í óperum Wagners, Wotan
í Rínargullinu; Pogner í Meistara-
söngvurunum; Daland í Hollend-
ingnum fljúgandi; Hinrik konung í
Lohengrin; Gurnemanz í Parsifal og
risanum Fáfni og illmennið Högna í
Niflungahringnum.
Bjarni hefur verið fastagestur í
Ríkisóperunni í Berlín auk þess að
koma fram í flestum helstu óperu-
húsum Evrópu, s.s. í París, Verona,
Flórens, Palermo, Róm, Amsterdam,
Hamborg, Dresden, Frankfurt,
München, Düsseldorf, Köln og Lissa-
bon, sem og í Chicago.
Bjarni söng hlutverk Osmin í
Brottnáminu úr kvennabúrinu hjá Ís-
lensku óperunni haustið 2006 og
hlaut Grímuna sem söngvari ársins
Bjarni Thor Kristinsson óperusöngvari – 50 ára
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Setur upp heila óperu
í tilefni afmælis síns
Glæsilegt söngvapar Bjarni
Thor Kristinsson með sam-
býliskonu sinni, Lilju Guð-
mundsdóttur óperusöngkonu.
Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Unnið í samvinnu við viðmælendur.
Börn og brúðhjón
Allir þeir sem senda blaðinu
mynd af nýjum borgara eða
mynd af brúðhjónum fá fría
áskrift að Morgunblaðinu í
einn mánuð.
Hægt er að senda mynd
og texta af slóðinnimbl.
is/islendingar eða á
islendingar@mbl.is
Á „Íslendinga“ síðum
Morgunblaðsins er
meðal annars sagt frá
merkum viðburðum
í lífi fólks, svo sem
hjónavígslum,
barnsfæðingum
eða öðrum
tímamótum.