Morgunblaðið - 31.05.2017, Page 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 31. MAÍ 2017
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/senda grein Prentun Landsprent ehf.
Auðun Georg Ólafsson
audun@mbl.is
Útvarpsstöðin K100, sem er í eigu
Árvakurs sem á og rekur meðal
annars Morgunblaðið og mbl.is, hóf í
morgun útsendingu á vefnum og í
sjónvarpi. K100 er fyrsta útvarps-
stöðin hér á landi sem sendir út
dagskrá sína samtímis í útvarpi,
sjónvarpi og á vefnum. Áfram er
hægt að hlusta á stöðina á útvarps-
tíðninni FM100,5 en nú er einnig
hægt að nálgast útsendinguna í tölv-
um og snjallsímum á k100.is og á
mbl.is. Að auki er K100 í beinni út-
sendingu á stöð 30 í sjónvarpi Sím-
ans.
Tónlistarmyndbönd eru sýnd sam-
hliða þeirri tónlist sem leikin er, auk
þess sem hægt er að sjá viðtöl og
annað dagskrárefni í beinni á milli
laga. Útsendingakerfið er sér-
staklega sniðið fyrir K100 og er al-
gjörlega sjálfvirkt.
Í samvinnu við ritstjórn mbl.is og
Morgunblaðsins eru nú fréttir flutt-
ar á klukkutíma fresti á K100 alla
virka daga, frá klukkan sjö á morgn-
ana til sex síðdegis.
Nýr síðdegisþáttur
hefur göngu sína
Nýr síðdegisþáttur þeirra Huldu
Bjarnadóttur og Sighvats Jónssonar,
sem hlotið hefur nafnið Magasínið,
fer í loftið síðdegis. „Þátturinn er
fyrir fólk sem hefur skoðanir og vill
fylgjast með en ekki síður fyrir fólk
sem þorir að vera áfram ungt í anda
og taka sig ekki of alvarlega. Það er
létt yfir stöðinni og þannig verður
þátturinn einnig uppbyggður,“ segir
Hulda.
„Það eru spennandi tímar í fjöl-
miðlum í dag þar sem þróunin er
ör,“ segir Magnús E. Kristjánsson,
útvarpsstjóri K100. „Sérstaða K100
er að um er að ræða fyrstu útvarps-
stöðina á Íslandi sem verður „útvarp
í mynd“. Slíkt býður upp á gagn-
virkari tengsl við hlustendur og
áhorfendur en áður hefur þekkst í
íslenskum fjölmiðlum.“
Nálgast fólk með
fjölbreyttari hætti
Haraldur Johannessen, ritstjóri
Morgunblaðsins og framkvæmda-
stjóri Árvakurs, segir að þessi miss-
erin eigi sér stað mikil umbylting í
fjölmiðlaheiminum, ekki síst hér á
landi. „Við sjáum fjölmiðla í miklum
vanda víða, rótgróna miðla falla og
fjölmiðlasamsteypur liðast í sundur.
Árvakur hefur tekið þá afstöðu að til
að þrífast og dafna í því breytta um-
hverfi sem fjölmiðlar búa við þurfi
að nálgast fólk með fjölbreyttari
hætti en áður. Það þurfi að sækja
fram á nýjum sviðum fjölmiðlunar
en líka að sækja fram með nýjum
hætti. Þess vegna réðst Árvakur í
það fyrir nokkrum mánuðum að
hefja útvarpsrekstur með kaupum á
stöðvunum K100 og Retró. Í dag
kynnum við fyrstu verulegu breyt-
ingarnar á þeim rekstri og í raun
byltingu í útvarpi hér á landi þegar
við setjum í loftið útvarp í mynd.
Hér eftir mun fólk ekki aðeins geta
hlustað á K100 í hefðbundnu útvarpi
heldur getur það einnig horft á það
á mbl.is og í Sjónvarpi Símans.
Við erum líka byrjuð með fréttir í
útvarpi sem byggjast á þeirri öflugu
ritstjórn sem er á mbl.is og Morgun-
blaðinu. Með þeim ná fréttir okkar
nýjum hópi, til dæmis fólki sem er á
ferðinni, sem fær snarpar og áreið-
anlegar fréttir á heila tímanum.“
Hljóðmogginn fyrir áskrifendur
„Önnur nýjung sem við erum að
bjóða fólki á ferðinni er það sem við
köllum Hljóðmoggann, sem er upp-
lestur á helsta efni Morgunblaðsins
dag hvern. Þetta er ætlað áskrif-
endum blaðsins sem vilja nota tím-
ann á leið í vinnu, í ræktinni á
morgnana eða við aðrar aðstæður
þar sem ekki er hægt að setjast nið-
ur og lesa blað.
Með þessum nýjungum viljum við
nýta tæknina til að bjóða þjónustu
okkar á þann hátt að fólk eigi greið-
an aðgang að henni við hvaða að-
stæður sem er, hvort sem er í ann-
ríki dagsins eða þegar tóm gefst til
að setjast niður og njóta lestrar. Við
teljum að þetta sé það sem fólk í
dag kallar eftir í fjölbreyttari og
flóknari heimi og erum mjög spennt
yfir því að geta mætt þessari þörf.“
»44, 46, 47, 50, 84.
Morgunblaðið/Hanna
Kynning Útsendingar útvarpsstöðvarinnar K100 á vefnum og í sjónvarpi voru kynntar á fundi starfsmanna Árvakurs í gær ásamt fleiri nýjungum.
Fyrsta íslenska útvarpið í mynd
Fréttalestur hafinn á K100 Útvarpið sýnt beint í mynd á mbl.is og í Sjónvarpi Símans Nýr síð-
degisþáttur, Magasínið Áskrifendum býðst að hlusta á það helsta úr Morgunblaðinu í símanum sínum
K100 Auðun Georg Ólafsson, Sigríður Elva Vilhjálmsdóttir og Hulda Bjarnadóttir í stúdíói að undirbúa útsendingu.
Nýtt Haraldur Johannessen kynnir
nýjungar í starfsemi Árvakurs.
Morgunblaðið/Golli
KRÍT
5. júní í 10 nætur
Bókaðu sól á
Bir
tm
eð
fyr
irv
ar
au
m
pr
en
tvi
llu
r.
He
im
sfe
rð
ir
ás
kil
ja
sé
rr
étt
til
lei
ðr
étt
ing
aá
slí
ku
.A
th.
að
ve
rð
ge
tur
br
ey
st
án
fyr
irv
ar
a.
Frá kr.
64.995
Netverð á mann frá kr. 64.995 m.v. 2 fullorðna og
1 barn í gistingu. Netverð á mann frá kr. 69.995
m.v. 2 fullorðna í gistingu.
Stökktu