Morgunblaðið - 31.05.2017, Side 47
47
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 31. MAÍ 2017
Falleg gluggatjöld
fyrir falleg heimili
Mikið úrval af
gluggatjaldefnum
Z-Brautir og gluggatjöld
Faxafeni 14 - 108 Reykjavík - S. 525 8200
Opið mán.-fös. 10-18, lau. 11-15
Mælum saumum og setjum upp
Auðun Georg Ólafsson
audun@mbl.is
„Við Hulda höfum þó nokkra
reynslu af morgun- og síðdeg-
isþáttum frá fyrri útvarpsstörfum
sem sannarlega nýtist okkur vel í
dag,“ segir Hvati. „Þátturinn er
sniðinn að nýjum tímum, nýjum
samskiptaleiðum og nýrri tækni.
Útvarpsstöðin K100 gengur í
gegnum spennandi tíma þessa
dagana. Við tökum þátt í þeirri
umbreytingu af krafti með því að
leiða líflega dægurmála- og
lífsstílsumræðu fyrir Íslendinga á
leið heim úr vinnu á hverjum degi.
Síðdegisþátturinn verður svo
sannarlega ekki hefðbundinn
fréttatengdur dægurmálaþáttur.
Við ætlum að nálgast allt efni á
nýjan hátt, meðal annars með
nýrri tækni sem mun skapa K100
sérstöðu meðal íslenskra útvarps-
stöðva,“ segir Hvati og bætir við
að það sé frábært að fá tækifæri
til að starfa með Huldu á ný, en
þau unnu fyrst saman í morg-
unþættinum Hvati og félagar á
FM957 árin 1998-2001.
„Okkur Huldu þykir mjög vænt
um að ein af fyrirmyndum okkar í
útvarpi, Jón Axel Ólafsson, hafi
leitað til okkar og leitt okkur sam-
an vegna þessa spennandi verk-
efnis, en hann er starfsfólki á
K100 innan handar við þær breyt-
ingar sem nú standa yfir. Það er
gaman að vera hluti af útvarps-
landsliðinu á K100 á spennandi
tímum,“ segir Hvati.
Taka þátt í lífi fólks
„Þátturinn er fyrir fólk sem hef-
ur skoðanir og vill fylgjast með en
ekki síður fyrir fólk sem þorir að
vera áfram ungt í anda og taka sig
ekki of alvarlega. Það er létt yfir
stöðinni og þannig verður þátt-
urinn einnig uppbyggður,“ segir
Hulda. „Við ætlum að vera á með-
al fólks, taka þátt í lífi þess, líkt
og við gerum á hverjum degi á
samfélagsmiðlum. Líklega er þetta
upphafið á kynslóðabreytingu í ís-
lensku útvarpi. Það er spennandi
að koma að uppbyggingunni hjá
Árvakri enda metnaðarfullt og
hæfileikaríkt fólk fyrir hjá fyr-
irtækinu. Ég hlakka til að starfa
með þessu landsliði í útvarpi sem
er mætt til leiks á K100 –
FM100,5 – og því fagfólki sem fyr-
ir er á miðlum Árvakurs,“ segir
Hulda.
Spennandi tímar hjá Árvakri
Samhliða störfum á K100 er
Hulda forstöðumaður þróunarmála
Árvakurs, sem m.a. gefur út
Morgunblaðið, rekur fréttavefinn
mbl.is og Eddu útgáfu. „Árvakur
er eins og önnur fjölmiðlafyrir-
tæki að takast á við breytt um-
hverfi og er rekstur útvarps
áhugaverð viðbót við aðra starf-
semi félagsins í ljósi þeirra tæki-
færa sem skapast við samspil
ólíkra miðla,“ segir Hulda. Hún er
með BSc í viðskiptafræði og MBA
frá HR og hefur síðastliðið ár leitt
Alþjóðasvið Viðskiptaráðs Íslands.
Hún hefur verið í forsvari fyrir fé-
lagasamtökin KRAFT, stuðnings-
félag fyrir ungt fólk með krabba-
mein og einnig fyrir Félag kvenna
í atvinnulífinu (FKA). Hún var
dagskrárstjóri á útvarpssviði
Norðurljósa, fyrirrennara 365. Þá
hefur hún sinnt dagskrárgerð á
Bylgjunni og FM957 og í sjón-
varpi og starfað við útsending-
arstjórn.
Margmiðlandi útvarp
Sighvatur Jónsson, Hvati, er
menntaður margmiðlunarhönn-
uður og tölvunarfræðingur frá
Danmörku. Hann segir að út-
varpsstöðin K100 verði meira en
útvarp. „Það er draumi líkast að
fá tækifæri til að taka þátt í þeim
breytingum sem eiga sér stað í
miðlun þessi misserin. Meðal
tækninýjunga á K100 er mynda-
vélakerfi sem gerir útvarpsstöðina
í raun að sjónvarpsstöð. Með ein-
földum hætti getum við því miðlað
efni úr þáttum stöðvarinnar hratt
á vef og deilt því um samfélags-
miðla.
Útvarpshlustun er með ýmsum
hætti í dag, fólk getur hlustað á
gamla góða útvarpið, í gegnum net
og sjónvarp. Þá er sífellt meira
um að fólk sæki sér sjálft það efni
sem það vill hlusta og horfa á þeg-
ar því hentar. Með áherslu á nýjar
samskiptaleiðir og tækni er K100
leiðandi á þessu sviði á Íslandi,
miðill sem er byggður að grunni
til á umgjörð útvarpsins, en er í
senn margmiðlandi efnisveita,“
segir Hvati, sem hefur ríflega 20
ára reynslu í íslenskum fjöl-
miðlum. Hann byrjaði í útvarpi á
FM957 árið 1996; flutti sig yfir á
Bylgjuna árið 2001 og á frétta-
stofu Stöðvar 2 árið 2003. Hann
hefur einnig unnið sem fréttamað-
ur hjá RÚV um árabil. Undan-
farin 12 ár hefur Hvati rekið eigið
framleiðslufyrirtæki, SIGVA
media, þar sem hann hefur fram-
leitt útvarps- og sjónvarpsefni fyr-
ir RÚV, 365 miðla og N4 ásamt
framleiðslu eigin heimildarmynda.
Síðustu sjö ár hefur Hvati verið
umsjónarmaður Vinsældalista
Rásar 2.
Lifandi Magasín
Undanfarna daga hafa Hulda og
Hvati unnið hörðum höndum að
undirbúningi nýja þáttarins, Mag-
asínið, sem fer í loftið í dag klukk-
an 16.
„Frá því að tilkynnt var um
þáttinn okkar Hvata höfum við
mikið verið spurð um tvennt, ann-
ars vegar um hvernig þáttur þetta
verði og hins vegar um hvað hann
eigi að heita. Við veltum vöngum
yfir þessu í nokkra daga og rædd-
um við samstarfsfélaga okkar á
K100 um ýmsar hugmyndir,“ segir
Hulda. „Nafn þáttarins var eigin-
lega fyrir framan okkur allan tím-
ann,“ bætir Hvati við. „Þegar við
vorum spurð um þáttinn sögðum
við alltaf að þetta yrði magas-
ínþáttur, sem er mikið notað orð í
fjölmiðlabransanum um þætti eins
og þennan þar sem fjölbreyttu
efni er raðað saman eins og við
vinnslu tímarits. Okkur þykir líka
skemmtileg myndlíkingin að þátt-
urinn er eins og magasín þar sem
er mikið af áhugaverðum hlutum
og fólki,“ segir Hulda. „Vinnan við
undirbúning þáttarins hefur verið
mikil en mjög skemmtileg,“ segir
Hvati og bætir við að hann og
Hulda séu mjög spennt að opna
Magasínið.
Morgunblaðið/Ófeigur
Þátturinn Hulda Bjarnadóttir og Sighvatur Jónsson stjórna nýjum síðdegisþætti á K100 sem heitir Magasínið.
Magasínið – kraftmikill og
líflegur síðdegisþáttur
Hulda Bjarnadóttir og Sighvatur „Hvati“ Jónsson hafa gengið til liðs við K100 – FM100,5 – þar sem þau stýra dægurmála- og lífsstílsþætt-
inum Magasínið, sem er í loftinu á hverjum virkum degi á milli kl. 16 og 18. Þátturinn verður líflegur og upplýsandi, í takti við þá skemmtilegu
stemmningu sem ríkir á K100, og er hluti af nýjungum á K100 sem er ætlað að efla starfsemi stöðvarinnar enn frekar.
Síðdegisþáttur sniðinn að nýjum tímum og samskiptaleiðum