Morgunblaðið - 31.05.2017, Side 47

Morgunblaðið - 31.05.2017, Side 47
47 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 31. MAÍ 2017 Falleg gluggatjöld fyrir falleg heimili Mikið úrval af gluggatjaldefnum Z-Brautir og gluggatjöld Faxafeni 14 - 108 Reykjavík - S. 525 8200 Opið mán.-fös. 10-18, lau. 11-15 Mælum saumum og setjum upp Auðun Georg Ólafsson audun@mbl.is „Við Hulda höfum þó nokkra reynslu af morgun- og síðdeg- isþáttum frá fyrri útvarpsstörfum sem sannarlega nýtist okkur vel í dag,“ segir Hvati. „Þátturinn er sniðinn að nýjum tímum, nýjum samskiptaleiðum og nýrri tækni. Útvarpsstöðin K100 gengur í gegnum spennandi tíma þessa dagana. Við tökum þátt í þeirri umbreytingu af krafti með því að leiða líflega dægurmála- og lífsstílsumræðu fyrir Íslendinga á leið heim úr vinnu á hverjum degi. Síðdegisþátturinn verður svo sannarlega ekki hefðbundinn fréttatengdur dægurmálaþáttur. Við ætlum að nálgast allt efni á nýjan hátt, meðal annars með nýrri tækni sem mun skapa K100 sérstöðu meðal íslenskra útvarps- stöðva,“ segir Hvati og bætir við að það sé frábært að fá tækifæri til að starfa með Huldu á ný, en þau unnu fyrst saman í morg- unþættinum Hvati og félagar á FM957 árin 1998-2001. „Okkur Huldu þykir mjög vænt um að ein af fyrirmyndum okkar í útvarpi, Jón Axel Ólafsson, hafi leitað til okkar og leitt okkur sam- an vegna þessa spennandi verk- efnis, en hann er starfsfólki á K100 innan handar við þær breyt- ingar sem nú standa yfir. Það er gaman að vera hluti af útvarps- landsliðinu á K100 á spennandi tímum,“ segir Hvati. Taka þátt í lífi fólks „Þátturinn er fyrir fólk sem hef- ur skoðanir og vill fylgjast með en ekki síður fyrir fólk sem þorir að vera áfram ungt í anda og taka sig ekki of alvarlega. Það er létt yfir stöðinni og þannig verður þátt- urinn einnig uppbyggður,“ segir Hulda. „Við ætlum að vera á með- al fólks, taka þátt í lífi þess, líkt og við gerum á hverjum degi á samfélagsmiðlum. Líklega er þetta upphafið á kynslóðabreytingu í ís- lensku útvarpi. Það er spennandi að koma að uppbyggingunni hjá Árvakri enda metnaðarfullt og hæfileikaríkt fólk fyrir hjá fyr- irtækinu. Ég hlakka til að starfa með þessu landsliði í útvarpi sem er mætt til leiks á K100 – FM100,5 – og því fagfólki sem fyr- ir er á miðlum Árvakurs,“ segir Hulda. Spennandi tímar hjá Árvakri Samhliða störfum á K100 er Hulda forstöðumaður þróunarmála Árvakurs, sem m.a. gefur út Morgunblaðið, rekur fréttavefinn mbl.is og Eddu útgáfu. „Árvakur er eins og önnur fjölmiðlafyrir- tæki að takast á við breytt um- hverfi og er rekstur útvarps áhugaverð viðbót við aðra starf- semi félagsins í ljósi þeirra tæki- færa sem skapast við samspil ólíkra miðla,“ segir Hulda. Hún er með BSc í viðskiptafræði og MBA frá HR og hefur síðastliðið ár leitt Alþjóðasvið Viðskiptaráðs Íslands. Hún hefur verið í forsvari fyrir fé- lagasamtökin KRAFT, stuðnings- félag fyrir ungt fólk með krabba- mein og einnig fyrir Félag kvenna í atvinnulífinu (FKA). Hún var dagskrárstjóri á útvarpssviði Norðurljósa, fyrirrennara 365. Þá hefur hún sinnt dagskrárgerð á Bylgjunni og FM957 og í sjón- varpi og starfað við útsending- arstjórn. Margmiðlandi útvarp Sighvatur Jónsson, Hvati, er menntaður margmiðlunarhönn- uður og tölvunarfræðingur frá Danmörku. Hann segir að út- varpsstöðin K100 verði meira en útvarp. „Það er draumi líkast að fá tækifæri til að taka þátt í þeim breytingum sem eiga sér stað í miðlun þessi misserin. Meðal tækninýjunga á K100 er mynda- vélakerfi sem gerir útvarpsstöðina í raun að sjónvarpsstöð. Með ein- földum hætti getum við því miðlað efni úr þáttum stöðvarinnar hratt á vef og deilt því um samfélags- miðla. Útvarpshlustun er með ýmsum hætti í dag, fólk getur hlustað á gamla góða útvarpið, í gegnum net og sjónvarp. Þá er sífellt meira um að fólk sæki sér sjálft það efni sem það vill hlusta og horfa á þeg- ar því hentar. Með áherslu á nýjar samskiptaleiðir og tækni er K100 leiðandi á þessu sviði á Íslandi, miðill sem er byggður að grunni til á umgjörð útvarpsins, en er í senn margmiðlandi efnisveita,“ segir Hvati, sem hefur ríflega 20 ára reynslu í íslenskum fjöl- miðlum. Hann byrjaði í útvarpi á FM957 árið 1996; flutti sig yfir á Bylgjuna árið 2001 og á frétta- stofu Stöðvar 2 árið 2003. Hann hefur einnig unnið sem fréttamað- ur hjá RÚV um árabil. Undan- farin 12 ár hefur Hvati rekið eigið framleiðslufyrirtæki, SIGVA media, þar sem hann hefur fram- leitt útvarps- og sjónvarpsefni fyr- ir RÚV, 365 miðla og N4 ásamt framleiðslu eigin heimildarmynda. Síðustu sjö ár hefur Hvati verið umsjónarmaður Vinsældalista Rásar 2. Lifandi Magasín Undanfarna daga hafa Hulda og Hvati unnið hörðum höndum að undirbúningi nýja þáttarins, Mag- asínið, sem fer í loftið í dag klukk- an 16. „Frá því að tilkynnt var um þáttinn okkar Hvata höfum við mikið verið spurð um tvennt, ann- ars vegar um hvernig þáttur þetta verði og hins vegar um hvað hann eigi að heita. Við veltum vöngum yfir þessu í nokkra daga og rædd- um við samstarfsfélaga okkar á K100 um ýmsar hugmyndir,“ segir Hulda. „Nafn þáttarins var eigin- lega fyrir framan okkur allan tím- ann,“ bætir Hvati við. „Þegar við vorum spurð um þáttinn sögðum við alltaf að þetta yrði magas- ínþáttur, sem er mikið notað orð í fjölmiðlabransanum um þætti eins og þennan þar sem fjölbreyttu efni er raðað saman eins og við vinnslu tímarits. Okkur þykir líka skemmtileg myndlíkingin að þátt- urinn er eins og magasín þar sem er mikið af áhugaverðum hlutum og fólki,“ segir Hulda. „Vinnan við undirbúning þáttarins hefur verið mikil en mjög skemmtileg,“ segir Hvati og bætir við að hann og Hulda séu mjög spennt að opna Magasínið. Morgunblaðið/Ófeigur Þátturinn Hulda Bjarnadóttir og Sighvatur Jónsson stjórna nýjum síðdegisþætti á K100 sem heitir Magasínið. Magasínið – kraftmikill og líflegur síðdegisþáttur Hulda Bjarnadóttir og Sighvatur „Hvati“ Jónsson hafa gengið til liðs við K100 – FM100,5 – þar sem þau stýra dægurmála- og lífsstílsþætt- inum Magasínið, sem er í loftinu á hverjum virkum degi á milli kl. 16 og 18. Þátturinn verður líflegur og upplýsandi, í takti við þá skemmtilegu stemmningu sem ríkir á K100, og er hluti af nýjungum á K100 sem er ætlað að efla starfsemi stöðvarinnar enn frekar. Síðdegisþáttur sniðinn að nýjum tímum og samskiptaleiðum

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.