Morgunblaðið - 31.05.2017, Side 60
FERÐALÖG
Bergljót Friðriksdóttir
beggo@mbl.is
Á Karlsstöðum í Berufirði hafa
tónlistarhjónin Berglind Häsler og
Svavar Pétur Eysteinsson, betur
þekktur sem Prins Póló, skotið rót-
um og starfrækja gistiheimili, mat-
stofu, lífræna grænmetisrækt,
snakkgerð og ýmsa menningar-
starfsemi undir merki Havarí. Á
síðasta ári umbreyttu þau gömlu
hlöðunni í kaffihús og tónleikastað
og nú eru þau að ljúka við að
breyta fjárhúsinu í gistihús, sem
tekið verður í notkun í júní. „Við
höfum fram til þessa leigt gamla
bæinn á Karlsstöðum út til ferða-
manna en nýtt gistihús leysir hann
af hólmi. Það mun rúma um 30
gesti og hægt verður að velja um
uppbúin rúm, kojur eða fjölskyldu-
herbergi,“ segir Berglind.
Lífræn ræktun
„Veitinga- og viðburðarýmið
Havarí var opnað aftur í mars eftir
vetrarfrí og þar bjóðum við upp á
grænmetisrétti úr heimaræktuðu
hráefni, nýbakað brauð og sæt-
meti. Í júní opnar myndlistarkonan
Sara Riel þar sýningu sína og fram
undan er þétt tónleikadagskrá, en
meðal þeirra sem koma fram hér í
sumar eru President Bongo, Lay
Low, Sóley, Mugison, FM Belfast,
Valdimar, Moses Hightower og
Lára Rúnars. Við Svavar göngum
hér í öll verk, hvort sem þau snúa
að matreiðslu, grænmetisrækt,
vöruþróun, bulsugerð, húsasmíðum
eða þrifum og Prins Póló mun
örugglega líka spila í sumar við
einhver vel valin tækifæri.“
En hvernig kom það til að þau
hjónin ákváðu fyrir þremur árum
að flytja frá Reykjavík, setjast að á
Karlsstöðum ásamt þremur börn-
um og snúa sér að grænmetisrækt,
matvælaframleiðslu, veitinga- og
gistihúsarekstri? „Okkur langaði
að hvíla okkur á borginni og kom-
ast út í sveit,“ útskýrir Berglind.
„Svavar á ættir að rekja hingað
austur, móðurafi hans og amma
voru bændur á Berunesi, næsta bæ
við Karlsstaði, og hann var þar í
sveit sem barn. Það stóð samt ekki
til í byrjun að flytjast akkúrat
hingað. Jörðin Karlsstaðir hafði
reyndar verið í sölu um nokkur
skeið, okkur fannst þetta samt svo-
lítið langt frá fjölskyldu og vinum í
borginni og skoðuðum ýmislegt
annað en sáum svo að hér fengjum
við mest jarðnæði fyrir peninginn.
Svo er Austurland líka frábær
staður til að búa
á.“
Á Karls-
stöðum er stund-
uð metnaðarfull
grænmetisrækt
sem hlaut líf-
ræna vottun hjá
Túni á síðasta
ári. Berglind og
Svavar rækta
kartöflur, gulróf-
ur, grænkál og
rabarbara og eru
að fikra sig
áfram með aðrar
tegundir. Þau
hafa lagt mikla
vinnu í þróun og
framleiðslu sæl-
keravöru, með
góðum árangri.
Fyrst settu þau á
markað hinar vinsælu Bulsur,
grænmetispylsur úr lífrænu byggi
og baunum, og Sveitasnakk úr líf-
rænu grænmeti sem kom í versl-
anir á síðasta ári hefur fengið slík-
ar viðtökur að þau anna ekki
eftirspurn.
Bulsur og snakk
„Bulsur eru ólíkar öðrum inn-
fluttum grænmetispylsum að flestu
leyti, ekki síst vegna þess að þær
innihalda ekki soja heldur ýmiss
konar heilsusamleg mjöl og fræ,
svo sem chia-fræ, hörfræ og
möndlumjöl,“ segir Berglind.
„Sveitasnakk hefur mælst mjög vel
fyrir hjá matgæðingum, en það
fæst í völdum verslunum í Reykja-
vík og á landsbyggðinni. Við byrj-
uðum með framleiðslu á Gulrófus-
nakki, færðum okkur svo yfir í
Grænkálsflögur og nýjastar eru
Kartöfluflögur, sem féllu strax í
kramið hjá neytendum.
Kartöfluflögurnar frá Karls-
stöðum eru þær fyrstu sinnar gerð-
ar sem framleiddar eru á Íslandi
og reyndar var búið að segja okkur
að þetta væri vonlaust verkefni.
Við erum því ákaflega ánægð með
þessa nýjustu afurð okkar, brak-
andi stökkt gullauga, saltað með ís-
lensku sjávarsalti. Eftirspurnin er
slík að við þyrftum að framleiða
miklu meira af Sveitasnakki og er-
um nú að skoða leiðir til að stækka
framleiðslueldhúsið.“
Diskó í hlöðunni
Að Karlsstöðum verður opið
allt árið og síðasta vetur var tals-
vert um ferðalanga, að sögn Berg-
lindar. „Þeir sem hingað koma og
gista eru fyrst
og fremst er-
lendir ferða-
menn. Íslend-
ingar á ferð um
landið sækja
frekar í aðra
þjónustu hjá
okkur og eru
duglegir að
renna hingað á
tónleika. Fólk
kemur frá
Djúpavogi, nær-
liggjandi fjörð-
um, Borgarfirði
eystra, Héraði
og Höfn og yfir
hásumarið telur
fólk það nú ekki
eftir sér að
keyra eða fljúga
frá Reykjavík til
að taka sporið í diskóhlöðunni.
Sjálf er ég orðin ósköp heima-
kær. Þegar við fluttumst hingað
2014 var ég í byrjun eirðarlaus og
gerði mér ferðir á nærliggjandi
bæi og kaffihús á Djúpavogi eins
oft og ég mögulega gat. Núna hef-
ur þetta alveg snúist við. Ég panta
allar helstu nauðsynjar og fæ send-
ar og fer helst ekki af bæ. Yngstu
börnin tvö eru í leikskóla og grunn-
skóla á Djúpavogi og ferðast á milli
í skólabílnum. Auðvitað fer ég af
og til suður til Reykjavíkur, Prins
Póló þó mun oftar, og fjölskylda og
vinir eru dugleg að heimsækja okk-
ur. Við Svavar kunnum vel við okk-
ur í nýju hlutverki og það var góð
ákvörðun að flytja frá borginni og
gerast bændur á Karlsstöðum.“
www.havari.is
Havarí í sveitinni
Fyrir þremur árum kvöddu tónlistarhjónin Berglind Häsler og Prins Póló, Svavar Pétur Ey-
steinsson, höfuðborgina og settust að á bænum Karlsstöðum í Berufirði. Þar starfrækja
þau gistihús í gömlu fjárhúsunum, reka kaffihús og tónleikastað í hlöðunni og framleiða
brakandi stökkt Sveitasnakk úr lífrænt ræktuðu grænmeti.
Hlaðan Kaffihús og vinsæll tónleikastaður er á Karlsstöðum.
Prins Póló Svavar Pétur Eysteinsson tónlistarmaður rekur Havarí með eig-
inkonu sinni Berglindi Häsler. Hans hátign unir sér vel í sveitinni.
Verkefnin Berglind Häsler, bóndi og veitingakona á Karlsstöðum: „Við
Svavar göngum hér í öll verk, hvort sem þau snúa að matreiðslu, grænmet-
isrækt, vöruþróun, Bulsugerð, húsasmíðum eða þrifum.“
Bulsur Ljúffengar grænmetis-
pylsur, frá Karlsstöðum.