Morgunblaðið - 31.05.2017, Side 12

Morgunblaðið - 31.05.2017, Side 12
12 DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 31. MAÍ 2017 Ungviði Lúlli unir sér best með systrunum Heklu og Sölku, barnabörnum Guðrúnar. Hann leggur sig oft hjá Heklu. Kristín Heiða Kristinsdóttir khk@mbl.is Hann hét nú fyrst Krílikrútt, af því að hann varagnarsmár, en þegarhann fékk skitu þá köll- uðum við hann Lúlla lambaskitu. Núna heitir hann bara Lúlli,“ segir Guðrún Hálfdánardóttir, bóndi á Söndum í Miðfirði, en á heimili hennar er nokkuð óvenjulegt gælu- dýr, fyrrnefndur Lúlli sem er lamb. „Lúlli er fyrirburi sem kom í heiminn afar veikburða og honum var vart hugað líf, en ég reyni alltaf að koma lasburða lömbum á legg ef ég mögulega get, svo ég tók hann inn í bæ og hlýjaði honum með því að leggja hann á bringuna. Sagði þá í gamni að ég hefði haft hann á brjósti,“ segir Guðrún og hlær og bætir við að Lúlli sé mikill gleðigjafi og einstaklega þæg- ur og meðfærilegur. „Nema reyndar þegar hann er að grenja á nóttunni, það er ekki vin- sælt. En núorðið hef ég hann frammi yfir nóttina til að koma í veg fyrir að hann veki litlu barnabörnin okkar sem eru hjá okkur núna tímabundið ásamt Silju móður sinni sem er í fæðingarorlofi. Lúlli má samt eiga það að hann jarmar ekki nema þegar hann vill fá mjólkursopann sinn, úr pelanum. Reyndar grætur hann ógurlega ef ég set hann út, hann vill bara vera inni í húsi með okkur mannfólkinu. Allra best finnst hon- um að liggja á teppinu hjá Heklu litlu barnabarni mínu sem er fjög- urra mánaða, hann vill kúra þar og sofa. Hann sefur enn mjög mikið, rétt eins og lítið barn. Hann er ævin- lega tekinn upp og fær að kúra hjá öllu heimilisfólkinu, enda er hann mikið kúrudýr.“ Guðrún segir að lítið líf hafi ver- ið í Lúlla þegar hann leit fyrst heimsins ljós. „Hann er fæddur tvílembingur en hitt lambið var löngu dautt inni í móðurinni. Hann var brothættur og óskaplega smár og er enn mjög lítill. Hann var lítilfjörlegur og þegar hann var tveggja vikna varð hann máttlaus og slappur í fótunum, þá fór ég með hann til dýralæknis sem gaf honum væna vítamínsprautu. Þá hresstist hann við, hann vantaði púst, en þó hafði ég passað að gefa honum kraftmikinn brodd og hvað- eina.“ Lúlli fékk að prófa snuð Lúlli er orðinn mánaðargamall og hefur fengið að prófa ýmsa hluti á stuttri ævi sem önnur lömb sem ganga undir kindum fá ekki að reyna. Hann er til dæmis alltaf með bleyju því ekki gengur að hann pissi og kúki út um allt hús, en hann losn- ar við bleyjuna þegar hann er settur út í garð til að viðra sig. Hann klæð- ist samfellu, fyrst og fremst til að bleyjan haldist á sínum stað. Hann hefur fengið að prófa snuð frá yngsta fjölskyldumeðlimnum og kunni því vel, og hann er sérlega spenntur fyrir pappír og hefur gert þó nokkuð af því að narta í síma- skrána. Hann hefur líka gert þó nokkuð af því að tína saman blöð. „Lúlli kynntist lambavinkonu sem varð móðurlaus, henni Móu, en honum var ekkert um hana gefið, hún var miklu stærri en hann og nokkuð aðgangshörð, vildi sjúga á honum eyrun, sem honum var ekki að skapi. Hann vill ekki sjá önnur lömb og hann var ósköp feginn þeg- ar Móa eignaðist nýja mömmu og flutti aftur út af heimilinu. En hann er ágætur vinur hundanna þriggja hér á bænum þó þeir skipti sér lítið af honum, þeir snuddast aðeins í honum. Ég kynnti Lúlla fyrir tveim- ur hænuungum, en þeir voru greini- lega hálfbjánalegir að hans mati.“ Guðrún segist vera alvön að koma lífi í lömb sem eru léleg við burð, stundum takist það, stundum ekki, en hún reyni alltaf. „Ég man sérstaklega eftir henni Seiglu sem ég kom á legg, það var lamb sem lenti í því að ofan í það fór mikið legvatn við burð. Það var mikil hrygla í Seiglu og ég tók hana inn í hús í gjörgæslu og gaf henni sykurvatn. Ég sat með hana á kvöld- in og lét hana liggja með hausinn niður og bankaði soldið í hana og þannig náði ég að losa slímið upp úr henni, smátt og smátt. Þetta tók heila viku en hafðist,“ segir Guðrún og bætir við að hún baði líflítil lömb upp úr volgu vatni, þurrki þau og noti jafnvel hárblásara, og þegar þau fara sjálf að skjálfa þá sé þeim oftast borgið. „Mig langaði líka til að halda lífi í Lúlla fyrir litlu börnin sem eru hér hjá okkur núna, þau hafa svo gaman af þessu. En ekki síður fullorðna fólkið, Gunnlaugur maðurinn minn komst að því að Lúlli hefur gaman af því að horfa á sjónvarpið þegar hann tók hann upp í stól til sín þar sem hann horfði á Útsvarið. Hingað komu gestir, litlir krakkar sem voru að keyra hann í kerru og þar svaf hann eins og ungbarn. En ég passa rosalega vel upp á hann, ég skamma krakkana hiklaust ef þau hnoðast of harkalega með hann. Hann er ekki leikfang, hann er lifandi skepna og enn viðkvæmur, þau þurfa að læra það.“ Guðrún segir að Lúlli verði heima við bæ í sumar og muni fá pel- ann sinn áfram, en hann fer líka út til að kroppa gras þegar hann stækkar. Á bænum eru um fjögur hundruð fjár en Lúlli er eini heim- alningurinn hjá þeim þetta árið, svo hann mun fá alla athyglina. Um tíma hét hann Lúlli lambaskita Þrátt fyrir smæð sína, eða kannski einmitt vegna hennar, hefur Lúlli lamb öðlast þó nokkra frægð og á sína eigin Facebook-síðu. Lúlli býr inni á heimili fjöl- skyldunnar á Söndum í Miðfirði og vill ekkert með aðrar kindur hafa. Hann er með bleyju og klæðist samfellu, sefur mikið eins og fyrirbura er háttur og er ævinlega tekinn upp og leyft að kúra í hálsakoti heim- ilisfólksins. Hann hefur eignast vinkonu í Þistilfirði, Ukulele lambastelpu, sem sendi honum mynd af sér. Kríli Hér má sjá hversu agnarsmár Lúlli var. Kósí Lúlli horfir á Útsvar með Gulla pabba. „Hún er undan gemlingi og fæddist afskaplega lítil og við áttum ekki von á að hún myndi lifa. En við tók- um hana heim til að hlúa að henni og hún varð eldspræk tiltölulega fljótt. Við höfum mjólkað kindur til að gefa henni að drekka úr pela,“ segir Karen Rut Konráðsdóttir, bóndi á Syðra-Álandi í Þistilfirði, en hún er með á heimili sínu bleyju- lamb rétt eins og Lúlli er, en litla gimbrin hennar hefur fengið nafnið Ukulele lambastelpa. Húsbóndinn á heimilinu, Ólafur Birgir, gaf henni nafnið og tengist það ekki á nokk- urn hátt hljóðfærinu. „Ukulele lambastelpa er for- dekruð rétt eins og Lúlli, við sofum til skiptis með hana á bringunni, henni líður best ef einhver nennir að halda á henni, þá þegir hún,“ segir Karen og bætir við að dætur hennar þrjár séu farnar að dúlla með lambastelpuna, klæða hana í föt og setja á hana höfuðskart. „Dóttir mín sem er fimm ára hefur mjög gaman af henni, hún rogast með hana allan daginn.“ Þegar Karen er spurð að því hvort þau ætli að reyna að koma Ukulele lambastelpu undir kind eða hafa hana sem heimalning, segir hún framtíð hennar ekki hafa verið rædda ennþá, enda sé hún aðeins nokkurra daga gömul. „Vinkona mín sem þekkir til á heimili Lúlla sagði okkur frá honum og við fórum að skoða hann á Facebook og skelltum inn mynd af lamba- stelpunni, til að kynna þau tvö, Lúlla lamb og Ukulele lambastelpu.“ Á Syðra-Álandi eru 500 kindur og aðeins 50 óbornar, og fólk er ánægt með tíðarfarið. „Ég man ekki eftir að tún hafi verið orðin svo græn sem raun ber vitni á þessum árstíma, og því getum við sleppt fénu fyrr út.“ Lítil gimbur í Þistilfirði hefur verið kynnt fyrir Lúlla Fín Ukulele lambastelpa var dubbuð upp fyrir myndatöku fyrir Lúlla. Sofa til skiptis með Ukulele lambastelpu á bringunni Hjá dýralækni Lúlli lasni var hlustaður.Alveg nýr Lúlli hjá Guðrúnu mömmu sinni. Ég passa rosalega vel upp á hann, ég skamma krakkana hik- laust ef þau hnoðast of harkalega með hann. Hann er ekki leikfang, hann er lifandi skepna.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.